Tíminn - 01.10.1964, Side 5
IÞRDTTiR
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
a
tr
I
LIS Chelsea. Aftari roS frá vlnstrl: Hinton, Hollins, Shellito, Bonetti, Dunn, Harris R., Harrls A., McCreadie. Fremrl röS: Murrey, Tambling
Graham, Houseman, Venables, Brown og Bridges.
ALFREÐ ÞORSTEINSSON SKRIFAR FRÁ LUNDÚNUM:
Byrjuðu að tínast á völl-
inn fimm tímum fyrir leik
London, 27. september.
Arsenal var engin hindrun á
sigurbraut Chelsea, sem heldur
strikinu í 1. deild og liefur nú
leikið 10 leiki án taps — og
hefur ennþá þriggja stiga for
skot. Um 55 þúsund áhorfend
ur voru á Highbury, þegar þessi
tvö Lundúnalið mættust s. 1.
laugardag. Áhuginn fyrir leikn
um var gífurlegur og voru all
ir sætismiðar uppseldir á föstu
daginn. Þetta var því góður
dagur fyrir mangarana, sem
höfðu keypt miða í tugatali
— og seldu þá svo aftur á
hækkuðu verði til þeirra, sem
elcki höfðu verið nógu forsjálir
að tryggja sér miða í tíma.
Þegar ég lagði leið mína á
skrifstofu Arsenal á Highbury
á laugardagsmorguninn til að
sækja miða, var fólk þegar far
ið að streyma að, u. þ. b. 5
tímum áður en leikurinn hófst
— og byrjaði að mynda raðir.
Það virbist svo sem Englending
ar hafi mjög gaman af því að
standa í röðum, gleggra dæmi
fékk ég eftir leikinn, þegar ég
tók lestina til baka. Á járn-
brautastöðinni í Arsenal voru
mikil þrengsli og skipuðu lög
regluþjónarnir mannfjöldanum
í tvær gagnstæðar raðir — önn
ur röðin var u. þ. b. 2 km. en
hin ekki nema um 20 m. Að
sjálfsögðu vaidi ég styttri röð
ina, en hef fyrir bragðið lík-
lega verið langt Englend-
ingseðlinu.
Veður var dásamlegt, þegar
leikurinn hófst, stillilogn og
haustsólin skein * heiði. 'ítenim
ingin. sem hafði verið 'mikil
áður en leikurinn hófst náði
hámarki. þegai dórnarinn gaf
upphafsmerkið. Hávaðinn frá
hrossabrestum varð óskaplegur
og á milli kyrjað'i mannfiöidinn
Chelsea, Chelsea!
Og strax á 1. mínútunni
skeði nokkuð, sem kom áhang-
endum Arsenal til að taka and
köf. Vegna mistaka Neill,
vinstri framv. Arsenal, náði
Bobby Tambling hægri inn-
herji — markvél Chelsea —
knettinum og æddi einn og
óhindraður upp að marki Arsen
al. En með frábæru úthlaupi
tókst markverðinum Furnell,
að stöðva hann. Eftir þetta var
Tambling vel gætt — og
kannski engin furða, því Arsen
al hafði slæma reynslu af hon-
um. Síðast, þegar Arsenal
mætti Chelsea á Higbury hafði
Chelsea unnið með 4:2 og
Tambling skorað öll fjögur
mörkin fyrir lið sitt.
Fyrri hálfleikur var mjög
skemmtilegur og hættuleg tæki
færi urðu tíl á báða bóga, en
ekkert mark var skorað. Eftir
öllum gangi hefði ekki verið
ósanngjarnt, að Chelsea hefði
haft yfir í hálfleik 2:0.
Á 12. mín. í síðari hálfleik
náði Chelsea svo forustu. Tamb
ling komst inr. í sendingu frá
HoWe, bakv. Arsenal, sem ætl-
uð var markverði, og það var
hægðarleikur einn fyrir þenn
an snjalla leikmann að skora.
Og 7 mín. síðar náði Chelsea
2:0. Venables, fyrirliði, vinstri
innherji. skaut af vítateigslínu
afar föstu skoti, sem hafnaði
efst upp í bláhorni Arsenal-
marksins hægra megin. Allur
aðdragandi var glæsilegur og
sjálft markið stórkostlegt. Sitt
eina mark skoraði Arsenal fjór
um mínútum síðar og gerði það
Court, hægri innh, eftir mis-
tök varnar Chelsea, sem ann
ars er geysigóð. Chelsea inn-
siglaði svo signrinn. 2:1. með
marki, sem Murray, hægri úth.,
skoraði 4 mín. fyrir leikslok.
Þessi sigur Chelsea var
mjög verðskuldaður — og nú
sýndi liðið ennþá betri leik en
gegn Leeds Utd. helgina áður.
Chelsea notar stutt spil, sem
er mjög árangursríkt — og oft
voru Arsenal-leikmennirnir
leiknir sundur og saman. Sókn
artríóið, Tambling, Bridges og
Venables, er mjög sterkt og
hefur gott samstarf við fram-
verðina Hollins og Harris. Hinn
skozki vinstri bakvörður liðs-
íns, McCreadie, sem keyptur
var frá East Stirling 1962, er
frábær leikmaður, sem getur
gert næstum því ailt við knött
inn. Bonetti, svissnesk-ættaður
markvörður liðsins, var mjög
góður í þessum leik.
Arsenal-liðið náði á köflum
að sýna góða knattspyrnu, en
mér fannst það nota langar
sendingar of mikið. Fyrir bragð
ið komust hinír eldsnöggu
Chelsea-leikmenn inn í margar
sendingar. Bezti maður liðsins
fannst mér enski landsliðs-inn
herjinn, Eastham. Þess má
geta, að Ure — skozki miðvörð
urinn, sem Arsenal keypti frá
Dundee og er íslenzkum knatt
spyrnuáhugamönnum að góðu
kunnur, en hann lék með
Dundee í íslandsferð 1961 — p
lék ekki með að þsssu sinni. i
Hann hefur verið frá síðustu C;
vikurnar vegna meiðlsa í fæti. |j
Eftir þennan leik heldur nú g
Chclsea enn þriggja stiga for- 1
skoti í 1. deild. Næsti leikur ®
liðsins verður miðvikudaginn k
30. september á Stamford g
Bridge og mætir það þá Manch.
Utd. sem á laugardaginn vann
Framh a 15 síðu í’í
Bonetti grípur knöttinn viS fætur Easthams.
Arsenal-Chelsea 1:3
xma
★ BANDARÍSKA frjálsíþi’ótta
i liðið, sem keppir á Olympíuleik
unum í Tokio, hafði æfingamót
| um helgina og náðist þar frá-
bær árangur, en hæst bar þó
árangurinn hjá hjónunum Olgu
og Harold Conolly, sem bæði
urðu Olympíumeistarar í Mel-
bourne. Harold kastaði sleggj-
unni 70,52 m., sem er bezti ár-
angur, sem náðst hefur í heim-
inum í ár, og Olga kastaði
kringlu 56,52 m, sem sýnir, að
hún getur veiit rússneskum
stúlkum harða keppni í Tokio.
★ STÖÐUGT fjölgar íbúum í
Olympíuþorpinu i Tokio og í
gær voru nimlega 3000 komnir
i þangað — íþrólfafólk og leið-.
j togar. Nær allir, sem taka þátt
í sundkeppninni, eru mættir
enda verður sundið fyrsta
keppnisgreinin á leikunum. —
fslenzka sundfólkið verður þó
ekki komið til Tokio fyrr en 2
dögum fyrir setningu leikanna.
★ HUDDERSFIELD vánn sinn
fyrsta sigur í 2. deild á þriðju-
daginn, þegar Iiðið sigraði Car-
diff með 3:1 og komst við það
úr neðsta sætinu í deildinni. —
Coveníry hlaut nú loksins stig
eftir fimm tapleiki í röð, gerði
jafntefli í Swansea, 1:1. North-
ampton vann Ipswich 2:1 og hef
ur aðeins tveimur stigum minna
en efstu liðin.
Oid b&ys
kikfími
Old boys-leikfimi verður í vetur
á vegum Glírnufélagsins Ármanns,
en sú starfsemi hefur notið mikilla
vinsælda á undangengnum árum.
Hér er um að ræða hressingarleik
fimi fyrir þá, sem komnir eru af
allra léttasta skeiðinu, en vilja
viðhalda líkamsþreki sínu og auka
starfskrafta sína og vellíðan með
hollum íþróttaæfingum.
I vetur verður leikfimin á
þriðjudagskvöldum kl. 8—9 og á
föstudagskvöldum sl 9—10. Æf-
ingarnar fara fram l íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu (milli salnum) og hefjast um
mánaðamótin sept. — okt. Innrit-
un er hafin á skrifstofu Ármanns
í Iþróttahúsinu, en hún er opin á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 8—10.30 síðdegis.
sími: 1 33 56.
Ungur íþróttakennari, Þorkeli
Steinar Erlendsson, hefur verið
ráðinn til starfa hjá Ármanni i
vetur, og mun hann m.a annast
kennslu hjá t'lokknum. Þor-
kel! lauk prófi frá íþróttakennara
skóla íslands fyrir nokkrum árum,
stundaði síðan framhaldsnám er-
leudis, og starfaði síðastliðið ái
sem íþróttakennari í Svíþjóð.
7 ÍMINN, fimmtudaginn 1. október 1964
3