Tíminn - 21.10.1964, Page 3

Tíminn - 21.10.1964, Page 3
r r MIÐVIKUDAGUR 21. október 1964 ” TÍMINN í SPEGLITIMANS JAPANINN Ikuo Kashima, 32 ára, lét nýlega úr höfn í Gen oa á Ítalíu og ætlar sér að sigla á litlum seglbát bæði yfir At- lantshafið og Kyrrahaf. Samkvæmt áætluninni mun hann leggja í höfn í Kobe í Japan í júlí árið 1965. Á myndinni sézt Kashima í seglbátnum í þann veginn að leggja af stað. SKAPARI nýjasta cocktails- ins, sem kallast „Blue Beat“, er þótt ftirðulegt sé leynilög- reglumaður. Hann er Englend- ingur, George Mullen að nafni, og var einn af toppmönnunum í Scotland Yard þar til hann var gerður að yfirmanni glæpa- ★ lögreglunnar á Jamaica. Þessi nýi cocktail var kynntur við mikla móttökuathöfn að hinu fræga Dorchester-hóteli í Lond on nýlega, og meðal kosta hans er sú staðreynd, að honum fylgja engir timburmenn. Upp skriftin er einföld, segir Mull- en sjálfur. Þrír skammtar af finu Jamaica-rommi, tveir af grenadinesirópi, einn af fersku sítrónusafti og fjórir af vatni. f þetta skal láta pínulítið af sherry — og síðan ís skellt í allt saman og hrært vel í. ★ TRÚAROFSTÆKI er víða í heiminum. f Hollandi eru íbú- ar bæjarins Staphorst sérlega þekktir fyrir trúarofstæki og strangar siðareglur, en þar er Calvíns-trúin allsráðandi. Ný- lega hefur lögregla bæjarins hvað eftir annað orðið að koma í veg fyrir að ofsatrúarmennim ir þar framkvæmdu það sem þeir kalla miðnættis-réttlæti gegn ungri stúlku, sem unnið hafði það til „saka“ að giftast manni, sem er helmingi eldri en hún sjálf. Þetta miðnættis- réttlæti framkvæmdu íbúarnir árið 1961, en það fólst í því að þeir tóku mann og konu, sem talin voru hafa framið hjúskap arbrot saman, tróðu þeim upp í kerru og óku þeim um götur hæjarins í 2 og hálfan tíma. — Áður en þeim var sleppt urðu þau að lofa þvi að vera maka sínum trú. — En nú hefur lög- reglan sem sagt komið í veg fvrir að slíkt endurtaki sig. — fhúarn Stapnrst eru 3000 tals- ins og sýna Calvínstrú sína m. a. með því að klæðast svörtum fötum og ganga í tréskóm. ★ MARGIR telia, að The Beat- les-vinsældir fari að dvína, en þeir hafa svo sannarlega rangt fyrir sér. Allt bendir til þess að þeir séu enn þá efstir á blaði. Á hljómleikum þeirra safnast saman fleiri unglingar en á hljómleikum nokkurra annarra. Á tæpu ári hafa selzt yfir 80 milljónir plötur sem bera nafn þeirra. Fyrsta kvik- myndin þeirra, „A hard day‘s night“ hefur gefið kvikmynda- félaginu meira i aðra hönd en nokkur önnur kvikmynd, og bók John Lennons, „In My Own Write“, er ennþá á metsölulist ★ anum víða um lönd. Ekki verð ur því annað séð, en þeir séu vinaælari en nokkru sinni fyrr. ★ KÍVERJAR hafa sprengt sína fyrstu kjarnorkusprengju, og eins og áður liefur verið sagt frá í speglinum, er talið, að tveir Kínverjar, sem Iært hafa í Bandaríkjunum, séu mennirn ir á bak við sprengjuna. Hér er mynd af öðrum þeirra, Dr. Hsue Shen Tsicn, og er mynd- in tekin þegar liann sreéri heim til Kína árið 1950 með fjölda upplýsinga í fórum sínum, en hann hafði áður verið yfirmað- ur Guggenheim Jet Propulsion Centre við California Institutc of Tecknology í Bandaríkjun- um. ♦ SUÐUR-Afríkustjórn herðir nú mjög eftirlit með því hvaða blöð, bækur, tímarit og hljóm- plötur koma inn í laredið, og taka úr umferð það, sem þeir telja að sé „óæskilegt“ fyrir í- búa landsins að Iesa og heyra. Nú nýlega bönnuðu þeir hljóm plötu sem hin heimsfræga söng- kona Lena Horne söng inn á nýlega, en þar syngur hún marga söregva, sem blökku- menn í Bandaríkjunum syngja í frelsisbaráttu sinni. Þcgar Lena heyrði um bannið, sagði hún: — „Mér hefði þótt vænt um ef þeir hefðu fengið að hlusta á hana, þeir gætu haft gott af því“. * ÁSTRALSKA húsmóðirin Helen George í Canberra, höf- uðborg Ástralíu, bað mann sinn nýlega um að láta sig fá pen- inga fyrir nýjum fötum, en eig- inmaðurinn sagði stutt og lag- gott nei! Þá tók hún til sirena mótmælaaðgerða með því að setjast nakin út í garðinn um hverfis húsið þeirra, Þessi mótmælaaðgerð hafði óhrif — ekki á manninn. heldur á ná- grannakonurnar sem komu og gáfu Helenu ný föt. Þær voru nefnilega orðrear þreyttar á því að sjá eiginmenn sina standa aHtaf við gluggana og horfa á frá George! LÍFIÐ á Olympíuleikureum í Tokyo er ekki bara hörkukeppni og spenningur. Danski sundmað- urinn Lars Krause Jensen komst að því nýlega þegar hann heimsótti baðhús eitt, „Tokyo Onzen“, og þar kom þessi fallega og léttklædda ungfrú og tók hann í naðd. Og ekki verður arenað séð en Dananum líki þetta vel. t t f « ’ 0 4 » í f-fOV * í 4 t f-'-v'* 0. t * r 3 WILSON ÞYKIR FARA ^EL AF STAÐ Framhald af 5. síðu. i tign, ef þeir standa sig. Sjálf- ur er Wilson annar yngsti mað ur ráðuneytisins, 48 ára, en sá yngsti, Denis Healy, er aðeins einu ári yngri. í ráðuneytinu eru 23 ráðherrar, eins og var hjá Home, þar af 2 konur. ÞEIR ráðherrar, sem líklegt þykir að Wilson hafi mest samráð við, auk Cousins, eru þessir: George Brown efnahags- málarSðherra og varaformaður flokksins. Hann er fimmtugur að aldri, vaxinn upp í verka- lýðshreyfingunni og hefur lengi verið helzti fulltrúi hennar í þingflokknum. Brown er dugn- aðarmaður, vel gáfaður, en hefur átt það tii að vera of orð- hvatur. Skipun hans í embætti efnahagsmálaráðherra sýnir, að Wilson telur ekki heppilegt að skipa sérfræðing yfir sérfræði- legt ráðuneyti, heldur framtaks saman stjórnanda. James Gallaghan fjármála- ráðherra, 52 ára, er heldur ekki hagfræðingur. Hann var starfs- maður á skattstofu, áður en hann varð þingmaður. Á stríðs árunum vann hann sér gott orð sem liðsforingi í sjóhernum. Hann er góður ræðumaður, nýtur sín vel í sjónvarpinu, og þykir koma vel til greina sem eftirmaður Wiisons, ef hann forfallaðist skyndilega. Gordon Walker utanríkisráð herra, 57 ára gamall, var um skeið söguprófessor í Oxford. Hann er maður vel lærður, sagð ur athuga ráð sitt vel og nýtur mikils álits sem traustur og hygginn maður. Hann hefur verið talinn tilheyra hægri armi flokksins, eins og Brown, en samvinna hans og Wilsons er sögð hafa gengið vel, síðan Wilson varð formaður flokks- ins. Denis Healey varnarmálaráð- herra, 47 ára gamall, er frægur fyrir gott minni og víðtæka þekkingu á sviði varnarmála og utanríkismála. Hann hefur á undanförnum árum skrifað mik ið af greinum um framangreind mál. Gardiner lávarður, 64 ára, er dómsmálaráðheira. Hann er tal inn af mörgum snjallasti lög- fræðingur Bretlands, enda fræg ur fyrir málflutning. Faðir hans var einn ríkasti skipaeig andi Bretlands, en móðir hans var þýzk. Hann er sagður hafa mikinn áhuga á endurbótum á skipan brezkra dómsmála. Herbert Bowden, 59 ára, verður málsvari ríkistsjórnar- innar í neðri málstofunni. — Hann hefur lengi verið fram- kvæmdastjóri þingflokksins, en því fylgir m. a. að sjá um að þingmenn mæti reglulega. — Hann var áður liðsforingi í flug hemum, en á arenars verkalýðs hreyfingunni frama sinn að þakka. Hann var náinn vinur Gaitskells, en studdi Wilson sem formannsefni eftir fráfall Gaitskells. Hann er sagður ein- beittur og stjórnsamur. Fyrst um sinn mun þessum sjö mönnum vejða veitt einna mest athygli af ráðherrum Wil- sons. Fleíri eru líklegir til að koma mjög við sögu, t. d. Crossman, er víldi verða vís- Indamálaráðherra, en fékk hús- næðismálin til að glfma við. M.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.