Tíminn - 21.10.1964, Blaðsíða 16
if.T/.í ■
Miðvikudagur 21. október 1964
240. tbl-
48. árg.
Lögreglan leggur hald
á 15000 „sprengjur"
KJ-Reykjavík, 20. okt.
Að undanförnu hefur nokkuð
borið á hvimleiðum sprengingum
hjá unglingum hér í borgínni, og
gerði lögreglan athugun á því í
gærkveldi frá hverju þetta staf-
aði. í tveim söluturnum, við
Bugðulæk og Breiðagerði, fund-
ust 15 þúsund litlar kúlur, sem
springa sé þeim kastað í gólf eða
vegg.
Margar kvartanir höfðu borizt
til lögreglunnar vegna þessa, og
það ekki að ástæðulausu, þar sem
jafnvel hafði borið á þessu í og
INDUSTRI-
KONSULENT
HÉRÍ10ÁR
EJ-Reykjavík, 20. október.
f dag hélt Industrikonsul-
ent A.S. hóf á Hótel Sögu í
tilefni þess, að fyrirtæklð
hefur starfað hér í 10 ár.
Mættu þar fulltrúar frá
ýmsum helztu viðskipta-
mönnum fyrirtækisins hér
á landi og forstjóri fyrir-
tækisins, Lars Mjös.
Industrikonsulent A.S.
var stofnað af fjórum mönn
um árið 1945 og hafði höf-
uðaðsetur í Osló. Tók fyrir-
tækið að sér tæknílega og
viðskiptalega hagræðingu
og var ráðgefandi í bygging
artækni. Óx félagið ört og
í ár starfar 81 sérfræðingur
á vegum fyrirtækisins, en
það hefur skrifstofur í Osló,
Bergen, Stavangri, Reykja-
vík, Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi.
Hér á landi starfa fimm
sérfræðingar á vegum fyr-
írtækisins, þar af eni tveir
íslenzkir hagræðingasér-
fræðingar. Eru 4 staðsettir
í Reykjavík en einn í Vest-
mannaeyjum.
við skóla. Aðllarnir, sem kúlurn-
ar fundust hjá, tjáðu lögreglunni,
að þeir hefðu innflutningspappíra
fyrir vörunni, og er ekki að efa
að það sé rétt. Aftur á móti er
þetta ekki rétti tíminn fyrir varn-
ing sem þennan, þar sem enn eru
tveir mánuðir og tíu dögum betur
til gamlárskvölds, en þá eiga kúl-
urnar fullan rétt á sér. Mál þetta
er í athugun hjá lögreglunni.
Tíðindalaust
á Seyðisfirði
MB-Reykjavík, 20. október.
Ekkert gerist enn í máli rúss-
nesku skipstjóranna á Seyðisfirði.
Rússneska sendiráðið hefur ekk-
ert látið í sér heyra og réttarhöld
voru ekki eystra í dag. Sennilegt
er, að íslenzk yfirvöld fari nú að
ókyrrast og munu væntanlega ýta
við Rússunum á morgun.
L. Pearlman M. Pearlman W. Jones
FARÞEGAR MED VILHJALMI STEFANSSYNI SÖGÐU UM LOFTLFIÐIR:
LÁG FARGJÖLD
GÖÐ ÞJÖNUSTA
KJ-Reykjavík, 20. okt.
„Hversvegna flýgur þú með
Loftleiðum, og hvernig vissir
þú að Loftleiðir voru til“, voru
spurningar sem blaðamaður
Tímans lagði fyrir fjóra far-
þega er komu með Vilhjálmi
Stefánssym, nýju Rolls Royce
Loftleiðaflugvélinn-i til Kefla-
víkurflugvallar snemma í
morgun.
Út við vegg í Fríhöfninni
stóð ungur maður, dökkhærð
ur og frekar lágur vexti. Við
gáfum okkur á tal við hann,
og lögðum fyrir hann spurning
arnar. Hann vildi heldur lítið
út á spumingarnar gefa, kvaðst
þó gera ráð fyrir að hann flygi
með Loftleiðum vegna hinna
lágu fargjalda. Er hann var
spurður að atvinnu og heiti,
kvaðst hann því miður ekki
geta gefið það upp. Kvaðst þó
vera að fara á vegum Banda-
ríkjastjórnar tii Þýzkalands,
ekki sem stjórnarerindreki þó,
heldur í erindum . sem hann
mætti ekki gefa upp, sjálfs
síns og vinnuveitanda síns
vegna. Mátti á honum skilja að
hann væri í einhvers konar upp
lýsingaleit fyrir Bandaríkin í
Þýzkalandi. Mynd máttum við
alls ekki af honucn taka, og var
við svo búið látið standa.
Hjá afgreiðsluborðinu í Frí
höfninni stóð ungur maður og
undir hendinni hafði hann
whiskyflösku.
— Eg er að fara til náms
í frönsku og þýzku við háskól
ann í Brussel, og hef ekki allt
of mikla peninga handa milli.
Ferðaskrifstofurnar sem ég leit
aði til sögðu mér að ódýrast
væri að fljúga r.ieð Loftleiðum,
Framhald á 15. síðu.
3600 mlllj. til uppbygg-
ingar dreif býlis í Noregi
EJ-Reykjavík, 20. október.
Hingað til lands er kominn
Reidar Carlsen, fyrrverandi sjáv-
arútvegsmálaráðherra Noregs, og
núverandi forstjóri Distriktenes
Utbyggningskontor, eða Fram-
kvæmdastofnunar dreifbýlisins, í
Noregi. Mun hann flytja hér tvo
fyrirlestra um uppbyggingu dreif-
býlisins í Noregi.
Reidar Carlsen ræddi í dag við
blaðamenn og skýrði þeim frá
starfsemi Distriktenes Utbyggn-
ingskontor (DU).
Hann sagði, að árið 1961 hefði
ríkisstjórnín lagt fram tiliögu í
Stórþinginu um stofnun sérstaks
sjóðs, sem hefði það verkefni að
skipuleggja lausn vandamálanna í
Norður-Noregi og stuðla að fram-
kvæmdum, sem tryggja myndu
aukinn og arðvænlegan atvinnu-
rekstur í héruðum, þar sem mögu
leikar eru takmarkaðir og atvinnu
líf fábreytt. Fékk sjóðurinn 250
milljónir norskra króna til um-
ráða (1500 milljónir íslenzkar).
Hlutverk sjóðsins var ekki að
stofna ríkisfyrirtæki, heldur örva
stofnun einkafyrirtækja á þessum
stöðum og veita í því skyni lán
fyrir þeirri upphæð, sem á vant-
aði, þegar allar aðrar fjáröflun-
arleiðir hafa verið reyndar. Þessi
FORSETAEFNIÐ ER FRUMSÝNT í KVÖLD
■
GB-Reykjavík, 20. október.
Forsetaefniö, hið nýja leikrit
eftir Guðmund Steinsson, verð-
ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
annað kvöld (miðvikudag) und
ir stjórn Benedikts Árnasonar.
Önnur sýning verður svo á
laugardagskvöld. Ef menn
vílja sjá sem allra fyrst, hvern-
ig forsetaefni geta litið út, þá
er hér mynd af þeim. Þetta
eru tveir frambjóðendur til
embættisins, öðru nafni heita
þeir Rúrik Haraldsson og Ró-
bert Arnfinnsson,
sjóður átti að starfa í 8 ár, eða
til 1960, en hann gaf svo góða
raun, að árið 1961 var ákveðíð að
láta þennan sjóð ná til alls lands-
ins og stofnuð Framkvæmdastofn-
un dreifbýlisins, en Carlsen varð
forstjóri hennar. Sjóðurinn fékk
600 milljónir norskra króna (3600
millj. ísl. kr.) til ráðstöfunar, og
hefur þegar lánað um 500 milljón-
ir. Lána þeir lengst til 20 ára
með góðum afborgunarskilmálum
og 4—51/2% vöxtum. Sagði Carl-
sen, að þeir hefðu látið um 1500
fyrirtækjum í té lán, og ynnu um
25.000 karlmenn og konur í þess-
um fyrirtækjum.
Carlsen benti á það vandamál,
sem fólksflóttinn úr sveitunum
er, og fækkun þeirra, sem vinna
i landbúnaði, fiskveiðum og við
nytjun skóga. Sérstaklega væri
j það alvarlegt, að þeir, sem flytja
úr þessum atvinnugreinum, eru
unga fólkið og oftast beztu menn-
irnir. Sem dæmí um fólksflutn-
| ingana nefndi hann, að um alda-
mótin bjó 17% af þjóðinni í þétt-
býlinu, í dag 57% og um aldamót-
in næstu um 76%, ef þróunin
heldur áfram. Til þess að koma í
veg fyrir að byggðir leggðust í
eyði yrði að snúa straumnum við
og mynda úti á landsbyggðinní
þéttbýliskjarna, þar sem atvinna
væri næg og yrði því að flytja iðn
fyrirtækin út á landsbyggðina,
þar sem slíkir kjarnar gætu mynd-
azt, því að ljóst væri að byggja
yrði allt landið.
Carlsen sagði, að það væri ekki
nóg að hafa vínnustaði, heldur
væri eitt hið þýðingarmesta, að
fólkinu í þessum þéttbýliskjörn-
um liði vel og að öll aðstaða full-
nægi kröfum nútímans, sérstak-
lega þó kröfum mæðra og barna.
Þar þurfa að vera góðir skólar,
góðar íbúðir, helzt einkaíbúðir,
íþróttasvæði, félagsheimilí, kirkja,
öflugt félagslíf, verzlanir með
góðu vöruúrvali og margt fleira.
Kröfurnar til andlegrar menntun-
ar og þroska starfsmannanna auk
ast stöðugt, og um leið gera starfs
mennirnir og fjölskyldur þeirra
kröfur til betra lífs og umhverfis,
sagði Carlsen.
Framhald á 15. síðu.
Bankar kaupa ekki
tékka eldri en 20
til 26 daga gamla
í viðleitni sinni til að tryggja
öruggari meðferð tékka, munu
bankarnir innan skamms taka upp
þá reglu, að innleysa ekki tékka,
sem ekki er örugglega hægt að
sýna til greiðslu í greiðslubanka,
viðkomandi tékkareiknings innan
ákveðins frests en skv. tékkalög-
um ber að sýna tékka tíl greiðslu
innanlands innan 30 daga frá út-
gáfudegi þeirra að telja. Þannig
munu bankarnir ekki kaupa tékka
eldri en 20 daga á aðrar innláns-
stofnanir ef greiðslubanki er ut-
an Reykjavíkur. og ekki eldri en
26 daga á innlánsstofnanir í
Framhald á 2. síðu.