Tíminn - 18.11.1964, Síða 1
lækni lífs
NTB-Leopoldville, 17. nóv.
Óstaðfestar fregnir herma,
a3 uppreisnarmenn í Stanley-
vUle hafi frestað aftöku banda-
ríska trúboðslæknisins, Paul
Carlson, um óákveðinn tíma.
Eins og kunnugt er átti að líf-
láta Carlson í gær. Rusk utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
skoraði á Jomo Kenyatta, for-
sætisráðherra Kenya og áhrifa-
mann innan sambands Afríku-
ríkja, að koma í veg fyrir af-
tökuna, sem væri hreint morð,
þar sem Carlson væri ekki
bandarískur njósnari.
Áreiðanlegar heimildir í Leo-
poldviile herma, að útvarpið í
Stanleyville hafi í dag skýrt frá
þyí, að bandaríski konsúllinn í
StanleyviUe, Michael Hoyt, hafi
fengið leyfi tU að heimsækja
Carlson. Hlustunarskilyrði voru
mjög slæm og því ekki hægt
að greina, hvort konsúllinn ætl-
aði að rannsaka möguleika á
áfrýjun dómsins eða hvort við-
ræður mundu hef jast miUi upp-
reisnarmanna og bandarísku
yfirvaldanna um frelsi Carlsons
og 62 annarra Bandaríkja-
manna, sem eru fangar upp-
reisnarmanna. Hoyt konsúll
hefur ásamt flestum öðrum
hvítum mönnum í borginni, en
þeir skipta hundruðum, verið
í haldi síðan uppreisnarmenn
náðu Stanleyville á sitt vald í
ágúst síðast liðnum.
Framhald á 15. síðu
‘Hvítir málaliðar og hermenn úr her ríkisstjórnarinnar j Kongó
eru þarna viðstaddir iarðarför S.-Afríska málallðans, H. R. Nel,
en hann hafði getið sér gott orð fyrlr vasklega framgöngu I her
rikisstjórnarinnar. Jarðarförin fór fram í Boende i Kongo, en það
er eltt af þremur þorpum, sem hersveltir ríkisstiórnarinnar tóku af
uppreisnarmönnum nú á dögunum. Féll Nel í þeim átökum. Þorp
in eru öll við leiðina tll Stanleyville og er talið, a8 hersveltir ríkls
stjórnarinnar séu að ryðja sér braut þangað.
Vélrítunínn
lauk í júlí!
Lf«
IGÞ-Reykjavík, 17. nóv.
í dag fékk Tíminn þær upplýs-
ingar, að vélritun Keflavíkurvall-
armálsins hefði lokið í júlímánuði
síðast liðnum. Það var rannsókn-
ardómarinn í málinu, Ólafur Þor-
láksson, sem fékk Sigurlaugu
Pálmadóttur til að annast þetta
verk. Sigurlaug hringdi til Tím-
ans í dag til að upplýsa þetta at-
riði. Hún sagði jafnframt, að máls
skjölin hefðu verið 370 síður vél-
ritaðar. Sigurlaug vinnur hjá
Sakadómi Reykjavíkur við vélrit-
un. Þá skýrði saksóknari ríkisins
Tímanum frá því í dag, að Vallar-
málið hefði ekki borizt til hans
enn þá.
Vert er að geta þess, að venjan
er að vélrita mál, þegar rannsókn
þéirra er lokið, og málið sent síð-
an saksóknara til meðferðar. Nú
er sem sagt liðið á fjórða mánuð
frá því vélritun lauk án þess
nokkuð hafi heyrzt af málinu.
Rannsóknardómarinn hefur ekkert
viljað segja þennan tíma og í dag
náðist ekki I hann, þrátt fyrir
ítrekaðar tílraunir.
Að sjálfsögðu kunna einhver at-
riði að hafa komið upp, til að
tefja málið, eftir að vélritun lauk
í júlí. Hins vegar verður ekki hjá
því komizt vegna þess dráttar, sem
orðinn er á málinu, að krefjast
upplýsinga um, af hverju sá
dráttur stafar. Þetta mál er það
alvarlegt og víðtækt, að almenn-
ingur á rétt á upplýsingum um
gang þess, meíri en þeim, sem
fást af frystihúskaupum og miska-
stefnum á blöðin.
Tíminn talaði við nokkra aðila
í dag, auk saksóknara, eins o?
varnarmáladeild. Hörður He
son, deildarstjóri, sagðist ekk..i
hafa heyrt af málinu síðan rs-
sókn var fyrirskipuð og það hc
ekkí farið um hendur varnarm . a
deildar síðan.
Ekki verður annað séð af þc'ri
upplýsingum. sem blaðið he!
fengið, en rannsóknardómarii i
hafi hinar 370 síður enn u«
höndum. Af upplýsingunum v. i
vélritunina má draga þá álykttr
að rannsókn hafi verið talið lol
í júlímánuði. Það er því ekl.i
nema um tvennt að ræða, annr 'l
hvort er áríðandi gögnum haltí: i
fyrir rannsóknardómaranum, ei'a
þá að ný atriði hafa komið til sö
unnar, sem þurft hefur að rani
saka eftir að málinu var tali .
lokið.
UTSELUR ETUR FÆRAFISKINN AF
ÖNGLUM SJÓMANNA IHÖFNUM
SS-Höfnum, 17. nóv.
Að undanförnu hefur stór útsel-
ur gerzt nokkuð ágengur við sjó-
menn úr Höfnum. Selurinn hefur
hvað eftir annað komið og étið
fisk af færum þeirra og í eitt
skiptið fór hann með heldur meira
en fiskinn og voru sjómennirnir
þá hræddir um, að selurinn hefði
fengið í sig krók, en sáu þó í
næsta skipti, þegar hann heimsótti
þá, að svo hafði ekki verið.
Upphaf þessarar sögu er það,
að í júní í vor var SS, fréttaritari
Tímans í Höfnum, í róðri á bát
sínum Snarfara og var hann stadd
ur við Karlinn í röstínni, þegar
allt í einu kemur stór útselur upp
að bátnum. Var ekki annað hægt
að merkja af hegðun hans en hann
vildi helzt upp í bátinn. Selurinn
elti bátinn í 2 tíma og kom alltaf
á eftir, hvert sem farið var. Næst
bátnum kom hann tvo faðma og
sáu mennirnir þá, að hálsinn var
allur sundurgrafinn, sennílega eft-
ir skotsár. Sárin voru framan á
hálsinum, og gat selurinn ekki
hreyft hausinn, og stóð hann alltaf
beint upp í loftið. Ekki gat selur
inn farið á venjulegan hátt niður.
heldur varð hann að láta sig síga
aftur á bak, og síðast hvarf snopp-
an. Var auðséð á öllu, að selurinn
var mjög þjáður og gat enga
björg sér veitt. Hentu bátsverjar á
Snarfara tíl hans fiski, lét hann
sig siga niður á afturendann og
kom upp undir fiskinn og tók
hann.
Ekkert fréttist til selsins í sum-
ar, en fyrir hálfum mánuði eða
svo var Hinrik ívarsson í Merki-
nesi á sjó, og kemur þá allt í einu
upp stór útselur upp í nánd við
bát hans Guðmund S. Hínrik og
Sigurði fréttaritara Tímans kem-
ur saman um, að þetta muni vera
sami selurinn. Þessi selur er að
krúkka í kringum bátinn þar til
I hann tekur fisk á færinu, og tog-1 inn fiskinum. Nú líða 2—3 dag-
ast þeir Hinrik á um fiskinn ar, að Hinrik fari aftur á sjó, en
nokkra stund. þar til Hinrik kall- í næsta róðri kemur selurínn til
! ar upp, og við það sleppir selur-1 Framhald á 15. síðu.
MAÐUR
I KASSA
EJ-Reykjavík. 17. nóv.
Þegar ítalskir tollþjónar ■
voru að störfum á Fiumicino- i
flugvellinum í Rómaborg í dag j
heyrðu þeir allt í einu stunur
úr einum þeirra kassa, sem i
verið var að flytja um borð í !
flugvél á vellinum og fara •'
skyldi til Mið-Austurlanda.
Kom í ljós, að inni í honum
var maður, keflaður og deyfð-
ur. Er talið, að hér sé um fyrr
verandi þýzkan nazista að ræða,
sem ísraelsmenn hafi ætlað að
flytja til ísraels og halda þar
yfir honum réttarhöld, að því
er NTB segir í dag.
ísraelsmenn hafa gert það
áður, sem kunnugt er, að ræna
stríðsglæpamönnum nazista í
öðrum ríkjum og flytja þá til
ísraels. Er þeirra frægastur og
illræmdastur Adolf Eíchmann,
sem rænt var frá Argentínu og
dæmdur til dauða í ísrael og
tekinn af lífi.
Fólk flýr úr hús-
um vegna kulda
MB-Reykjavík, 17. nóv.
Nokkrir íbúar við Háaleitis-
braut í Reykjavík hafa gripið
til þess ráðs að flytja brott úr
íbúðum sínum í kuldakastinu,
sem nú gengur yfir. í blokkun-
um við götuna er ekki gert rá~
fyrir neinni miðstöðvarkynd-
ingu, heldur . eingöngu hita-
veituupphitun, og þegar kóln-
aði fékkst ekki nægilegt vatn
frá hitaveitunni.
Blokkirnar við Háaleitis-
brautina eru tiltölulega nýjar
og í þeim hefur ekki verið
gert ráð fyrir neinni kyndingu
þar eð þær eiga að fá heitt
vatn frá hitaveitunni. Þett;
hefur líka gengið ágætlega i
góðu veðri, þá hefur hiti ver
Framhald á 15. síðu.