Tíminn - 04.02.1965, Síða 1
Aðils-Kaupmannahöfn, miðvikudag
Danska stjórnin hefur tekið
ákvörðun um það, að afhending
íslenzku handritanna skuli fara
fram jafnóðum og viðgerðum á
þeim og ljósmyndun sé lokið, og
munu þau verða afhent smám
saman á 25 ára tímabili. Komin
er fram í sænska þinginu fyrir-
spurn um það, hvort ekki sé
tímabært fyrir Svía að afhenda
íslendingum þau forn handrit ís-
lenzk, sem varðveitt eru í Sví-
þjóð, en þau munu um 350 tals-
ins.
Danska útvarpið skýrði frá því
seint í gærkvöldi, að danska rík
isstjórnin hefði tekið ákvörðun
um það, hvernig afhending hand
ritanna fari fram. Berlingske Aft-
enavis skrifar um þá frétt m. a.:
Engin breyting er á stefnu stjórn
arinnar í handritamálinu. Hún
leggur áherzlu á að frumvarpið
verði samþykkt óbreytt. Það virð
ist fastákveðið í danska stjórnar
ráðinu eftir því að dæma, r.ð K.
B. Andersen, kennslumálaráðherra
tilkynnti á fundi með handrita-
nfend þingsins, að ríkisstjórnin
hefði ákveðið á hvern hátt af-
hendingin skuli fara fram.
Handritin verða afhent smátt og
smátt, eftir því sem hvert þeirra
um sig er tilbúið til afhendingar,
en búizt er við því að undirbún
ingsvinnan taki um 25 ár. Enn
fremur segir blaðið. Þar með er
raunverulega öllum breytingum á
frumvarpinu um afhendinguna vís
að á bug. Þær kæmu því aðeins
til greina, að einhuga þingnefnd
krefðist þeirra og eins og hand
ritanefndin er skipuð er sá
möguleiki ekki fyrir hendi.
Fréttaritari Berlingske Tidende
í Stokkhólmi skrifar: Umræðurnar
í Danmörku um afhendingu ís-
lenzku handritanna í Árnasafni
munu einnig bergmála í sænska
þinginu. Komin er fram fyrir-
spurn til Ragnar Edenman, kirkju
Framh. á bls. 14.
Myndin hér að ofan var tekin við handtöku Dr. Martin Luther Kings í bænum Selma í Alabama
á föstudaginn. Til hægri er Wilson Baker, öryggisstjóri borgarinnar, með upprétta hendi, og
var myndin tekin á því augnabliki, þegar Baker sagði, að King, og allir þeir, sem væru fyrir
aftan hann, væru hér með teknir fastir. í gær voru 300 blökkumenn til viðbótar handteknir í
Selma, og 400 blökkumenn voru handteknir í Marion, einnig í Alabama. Luther King er enn þá
í fangelsi.
SAMÞYKKTU LITT
BREYTT UPPKAST
| EJ-Reykjavík, miðvikudag. I kvæðum gegn 180 en 8 seðlar voru I Breiðafjörð. Samkvæmt
Klukkan 17 í dag lauk talningu j auðir. Útvegsmenn samþykktu j nýju samningum lækkar
FLENZAN HJA FINNUM
BÓLUSETT í SVÍÞJÓÐ
NTB-Stokkhólmi, miðvikudag.
Hafin er bólusetning hjúkrunar
fólks í Svíþjóð, en ekki hefur enn
þá verið tilkynnt um, að neinn
hafi veikzt þar af inflúenzunni,
sem geisar í Sovétríkjunum þessa
stundina. Aftur á móti hafa 72
hermenn í Ábo í Finnlandi feng
ið inflúenzuna, og finnsku heil-
þrigðisyfirvöldi óttast, að far-
sött þessi muni bráðlega geisa
bæði í Finnlandi og Svíþjóð.
Sænsku heilbrigðisyfirvöldin
hafa haft samband við heilbrigðis
yfirvöldin í Sovétríkjunum og
fengið staðfest hjá þeim, að hér
liinum
skipti-
atkvæða sjómanna um uppkast að j einnig uppkastið, og er því lok ] prósentan á þorskanót um 1%,
nýjum samningum, og var upp-; ið verkfalli bátasjómanna hér fyr ; á 50—130 tonna bátum hækkar
kastið samþykkt með 254 at- ! ir sunnan, á Akureyri og við j skiptiprósentan á línu og netum
" * um 1.5% og kaupliðir sjómanna
hækka um 5%. Er þessi samning
ur lítið breyttur frá uppkasti því,
sem sjómenn felldu í atkvæða-
greiðslu s. 1. sunnudag.
Talning atkvæða hófst kl. 14
í dag, en lauk ekki fyrr en
kl. 17, þar sem atkvæðaseðlar frá
Grundarfirði og Stykkishólmi
komu nokkuð seint hingað suður.
Við lok talningar kom í ljós," að
uppkastið var samþykkt með 74
atkvæða meirihluta, en alls
greiddu 442 sjómenn atkvæði.
Samkvæmt þessum nýju samn
ingum lækkar skiptiprósentan á
þorskanót um 1%. Verða því
skiptin þannig: — Á bátum að
60 tonnum 38% í 10 staði, á
bátum 60—120 tonn 36.5% í 11
staði, á bátum 240—300 t. 35.
á bátum 120—240 t. 35.5% í 12
5% í 13 staði, á bátum 300—
400 tonn 35.0% í 14 staði.
Á línu- og netaveiðum verða
kjörin þannig: á 30—70 tonna
bátum fækki um einn mann, en
Framh. á bls. 14.
sé um að ræða vírus af gerðinni
A2. Inflúenzu-faraldurinn geisar
aðallega i miðhluta Sovétríkj-
anna og einnig nokkuð í héruðun
um við Eystrasaltið, en aftur á
móti virðist hafa dregið úr in-
flúenzunni í Leningrad-héraðinu.
Sænski landlæknirinn sagði í
dag, að Svíþjóð flytti þessa dag
ana inn mikið magn af bóluefni
gegn inflúenzu, aðallega frá
Bandaríkjunum. Þegar þeim inn
flutningi er lokið, er talið, að
Svíar hafi bóluefni fyrir um 250.
000 manns, og er það talið nóg,
því að áætlað er að bólusetja ein-
göngu lækna, hjúkrunarkonur og
annað starfslið á sjúkrahúsum og
öðrum heilbrigðisstofnunum,
áhafnir flugvéla og skipa, sem
eiga leið til Sovétríkjanna, ferða
menn frá Sovétrikjunum, starfs
lið í tollinum, á flugvöllum og við
hafnir og járnbrautir, og þar að
auki vissa sjúklinga, sem eiga
mest á hættu að smitast.
Inflúenzufaraldur geisaði í
Svíþjóð árið 1963, og voru þá
um 500.000 manns bólusett. Telja
heilbrigðisyfirvöldin því, að
landsmenn hafi nokkuð sterkan
Framih. á bls. 14.
AUR A
VEGUM
MB-Reykjavík, miðvikudag.
Vegir eru nú víða orðnir
nokkuð þungir vegna aurbleytu
og má búast við að setja verði
einhverjar takmarkanir á ferð
ir þungra bifreiða á næstunni
ef veðurfar verður óbreytt.
Skriður hafa fallið úr Búlands
höfða og Ólafsvíkurenni vegna
þíðunnar og hefur orðið að
ryðja þeim burt með jarð-
ýtum.
Blaðið spurði Hjörleif Ólafs
son á Vegamálaskrifstofunni í
dag um ástandið á vegum
landsins. Hann kvað aur-
bleytu víða orðna mikla á
vegum, verst væri ástandið
sennilega suðvestanlands og á
Snæfellsnesi, en norðanlands
væri ástandið einnig slæmt
sums staðar, svo sem í Eyja-
firðinum og Húnavatnssýslum.
Annars væri nú fært um allt
Suðurlandsundirlendið og Vest
urlandsveg í Dali, þá er fært
norður Strandir til Hólmavíkur
og Norðurlandsvegur er fær
allt til Húsavíkur. Þaðan er
svo fært á sterkum bílum til
Raufarhafnar. Austan Raufar-
hafnar eru vegir ófærir, nema
hvað unnt mun að komast á
jeppum milli Þórshafnar og
Vopnafjarðar.
Allir fjallvegir á Austurlandi
eru enn ófærir vegna snjóa og
verða ekki ruddir að sinni.
Fært er um Héraðið að mestu
og einnig frá Egilsstöðum um
Fagradal til Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar.
Stungið upp á 89
við Nóbelsnefnd
NTB-Stokkhólmi, miðvikudag.
Stungið hefur verið upp á alls
89 skáldum og rithöfundum í
sambandi við úthlutun bókmennta
verðlauna Nóbels fyrir árið 1965,
að því er sænska Nóbelsstofnunin
tilkynnti í dag. Hefur aldrei
í sögu Nóbelsverðlaunanna verið
stungið upp á svo mörgum mönn-
um.
Nóbelsnefnd sænsku Aka-
demíunnar, sem úthlutar verð-
launum kom saman til síns fyrsta
fundar í dag til þess að undirbúa
nánari athugun á þeim tillögum,
sem borizt hafa. Formaður nefnd
arinnar, Uno Willers, landsbóka
vörður, sagði í dag, að flestir
þeirra manna, sem stungið hefur
verið upp á, væru Evrópubúar,
en á listanum væru nöfn manna í
öllum heimsálfum.
Nóbelsnefndin gefur ekki upp
nöfn þeirra manna, sem stungið
hefur verið upp á.