Tíminn - 04.02.1965, Blaðsíða 2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 4. febrúar 1965
Miðvikudagur, 3. febrúar.
NTB-Brussel. — f marz n. k.
hefjast viðræður milli Efna-
hagsbandalags Evrópu og Aust-
urríkis um aukaaðild Austur
ríkis í EBE. Er Austurríki eina
EFTA-landið, sem hefur huga
á að fá aðild að EBE sem stend-
ur.
NTB-Arras. — í dag hófst að
nýju vinna við kolanámuna í
Arras í Norður-Frakklandi, þar
sem 21 námuverkamaður lét líf
ið í fyrrinótt. Hinir látnu verða
grafnir á föstudaginn. Samtök
námuverkamanna munu láta
fara fram nákvæma rannsókn á
orsök sprengingarinnar og
reyna að finna út, hver beri
ábyrgðina á slysinu
NTB-París. — Couve de Mur-
ville, utanríkisráðherra Frakk-
lands, fer til Washington 17.
febrúar og dvelst þar í viku.
Telja margir, að þetta þýði
mjög batnandi sambúð Frakk-
lands og Bandaríkjanna. Mun
hann ræða við bandaríska emb
ættismenn, m. a. um NATO.
NTB-Washington. Paul Carl
Meyer frá Chicago hefur verið
ákærður fyrir að hafa látio 15
bandarísk vegabréf i hendur
sovéskum borgurum. Mun
hann hafa gert þetta í Austur
Berlín árið 1963. Ákæran er
í fjórum liðum, og mesta refs
ing fyrir hvern lið er fimm
ára fangelsi og 2.000 dollara
sekt.
NTB-Leopoldville. — Nýr
stjórnmálaflokkur var stofnað
ur í Kongó í dag. Flokkurinn,
sem heitir Conaco, mun verða
stærsti flokkur landsins og
styðja Tshombe forsætisráð-
herra.
NTB-London. — Áreiðanlegar
heimildir segja, að Lord Chal
font, afvopnunarmálaráðherra
Breta, fari til Noregs með vor
inu en hann mun heimsækja
Danmörku í aprílmánuði.
NTB-Djakarta. — Sukarno, for
seti Indónesíu, sagði í dag, að
Indónesía myndi ekki ganga
aftur í Sameinuðu þjóðirnar á
meðan Malaysía ætti aðild að
þeim.
NTB-London. — Áreiðanlegar
heimildir segja, að Harold Wil
son hafi í hyggju að heim-
sækja Washington og Ottawa
síðar í þessum mánuði.
NTB-Bonn. — Vestur-Þýzka-
land andmælti í dag þcirri full
yrðingu A-Þjóðverja, að kjarn
orkurannsóknarstöðin í Karls
ruhe framleiddi plutoníum
til hernaðarnota og að V-Þýzka
íand gæti framleitt atóm-
sprengjur árið 1968. Segir í
yfirlýsingunni, að þessar full
yrðingar hafi ekki við neitt að
styðjast.
NTB-Osló. — Norrænt mót verð
ur haldið í Þórshöfn í Fær-
eyjum í sumar, og eru það
íslenzk-færeyska félagið og
Norsk-færeyska félagið, sem
sjá um mótið. Slíkt mót var
síðast haldið árið 1911.
Wilson er bjartsýntt á
framtíð stjómarínnar
JHM-London, þriðjudag.
Það má að vissu leyti þakka það fráfalli Churchills, að
Wilson situr enn þá við völd hér í Englandi. íhaldsmenn
voru tilbúnir í síðustu viku með vantrauststillögu á stjórn
inaina, en jarðarförin dró alla athygli fólksins frá stjórn-
málunum. íhaldsmenn höfðu búizt við að geta komið með
tillöguna eftir fyrstu hundrað daga Wilson-stjórnarinanr
og notið þá stuðnings Frjálslynda floksins.
Kunnur þingfréttamaður,
sagði í viðtali að íhaldsflokkur
inn hefði komið of snemma
með vantrauststillöguna og
misreiknað sig algjörlega á
stuðningi frá þingmönnum
frjálslyndra. Hann sagði að
þeir hefðu átt að bíða þar til
stjórnin leggur fram tillögu
sína um að þjóðnýta stáliðnað-
inn, því þá hefðu þeir eflaust
getað treyst á stuðning frjáls
lyndra.
Vantrauststillaga íhalds-
manna var felld í dag meö 17
atkvæða mun, eða 306 atkvæð
um á móti 289. Þingmenn
Frjálslynda flokksins, sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna.
Harold Wilson kom fram
á blaðamannaþætti í sjónvarp
inu á sunnudag og var mjög
bjartsýnn á framtíð stjórnar
innar og flest þau vandamál
sem hún á við að glíma. Hann
sagði m. a. að fjármálaástand
ið hefði batnað stórum á síð-
ustu mánuðum, vegna þess að
stjórnin tók ákvarðanir sem
þurfti að taka. Hann sagði og
að þjóðarframleiðslan væri nú
aftur á uppleið í fyrsta sinn í
langan tíma. ,,Við vorum
óánægðir með að hækka vext
ina, og mönnum mislíkaði það
bæði heima fyrir og í öðrum
löndum, og við munum lækka
þá eins fljótt og unnt' er“.
Þá sagði forsætisráðherrann
að á s. 1. ári hefði.þjóðin kos-
ið Verkamannaflokkinn vegna
þess að hann einn gæti leyst
vandamál þjóðarinnar, og
stjórnin ætlaði sér að vinna
það verk. „Við erum ekki held
ur hræddir við óvinsældir, sem
fylgja slíkum verkefnum“,
sagði Wilson. Hann bætti við
að það mætti rekja þá andúð
sem fólkið hefði á stjórninni tii
stjórnar íhaldsmanna, sem
hefði skapað það ástand sem
ríkti í landinu. Hann sagði að
stjórnin myndi án efa leggja
fram frumvarp sitt um þjóð-
Harold Wilson
nýtinguna á stáliðnaðinum og
örinur frumvörp, sem lofað
hefði verið í kosningunum að
flytja í byrjun þingsins.
Einnig sagði Wilson að í Eng
landi væri nú mikill áhugi fyr-
ir því að þjóðin kæmist aftur
á toppinn. „Við höfum hangið
aftan í of mörgum þjóðum, of
lengi“. — „Ég trúi því að sé
maður ekki hræddur við að
segja fólkinu sannleikann um
öll þau vandamál sem við höf-
um við að glíma, þá er víst að
fólkið muni veita manni fylgi“.
sean
Stjórnarkjör í Fél,
járniðnaðar-
manna
Framsboðsfrestur til kjörs
stjórnar og trúnaðarmannaráðs í
Félagi járniðnaðarmanna í Reykja
vík rann út þriðjudaginn 2. febr.
Einn listi, listi stjórnar og trún
aðarmannaráðs barst og var hann
því sjálfkjörinn. Stjórnina
skipa þessir menn: Guðjón Jóns
son formaður, Tryggvi Benedikts
son varaformaður, Theódór Óskars
son ritari, Karl Finnbogason vara
ritari, Gunnar Guttormsson fjár-
málaritari, Ingimar Sigurðsson
gjaldkeri og Snorri Jónsson með
stjórnandi. Snorri Jónsson sem
verið hefur formaður í samtals um
20 ár, baðst undan að vera kjör
inn formaður .Trúnaðarmannaráð
skipa auk stjórnarinnar: Einar
Siggeirsson, Erlingur Ingimundar
son, Guðmundur Rósinkarsson,
Gísli Sigurhansson, Ingólfur Jóns
son, Jón Jónsson, Benedikt Sigur ’
jónsson og Stefán Stefánsson. Að-|
alfundur félagsins verður haldinn
seinna í mánuðinum.
1964 VAR METAR HJA
FLUGFÉLAGI ÍSLANDS
Mikil aukning varð í flutning-
um Flugfélags fslands á síðast-
liðnu ári og barst blaðinu í dag
skýrsla Flugfélagsins um það mál.
Mest varð aukningin í farþegaflugi
milli landa, en þar varð aukning
in 27.7%. Alls fluttu vélar félags
ins í áætlunar- og leiguflugi 112.
315 farþega.
Flutningar Flugfélags íslands
árið 1964 gengu mjög vel og
fluttu flugvélar félagsins fleiri
farþega en nokkurntíma áður.
Einnig varð veruleg auknipg á
vöruflutningum og póstflutningum,
en færri leiguflug voru farin en
árið á undan.
Farþegar félagsins í áætlunar
flugi milli landa árið 1964 voru
samtals 36,952. en voru 28,937
árið á undan. Aukning 27,7%.
Vöruflutningar milli landa námu
412 lestum. Árið áður voru flutt
ar 332 lestir og varð aukning því
tæplega 24%. Þá voru fluttar
Sæskrímsli
NTB-Brisbane, miðvikudag.
25 metra langt, svart sæskrímsli heldur sig fyrir utan Hvíta-
sunnueyjiarnar við strönd Ástralíu, að því er franskur ljós-
myndari fullyrti í dag. Segist hann hafa Uósmyndir, sem getí
staðfest frásögn hans.
Ljósmyndarinn, Robert Le
Serrec, hefur unnið að því að
kvikmynda kóralrifið fyrir ut-
an strönd Ástralíu síðan í júní
í fyrra, þegar hann og fjöl-
skylda hans sigldi í strand rétt
hjá Mackay í Qeensland.
Hann, kona hans, Raym„nde,
þrjú börn þeirra og vinur
þeirra, sem á heima í Sydney,
sáu sæskrímslið 12. desember.
Þau komust mjög nálægt því,
eða í um 5—6 metra fjarlægð.
— „Þar sem dýrið hreyfði sig
ekki og var sært stóru og
djúpu sári, fórum við út í
vatnið til þess að athuga það
nánar. En þá snéri það sér að
okkur og var mjög ógnandi út-
lits“ — sagði ljósmyndarinn. — (
„Höfuð þess var um 1.20 metr
ar á hæð og 30 cm breitt. Lík
aminn skiptist í 1.50 metra
breið belti. Ég hef verið á
sjónum í 10 ár, en þetta líktist
ekki nokkru því dýri, sem ég
hef séð eða heyrt áður“ —
sagfti Robert.
115 lestir af pósti á móti 90,6
lestum árið áður. Aukning 26,4%.
Farþegar Flugfélagsins á flug-
leiðum innan lands voru á ár-
inu 69,834, en voru 62,056 árið
á undan. Aukning í farþegaflutn-
ingum innanlands er 12.5%. Vöru
flutningar á innanlandsleiðum
námu 1049 lestum, en voru 974
lestir árið áður, aukning er 7,7%
i og fluttar voru 128 lestir af pósti
I á móti 117,5 lestum árið áður,
: aukning 9.4%. Þess ber að geta í
j samanburðartölum innanlands-
: flugs, að árið 1963 lamaðist starf
í semin tvisvar vegna verkfalla, en
á s. 1. ári ríkti vinnufriður.
Samanlagður fjöld farþega
Flugfélags íslands á áætlunarleið
um innan lands og milli landa
árið 1964 varð því 106,786. All-
margar leiguferðir voru farnar á
árinu, þó færri en árið á undan,
og voru farþegar samtals í þeim
5,529. Tala farþega í áætlunar-
flugi og leiguflugi með flugvél
um Flugfélags íslands s.l. ár er
því 112,315.
Sem fyrr segir, gekk starfsemi
félagsins vel á árinu. Flugvélar
þess voru á lpfti samtals 10,104
klst. og samanlagt flugu Faxamir
nokkuð yfir þrjár milljónir kíló
metra.
A yfirstandandi ári eru tuttugu
ár liðin síðan Flugfélag íslands
hóf millilandaflug. Sumarið 1945
fór Katalína flugbáturinn TF-
ISP þrjár ferðir milli íslands og
útlanda.
Farþegar Flugfélagsins milli
landa þetta sumar voru 56.
Þetta voru fyrstu millilandaflug
íslendinga með farþega og póst.
Mikið aflaleysi
| GS-ísafirði, miðvikudag.
j Hér er mikið aflaleysi, mesti
afli í gær var fímm lestir á bát.
Guðbjartur Kristján II var afla-
hæstur í janúar, með 107 lestir.
Raunar voru það tveir, sem gerðu
útslagið á þennan afla hans, sem
mun vera sá bezti hér um slóðir.
1 öðrum þessara róðra fékk hann
18 lestir og í hinum 12.
5 KINDUR FUND-
USTÍÓBYGGÐUM
ÞH-Laufási, Kelduhverfi, miðviku-
dag.
Á mánudag fóru tveir menn
héðan úr Kelduhverfinu í eftir
leit suður með Jökulsá. Voru það
Þeir Óskar Ingvarsson, Meiðavöll-
um og Sigurgeir ísaksson Ásbyrgi.
Fundu þeir fimm kindur á Rauð-
hólaundirlendi, sem er skammt
norðan Hljóðakletta. Voru fjór
ar þeirra veturgamlar. en ein
fullorðin. Sú fullorðna var illa á
sig komin, en hinar fjórar voru
hinar sprækustu.
Fjórar kindanna voru eign leit
armanna, en ein veturgömul var
eign Ingva Axelssonar í Ási. Er
hún útigöngunni ekki óvön,
hún gekk úti allan fyrravetur
lamb. Engin þessara kinda hi
komið í hús í vetur.
Þorrablót
f Kónavogi.
Þorrablót Framsóknarfélaganna
í Kópavog) verður haldið í efri
salnum í Félagsheimili Kópavogs,
laugardaginn 13. febrúar og hefst
það kl. 20. Nánar auglýst síðar.
— Stjórnin.