Tíminn - 12.03.1965, Page 9

Tíminn - 12.03.1965, Page 9
FÖSTUDAGUR 12. marz 1965 TÍMINN að færa þær til hliðar, og þær eru mjög lágar og taka lítið veður á sig. En engu að síður færði einn bylurinn hana til á Núpi. — Veðrin hérna skella yfir- leitt ekki á okkur að óvörum. Við sjáum það á skýjamynd- unum á jöklinum, ef von er á þeim. Ef það myndast slétt, grá þoka á jökulhettunni, þá er vissara að vera við öliu búinn. Verstu veðrin eru í norðlægri átt, allt frá útnorðan og til - austurs. En hina einstöku bylji getur enginn reiknað út. Þeir koma niður úr skörðum og döl um, æða fram og til baka og geta valdið stórskaða á einum bænum, en á næsta bæ hreyf- ist enginn hlutur. Til dæmis á Hvammi kemur það fyrir að vindsveipur æðir vestur fyrir núpinn og þar vestur úr. Þá myndast geysilegur sogkraftur meðfram hlíðinni, sem beinir stormsveipnum þangað og þar tvíeflist hann, og fer þá gjarna til baka austur með fjallinu. Og hið sama gerist raunar oft, þegar stormsveiparnir skella á húsþökunum. Þá sést ekkert á þeirri hlið sem snýr að veðr- inu, en ofan við þá hliðina, sem undan snýr, myndast óskaplegur sogkraftur og hann sogar þakið út undan veðrinu. Og niður í lofttómið, sem myndast við skjólhlið hús- anna skrúfar vindurinn sig einnig og rífur þar allt laus- legt í burtu. í síðasta veðrinu hérna til dæmis gerðist þetta. Annars varð hér lítið tjón þá. Ég á þungan heyvagn með járnbeizli og hann stóð í skjóli undir fjósveggnum. En engu að síður reif rokið hann með sér. Heim að bænum liggja rafmagns og símalínur á ská, þannig að vagninn hefur varla með nokkru móti komizt á milli stauranna aila þá vega- lengd sem hann fauk. Hann fauk hátt í hundrað metra nið- ur á tún og hlýtur að hafa skrúfazt upp fyrir línurnar, því hvergi hefur hann komið við staurana og hvergi er far eftir hann á jörðinni alla þessa leið. Nú liggur hann á hvolfi við heimreiðina og það er svo erfitt að velta honum við, að ég er að hugsa um að bíða eftir dálitlu austanveðri, til þess að rétta hann við! Við gengum ut með Einari bónda. Hann sýndi okkur aust- angaflinn á steinsteyptu húsi og auðséð var, að efsti hluti hans hafði verið steyptur upp. — Það var í einu veðrinu, að það fauk hluti af þakinu hérna. Það var rammbyggilega bund- ið ofan í steypuna en rokið gerði sér lítið fyrir og reif bara efsta hluta hennar með sér og bar allt saman sam- hangandi góðan spöl. 1 þessu sama veðri átti ég rauðviðar- tré, sem var tíu tommur á kant hér uppi á túni. Það fauk langar leiðir! Nú stigum við upp í bílinn og ókum í austurátt og Einar bóndi fylgdi okkur. Er við komum yfir Holtsósinn beygð- um við til suðurs því við ætl- uðum að líta á skemmdirnar af völdum síðasta veðursins á Berjanesi og Leirum, en á báð um þessum bæjum urðu mikl ar skemmdir. — Héma er eitt almesta roksvæðið, sagði Einar, — á Steinabæjunum og bæjunum þar suður af, og reyndar ók um við áðan framhjá slæmu svæði. þar sem eru bæirnir Holt, Vallnatún, Ormskot og Grundarbæirnir, sem standa frammi undir Holtsnúpnum. Við hittum Andrés bónda Einar Jónsson á Moldnúpi (hv.) og Gissur Gissurarson í Selkoti segja frá rokinu undir Eyjafjöllum Andrésson í Berjanesi heima á hlaði — og þar gaf á að líta. Fyrir öllum gluggum hússins voru rimlaflekar og sömu sögu var að segja um fjósgluggana. Örskammt frá bænum (í ca. tuttugu metra fjarlægð) stend- ur nýbyggð hlaða geysistór. Hún er steinsteypt og þræl- járnbundin. Nú er mikið af járninu fokið burt af þaki hennar. Hún var byggð síðast- liðið sumar og þetta er í ann- að skiptið, sem járnið fýkur. Þó var Andrés búinn að hnykkja hvern einasta nagla í þakinu í annað sinn. En það var ekki þakið sjálft, sem vakti mestu athygli okk- ar heldur norðurgafl hússins. Hann er byggður úr 16 cm. þykkri steinsteypu og allur járnbundinn. Á tveim stöðum ganga stuðningsveggir í vinkil inn úr gaflinum einnig úr steinsteypu og járnbundnir við meginvegginn. Þeir ná upp á miðjan gafl. Og þessi ramm- byggilegi steinveggur hafði bókstaflega fokið í sundur! Hann hafði rifnað að endi- löngu fyrir ofan stuðnings veggina og lyfzt upp á pá! Járnbindingarnar í veggnum höfðu ekki slitnað, en hins veg ar gefið sig eitthvað. Þarna er ekki um annað að gera en steypa nýjan gafl þegar vorar. Hafi einhver efi leynzt í hug- skoti okkar yfir roksögunum undir Fjöllunum áður en við sáum þessi vegsummerki, þá hvarf hann í það minnsta núna. Það væri gaman að vita, hver styrkleikur þess vind- sveips sem þessu olli hefu.r verið á vindmæli. — Þeir eru snarpir byljirn- ir hérna á stundum, sagði Andrés bóndi, — og þeir taka oft ekki yfir nema örmjótt belti. Til dæmis get ég sagt ykkur það, að við urðum ekki vör við þann byl, sem þessu olli heima í húsinu, og er þó ekki langt á milli. Járnplöturn ar voru svo að tínast af fram eftir allri nóttu. — Þú neglir fyrir glugganaV — Já, annað er þýðingar laust. Rokið sópar upp möl- inni hcr á hlaðinu og feykir með sér steinum af aurunum Rúðurnar verða eins og sii- unganet ef ekki er neglt fyrir gluggana. — Ég sá einu sinni rúður í bæ í Holtshverfinu eftir svona veður. sagði Einar. — Þær voru eins og smáriðið net •krafturinn á ' steinunum hefur verið eins og á byssukúlu, því hvergi var brotið út' frá. bar» götin eftir steinana eins og klippt út úr. Næst lá leið okkar að Leir- um. Þar býr ungur bóndi Jón Sigurðsson og hann varð einn- ig fyrir miklu tjóni í síðasta veðri. Skammt norðan við bæ inn stóð hlaða og fjárhús. í fjárhúsunum voru um áttatíu kindur þessa nótt. Húsin voru að vísu gömul, en tryggilega frá þeim gengið, eftir því sem hægt er við slík hús. Þakið fór af öllum húsunum í heilu lagi og lagðist fram og niður yfir fjárhúsið, yfir allan kinda hópinn. Svo giftusamlega tókst að enga kind sakaði og ekki heldur hest sem var í kró í húsunum. Skammt frá var minni hlaða, steypt. Þakið af henni var horfið út í buskann. Okkur datt helzt í hug loftár- ás. Svo var haldið upp fyrir þjóð veginn að nýju og Gissur bóndi í Selkoti sóttur heim. Hann byrjaði á sama for- málanum og Einar á Moldnúpi að það þýddi ekkert að segja þessar roksögur, það tryði þeim enginn. En við fullviss- uðum hann um að við tryðum orðið hinu og þessu eftir að hafa séð steinsteypta vegginn í Berjanesi. — Ég er afskaplega veður- hræddur maður, sagði Gissur og tók í nefið og bauð öðrum að góðum og gömlum íslenzk- um sið. — Það á líklega rætur sínar að rekja til þess, að ég Þeir eru hvorki stórir né léttir, gnýblásaranir, samt þvkja það engin tiðindi, þótt þeir fjúki um undir Fjöllunum, og blásarinn hans Einars á Moldnúpi sneri einu sinni öfugt eftir einn storm sveiplnn. varð afskaplega hræddur sem barn. Það var um vor árið 1907, þegar ég var 8 ára. Þá gerði óskaplegt veður hérna undir Fjöllunum. Ég átti þá heima í Drangshlíð hjá for- eldrum mínum. Þá nótt fauk hver einasta rúða úr húsinu í Drangshlíð. Fólkið tók sængur úr rúmum sínum og tróð í gluggana eftir því sem hægt var. Ég man að ég varð svo hræddur að ég skreið upp í til ömmu minnar. Þá var nýbúið að sleppa fénu og margt fauk ofan fyrir og drapst. Ég held að allt fólkið hafi verið hrætt og ég bý að þessu enn. Nei annars það var ekki allt hrætt. Ég man eftir göml um manni þarna á heimilinu. og sá var nú rólegur yfir þessu öllu. Hann svaf alla nóttina, nema þegar umgangur fólksins hélt fyrir honum vöku og ég man enn eftir að hann reis eínu sinni upp og hreytti út úr sér: „Hver andskotinn er þetta, getið þið ekki hangið í rúmunum!" Þá var hver ein- asta rúða farin úr bænum op allir aðrir en hann dauðhrædd ir um líf sitt! Og í þessu veðri gerðist einn af þessum ótrúlegu atburðum, sem þið eruð víst að sækjast eftir að heyra um. Hann gerð- ist á Hrútafelli. Það voru trað- ir heim að bænum, ég man nú ekki nákvæmlega lengur hve breiðar né háar þær voru, en mig minnir þær hafi verið nokkuð breiðar og garðarnir svona mittisháir. Þriggja vetra hestur stór og stæðilegur, var fyrir norðan traðirnar, þegar ein stormhviðan gekk yfir. Og heimilisfólkið horfði á klárinn takast á loft, svífa yfir trað- irnar og koma standandi niður hinum megin við þær, án þess að snerta garðana! Þetta þótti ótrúleg saga og þykir víst enn, en fólkinu bar svo saman i frá sögninni, og var enda mjög sannort að ég veit að þetta er sátt. Hesturinn var kallað- ur Fok-Nasi upp frá því og ég man vel eftir honum. — Tapast ekki oft hey i þessum veðrum að sumarlagi? — Jú, blessaðir verið þið, hvort það gerir, eða öllu held ur gerði, það er nú orðið minna um það, vegna þess að slátturinn er fyrr bú- inn. Septemberveðrin voru oft verst. En ég man eftir að Sig urjón í Hvammi sagði einu sinni við mig, að hann vildi glaður gefa 60 hesta af töðu á hverju sumri ef hann ætti víst að annað hey fengi að vera í friði. Ég man eftir því, að pabbi var einu sinni að heyja á svo- kölluðum Helgubakka í Bakka koti. Við vorum að hirða um daginn og fluttum heim á klökkum jafnóðum. Ekki höfð um við undan að flytja og um kvöldið var farið að hvessa og við sáum, að vonzkuveður var í aðsigi. Við tókum það tii ráðs að velta öllum böggunum saman og binda þá saman á bakreipunum. Svo bundum við reipi vandlega utan um alla hrúguna og gengum eins vel frá og okkur var framast unnt þar eð við bjuggumst við hinu versta. En morguninn eftir var ekki einn einasti baggi á sín- um stað. Mest af heyinu var fokið út í veður og vind nokk- uð hafði staðnæmzt í jökulá. sem rennur þarna hjá og var vitanlega ónýtt. Annars stenzt ajnn no -aci1 heSSÍ veðlH auðvitað ekki. þeir hverfa bara út 1 ouskann' Framhald á 14. síðu 6

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.