Alþýðublaðið - 10.07.1957, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 10.07.1957, Blaðsíða 12
estur híuli þess gúmmískófatnaiar er gerour íu, DAGUR Tékkóslóvakíu var í gasr á Vörusýningunni og' var í tilefni þess fjöldamörgum gest- nm boðið að skoða sýninguna. Er gestir höfðu skoðað sýning- una um stund, var þeim boðið til miðdegisverðar í Þjóðleik- Jiússkjallaranum. Þar ávarpaði tékkneski sendifulltrúinn, Jar- oslav Zantovsky, gesti og minntist á hin miklu viðskipti, sem ísléndingar og Tékkar hefðu haft á síðastliðnum ár- um. Veroslav Cubr, forstjóri tékknesku vörusýningarinnar, liélt raaífú í sýningarsalnum og drap nánar á helztu viðskipti þjóðanna. Kvað hann útflutning frá Tékkóslóvakíu til íslands hafa aukizt árið 1955 um 65 af hundr aði og á síða^ta ári um 30 af hundraði. Hann kvað þessa miklu aukningu í efnahagslegri samvinnu, sem vseri þýðingar- mesti þátturinn í samskiptum þjóðanna, ástæðima fyr-ir því-að sýning þassi skuli nú vera hald- ^ in. Á sýningunni er fjölbreyttur varningur, sagði hann, sem við erum reiðuhúnir til að flytja út til íslands og margar þeirra vö.utegunda hafa þegar unnið sér traustan markað hér. Marg- ir íslendingar eru meðlimir hinnar frægu Skodafjölskyldu, sem dreifð ei um allan heim, en Skodabílar eru framleiddir af Motokov verksmiðjunum í Tékkóslóvakíu. Verosiav Cubr taldi enn upp fjölmargar vÖrutegundir, sem Tékkar gætu flutt til Islands, véiaverkí'æri og smíðavélar, loftpressur, dísilvélar og heilar verksmiðjur, byggingarvörur, ; heimsþekkt tékkneskt g'ler, I borðbúnað og leirvörur. Síðan | sagði hann: Mestur hluti þess gúmmískó- j fatnaðar, sem notaður er á Is- ! landi, er upprunninn í Tékkó- slóvakíu, og svipuðu máli gegn- ir um skófatnað úr st.iga. Hvað skófatnað úr leðri snertir, tel ég að tök séu á.að auka útflutn- ing á hörium hingað til lands verulega. Að því er mér hefur virzt hafa vefnaðarvö.ur okkar Framliald á 2. síðu. ÍVIiðvikudágur 10. júlí 1957 Frá samninganefnd stýrimannas UM EN HMETAR. Aufúsygestir tónJistarunnendym: Cixa TIL skýringar á kröfum yfir- manna ■ á kaupskipaflotanum í yfirstandandi kjaradeilu hefur verið gerður samanburður á kaupi og vinnutíma stýrimanna annars vegar og háseta hins vegar. Eitt dænii úr þessum samanburði fer hér á. ef.tir. Er miðað við eins mánaðar tímabil og reiknað út, hve mikið hver aðili fyrir sig ber úr býtum, Önnur dæmi um samanþurð á launum háseta og yfirmanna. eru hliðstæð og jáfngild. . , Samanburður á vinnutíma og kaupi háseta og 2. stýrimanns á millilandaskipi í 5. fl. í Ev- rópusiglingum miðað við 1S daga á sjó, 4 daga í Reykjavík og 8 dága í erlendum höfnum. Norðlendingur með 308 leslir karfa Ólafsijarðar. ÓLAFSFIRÐI í gær. TOGA'RINN Norðlendingur kom hingað í gær með 308 lest- ir af karfa og fór aflinn allur til n-ystingar. Kom hann af Græn landsmiðum og hafði aðeins verið 12 daga í ferðinni. Togar- inn lagði óðar af stað aftur til veiða við Austur-Grænland. Fyrsta síldin kom til Ólafs- fjarðar í gær. Var það Kristján, sem kom með 250 tunnur til söltunar. Danskt skip kom hing að með sement í dag. Erfitt var að fá menn til uppskipunar, því að hér er mikil atvinna um þess ar mundir. R.M. halda tónleika í Rvík í vikulökm Söngkonan syngur m. a. lög eftir Brahms, Schubert, Saint-Saen o. f!» HINGAÐ ERU KOMIN til landsins dr. Franz Mixa og kona lians, Herta Töpper, óperusöngkona. Á fimmtudags- og laugardagskvöld kl. 7 síðd. lialda þau hljómleika i Austurbæi- arbíói fyrir styktarmeðlimi Tónlistaríélagsins. Frúin syngur þar lieder eftir Brahms, Schubert, Hugo Wolf og Franz Mixa, og auk þess óperuaríur úr Samson og Dalila eftir Saint-Saens, úr Mignon eftir Thomas og Habanera úr Carmen eftir Bizet. Dr. Mixa leikur undir. i izt hér á landi langdvölum og talar islenzku. Dr. Mixa kom fyrst til íslands 1929, vegna undirbúnings Alþingishátíðar- innar og fyrir tilstuðlan Sigfús- , ar heitins Einarssonar tón-1 skálds. Kom hann mjög við sögu tónlistarinnar næstu 8 ár-' in, átti þátt í stofnun tónlistar- | skólans og var þar fyrsti aðal- j kennari, var aðalhljómsveitar- stjóri Hljómsveitar Reykjavík- ur, sem þá var starfandi og und anfari sinfóníuhljómsveitarinn- ar, stjórnaði flutningi fyrstu óperettunnar, sem hér var flutt og fyrstu óperunnar. Síðan 1938 hefur hann ekki komið, hingað utan í svip 1948, en er j nú skólastjóri við tónlistarskól- ann í Graz í Austurríki; orðinn víðkunnur tónlistai'maður á meginlandinu, t. d. fyrir tón- smíðar. A. Kaup. Háseti: Stýrimaður; Grunnkaup 1.950,00 2.580,00 Aldursuppbót 150.00) Vísitala 1.599,00 Yfirv. (10 t. á 19,65) 196.50 Z.2oo,o(J) Yfirv. (90 t. á 28,94) 2.604,60 (15 t. á 32,76 491,40 6.350,10 5.460.00 B. Vinnutími. 18 dagar á sjó 4 dagar í Rvík — 8 dagar í erl. höfn — Háseti 144 vinnust. Stýrim. — 16 — — 44 50 144 vinnust 32 — 96 — 15 — 30 dagar Háseti 254 vinnust. Stýrim. 287 vinnust. Á cinum mánuði vinnur há- setinn 254 vinnustundir og fær í kaup kr. 0.350,10. Á sama mánuði vinnur stýrimaður 287 vinnustundir og fær í kaup kr. 5.460,00. Að nieðaltali fær há- scti kr. 25,00 fyrir hverja vinnustund, en stýrimaður fær kr. 19,02. Hér er reiknað með hæstu lau’ium 2. stýrirnanns í hæsta fiokki. Þótt stýrhnaður hafi skilað 4 árum af ævi sinní til útgerðarinnar á lægri laun- um og hafi að báki langa skóla- setu, sem er undirbúningur fyr’ ir starf hans, fær hann ramt kr„ 5,98 minna á tímann en háseti. Vinna stýrimánná reiknuð skv. Dagsbrunartaxta. 18 dagar á sjó 154% st. dagv. 4 dagar í Rvík 20 st. eftirv. 8 dagar í erl. höfn 12814 st. næturv. Matar og kaffitímar Dr. Franz Mixa er íslenzkum tónlistarunnendum að góðu kunnur, enda hefur hann dval- landsleikurinn ntilli er á Laugardalsyelli í SÖNGKONAN Frúin er einnig víðfræg lista kona. sem sunffið h°fur alt- og 2.894.41 461.10 4.796,55 8.152,06 Það er 19. landsleikur íslands. 213. landsleikur Dan- merkur. — Danir hafa alltaf unnið til þessa. — Ein breyting frá liðinu, sem lék við Norðmenn. I KVÖLD kl. 8.30 fer fram fimmti landsleikurinn, sem Danmörk og ísland heyja sin á milli í knattspyrnu. Jafnframt er það 19. landsleikur Islend- inga, en 213. landsleikur Dana. Lið Islendinga verður skipað sömu mönnum og léku gegn Norðmönnum í fyrrakvöld, með þeirri breytingu einni, að Gunn ar Guðmannsson KR leikur nú stöðu hægri útherja í stað Hall dórs Sigurbjörnssonar IA. Þá skipta Halldór Halldórsson og Kristinn Gunnlaugsson á stöð- u m í liðinu. Danska landsliðið verður skipað sömu mönnum og greint var frá í Alþýðublaðinu fyrir helgi. Dómari verður skozki milliríkjadómarinn, R. H. Da- vidsson. Á undan landsleiknum kl. 19.45 hefst kappleikur í 3. flokki milli KR og Vals. FIMMTI LANDSLEIKURINN Eins og fyrr segir verður þetta fimmti landsleikur Dan- merkur og íslands. Hinn fyrsti fór fram í Reykjavík 17. júlí 1946. Unnu Danir 3:0 og þóttu íslendingar mega vel við una, enda fyrsti landsleikur þeirra. Annar leikur fór fram í Árós- um 7. ágúst 1949. Danir unnu með yfirburðum, 5:1. Þriðji leik urinn var í Kaupmannahöfn 9. ágúst 1953 og unnu Danir enn með 4:0 (1:0 í jöfnum fyrri hálfleik). Fjórði leikurinn var svo í Reykjavík 3. júlí 1955. Unnu Danir 4:0, eftir að hafa ráðið leiknum allan tímann. — í þessum fjórum landsleikjnm hafa Danir þannig gert 16 mörk gegn 1. Þetta eina mark skor- aði Haildór Halldórsson í Ár- ósaleiknum. Lék hann þá stöðu innherja, en hann hefur leikið fleiri stöður í landsliði en nokk ur annar, m. a. innherja, fram- vörð, bakvörð og miðvörð. Ef vinnustundir 2. stýri- manns í hæsta flokki eru reikn aðar skv. kaupi Dagsbrúnar- verkamanns, ætti hann að hafa kr. 8.152,C6 fyrir þessa vinnu, en raunverulega fær hann kr. 5.460.00. í dæmi þessu eru allar vinnustundir stýrimanns á sjó reiknaðar á dagvinnukaupi, þótt unr.ið sé á öllum tímum sólarhringsins. Til viðbótar vio frar.ianritað fylgir hér með yfirlit y fir kaup greiðslur í 6 mánuði hjá Skipa- deild SÍS frá október 1956 —• marz 1957. Athygli er yakin á því, að greiðslur þessar sýna meiri mun á launurn stýri- manna og háseta en útréikirig- arnir hér að framan. i Jökulfell Háseti 7.230.00 2. stýrim. 5.113.94 Mism, 2.116,06 Heigafell 6.885,44 5.213.62 1.671.82 ! Hvassafell 6.315,48 5.027,01 1.283,47 Samninganefnd Stýrimannaféiags Isla'.ds. “‘itlahiór.ln ISs Hnappatíalssýslu um næitu tieí'gl., I Dalasýslu og Barðastrandasýslu um aðra helgi. mezzohlutverk í óperu.húsum víða, m. a. við Wagner-leikhús- ið í Bayreuth, en þangað eru ekki ráðnir nema fremstu lista- menn hsimsins. Herta Töpper er nú ein af aðalsöngkonum Munchenaróperunnar, sem er ein sú fremsta í Þýzkalandi. og á Múnchenarhátíðinni, sem hefst um miðjan næsta mánuð, á hún að syngja ekki sjaldnar en 17 sinnum á þeim mánuði. Framhald á 11. síðu. FORSETI íslands, herra Ás- [ \ gf ir Ásgcirsson og forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir fara í opin- | bcra heimsókn vestur í Snæ- | fells- og Hnappadalssýslu um helgina. Verða þau í Stykkis- liólmi á laugardag 13. júlí, en j i munu síðan ferðast víðar um héraðið á sunnudag og mánu- ' dag. • Um helgina 20. til 21. júlí 1 | munu íorsetahjónin fara í heim í sókn í Dalasýslu og Barða- strandasýslu. Verða þau í Búð- ardal á láugardag og í Bjarkar- lundi í Þorskafirði á sunnudag, og munu síðan koma víðar við í þessum sýslum á hfimleiðinni. (Frá skrifstofu forseta Islands.) Veðrið » rf r g ! Hægviðri; léttskýjað. j

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.