Vísir - 24.12.1932, Side 16

Vísir - 24.12.1932, Side 16
VÍSIR tölurnar, sem hann skrifaði, settu hugann i hreyfingu. „Verðið hér hjá okkur er grát- legt,“ hugsaði „Sekúnduvísir- inn“. „Það er ekki að undra, þó að við höfum mikið að gera. En til hvers er að hafa fullar hendur af allskonar vinnu, þeg- ar vasarnir eru tómir.“ Ef það væri þá til nokkurs að minnast á það. En það var ekki til neins. Hvert skifti sem hann mintist á það, reyndi „Sekúnd- an“ að útskýra það fyrir hon- um, að úrsmiðurinn væri nokk- urs konar trúboði. Alveg eins og trúhoðinn tæki ekkert fyrir að boða lieiðingjunum guðs orð, eins inætti úrsmiðurinn ekki taka meira en kostnað sinn, fyrir að selja og gera við úr. Það mátti ekki halda „sak- ramenti“ tímans frá almenn- ingi, með þvi að halda þvi of dýru, til þess að úrsmiðurinn gæti grætt nóg. Þessi hugsun- arháttur benti sannarlega á, að „Sekúndan“ gengi ekki aðeins i barndómi, heldur væri band- vitlaus. „Það verður margt, sem þarf að kippa í lag liér, þegar eg tek við,“ hugsaði „Sekúnduvísirinn“. En „Sek- úndan“ sat ánægður og srníð- aði klukkuúa sína eins hátíð- lega og maður, sem biður lengi og innilega til guðs. Hann sá í anda daginn, þegar klukkan var búin. Það átti ekki að vera nein vanaleg klukka, þetta síð- asta verk hans. Það var meist- arastykkið hans, sönnunin fyr- ir því, hvað úrsmiður gat gert, þegar höndin var auðmjúkur þjónn andans. Úrið átti að telja sekúndur, mínútur, tíma og daga. En fyrir utan sláttinn átti klukkan-------nei, liann gat ekki hugsað um það. Hann varð að halda áfram að vinna. Seinna gat liann notið ávaxt- anna. Hann dundaði kyrlátur og niðursokkinn við það,eins og sá, sem vinnan er lífið fyrir og lífið hin mikla hamingja. Að- eins þegar klukkan var að því komin ,að slá lieils tima slátt, þá leit liann upp og hlustaði. Og meðan liljómur kirkju- klukkunnar titraði i loftinu, leit liann á tímamælinn, kink- aði kolli og liélt áfram vinnu sinni. IV. Eftir fjögra ára vinnu stóð klukkan eitt kvöld tilbúin og geklc. — Á úrskifunni stóð letrað: „Pater noster“, það var eina latínan, sem „Sek- úndan“ skildi, nema orðið „annó“, sem stóð fyrir framan 1879. Neðst gat maður lesið: A. C. Berg, Noregur, með ósköp smáu letri. „Sekúndan“ hafði orðið óstyrkur yfir úrslitavinn- unni. Ilann réð ekki við fing- urna á sér. Titrandi hafði hann dregið ganghjólin upp. Nú sat hann þögull og lilustaði á „ræðu“ klukkunnar. Það var dimt í búðinni. En lampinn á vinnuborðinu logaði. Elías stóð og beið fyrir innan búðarborð- ið. Hann var búinn að láta hler- ana fyrir gluggana og Iokur fyrir hurðina. Klukkan var yf- ir átta. En „Sekúndan“ sagði ekki eins og vant var: „Þú hef- ir ekki meira að gera i dag, Elias.“ I 35 ár hafði meistarinn sagt þessi sömu orð á liverju kvöldi. í 35 ár hafði Elías ald- rei farið, fyr en búið var að segja þessi orð. Þess vegna fór hann ekki i lcvöld, þó að hann skildi, að „Sekúndan“ liefði gleymt honum af gleðinni yfir því, að klukkan var tilbúin. Elias beið þolinmóður og var að hugsa um, hvað húsbóndi hans væri orðinn gamall og gleyminn, þessar síðustu vikur. Það hallaði undan fæti. Það var ekki ofsagt um mann, sem gat sest niður og gleymt öllu í kringum sig yfir klukku, sem gekk. Eins og það væri ekki nóg tækifæri á degi hverjum, til að skemta sér við slikt. Það var svo mikið um það, að klukkurnar gleymdust seinast alveg. Nei, þetta ætlar að drag- ast. Best að fá sér stól til að silja á. Elias fór fram að búð- arborðinu og settist i sætið sitt. Þarna sátu þeir báðir, „Sek- úndan“ og „Sekúnduvisirinn“. Annar lilustaði og hinn beið. Elias, sem hafði ekkert að gera, liugsaði með sér: „Það er best að hlusta að gamni. Það væri nógu gaman að vita, hvort eg gæti heyrt nokkurn fagran söng í þessu ganghljóði.“ Svona sátu þeir og klukkurnar gengu alt i kringum þá. „Það er eins Og lifandi lijartsláttur,“ hugs- aði „Sekúndan“. „Það er eins \)g grátitlingur á grein,“ hugs- aði „Sekúnduvísirinn“. Og klukkurnar keptust við að gangá. Hver annari liærra og sterkara. Og tíminn, sem þaut fram hjá, hlaut að hafa lætt liugsunum „Sekúndunnar“ inn í „Sekúnduvísirinn“. Þvi að smátt og smátt gleymdi hann grátitlingnum. „Þetta er eins og stór fjölskylda,“ hugsaði Elías. „Þær tala saman. Gam- an væri að skilja, livað þær eru að segja.“ Hann liafði aldrei tekið eftir því fyrr en í kveld. Hann hagræddi sér á stólnum, beygði liöfuðið áfram og lilustaði. Þannig sátu þeir báðir og lilustuðu á klukkurn- ar, sem mældu hvernig tíminn leið. „Sekúndan“ síalst til að gefa Eliasi liornauga. Hjartað lioppaði í honum. Þarna var það komið. Loksins hafði tim- inn náð honum á sitt vald. Nú var kominn timi til að tala. „Sekúndan“ spurði kju-látlega: „Heyrirðu tímann, Elías?“ „Já,“ hvíslaði Elías, eins og hann væri hræddur um að röddin truflaði. „Skilurðu livað klukkurnar segja, Elias?“ „Eg er að hlusta,“ svaraði „Sekúnduvísirinn“, „því að nú veit eg, að þær eru eitthvað að segja.“ Þær eru að segja frá vegi. Hann byrjar, þar sem lifið byrjar, heldur áfram gegnum dauðann og inn í lifið aftur. Þennan veg liafa mennirnir gengið í óendanlegan tima. í vegarbrúninni standa tré, sem gefa skjól og skugga þreyttum og sjúkum og strá visnum blöðum sínum yfir hina föllnu. Þeir hafa barist áfram i lióp- um og röðum. I æskukrafti ruddu þeir sér veg og brutust áfram. Með rósemi ellinnar leiluðu þeir sér að úrræðum og fóru varlega og með lipurð. En alt, sem lifir, hefir komist leið sína, af því að það mátti til. Fyrst þeir elstu, og þannig hefir það lialdið áfram, kyn- slóð eftir kynslóð. Á leiðinni var talað um guðs óendanlega kærleika. En flestir skildu ó- ljóst, það sem þeir heyrðu. Því að orðin bárust til evrna þeirra eins og mjúkur vindur. Þau liðu fram lijá eins og ástaratlot og höfðu að eins augnabliks- áhrif. Það var hlustað á þau með velþóknun, en þau gleymdust, þegar þau voru lið- in hjá. En eftir því sem á veg- ferðina leið, breyttist þíðvind- ið í sterkan storm, sem kom vegfarendunum á kné. En fá- einir geymdu fræ þíðvindisins í hjarta sér, létu þau frjóvgast þar, höfðu vakandi auga á jurtinni og gerðu hana að lífs- tré sínu. Og þó að þeir væru fáir, voru þeir samt nógu margir til þess, að hið eilífa og óendanlega ljós lýsti öllum og öllu á leiðinni. Vegfarend- urnir fundu ylinn af eldi guðs. En flestir litu að eins á ljósið eins og takmark, sem þeir ættu einhvern tíma að ná. Það lá ekkert á. Tíminn var nægur. Þeir næðu sjálfsagt einhvern tíma þessu dásamlega hlýja ljósi, sem myndaði íneð geisl- um sínum stiga frá jörðu upp að liásæti guðs á himnum. En þeir elstu voru farnir að skilja, að liver sekúnda var verðmæti, sem hvorki var liægt að mæla né missa. Þá sárlangaði til að veita þeim, sem á eftir komu, lilutdeikl í þekkingu sinni. Og þar eð þeir gátu ekki snúið við, töluðu þeir um það sín á milli, hvernig þeir ættu að komast i samband við eftir- komendurna. Þá stakk einn af þeim elstu upp á því, að skifta tímanum frá sólarupprás til sólarlags í jafnstóra hluta og reyna að finna upp af liugviti sínu áliald, sem gæti bent veg- farendum á hvernig tíminn liði. Það átti að taka upp allra- minsta tímakorn og lialda því uppi fyrir augum mannamia og segja: „Sjáið þið þetla, það er svona lítið, en samt svo stórt og dýr'mætt, að allir fjár- sjóðir vegarins geta ekki bætt það upp.“ Þá fundu menn upp, að búa til stundaglasið, Elías. Og upp úr stundaglasinu kom klukkan. Og nú á dögum segja klukkurnar um allan heim frá hinni eilífu rás tímans. Nú skilur þú köllun og ábyrgð úr- smiðsins, Elías. Þú og eg, við eigum að minna alla á að tím- inn liér á jörðinni er stuttur, en vegurinn til ljóssins og stig- ans, sem liggur upp til guðs er langur.“ Það var þögn í búðinni lengi eftir að „Sekúndan“ hafði lok- ið frásögn sinni. Að eins klukkurnar gengu. Og úrsmið- irnir voru báðir svo sokknir niður í hugsanir sínar, að þeir tóku ekki eftir, þegar klukk- urnar slógu. Þegar „Sekúnd- an“ loksins stóð upp, gekk hann liátíðlega til Elíasar, tók í liönd honum og sagði: „Farðu nú heim, Elías. Nú ertu orðinn meistari.“ GLEÐILEG JÓL! Sig. Þ. Skjaldberg, Laugaveg 58. nir" Sní! GLEÐILEG JÓL! HVANNBERGSBRÆÐUK. ssææææææææææææææææææææææææaj GLEÐILEG JÓL! Smjörlíkisgerðin Ásgarður. ........................................................................................1111 sa GLEÐILEG JÓL! H.f. VEGGFÓÐRARINN. Illlillillllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllillli ..........................................................................Illlllllllll GLEÐII.EG JÓL! VERSLUNIN VlSIR. IIÍÍIIIIHilillllllilllllltlllllllllllHIIHIHIilllillllHIIIIIIIHIHIIIIlllilimiill & GLEÐILEG JÓL! Verslunin Björn Iíristjánsson. Jón Björnsson & Co. . GLEÐILEGRA JÓLA óskum við'öllum okkar mörgu viðskifta- vinum til lands og sjávar. Veiðarfæraverslunin Geysir. Þessa nótt gat Elías ekki sof- ið. Klukkurnar héldu vöku fyrir honum. Klukkurnar, sem hann liafði hlustað á í 35 ár og samt aldrei lieyrt til. Þær töluðu um kærleika og ábyrgð. Þegar birti af degi klæddí Elías sig og fór niður í búðina. Þar ætlaði liann að setjast kyr- látlega og hlusta. Hann átti liægt með það, þvi að liann hafði sjálfur lykil og þurfti ekki að trufla „Sekúnduna“. Elías fór hægt inn bakdyra- megin. Hurðin var opin inn í herbergi „Sekúndunnar“. Hann gægðist inn. Hvað var þetta? Elías gekk inn að rúminu og tók liönd meistara síns. Hún var köld. Ilann beygði sig nið- ur að lionúm og hlustaði eftir hjartslættinum. Það var eng- inn hjartsláttur. Hann var dauður. Elias sá það strax á augunum. Þau voru eins og klukkur sem stóðu. Hann beygði höfuðið og grét og strauk blítt og varlega hendur meistarans, eins og hann ætl- aði að verja þær fyrir kulda dauðans. Kirkjuklukkan og „Pater noster“ slógu fimm liögg og fáeinir tónar úr sálm- inum: „Tíminn líður, tíminn bíður“ eins og læddust út í herbergið. Það var meistaraverkið, sem hann hafði verið svo gagntek- iiin af, að liann þorði ekki að liugsa um það. Og það leit út fyrir, að liann hefði notið gleð- innar af því í fullum mæli, tvö- faldrar gleði: yfir meistara- verkinu, sem hafði heppnast, og nýja meistaranum, sem var kominn til að leysa hann af liólmi. Því að þarna lá liann brosandi, eins og hann væri að lilusta á klukknaliringingu, sem kæmi langar leiðir að. Og klukkurnar kringum hann sögðu, að nú liefði tíminn breitt mjúku ábreiðuna sína yfir sinn gamla, trúa þjón. * * * En mennirnir sögðu: „Það er mikið hvað „Sekúnduvísir- inn“ syrgir „Sekúnduna“. Hann er orðinn svo undarlegur. „Sekúndan“ var þó aldrei svona mikill glópur.“ (E. þýddi). \

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.