Vísir - 10.01.1958, Síða 10

Vísir - 10.01.1958, Síða 10
10 VISIR Föstudaginn 10. janúar 195S IPtfVVFVV.rJV^.V^JVy'AVWWVVWVVWVVVWtfVrWVW'W^VVVVS una. — Auk þess verð eg að vinna lengi fram eftir á sjúkra- húsinu í kvöld — það verður enginn tími til að hafa fataskipti og fara á dansleik. — Þú mátt ekki láta sjúkrahúsið hertaka þig alveg, John, svaraði frænka rólega. — Þú drukknar í vinnu á nýjan leik, ef þú gætir þín ekki. Þú átt að fara á þennan dansleik hjá Milbur — enginn getur skorast undan því. — Auk þess getur þú hjálpað Colette ef þú ferð þangað. — Colette? Hann starði á hana. — Hvað kemur Colette þessi dansleikur við? Hvað ertu að hugsa um, Bella frænka? — Ekkert, góði minn. Eg hef ekkert skipt mér af þessu, trúðu mér til. Eg veit bara að Helen Stannisford sagði lafði Laviniu, móður Frances, að Colette væri væntanleg heim, og lafði Lavinia sagði eitthvað um að hún mundi koma nógu snemma til að kom- ast á dansleikinn. Og í dag sagði Colette mér að hún ætlaöi bangað, og mér skildist á henni að hún kviði hálfvegis fyrir því.... ' ' # ^ Colette, Colette.... á þetta gamla hefðarheimili! Feimna, hálf- vilta Colette.... innan um allan þennan tildurlýð. — Eg hugsa að hún hafi ætlað að finna þig út af þessu í morgun, sagði Bella frænka. — Og nú hefur þú því miður engan tíma til að svara boðinu skriflega, en eg lofaði hálft í hverju að þú mundir koma. Það er alltaf hörgull á karlmönnum á dans- leikjunum núna. — Jæja, þú gerðir það! John brosti glettinn. — Þó að þú vitir mætavel að eg hef mestu andstyggð á þess háttar samkomum Bella frænka hló. — Eg héJ.t að þú gætir orðið Colette til huggunar, svaraði hún blíðlega. — Þú ert einskonar meðráða- maður hennar, hvort sem er. Það varst þú, sem komst með hana hingað, og eg held að henni sé hollari vinátta þín en Nigels. Það var komið fram á varirnar á John, að Steve, maðurinn henn- ar, hefði áform um að láta Colette og Nigel giftast, en hann sagði aðeins: — Við sjáum til þegar eg kem heim í kvöld. ERÐASKRÁIN. — Helen, það fer hrollur um mig þegar eg sé þessa vinnukonu þina! Grant málaflutningsmaður brosti og tók í hönd gömlu konunnar. — Coles? Helen hló lágt. — Veslings Coles! Hún reynir að halda í mér líftorunni með því að búa um mig í bómull, Steve. Þegar maður hugsar til þess hve mikils hún hefur til að vinna ef eg hrykki upp af, verður ekki annað sagt en þetta sé mann- kærleikaverk af henni. — Eg býst við að henni þyki vænt um þig, upp á sína vísu. En það er mál til komið, að við gerum nýja erfðaskrá, Helen. Sú sem við gerðum eftir að Henry dó, var hálfgert afrit af erfða- skrá hans. — Jú, það er hverju orði sannara. Eg var svo aum þá, að mér var ómögulegt að hugsa. Colette verður hjá hárgreiðslukonunni síðdegis í dag. Það var þess vegna, sem eg gerði þér orð. Hávaxinn, gráhærður málaflutningsmaðurinn horfði á hana á báðum áttum. — Þú vildir sjá hana fyrst. Hvernig líst þér á dótturdóttur þína? Nú hefurðu kynnst henni. Helen leit upp og augun ljómuðu af ánægju, og Steve fann, að hún var unglegri núna en hún hafði verið í mörg ár. — Þarftu að spyrja mig um það? Hún er svo lík henni Evelyn! Ekki að- eins í útliti, — það er sama góða sálin og hjartahlýjan í henni.... — Að því er mér skilst var faðir hennar góður maður líka, tók Steve fram í. — Við skulum snúa okkur að málinu. Eg skal skrifa hjá mér það sem þú óskar að taka fram, og eftir nokkra daga get eg sent þér uppkast að erfðaskránni. Helen hló lágt. — Eg hélt að þú hefðir dregið þig í hlé, Steve? — Eg hef dregið mig í hlé, en það eru nokkur mál, sem eg vil helzt ganga frá sjálfur. Gamlir skjólstæðingar og gamlir vinir, eins og til dæmis þú, Helen. Annars hugsa eg ekki um neitt nema golf, skák og dútla við garðinn minn. — Jæja, eg er nú hrædd um að þér líki ekki nýja erfðaskráin mín, Steve. Gamla konan laut fram í stólnum. — Þess vegna datt mér í liug hvort þú vildir ekki fremur senda einhvern lög- fræðing af stofunni til að skrifa þetta niður? — Æ, Helen! Það var örvænting í rómnum. — Góða mín, eg vona innilega að þú hafir ekki hugsað þér að gera sömu skyssuna sem Henry gerði. Eg veit að þú vilt ekki hlusta á gagnrýni, þegar Henry á hlut að máli, en það sem hann gerði hefur valdið nógu tjóni, þó ekki bætist meira viö.... — Já, víst hefur verið unnið tjón. Hún starði út í bláinn, annarshugar. Steve mundi hafa hrist hana ef hún hefði ekki verið lasburða gamalmenni. En það var auðséð að hún var staðráöin í því, sem hún ætlaöi að gera núna. Hún var ekkert annarshugar þegar hún tók til máls aftur. Hún horfði fast á hann. — Steve, hvort þér líkar betur eða ver, vil eg að þú vitir, að Colette vill ekki taka við miklum arfi. Hún gerð mér þetta skiljanlegt í morgun. Steve yppti öxlum — hann var orðinn óþolinmóður. — Colette hefur líklega aldrei átt fimm aurum meira en hún þurfti á að halda. Hvernig ætli hún viti eða viti ekki, hvort hún vill bera ábyrgð á miklum eignum? spurði hann talsvert æstur. Helen varp öndinni. — Eg held að Colette sé hyggin stúlka. Hyggnari en bæði þú og eg og Henry. Kannske hún — einmitt vegna þess að hún hefur orðið að komast af með lítið — viti hvað verðmætt er í lífinu? Þú verður að láta mig um þetta, Steve. Ef þú vilt ekki hjálpa mér til að ganga frá þessari erfða- skrá, verö eg að fá einhvern annan málaflutningsmann til þess. Hann starði á hana. Þetta var alveg ný Helen — Helen sem hann hafði ekki séö í hugi ára. Colette hafði umhverft þeim öllum — hafði fært þeim nýjan viljaþrótt. John var breyttur, Bella var alveg töfruð af stúikunni — og Helen svona.... — Jæja, jæja. Þú veist vel að málaflutningsmaður verður að fara að óskum skjólstæðings sins, góða Helen — jafnvel þó að hann sé honum ekki sammála. FRÚ STANNISFORD ER HÖFÐINGLEG. Colette var auðsveip og hlýðin það sem eftir var dagsins, eftir að henni hafði mistekist að hitta John. Henni tókst að ná sér eftir vonbrigðin áður en hún settist hjá frú Joyce inn í bílinn. Vinsemd Bellu frænku var eins og hlýr ylur yfir ískalt regin- djúpið, sem aðskildi hana frá John. Og hún vildi nauðug, að Joyce læsi hugsanir hennar. — Hann var í önnum — vitanlega, sagði Joyce. — Tíminn er dýrmætur hjá honum, skilurðu. — Eg hitti frú Grant, sagði Colette rólega. — Hún er einstak- lega elskuleg manneskja. Hún bauð mér í miðdegisverð. Bölvaður refurinn, hugsaði Joyce með sér í haturshug. Hún veit auðvitað allt um erfðaskrá frú Stannisford. JoyCe gat yfirleitt ekki dottið í hug, að nokkrum gæti þótt vænt um Colette, nema í sambandi við það að hún væri erfingi að miklum auði. Eftir að hafa nuddað við Henry í mörg ár, og síðan við Helen, fannst henni það hróplegt ranglæti ef Paul og Nigel misstu af þessum auði á síðustu stundu. Helen gat ekki tórað lengi úr þessu. Cranford læknir hafði aðvarað hana svo alvarlega, að það var auðséð hvað hann hélt. Grant málaflutningsmaður beið eftir þeim í bankanum. Hann fór með Colette inn til bankastjórans, en Joyce beið frammi i afgreiðslusalnum á meðan. Hann taldi sjálfsagt að gefa stúlk- unni heilræði áður en hún fengi peningaráðin. kvöEdvökunni • Tommi, viltu gera svo vel að loka fyrir útvarpið. Þessi kvenþulur ætti alls ekki að tala í útvarpið með þessa andstyggilegu grófu rödd. — En, mamma, þetta er ekki útvarpið, þetta er frú Stína að heimsækja þig. ★ — Eg hef fundið upp nýtt sirkusatriði — vinátta ljóns og geitar. — Verður það ekki erfitt? Ætli það slettist ekki fljótt upp á vinskapinn? — Jú, auðvitað svolítið, en þá kaupum við bara nýja geit. * — Hvernig finnst þér þessi kaka? — Hún er ágæt. Keyptirðu hana sjálf? — Ljós stjörnunnar, sem eg ætla að sýna ykkur, er fjóra tíma á leiðinni til jarðar. — Mjög athyglisvert, en eg' er hræddur um að eg hafi ekki tíma til að bíða svo lengi. * Hjúkrunarkona: — Þér haf- ið rétt í þessu eignast tvíbura. Faðirinn: — Segið konunni ekki frá því eg ætla að koma henni á óvart. ★ — Hefur þú heyrt síðustu hneykslissöguna? — Nei, konan mín skrapp út á land. / ★ — Þú veizt að verndarengill þinn er alltaf með þér. —Borðar hann með mér? — Já. — Sefur hann hjá mér? — Já. — Svo það er náunginn sem sparkaði mér fram úr í nótt. ★ — Hvers vegna tók Nói tvö dýr af hverri tegund í Örkira með sér? — Því hann trúði ekki sög- unni um storkinn. ★ —• Segðu mér einhverja t.il- vitnun úr Biblíunni. — Júdas gekk út og hengc^. sig. — Og einhverja aðra. — Gakk út og ger slíkt nð sama, E. R. Burroughs «— TARZAN — 2.121 Spjótunum rigndi yfir þau, en hitti þau ekki og nú voru þau komin að kletta- vegg sem varði þeim út- göngu. Það var ekki nema ein leið til undankomu, ef þau voru þá ekki' að ganga í gildru, sem yrði bani þeirra. Þau köfuðu og syntu eins og þau gátu undan straumi, en kletturinn luktist yfir höfð- um þeirra. Hann gleymdi að endurnýja! ’Happdrætli HÁSKÓLANS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.