Vísir - 10.01.1958, Qupperneq 12
I
I Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
1 Látið bann færa yður fréttir ®g annað
lestrarefnl heim — án fyrirhafuar af
yðar hálfu.
[________________Sími 1-16-60.________________
Föstudaginn 10. janúar 1958
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendux
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60. 1
19 bréf afhent í dag.
Nýtt bréfaflóð frá Bulganin.
Viil forsætisi'áðherrafund!
b Getif fyrir vorið*
Bulganin hefnr lagt til a£
Æundur verði haldinn eftir 2—S
*iánuði um friðarmálin.
Fregnin um nýtt bréíaflóð frá
Eulganin forssetisráðherra Sov-
‘ ríkjanna vakti nokkra undrun
manna í vestrænum löndum, er
|>að fréttist, að hann hefði skrif-
■)ð forsætisráðherrum allra ríkja
l'ýorður-Atlantshafsvarnar banda
Iagsins og sömuleiðis forsætis-
j' -ðherrum Varsjárbandalagsins,
ng stungið upp á, að þeir kæmu
.saman á fund með sér eftir 2—
■3 mánuði til þess að ræða hversu
iraga mætti úr ófriðarhættunni
i heiminum.
Almennt er ’talið líklegt, að
uppástungan verði tekin til vin-
samlegrar athugunar, og að
fundurinn verði haldinn í Genf,
náist samkomulag um uppá-
/Vunguna.
Undrun manna var aðallega í
)>ví fólgin, að bréfin yrðu send
íður en svör bærust lil Moskvu
við bréfum, sem Bulganin skrif-
•aði fyrir Nató-fundinn í desem-
ber, en það er verið að ganga frá
nvörum Natoríkjanna þessa
dagana, e. t. v. lokið við það á
Cundi í París í dag. Er litið svo
í, að svörin hafi verið samræmd
að mestu, og aðeins éftir að
reka smiðshöggið á.
■íárnið skaltu
Iiainra heitt.
Stjórnmálafréttariturum, sem
aegja álít sitt í brezkum blöðum
t morgun, ber saman um, að
valdhafarnir í Kreml hafi haft
lirað'an á, til þess að hamra járn
íií meðan það er heitt, og láta
ekki ganga úr greipum sér tæki-
færið til þess að vera jafnan
f.yrri til að halda þessum málum
vakandi, og muni þeim vel ljóst
rnikilvægi þess, með tilliti til al-
mennirigsálitsins, sem menn telja
öumdeilanlega það í Vestur-Ev-
rðpu, að gera beri tilraun til sam
•komulags við Rússa.
INýr veitingastaður.
Nýr veitingastaður var opn-
aður í gærmorgun hér í bæn-
um, Heitir hann Expresso-
kaffi,
Þessi veitingastaður er til
húsa í Uppsalakjallaranum,
við Aðalstræti 18. Axel Helga--
aon veitir veitingastaðnum foi-
oföðu.
Svo sem nafnið ber með sér
—• Expresso-kaffi — er þarna
mjög hröð afgreiðsla.
Kaffið er búið til að ítalsk.ri
íyrirmynd og öðru vísi á bragð-
ið en það kaffi, sem við erum
vanir. Það er búið til í þar til
gerðri vél, sem er fenginn fiá
hálíu.
Þessi nýi veitingastaður hef-
vtr verið „gerður upp“ að innan
Og tekið miklum stakkaskipt-
«ra.
■Fátt nýtt.
En menn sagja fátt nýtt í til-
’.ögum Bulganins - - samkvæmt
beim upplýsingum, sem séu fyr
ir hendi, sé um að ræða fyrri til-
lögur varðandi kjarnorkuvopn
og hlutlaust belti o. s. frv. —
Öllum aðildarríkjum S þj. mur
verða sent afrit af bréfunum
en þau munu þegar hafa borizi
til ýmissa höfuðborga og verðe
afhent í dag. Athygli vekur, at
Bulganin víkur að því, að sam
komulagsvegna kunni Rússar ac
geta fallizt á fund með færri
þátttakendum, en hann leggur
til í bréfinu, en hann lýsir sov-
étstjórnina andvíga fundi utan-
ríkisráðherra.
Macmllan og Neliru
halda áfram viðræðum sínum
i Genf. Sagði Nehru í gær, að
uppástungu Macmillans um
griðasáttmála væri vel tekið í
allri Asíu. 1 veizlu í gærkvöldi
sagði Macmillan, að Bretland og
Indland mundu af kappi og ein-
lægni vinna fyrir friðinn, og
einnig ræddi hann mikilvægi
þess fyrir friðarsamstarf í heim
inum, að Indlandi hefði að
fengnu sjálfstæði kosið að vera
áfram í brezka samveldinu.
Bevan,
leiðtogi brezkra jafnaðarmanna
á sviði utanríkismála, svaraði í
gær í útvarpi fyrirspurnum er-
lendra blaðamanna, og sagðist
vera hlynntur fundi stjórnmála
leiðtoga um heimsvandamálin.
Hann tók uppástungu Macmill-
ans um griðarsáttmála mæta
vel, en sagði þó, að hún gæti
gert frekar illt en gott, ef í kjöl-
far hennar kæmu ekki ákveðnar
tillögur.
Rysjotf tíð í
Flatey.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
I Flatey á Skjálfanda hefur
tíðarfar verið rysjótt og óstillt
að undanförnu, þannig að ekk-
ert hefur verið liægt að róa til
fiskjar allan desembermánuð.
Snjór er m'ikill í eynni.
Bátaeigendur í eynni eru nú
í óðaönn að búa báta sína og
veiðarfæri ' undir hrognkelsa-
vertíðina, sem þeir stunda jafn-
an af kappi og gaf þeim drjúgar
tekjur á síðustu vertíð. Fáir
Flateyingar munu fara úr eynni
í atvinnuleit, eins og þeir hafa
oft gert meðan á vetrarvertíð
stendur.
Bátur frá Húsavík annast póst
ferðir 1. og 15. bvers mánaðar
milli lands og eyjar.
íbúatala Bandaríkjanna var
í byijun þessa árs áætluð
172,800.000 og haftði íjölgað
um nærri 3 mH3j, á árbiu
1957,
Eftir svipnum á litla kútnum að dæma virðist hann hafa komið
auga á eitthvað í bókinni, sem honum liefur verið fengin í
litlu hendurnar — kannske skringileg mynd? Bókin er annars
um börn og gæzlu á börnum, eins og sjá má af myndinni.
Gerpir enn ■ Færeyjum.
Útgerðin hefir nú innt greiðslu af hendi.
Norðfjarðartogarinn Gerpir
var kyrrsettur í gær í Fæeyjum,
en þangað liafði hann komið til
þess að sækja færeyska sjómenn
til viðbótar áliöfn sirini. Hafði
Reytingsafli
Suðurnesjabáta.
Reytingsafli hefir verið lijá
bátunum, sem róðra hafa byrj-
að af Suðurnesjum, undan-
farna daga.
Frá Keflavík var Vísi símað
í morgun, að þeir bátar, sem
þar hefðu farið á sjó, hefðu
fengið 10—15 skippund, en
veður hefir verið óhagstætt.
Meira en helmingur af þeim
afla, sem veiðist, er væn ýsa,
en hitt að mestu leyti þorskur.
Jafnbeztur var aflinn á þriðju-
dag.
Einnig eru allmargir farnir
að róa frá Sandgerði og hafa
bátar þar fengið reytingsafla
og fékk Guðbjörg mest í gær,
8,5 lestir, en þeir, sem komu
með minnst, fengu um 3 lestir.
Fiskimannafélagið krafizf kyrr-
setningarinnar.
Taldi það útgerðina í vanskil-
um með greiðslur til 17 fær-
eyskra sjómanna, sem verið hafa
á skipinu. Skuldin var talin
nema 240 þús. kr. Togarinn fór
fyrst til Þórshafnar, en Fiski-
mannafélagið vildi ekki leyfa,
að hann tæki þar íleiri sjómenn,
og var þá siglt til Rúnavikur og
átti að taka mennina þar. Var
þá togarinn kyrrsettur.
Skýrt var frá því í gærkvöldi,
að útgerðin hefði innt af hendi
greiðslur til lúkningar skuldinni
og íslenzkir bankar hlaupið und-
ir bagga með yfirfærslu.
Er Vísir fór i prentun, höfðu
ekki borizt fregnir um, að Gerp-
ir hefði verið látinn laus.
A „einbúanum í S.-Atlants-
hafi“, Tristan da Cunlia,
fæddust 4 börn á síðasta ári
og sex hjón vom gefin sam-
an — hvort tveggpa met.
Eyjarskeggjar eru nú 254.
Verð á oliu og' benzini í Nor-
egi er nú hið sama og áðnr
en Suex-skurðnrinn lokaðist.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisfiokksins
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Reybjavík
er í Vonarstræti 4, V.R. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10
daglega. Símar skrifstofunnar eru 1 71 0® og 2 47 53. —
Upplýsingar um kjörskrá era veittar í sírna 1 22 48.
Stuðningsinenn Sjáifsíæðisflokksins era beðnir að hafa
samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem
verða fjarverandi á kjördegi.
I Færð á vepn
ískyggileg.
AHt öfært, ef hvessir.
Hellisheiði var farin í morg-
un, en þar er mikill lausasnjór,
þannig að ef tekur að skafa,
má búast við að vegurinn lok-
izt á fimm mínútum.
Krýsuvíkurleið var talin
fær í morgun og þar hefur
verið unnið að því að ryðja og
Íaga til þar sem ógreiðfærast
var orðið.
A Hvalfjarðarleið var svo
þungfært orðið í morgun að
bílar stöðvuðust, en vinnuvél-
ar voru sendar þeim til að-
stoðar og von til að hægl yrði
að koma þeim leiðar sinnar.
En lausasnjór er þar mjög
mikill og ef tekur að hvessa
má búast við að öll aðstoð
vinnuvélanna verði með öllu
gagnslaus.
Vestan af Snæfellsnesi bár-
ust þær fréttir í morgun að
þar hafi mikið snjóað í nótt,
en í logni og vegir eru færir
sem stendur.
Togaramenn kvarta
undan aflatregðu.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri, í gær.
Tveir Akureyrartogarar seldu
afla sinn í erlendum höfnum
sl. mánudag.
Jörundur seldi 173 smál. í
Aberdeen fyrir 8690 sterlings-
pund og Harðbakur 140 smál. í
Cuxhaven fyrir 81 þús. mörk.
Báðir togararnir eru nú lagðir
af stað heimleiðis.
Hinir Akureyrartogararnir,
Sléttbakur, Svalbakur og Kald-
bakur, hafa verið á veiðum
um alllangt skeið og kvarta
undan tregum afla. Svalbakur
mun þó væntanlegur þá og
þegar til Akureyrar og mun
leggja afla sinn upp í hrað-
frystihúsið.
Skíðaíerðir
hefjast.
Skíðafélögin í Reykjavík era
nú í þann veginn að liefja
skipulegar skíðaferðir upp í-
skíðalönd bæjarins.
Ferðir verða alla laugardaga
kl. 2 og kl. 6 síðdegis og ú
sunnudögum kl. 10 árdegis.
Farið verður sem áður fiá B.
S. R. í Lækjargötu, en Guð-
mundur Jónasson leggur til
bílanna.
Farið verður til allra skíc.a-
skálanna eftir því sem þörf
verður hverju sinni og .'■'ærð
leyfir.
Það seni af er vetri hafa
Reykvíkingar lítið sem ekki
stigið á skíði, en nú er tæki-
færið komið, því snjórinn er
nægur og fyrstu skipulegu
ferðirnar hefjast á morgun.