Alþýðublaðið - 11.01.1958, Blaðsíða 1
Alþgöublaðið
XXXIX. árg.
liaugardagur 11. janúar 1958
8. tbl.
Bæjarmálastefnuskrá
Alþýðuflokksins. - III.
Sérsíök verksmiðjuhverfi
skipulögð og stefnt að stofnun
stórvirkra verksmiðjuvera :
STUÐLAÐ verði af fremsta megni, að vexti og við-
gangi heilbrigðs iðnaðar í bænum og kostað kapps um
að bæta úr húsnæðis- og lóðaþörf þeirra iðnfyrirtækja,
sem nú eru starfandi og leggja grundvöLl að nýjum, með
því að skipuleggja sérstök verksmiðjuhverfi á hentúg-
um stöðum í bæjarlandinu.
Unnið verði markvisst að því að skapa hér skilyrði
til stofnunar nýura, stórvirkra Verksmiðjuvera, m. a.
með því að hér sé nægjanlegt framboð ódýrrar raforku,
og athugað verði hvort ekki muni hagkvæint að veita slík-
um fyrirtækjum nokkrar ívilnanir um gjöld til bæjar-
sjóðs, m. a. fyrstu árin.
Stutt verði að aukinni tæknimenntun m. a. með þyí
að byggja við iðnskólann vinnustofur, þar sem þeir, sem
hyggía á iðnnám eigi kost á verklegri undirbúnings-
menntun, og þeir, sem lokið hafa námi, geti sótt nám-
skeið í ýmsu, er varðar iðn þeirra og aukið þanuig tækni-
mennt sína, eftir því, sem aukin tækni krefst hverju sinni.
aða filraun með flugskeyti í gær
Víslndsmenn vestra eru bjartsýnir á,
ai þeim takist ai ná Rússum
á þessu sviði.
WASH'iNGTON, föstudag. —
NTB—AFP. Síðdegis í dag var
gerð vel heppnuð tilraun með
stærsta bandaríska flugskeytið,
sem flutí getur sprengj.ur milli
Bulganin stingur upp á umræðuefni forsæf-
isráðherrafundar í seinna bréfi sínu
Dýpkað við bryggjuna
í Þorlákshöfn.
Fregn til Alþýðublaðsins
ÞORLÁKSHÖFN í gær.
UNNIÐ HEFUR verið við það
hér á Þorlákshöfn að gera við
höfnina. Gul ljós hafa verið
sett upp á bryggjuna, og mok-
uð hefur verið renna meðfram
henni, þannig að skip á stærð
við Helgafell getur lagzt að
bryggju 35 m innar. Þetta var
gert með krana úr landi. MB
Venezúefa
Óljósar fregnir
berast.
BUENOS AIRES, föstudag.
NTB. Ríkisstjórnin í Venezuela
hefur afhent Jiminez forseta
lausnarbeiðni sína, jafnframt
því sem fullyrt er, að brotizt
hafj út ný uppreisn gegn ríkis-
stjórn landsins. Fregnir þessar
hafa ekkj fengizt staðfestar og
,er ajlt óljóst um ástandið í
Venezuela. Uppreisn hersveita
gegn Jiminez forseta var nýlega
hæld niður.
landa. Nefnist flugske.yti þetta
„Atlas“. Tilraunin fór fram á
tilraunastöðinni Cape Canaver
al á Florida. Tilkynnt var opin-
berlega í Washington, að flug-
skeytið hefðj hitt í mark án erf-
iðleika.
Áður en tilraunin var gerð,
var tilkynnt, að hámarksvega-
lengdin yrði 1000 km., en „At-
las“ flugskeytið er sagt geta
dregið 8000 km. Flugskeyti
þetta er þriggja stiga og getur
borið kjanorkuvopn. Getur það
náð 13 hundruð km. hæð og há-
markshraði þess er 28 þúsund
km á klukkustund,
MIKIL ÁNÆGJA VESTRA
Mikil ánægja ríkir vestra
vegna þessarar vel heppnuðu til
raunar og eru bandarískii- vís-
indamenn bjartsýnir á, að þeim.
takist að draga á Rússa í flug-
skeytasmíði. Segjast þeir hafa
komizt yfir þá erfiðleika, sem
ollu hinum misheppnuðu til-
raunum með flugskevti fyrr i
vetur.
Samkomulag um einn
lisfa á Dalvík.
Fregn til Alþýðublaðsins.
SAMKOMULAG hefur orðið
um einn lista við hreppsnefnd-
arkosningarnar 26. janúar n. k.
Aðeins einn listi kom fram og
verður hann því sjálfkjörinn.
Listann skipa:
Valdimar Óskarsson, sveitar-
stjóri (óháður).
Jón Jónsson, kennari (Fram-
sóknarfl.).
Kristinn Jónsson, framkv.stj.
(vinstri menn).
Steingrímur Þorsteinsson,
kennari (Sjálfstæðisfl.).
Valdimar Sigtryggsson, skrif
stofumaður (Alþýðuflokkur).
Til sýslunefndar, Jón Stefáns
son jframkvæmdastjóri. —
Kr. Jóh.
Vill að rædd séu níu atriði. Fjöfdi
þátttökuríkja mjög teygjanlegur. Eis-
enhower segist grannskoða bréfið.
Rússar vilja ekki ráðstefnu, þar sem
þeir verða í minnihluta.
CtS'U(cS»:
WASHINGTON, LONDON og MOSKVA, föstudag. RíkLs-
stjónih* á vesturiöndum og fastaráð NAT.O voru í dag önnum
kafin við að rannsaka hinar nýju tillögur Sovétríkjanna um
fund forsætisráðherra í þeim tilgangi 'að draga úr spennunm
í alþjóðamálum. Að því er séð verður af tillögum Rússa getur>
verið um að ræða fund fulltrúa allt frá tveun til þrjátíu ríkja.
Yfirleitt virðast tillögurnar vera mjög teygjanlegar að því er>
viðkeniur því, hverjir sitji fundinn.
Fréttir fr'á London og Wash-
ington undirstrika í dag, að til-
lögurnar séu nú grannskoðaðar
og hefur Eisenhower t. d. sent
út tilkynningu um, að hann
muni persónulega kanna tillög-
urnar og hafi fyrirskipað utan-
ríkisráðuneytinu að rannsaka
þær gaumgæfilega.
Að því er við kemur við-
brögðum við tillögum Sovéi-
ríkjanna segja menn meðai
diplómata í London, að í þeim
sé ekkert nýtt að finna. Það
sem er nýtt er hvernig fara á
að því að ræða tiilögurnar.
Meðal stjómmálamanna í
Moskvu er því haldið fram, að
tillögurnar staðfesti, að Sovét-
ríkin vilji ekki taka þátt í ráð-
stefnu, þar sem þau hættj á að
vera í minnihluta.
FASTARÁÐ NATO VILL VEL
UNDIRBÚNAR VIÐRÆÐUR
Áreiðanlegar heimildir í Par
ís segja, að fastaráð NATO sé
komið inn á, að vesturveldin
séu reiðubúin til samningaunt’
leitana við Sovétríkin, svo
framarlega sem slíkar viðfæð-
ur væru vandlega undirbúnar.
Að því er við kemur svarinu við:
fyrra bréfi Bulganins verðujj-
grundvallarsjónarmiðið hifí;
sama í öllum svörunum. Það er
er engin óeining um það atríðt
og voru sjónarmið allra ríkj«
anna samræmd á fundinum í
dag. í svörunum verður ölium
atriðum bréfs Bulganins svarað.
og komið með gagntillögur.
UMRÆÐUEFNI
í viðbótarbréfinu er stungiðlv
upp á umræðuefni forsætisi'áð-
Framhald á 2. síðu.
Akranesbáfar hefja róðra
Mjög misjafn afli báta Suðvestanlands
AFLI bátanna suðvcstan-
lands hefur verið misjafn und-
anfarið. í fyrradag reru sex bát
ar frá Grindavík og var afli
þeirra alls 28,3 lestir. 1 gær
voru átta bátar á sjó frá Grinda
vík.
Fundur Kvenfélags Alþýðuflokksins um
bæjarsfjórnarkosninganar í Reykjavík
KVENFÉLAG Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur
fund næstkoniandi mánudagskvöld, 13. janúar, í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu kl. 8,30. — Fundarefni: Bæjarstjómarkosn-
ingarnar.
Ariðandi er að félagskonur mæti og aðrar Alþýðu-
flokkskonur eru velkomnar á fundinn.
Pineau til viðræðna
við Lloyd 17. jan..
| PARÍS, föstudag. Franski út-
anríkisráðherrann, Chrístian
! Pineau, fer 17. janúar nk. til
Lndúna til viðræðna við Sel-
wyn Lloyd, utanríkisráðherra
Bréta, að því er skýt e frá í
franska utanríkisráðuneytinu í
dag. Skýrt er frá þvíj að för
þessi sé farin samkvæmt heim-
boði Lloyds.
Er gert ráð fyrir, að ráðherr-
ami muni ræða þróunina í al-
þjóðamálum síðan NATO fund-
inum lauk og einkum siðustu
tillögu; Bulganins pm stórvelda
fund.
Afli Sandgerðisbáta í fyrra-
dag var 3—9 lestir, en lítill í
gær. í gáér vár NV átt með élja
gangi þar suður frá. Keflavík-
urbátar öfluðu allvel í fyrra-
dag, 5—9 léstir á bát og var ó-
vénj'u mikill hluti aflans ýsa.
Fimm bátar voru á sjó frá Vest
mannaeyjum í gær. Þá fóru
nokkrir Akranesbátar á sjó í
fyrradag, enda þótt samningar
hafi' ekki tekizt þar.
Biður Gailiard
stuðla að fundi
æðstu manna.
PARÍS, föstudag (NTB—.
AFP). Bréf Bulganins til Gail-
lards, forsætisráðherra Frakka,
var birt í dag: I bréfinu slæe
Bulganin á þá stengi, að veguií
Frakklands mundi aukast, ef:
Frakkar ynni konstrúktívt aflS
því að koma á samningi unt.
stöðvun tilrauna með kjarn-
orkuvopn. Jafnframt biður
hann Gaillard um að stuðla a$
því, að pólska tillagan um at-
ómlaust svæði verði að veru-
eika. Þá vonast hann til, að
Gaillard, sem vil lundirbún for
sætisráðherrafund á utanríkis-
ráðherrafundi fyrst, muní
stuðla að því, að fundur æðsti*
manna verði að veruleika-.
Listabókstafur Alþýðuflokksins f
f
i
LISTABÓKSTAFUR Alþýðuflokksins er A í cftip-
töldum kaupstöðum: Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi,
Keflavík, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Húsavík og
Vestinannaeyjum. Alþýðuflokkurinn styður A-LISTANN
ásamt Framsóknarflokknum og Alþýðubandalaginu á
Ak’-anesi og ísafirði, sömu flokkar styðja H-LISTA á
Ólafsfirði, og Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn H-LJSTANN á Seyðisfirði.
S
V
V
V
V
V
V
V