Alþýðublaðið - 11.01.1958, Page 11
Laugardagur 11. janúar 1958
AlþýSublaSiS
11
BQDCl
í DAG er laugardag:urinn 11.
janúar 1958.
Sly savarðstola Rey*j»vllnir er
opin allan sólarhringtnn. Nætur-
læknir L.R. kl. 18—8- Sírni
15030.
Eftirtalin apótek eru opin kl.
9—20 alla daga, neraa laugar-
dagakl. 9-—16 pg sunnudaga kl.
13—16: Apótek Austurbæjar
(síini 19270), Garðsapótek (sími
34006), Holtsapótek (simi
33233) og Vesturbæjar apótek
(sími 22290).
Bæjarbókasafn RwykjavíSnr,
Þlngholtsstræti 29 A, simi
1 23 08. Útlán oplð .virka daga
kl. 2—10, laugardaga 1—4. Les-
stofa opin kl. 10—12 og 1—10,
laugardaga kl. 10—12 og 1—4.
Lokað á sunnudoguin yfir sum-
armányðina. Útibú: Hólmgarði
34 opið mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga kl. 5—7; Hofsvaila
götu 16 opið hvern virkan dag
nema laugardaga kl. 6—7; Efsta
sundi 36 opið mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga kl. 5.30^
7.30.
flugfeuðir
Loftlcióir.
Edda, millilandaflugvél Loft-
leiða, kom í morgun frá Nevv
York kl. 7. Fór til Osló, Khafnar
og Hamborgar kl. 8.30. Einnig
er væntanleg Hekla kl. 18.30 1
kvöld frá Kaupmannahöfn,
Gautaborg og Staíangri.
SKIPAFUÉTTIR
Ríkisskip.
Hekla er á Austfjörðum á
norðurleið. Esja fer frá Reykja-
vík á morgun vestur um land í
hringferð. Herðubreið er vænt-
anleg til Reykjavíkur í dag frá
Austfjörðum. Skjaldbreið er á
leið frá Vestfjörðum til Reykja-
víkur. Þyr.ill er á leið frá Akur-
eyri til Rcykjavíkur. Skaftfell-
ingur fór frá Reykjavík í gær-
kvöldi til Vestmannaeyja.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell kemur til Riga á
morgun. Arnarfell er væntan-
legt til Helsingfors í kvöld. Jök-
ulíell er á Reyðarfirði. Dísarfell
losar á Austfjarðahöfnum. Litla
fell er á leið til Norðurlands-
hafna. Helgafell fór frá Keflavík
5. þ. m. áleiðis til New York.
Hamrafell fór frá Batum 4. jan-
úar áleiðis til Reykjavíkur.
Eimskip.
Dettiíoss fór frá Húsavík í
gærmorgun til Norðfjarðar, Fá-
skrúðsfjarðar, Eskifjarðar,
Djúpavogs og þaoan til Hamborg
ar, Rostock og Gdynia. Fjallfoss
hefur væntanlega farið frá Hull
í gærkvöldi til Reykjavikur.
Goöafoss fór frá New. York 2/1,
var væntanlegur til Reykjavík-
✓*✓»✓ ✓»✓.✓»✓*✓»
& IVIagnús Bjarnason:
Nr. 5
I
SKIPA1STG€RÐ RIKISINS
á
HerSubretS
austur um land til Vopna-
íjarðar hinn 15. þ. m.
Tekið á móti flutningi til
Hornafjarðar
Djúpavogs
Breiðdalsvíkur
Stöðvarfjarðar
Borgarfjarðar — og
Vopnafjarðar
á mánudag.
Farseðlar seldir á mánu-
dag.
Farseðiar seldir á þriðju-
dag.
ur í gærkvöldi. Gullfoss fór frá
Leith í gær til Thorshavn í Fær-
eyjum óg Reykjavíkur. Lagar-
foss fór frá Reykjavík í gær-
kvöldi til Vestmannaeyja, ísa-
fjarðar., Sigluíjarðar, Akureyr-
ar og Húsavíkur. Reykjafoss fór
frá Hamborg í gær til Reykja-
víkur. Tröllafoss fór frá Reykja -
vík 8/1 til New York. Tungu-
foss fór írá Hamborg í gær tii
Réykjávíkur.
MESSUR A MORGUN
Dómkirkjan: Messa kl. 11 ár-
degis. Séra Jón Auðuns. Síðdeg-
ismessa kl. 5. Séra Óskar J. Þor-
láksson. Barnasamkoma í Tjarn
arbíói lcl. 11 árdegis. Séra Ósk-
ar' J. Þorláksson.
Neskirkja: Messa kl. 2. Herra
biskupinn, dr. theol. Ásmundur
Guðmundsson prédikar. Barna-
messa fellur niður að þessu
sinni. Sr. Jón Thorarensen.
Hallgríinskirkja: RJessa kl. 11
í. h. Séra Sigurjón Þ. Árnason.
Barnasamkoma kl. 1.30 e. h. Sr.
Sigurjón Þ. Árnason. Síðdegis-
messa kl. 5. Sr. Jakob Jónsson.
Háteigssókn: Messa í hátíða-
sal Sjómannaskólans kl. 11. At-
hugið breyttan messutíma vegua
útvarps. Séra Jón Þorvarðsson.
Laugarneskirkja: Messa kl. 2
e. h. Barnaguðsþjónusta kl.
10.15 J. h. Séra Garðar Svavars-
son.
líústaðaprestakall: Messa í
ICópavogsskóla kl. 2 e. h. Aðal-
safnaðarfundur eftir messu. End
anleg ákvörðun tekin um kirkju
byggingu. Messa í Háagerðis-
skóla kl. 5 e. h. Barnasamkoma
kl. 10.30 árdegis sama stað'. Séra
Gunnar Árnason.
Fríkirkjan: Messa kl. 5. Séra
,Þorsteinn Bjþrnsson.
Óháði söfiiúðurinn: Barnasam
koma kl. 11 í félagsheimilimi
Kirkjubæ við Háteigsveg, sög-
ur, söngur, myndasýning. Séra
Emil Björnsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: —
Messa kl. 2 e. h. Börn, sem ferm
ast eiga 1958 og 1959, eru beðin
a ðkoma til viðtals eftir messu.
Séra Krisfcinn Stefánsson.
Langholtsprestakall: Barna-
samkoma í Laugarássbíói kl.
10.30 f. h. Messa í Laugarnes-
kirkju kl. 5 e. h. Séra Árelíus
Níelsson.
—o—
Rakaraslofur bæjarins,
Rakarameistarafélag Reykja-
víkur hefur beðið blaðið að
vekja athygli á því, að rakara-
i stofur bæjarins eru opnar til kl.
14 á laugardögum og til kl. 6
’aðra daga.
Dregið hefur verið
í happdrætti Náttúrulækninga
félags íslands. Vinningar komu
-eigin vali fyrir-20- þús. kr. 15421.
á eftirtalin númer: 1) Vörur að
2) Vörur íyrir 15 þús kr. 29318.
3) Vörur fyrir 10 þús kr. 08456.
4—6) Vörur fyrir 5 þús. kr.
09219, 06176, 02758. 7) Bækur
01200. 8) 10 daga dvöl í hress-
íélagsins í skinnbandi (2700 kr.)
ingarhæli félagsins í Hveragerði
fyrir tvo (1800 kr.) 02070. Vinn-
inganna ber að vitja í skrifstofu
íélagsins, Hafnarstræti 11.
EIRIKUR HANSSON
Skáldsaga frá Nýja Skotlandi.
S
s
S
s
s
V
s
Á
s
s
s
um ofan. Ég man eftir þokunni,
sem kom á móti okkur í einrn
brekkunni. Við fórum aj baki
fyrir neðan þá brekku, og ég
var vafinn .innan í yfirsæng
og sofnaði, og þegar. ég vagn-
aði aftur, var sól'in að koma
upp, Það var aftur lagt á. hest-
ana og ferðinni haldið. áfram.
Eftir stutta stund sá, ég fjörð-
inn. Hann var nú lygn og speg-
ilfagur. Úti á firðinum. lá skip-
ið. Ég hafði aldrei áður haft
rétta hugmynd um skip með:
möstrum, og mér kom það
;mjög einkennilega fyrir sjónir,
þar- sem ég sá það í íjarðlægð
liggjandi við akkeri á lygnum
firðinum. Ég gat fyrst lengi
ekki haft augum af skipinu.
Mér. sýndist það alveg ólíkt
öRú; sém ég hafði áðúr séð,
og ekki nóg með það, mér sýnd
ist það aUtaf vera að taka á sig
nýja ag nýja myncj, á meðan
við vorum að komast niðux að
firðinum. Stundum sýndist
mér það vera lítið ,og svo allt
í einu verða syo ofboðsleg.
stórt. Ýmist stóðu tveec afar há
ar spírur upp úr því, en aftur
með köflum var aðeins ein
spíra á því, og úr þessari spíru
teygðist stundum svo mikið, að
mér sýndist hana bera við
hæsta hnjúkinn. En eftir því,
sem ég færðist nær firðinum,
fór skipið að taka á sig aðra
og stöðugri mynd, sem loksins
varð að því, sem hún í raun og
veru var.
Svo riðum við inn í húsa-
þyrpinguna við fjarðarbotninn,
sem afi minn kallaði „á Öld-
unni“. Mér þótti ekki lítið
varið í það að vera, kominn í
kaupstaðinn, sem ég hafði svo
oft heyrt talað um, og sem ég
hafði aldrei hugsað um öðru
vísi en í sambandi við fíkjur
ög rúsínur og annað góðgæti.
Seyðisfjarðarkaupstaður hef-
ur, að sögn stækkað meira en
um helming, síðan ég kom þar,
én samt þótti mér hann ekkert
smásmíði, á þeim dögum. Við
dvöldum þar í átta eða níu
daga, eftir því sem mér var síð-
ar sagt. Ég taldi ekki dagana á
þeim árum. Við vorum til húsa
hjá manni, sem allir í kaup-
staðnum kölluðu „Vertinn”.
Hann var frændi minn, og var
mér mjög góður, og sagðist spá
því, að ég yrði stórkaupmaður
í Ameríku Ég var svo sem viss
um það þá, að spádómurinn
mundi rætast.
Ég hélt ekki kyrru fyrir, á
meðan ég dvaldi á Seyðisfirði.
Ég hlióp um allt og gerði alla
drengi, sem ég sá, að kunningj
um mínum. Ég man eftir
mörgu þaðan. Mér stóð mikill
stuggur. af háu f jalli, sem mér
sýndist alltaf; vera í þann veg-
inn að steypa sér fram yfir
kaupstaðinn, — mig minnir, að
fjall þetta væri kallað „Bíhóli“
(Bjólfur). Þar í þorpinu var stór
verzlunarbúð; sem hét „Líver-
pól“, og þar var önnur búð,
sem hét „Glasgow”, ég held
hin þriðja hafi heitið. „Edin-
borg“, Fram undan „Líver-
pól“ var bryggja, sem ég hafði
gaman af að hlaupa um. í fjör-
unni voru staflar af flöttum
fiski, og ofan á hverjum fisk-
stafla voru stórir steinar. Ég
sá þar á „plássihú1 menn, sem
kallaðir voru „Norskarar“ og
menn, sem nefndir voru „Fær-
eyingar“. Þessir Færeyingar
voru í búningi, sem mér gazt
ekki vel að, — ég var hræddur
við þá. Miér fannst þeir endi-
lega vera í einhvers konar
frændsemi við jólasveinana,
sem madama Jórunn svo oft
sagði mér frá og mér fannst
ég sjá það á þeim, að þeir
mundu hafa nógu gaman af að
eignast dálitla drengi. — E'n
nú er mér sérlega vel til þess
þjóðflokks. Ég man eftir Vest-
dalseyrinni. Þar var stór mað-
ur, sem gaf mér undur stóran
isykúrmola, þar 'llka
húsí1, og konan „vertsins“
kyssti mig og sagði, að ég væri
fallegur drengur og þótti mér
mjög vænt um að heyra það,
. og það kom mér til að reyma að
að sýnast enn fallegri. Þar sá
ég sýslumanninn og skrifara
sýslumannsins og hundinn
sýslumannsin. Þar sá ég líka,
í fyrsta skiptið dxukkinn mann,
og drukkni maðurinn kallaði
mig ,,Hjörsa“, en sagðist sjáK-
ur heita „Fjörsi“ sem mér þótti
heldur fallegt nafn. Ég man,
að ég sá litlu stúlkuna, sem
klædd var í ranghverfa vest-
ið hans pabba síns á jólanótt-
ina, — sem ég hef þegar minnst
á, — hún (litla stúlkan) hét
Elín. Hún var þá hjá foreldr-
um sínum í litlum og lágum
moldarkofa á „Öldunni“. Elín
litla þekkti mig strax og sýndi
mér ósköpin öll af kúskeljum,
sem hún hafði fundið í fjörunni.
Ég held, að faðir hennar hafi
verið drykkjumaður, þó að ég
hugsaði ekkert slíkt þá, því að
ég vissi þá ekki, hvað það í raun
og veru þýddi að vera drykkju
maður. — Ég hafði þá enga
hugmynd um fátækt í sam-
bandi við drykkjuskap. Ég
held það nú ,að hann hafi ver-
ið drykkjumaður, af því ég
man svo glöggt, að ég sá hann
oft í búðunum, — helzt í
„Líverpól“, — og ég sá hann
svo oft drekka úr staupi, Ég
heyrði hann líka segja, qttar
en einu sinni, við einn búðar-
manninn: „Ég er svo, þurr. fyr-
ir brjóstinuí — Eitt enn —r æ
eitt enn! — Guðlaun“' Ég, bélt
þá endilega, að honuun væri
bókstaflega þurrt, að brenni-
vín væri svaladrykkur, og/ að .
manninum væri lífsnauðsynjegt
að bleyta í brjós|jnu. 4 sér
með. þessum dýrmæta syala-
drykk.
Sérstaklega man ég eftireinu
litlu atviki, sem fyrir mig kom,
meðan ég var í Sey<|táf%ði.
Einu sinni, þegar ég var að
hlaupa þar um „Öldu-na“, gætti
ég að því, að löng og mjó spíra
lá yfir ofurhtla laut skammt
frá kofa einum. Mér datt sþrax
í hug, að nógu gaman mundi
vera að klaupa yfir um á þess
ari spíru. Ég gerði tilraun, en
datt undir eins út af spírunni,
ég reyndi þá að setjast á miðja
spíruna og fór að hossa mér.
Þetta gekk vel fáein augnablik.
en allt í einu brasfc í þessari.
makalausu spíru, og um leið
var hún komin í tvennt. Mér
varð það undir eins ljóst, að
ég var búinn að gera einhverj -
um manni stórtjón, og það
flaug í huga minn, að eigandinn
mundi ekki kæra sig um að bíða
þetta tjón alveg bótalaust. Ég
hafði mig því sem skjótast á
burtu og hlióp heim til ömmu
minnar og vildi vera sem
minnst úti, það sem eftir var
dagsins. Daginn eftir heyrði ég
nokkra drengi vera að tala um
það, mér til mikils hugarang-
urs, að einhver vondur strákur
hefði brotið fallega spíru fyrir
einhverjum Jóni garnla, og að
þessi Jón gamli ætlaði að reyna
að hafa uppi á vonda strákn-
um og draga fyrir sýslumann-
inn. Ég get ekki lýst því sam-
vizkubiti, sem ég hafði út af
þessu. Ég bióst við því endi-
lega, að þessi Jón gamli mundi
fljótt komast að því að ég væri
vondi strákurinn, sem brotið
hefði spíruna hans, og alltaf
átti ég von á að sjá sýslumann-
inn koma til að sækja mig, og
ég þóttist vita, að útfallið yrði
svo það, ,að ég fengi ekki, að
fara með þeim afa og_ ömmu
til Ameriku, því. að þangað
mætti víst engir fara, sem
skemmdu hluti fyrir náungan-
um. Ó, hvað ég þráði, að skip-
ið færi senr fyrst af stað, og að
enginn kæmist að hinu sanna
viðvíkjandi spírubrotinu, fyrr
en ég væri kominn langt út á
hafið. En aldrei komu þeir Jón
gamli og sýslumaðurinn. Samt
Kynlegur þytur gaf til kynnaað leðurblökurnar hefðu vakn-að við komu þeirra.
j,-.l'-C r.«• r rn » r * w-.u * «-* ** r.*.cx.■ t
r t r «