Forvitin rauð - 01.05.1974, Síða 4

Forvitin rauð - 01.05.1974, Síða 4
gpl/l/GJA £ó / ðskup er erfitt aö vera kallraaöur. Og ekki batnar þaö, hafi maöur verið svo ógæfusamur aö kvænast rauðsokk. Ég tala nu ekki ura, ef maður þykist vera rauðsokkur sjálfur og kvartar ekki hástöfum yfir því böli, sem manni sé búið. "Aumingja maðurinn, ósköp hlýtur hann aö eiga bágt", heyrir maður sagt á bak við sig, og jafnvel opinskátt. Þetta leiðindasjónarmið stafar án efa ekki sízt af hefðbundinni skilgreiningu á fyrirvinnu- hugtakinu. Hið almenna sjónarmið gerir ráð fyrir því, að við "sköffum" konum okkar eitthvað. Mér er minnisstætt, að einhverntima 1 fjölskyldu- boöi fyrir löngu var fjasað um mann, sem ekki "skaffaði" konunni sinni neitt. Ég veit ekki enn í dag, hvort þetta var meint til mín fremur en annarra, en mér fannst það, og var órótt fram eftir árum af þessu tilefni: að ég stæði aig ekki nógu vel. sima, heldur minn annar helmingur. Það sló þögn á hópinn. Mér fannst ég neyðast til að útskýra þetta fyrirbæri, sem var eftirfarandi: Einu sinni var erfitt að fá símanúmer. Blaðamenn, flugfreyjur og slíkt fólk gat fengið undanþágu, en ekki armir vesalingar með kandmag-próf eða annað verra. Þessvegna fengu Vilborg Harðardóttir og Sigríður H. Sigurbjörns- dóttir og margar fleiri sitt númer í símaskrána, en ekki ég eða Atli Heimir o.s. frv. Nú líður tíminn og fólk fer að spyrja mann: Af hverju látið þiö bjóða ykkur þetta? - Svarið er auðvitað mjög einfalt: Okkur hafði aldrei dottið í hug, að þetta væri neitt atriði. En þá svarar fólk- með mjög skemmtilegu: "jæja". Mér hefur alltaf fundist, að fyrirvinnuhugtakið bæri í sér nokkurt óréttlæti. Mér finnst hraksmánarlegt sem karlmaður að liggja undir því, að maður "sjái ekki fyrir konu sinni", eða það sem er víst ennþá verra, að maður "lifi á konu sinni". Því skyldi maður ekki lifa á konu Mér leiðist að skrifa greinar. Ég vil heldur skýra frá einhverjum lífsreynslusjónarmiðum. Til að mynda: Einu sinni kenndi ég byrjendum þýzka tungu í öldungadeild Menntaskolans við Hamrahlíð. Ég tel, og hef oft sagt þaö, að hógværð og lítillæti séu úreltar dygðir. Þess vegna leyfi ég mér að staðhæfa, að ég hafi verið tiltölulega góður kennari. Og þá kom að því, að áhugasamir nemendur vildu fá símanúmerið mitt, ef þeim skyldi detta nokkuð í hug. Það þurfti að útskýra fyrir þeim (sem NB voru mestanpart konur), að ég væri ekki skrifaður fyrir mínum sinni, ef efnahagslegar kringumstæður eru þannig, að það fyrirkomulag komi betur út? Einhverjir mundu kannski vilja kalla þetta nokkuð persónulega afstöðu. Svari hver sem vill, en ég verð að svara því til, að þótt mér hafi á stundum þótt einstaka rauösokkar taka eilítið ógætilega uppí sig, og ég hafi jafnvel mótmælt því, þá er ég svo sammála grundvallar- sjónarmiöum rauðsokka, að önnur ágreinings- atriði eru tittlingaskítur. Arni Björnsson

x

Forvitin rauð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.