Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 23
Metnaði þeirra er því beint í annan farveg, svo
sem að fatakaupum og fegrunarlyfjum og ábyrgö á
heimilishaldi og barnauppeldi sett á þeirra
herðar.
Konurnar stuðla líka sjálfar að yfirburðum karl-
manna, með því að stjana við þá heima fyrir,
þannig að þeir þurfa ekki einu sinni að hafa
hugsun á að fá sér næringu, hvað þá að bera
ábyrgð á þjónustubrögðum sínum og barna sinna,
eða taka til í kringum sig.
Hvort sem það er af þessum sökum eða til að
skreyta framboðslistana, þá er ákveðinn fjöldi
kvenmannsnafna settur á hvern þeirra, oftast 1
vonlltil sæti. Konurnar láta bjóöa sér þetta
og keppa um þau sæti og verða þannig óskaðlegar
karlmönnunum, sem á meðan keppa um hin raun-
verulegu baráttusætl listanna.
Þessi keppni okkar kvenna hverrar við aðra, í
staö þess að líta á okkur sem jafngilda einstak-
linga I ‘allri heildinni, setur okkur skör
lægra en karla.
I stað þess ættum við aö bera virðingu hver
fyrir annarri, uppörva hver aðra og sigrast þannig
á vanmáttarkennd okkar.
Það eru ekki margar konur í þeirri aðstöðu að
geta komið heim og lagst til hvíldar yfir dag-
blöðum eða bók og beðið þess að maturinn verði
borinn á borð fyrir þær. Margar eiga líka
erfitt með að sækja fundi á kvöldin, þær verða
að útvega barnagæslu, jafnvel að ganga svo langt
að biðja eiginmanninn að gæta sinna eigin barná
og fá sektarkennd við að bregðast þannig skyldum
sínum. Konur ættu að gera sér grein fyrir þvl,
fyrst þær finna svo mjög til ábyrgðar sinnar á
uppeldi barnanna, að börnin ættu að eiga kröfu
á þvl að fá að hafa föður sinn hjá sér stundum
I staö móðurinnar, Augljós er sú skylda hvers
uppalanda að taka þátt I mótun þess þjóðfélags
sem börn þeirra fæðast inn I.
Tengsl milli atvinnulífs og stjórnmála eru mjög ,
mikilvæg eins og fram er komið hér á undan. Það
er mikils virði að konur afli sér virðingar og
frama I atvinnullfinu til að verða gjaldgengar
I stjórnmálum. Það skapar líka nauðsynlegt
sjálfstraust og sjálfsöryggi.
Samkvæmt rlkjandi þjóðskipulagi, þ.e. þjóöfél-
agi karlmannsins, er konum ætlað aö láta sig
varða vissa málaflokka I þjóðmálum. T.d. upp-
eldis- og heilbrigðismál, málefni aldraðra og
bindindismál. A öðrum málefnum eru þær álitnar
kunna lítil skil, jafnvel að eigin álití.
Við verðum að líta á okkur sem jafnoka karla, þá
fyrst fara karlar að gera það llka. Það verður
að leggja nlRur sérstök kvenfélög stjórnmála-
flokkanna og einangrun kvennanna þar með .
Engin kona á að vera í framboð1 vegna kynferðlg
síns. ná verða af bvi sömu sökum.
Það á ekki að skipta mlli hvart maður er karl
eða kona.
Lllja ðlafsdóttlr.