Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 26

Forvitin rauð - 01.05.1974, Blaðsíða 26
Seinast a£ öllu hefði mér dottið £ hug a3 ég ætti eftir að setjast við að skrifa £ blað. Bjössi var vanur að segja við raig: "Bjamfna, þú ert nú ekki sendibréfsfær". Það var ekki beinlfnis uppörfandi - en nú brýtur nauðsyn lög. Ég gat ekki séð að neinn virti bréf þitt £ 2.bl. "Forvitin rauð" svars £ 3. blaðinu svo ég get ekki setið á mér. Aðstaða þ£n er vægast sagt varhugaverð. Láttu mig vita það - ég var £ nákvaemlega samskonar kringumstæðum fyrir tveimur árum. Þegar ég gifti mig fór ég að eins og þú, hætti að vinna úti. Maðurinn minn hélt áfram að vinna utan heimilis eins og konán þ£n og allt gekk vel £ nokkur ár, eins 03 hjá þér. Sn svo fór ýmislegt að gerast, sem allt eins vel gæti komið fyrir hjá öðrum og þess vegna vil ég segja þér mfna sögu. Við vorum fimm systkinin, tvær systur og þr£r bræður. Pabbi var vanur að segja að best væri að láta strákana læra eitthvað gagnlegt, svo þeir gætu séð fyrir sér og sfnum. öðru máli gegndi með stelpuraar, þ.ær mundu giftast og þessvagna óþarfi að þ&r tækju annað en skylduna og færu svo að vinna fyrir sér. Mamma mótmælti þessu aldrei. Hún var l£ka gift þessum dygrtaðarforki - honum pabba, sem var vanur að segja £ t£ma og ótfma að enginn skyldi geta borið sér á brýn að hann sæi ekki sóma- samlega fyrir konu og börnum. Ég held að við börain höfum aldrei leikið okkur við hann, þegar við vorum lftil - hann var næstum alltaf að heiman við vinnu. Að vi.su ramar mig £ það að amma var stundum að segja: "Reyndu að læra eitthvað nytsamt hróið mitt, sem þú getur gripið til ef f harðbakka slær". En það var einhvemveginn þannig hjá okkur heima að við hlustuðum svo lftið á hana ömmu. Löngu seinna, þegar ég áttaði mig á þv£ hvað hun hafði verið að segja og ég ætlaði að fara nanar ut f þetta við hana, þá var hún auðvitað dain. En þá datt upp úr mömmu að afi hefði drukknað frá barnahópnum £ ómegð og amma barist áfram ein og staðið sig eins og hetja. Reyndar man ég l£ka að £ skólanum var stundum sagt við okkur stúlkuraar, þegar sl-ælaga gekk með reikninginn, að við þyrftum nú ekki að brjóta mikið heilann um stærðfræði - við mundum áreiðan- lega giftast. Og £ starfsvalsbókinni stóð, á einum stað, að hentugast væri fyrir stúlkur að valja sér eitthvert tfmabundið starf, sem þær gætu sinnt um þar til þær færu að búa. I matreiðslu sagði kennarinn l£ka oft að við skyldum setja þetta og hitt vel á okkur, þv£ að við myndum örugglega flestar eiga eftir að giftast. Jæja, nema auðvitað hugsuðum við mest um að ná £ einhverja stráka til þess að vera með 03 til þess að giftast, en á meðan vann ég á skrif- stofu við að svara £ s£ma og ganga frá pósti. £ fyrstu var pabbi strangur og vildi ekki að við stelpurnar værum eins og hann kallaði það £ einhverju "strákaflangsi" og nákvæmur með að við kæmum ekki seint heim - þangað til hann varð var við að ég byrjaði að stunda Garðsböll, þá söðlaði hann yfir og virtist liggja £ léttu rúmi þó að ég væri burtu alla nóttina. Mamma hans var prestsdóttir, sem tók niður fyrir sig þegar hún giftist pabba hans og ef til vill hefur hann haft von um að ág gæti krækt £ guðfræðing þaraa á Garði og ættin fengið upp- reisn. Þarna kynntumst við Bjössi og ág fór að fara með honum upp á herbargið hans á Garði. Svo varð eg ofr£sk og fjölskyldur okkar sögðu að við yrðum auðvitað að gifta okkur hið bráðasta. Bjössi lauk prófi og fékk vellaunaða stöðu. Ég var heima og við eignuðumst þrjú börn á fyrstu sjö árunum, svo að ég var eins og þú næstum alveg bundin. LL

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.