Forvitin rauð - 01.05.1980, Page 5

Forvitin rauð - 01.05.1980, Page 5
Þetta var frelsun Ég hafði alla tíð verið á móti fóstureyðing- um þar til að ég lenti í þeirri aðstöðu að þurfa sjálf að gangast undir slíka aðgerð. Þetta var það eina sem kom til greina og ég vissi alveg út í hvað ég var að ganga og vildi það. En vei því þjóðfélagi sem neyðir konur til að fara í svona aðgerð gegn vilja sínum. Ég er 38 ára og 5 barna móðir. Ég er tvígift og átti 4 börn með fyrra manni mínum. Hann "skaff- aði" vel, og við höfðum ÞÚ færð ekki húsnæði af því að þú ert með barn. ÞÚ kemst ekki í strætó af því ac þú ert með barnavagn. ÞÚ íjietur ekki farið að búa með manni ef þú átt barn á dag- heimili því þá missirðu plássið. Samt er erfitt og ömurlegt að reyna að vera sjálfstæður ef þú ert kven- maður með krakka á framfæri Þú ert í skóla en færð ekki dreifbýlisstyrk því lög- heimilið verður að vera í Reykjavík eigirðu að fá pláss á dagheimili. Um náms- lán er ekki að ræða í menntaskóla, þú ferð til félagsmálastofnunar en regl- urnar eru þannig að náms- fólk fær ekki lán eða fram- færslustyrk þó um einstak- linga sé að ræða með börn á framfæri. JÚ þú getur fengið loo þús.kr. lán (haust '78) sem tekið verð- ur í skömmtum af meðlaginu sumarið eftir. Eftir jólin ertu orðin blönk aftur og vixill yfir þér. Þú reynir aftur við félagsmálastofnuníhð leggur ánii umsókn tun lán, en eftir nokkra daga færðu svarið : Félagsmálaráð stoppaði málið af, þú átt að koma með skriflegt vott- orð frá skólanum um að þú sért að klára 4.bek.k, skrif- legt vottorð frá foreldrum þínum um að þau geti ekki aðstoðað og skriflegt vott- orð frá bönkunum um að þú getir ekki gengið víxil. Mig langaði að æpa í símann En þar sem ég var aðeins að tala vió embættismann sem gerði sína skyldu, þá það gott efnahagslega. Við skildum '72 og við skilnaðinn fékk ég tvö af börnunum. Gifting og óskabarn. Síðan liðu nokkur ár við basl og ýmsa erfið- leika. En sumarið '75 ákvað ég að rífa mig upp úr þessu ástandi, kom krökkunum í pössun og fékk mér vinnu úti á landi. Þar kynntist ég síðan seinni manni mínum, sem er 11 árum yn<?r4- Ég fluttist fljótlega inn til hans, við fórum að búa, krakkarnir fluttu til okkar og við vorum öll mjög hamingjusöm. En hann var lengi að gera upp við sig hvort hann ætti að stíga skrefið til fulls og giftast mér. En sú togstreita endaði með því að við giftum okkur með pomp og pragt og fluttumst skömmu seinna til Reykjavíkur. Tveimur mánuðum seinna varð ég ólétt að óska- barninu. Hann var barn- laus og þráði mjög að þakkaði ég honum kurteis- lega fyrir og lagði á. Velti því síðan fyrir mér hvort ég og barnið myndum nokkuð deyja úr hungri þessa daga sem það tæki að afla vottorðanna. En ...... viti menn. Um leið og skólinn var búinn og þú gast af frjálsum vilja gengið útí launaþrældóminn, þá fékkstu bara nokkuð góð- an framfærslustyrk frá borg- inni um leið og þér var bent á frystihús, sem ákjósanlegan vinnustað. Ég gleymi hinum æðislegu mæðralaunum sem er styrkur ríkisins. Þau duga ekki einu sinni fyrir ódýrri viskíflösku til að drekkja áhyggjunum. Meðlagið gleypir barnaheimilið, þá peninga sérðu aldrei. SMÁM SAMAN FÓR AÐ RENNA UPP FYRIR MÉR LJÓS. Öll þessi vella um rétt- inn til lífsins, öll ljótu orðin sem látin eru falla um konur sem fara i fóstur- eyðingu og urðu m.a. til þess að ég þorði ekki. Undir allt þetta er ýtt markvisst til þess að tjóðre fólk niður. Nógu margar óléttur. NÓg af fólki sem ekki sinnir öðru en striti fyrir daglegu brauði, þaki yfir höfuðið o.s.frv. Það hefur a.m.k. ek'.i tíma né þrek til að reyna að breyta samfélaginu til betri vegar. Svo fær maður þar á ofan allskyns ógeðslegar ásakanii vegna þess að maður lætur barnið á dagheimili meðan maður vinnur fyrir mat eignast barn. Fjárhagserfiðleikar. En þá fór smámsaman að grafast undan hamingjunni. Við vorum í stöðugu fjár- hagsbasli. Mér hafði ekki tekist að fá fasta vinnu áður en ég varð ófrísk. Meðgöngutíminn var mjög erfiður og mér var bannað að vinna. Maðurinn var í hálfsdagsvinnu jafnframt því sem hann stundaði nám í Háskóla íslands. Þetta var seinnihluta ársins '77 og við þurftum að byggja tilveru okkar á ca. 200 þús. króna mánaða:— launum hans. Endarnir náðu engan veginn saman og ég fór að selja góssið frá fyrra hjónabandi, jólaplattarnir, jólaskeið- arnar og kristalsvasarnir, allt lenti þetta eitt af öðru á fornsölum. Maður- inn seldi gítarinn sinn í einhverju fátæktarkast- inu og margar helgar á eftir var hann niður- beygður. Unglingarnir mínir, sem voru 13 og 17 ára þurftu sitt og_ þó að handa þvi. Dagheimili sem þessir sömu menn standa fyrir eru ekki byggð upp sem uppeldisstofnanir heldui geymslur. Stundum hefur meira að segja hvarflað að mér, að það sem vaki fyrir því fólki sem vill þreng- ingu fóstureyðingalaganna sé m.a. það, að fjölga lág- stéttum svo alltaf geti verið til nægur verkalýður til þrælkunar, því við vit- um að þó fólkinu fjölgi og fjölgi þá safnast auðurinn alltaf á færri hendur. Og þó fóstureyðingalögin séu þrengd hér þá getur fólk sem á peninga alltaf farið til útlanda ef ólétta skyldi koma upp á óheppi- legum stað og stund. Fyrst eftir að ég átti mitt barn ásakaði ég mikið þær stelpur sem fóru í fóstureyðingu, jafnvel for- dæmdi þær. Smám saman fór samt að renna upp fyrir mér um leið og ég var að uppgötva að samfélagið elskaði börnin ekki neitt, að með því að fordæma þeirra ákvörðun var ég einungis að verja mína - það að ég skyldi hafa geng- ið með og fætt mitt barn og síðan séð um það. í raun og veru var ekkert í samfelaginu sem sýndi mér fram a að eg hefði gert rett, svo og varð að verja mína ákvörðun sjálf. Skyldi það ekki vera sorglega oft að fólk sem hefur þurft að standa í ströngu getur ekki unnt öðrum þeirrar ánægju að okkur langaði til að fara út og gera eitthvað saman Þá gátum við ekki leyft okkur það því ekki var hægt að senda þá skólausa út. Þarna komst ég að því að peningar skipta öllu máli, ekki það að maður þurfi að hafa mikið af þeim, heldur getur maður aldrei orðið hamingju- samur peningalaus. Mér dettur í hug það sem for- setinn sagði. í síðustu nýársræðu sinni: "LÍfið má ekki vera eintómt brauðstrit." Erfið meðganga og fæðing. Eins og ég hef áður sagt þá var meðgangan mjög erfið, ég fitnaði rosalega og átti erfitt með að hreyfa mig. Faeðing- var í samræmi við þetta, það þurfti að framkalla hana og það er mesti hryllingur sem ég hef lent í. Allar fyrri fæðingar höfðu gengið fljótt og eðlilega fyrir sig. Eftir vikulegu fór ég með barnið heim í fanginu þurfá þess ekki? Jæja, ég tala eins og frelsuð manneskja, en að minnsta kosti óska ég ekki nokkurri stelpu að þurfa að standa í því að sjá ein um krakka hér í þessu sam- felagi. Og þó tala ég hér ekkert um óttann og áhyggj- urnar hjá manni út af því taugaálagi sem veslings börnin verða að bera við svona kringumstæður. Og þó mér finnist sorg- legt að þurfa að taka það fram, þá þykir mér vænt um barnið mitt, eða eins og segir í frægu ljóði: "...erum allar til í öðru hverju húsi ........ og ELSKUM BÖRNIN OKKAR - efist eigi um það." og "...tökum saman höndunum mjúku, hlýju - kreppum hnefana ..." (1) (1) Úr opnu ljóði til Þorvaldar Garðars Kristjáns- sonar ortu í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkakvenna 8. mars 1980 af Elísabetu Bertu Bjarna- dóttur húsmóður.

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.