Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 6

Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 6
6 Konur sækja ekki um fóstureyðingu nema þær hafi gildar ástæður Viðtal við félagsráðgjafa kvennadeildar landspítalans Her á eftir verður sagt frá þvi sem helst bar á góma þegar Forvitin rauð ræddi við félagsráðgjafa Kvennadeildar Landspítalans - þær Svövu Stefánsdóttur og Maríu Þorgeirsdóttur - um fóstureyðingar. Svava hefur verið ráðin við Kvennadeildina síðan 1973 en María síðan 1977 (vann áður á Heilsuverndar- stöðinni). Þess má geta að fyrir breytingu fóstur- eyðingarlöggjafarinnar '75 var ekki gert ráð fyrir að umsækjendirr töluðu við félagsráðgjafa um fóstur- eyðinguna eins og nú er. Kvennadeild Landspitalans Þær byrjuðu á þvi að lýsa stuttlega hvernig kvennadeild Landspitalans væri uppbyggð. Hún skipt- ist i 5 deildir; meðgöngu- deild, fæðingardeild, sængurkvennadeild, göngu- deild og kvensjúkdómadeild þar sem fóstureyðingar eru m.a. framkvæmdar. Starf félagsráðgjafa er i þvi fólgið að tala við þær konur af þessum deild- um sem æskja eftir og þurfa á aðstoð að halda. Þar á meðal við þær konur sem hyggjast ganga undir fóstur eyðingu vegna læknisfræði- eða félagslegra ástæðna. Tvisvar i viku er konum sem ihuga fóstureyðingu gefinn kostur á læknisskoð- un á Kvennadeildinni. Þar geta þær fengið úr þvi skorið hve langt þær eru gengnar og hvort umsókn nái fram að ganga. Einnig er hægt að fá tima hvenær sem er ef um áriðandi tilfelli er að ræða svo sem ef kona er að nálgast tólftu viku meðgöngu. Þegar kona hyggst sækja um fóstureyðingu byrjar hún á þvi að hringja i einhvern af eftirtöldum aðilum og panta tima: Félagsráðgjafa Kvennadeildar Landspitalans heimilislækni, einhvern annan félagsráðgjafa eða kvensjúkdómalækni. Til þess að umsóknin sé tekin gild verða tveir aðilar að samþykkja hana. í fyrsta lagi sá félagsráðgjafi eða læknir sem konan hefur fyrst leitað til og i öðru lagi sérfræðingur á þvi sjúkrahúsi þar sem aðgerð- in fer fram. Mjög nauðsyn- legt er að sækja um fyrir 12. viku meðgöngutima þvi aðgerðin verður erfiðari og hættulegri eftir þann tima og ekki framkvæmd nema sérstakar ástæður liggi fyrir. Sjaldgæft er að það sé af hreinum læknisfræðilegum orsökum sem konur fá fóstur- eyðingu nema ef um alvarlegc sjúkdóma eða fósturskaða er að ræða. í þeim tilfellum kemur fyrir að framkvæma þarf aðgerðina eftir 12. viku. Maria og Svava taka á móti konum sem hringja þangað beint og panta tima eða hefur verið visað til þeirra af læknum. Samkvæmt lögum eiga þær að fræða umsækjendur hlut- laust lam þá félagslegu að- stoð sem býðst ef konan ákveður að ganga með og eigc barnið - einnig lýsa þær aðgerðinni, hvernig hún er framkvæmd, hve langan tima hún tekur o.s.frv. Hvers vegna sækja konur um fóstureyðingu ? Við spurðum hvaða ástæður væru algengastar fyrir þvi að konur sæktu um fóstur- eyðingu. Þær lögðu mikla áherslu á að konur sæktu ekki um nema þær hefðu gildar ástæður fyrir þvi . Konurnar sem sækja um tilheyra öllum aldurshópum - frá 14-49 ára. Ástæðurnar eru nokkuð mis- munandi eftir aldri kvenn- anna. í grófum dráttum eru þær eitthvað á þessa leið: Þær sem eru á bilinu 14-20 ára: Þroskaleysi,ekki i sambandi við barnsföður, að byrja i framhaldsnámi eða að ljúka grunnskóla. Millialdur þ.e. 25-35 ára Fjárhagsbasl t.d. vegna ibúðabygginga, húsnæðisleys- is, skulda eða vegna barna sem fyrir eru. - Konur um og yfir fertugt: Búnar að eiga þau börn, sem þær hafa ætlað sér og treysta sér til að eignast, eiga oft erfitt með að þola getnaðarvarnir, sérstaklega pilluna og lykkjuna, óttast' að eitthvað verði að barni vegna aldurs þeirra. Maria sagði að þessar ástæður gæfu nokkuð góða mynd af þvi þjóðfélagi sem við búum við. Þetta er ein- göngu gróf flokkun á ástæðum en auðvitað koma alls staðar persónuleg vandamál til sögunnar svo sem skilnaðir, fjölskylduvandamál o.fl. Að auki er nokkuð um það að konur komi og ræði málin við félagsráðgjafa ef þær eru á báðum áttum. Ekki virðist augljóst samband á milli stétta og tiðni fóstureyðinga. í nýlegri skýrslu sem gefin er út af landlæknisembætt- inu er samt sem áður dregin sú ályktun að meiri hluti kvenna sem sæki um tilheyri menntaðri og virkari hluta þjóðarinnar. Áður en þess- ar niðurstöður lágu fyrir var haldið að tiðnin væri hæst hjá láglaunastéttum. Hvort tveggja hlýtur þó að vera ágiskun þvi að Maria og Svava voru sammála um að þær konur sem kæmu og sæktu um fóstureyðingu kæmu úr öllum stéttum og spegluðu stöðu kvenna al- mennt i þjóðfélaginu. Að öðru leyti væri erfitt að draga ályktanir af þeim tölum sem til væru frá þvi að breytingin '75 á fóstur- eyðingalöggjöfinni varð þvi að það væri fyrst núna sem eitthvert jafnvægi væri að komast a og hægt væri að fara að lita til baka. Annars sögðu þær að oft kæmu konur sem segðu að þær væru á móti fóstureyðingum en sæju ekki annað úrræði. Einnig sögðust þær hafa rekist á fordóma gagnvart þeim konum sem fengju fóstur eyðingu þannig að fólk teldi að viss tegund af konum sækti um. Litið um félagsleqa hjálp Við spurðum hvort reynt væri að benda fólki á aðrar lausnir. Þær svöruðu þvi til að það væri höfuðatriði hjá þeim að hlusta, reyna að skilja hvað væri á seyði og fá yfirlit yfir heildar- ástandið hjá umsækjenda. Oft hefði umsækjandi þörf fyrir að tala um málið til að átta sig sjálfur á þvi. Eins og komið hefur fram áður^eiga þær að fræða um þá félagslegu aðstoð sem býðst. Sú félagslega aðstoð sem konum stendur til boða er vægast sagt sáralitil. Félagsráðgjafarnir mega hins vegar hvorki hvetja né letja umsækjanda til að gang— ast undir aðgerðina þ.e.a.s. ekki beita neinum fortölum. ?ær benda konum hins vegar Dft á að tala við foreldra, eða sina nánustu og athuga sinn gang yfirleitt. Einnic sögðu þær að starfsfólk af’ hálfu hins opinbera sem fjsller um þessi mál eigi að vera hlutlaust gagnvart þeim konum sem gangast undir aðgerðina og gæta fyllsta trúnaðar við þær. í sambandi við hlutleysið ma nefna að einstöku sinnum kemur fyrir að konur vilja lata þær taka ákvörðun fyrii sig - en það geta þær að sjálfsögðu ekki. Eftirköst Þegar við komum að þeirri spurningu hvort fylgst væri með konum eftir að þær hefðu fengið fóstureyðingu eða verið synjað um hana - þá viðurkenndu þær að þarna kæmum við að veikum punkti. Ekki væri skylda að koma í viðtal til félagsráðgjafa eftir aðgerð og þær væru það störfum hlaðnar að þær sæju sér ekki fært að fylgjc eftir öllum tilfellum. Hins vegar reyndu þær að gera það ef um sérlega erfið mál væri að ræða. Þær töldu að oft þyrftu konur á við- tölum að halda eftirá þar sem þetta væri flestum erfið ákvörðun og þær tóku það líka fram að alltaf væri hægt að hringja og talí við þær ef þörf væri á, Hjá sumum konum sem hafa gengist undir fóstureyðingu er tilhneiging til að vilja gleyma öllu um málið og taka jafnvel á sig stóran sveig framhjá spítalanum þar sem aðgerðin var fram- kvæmd. Þetta töldu Marxa og Svava mjög slæmt því að þetta benti til sektar- kenndar sem konan ætti frekar að tala um heldur en afneita. í raun ætti kona ekki að þurfa að burðast með sektarkennd af þessum sökum því að aðgerðin er framkvæmd samkvæmt lands- lögum og konan hefur alltaf gildar ástæður. Fyrirbyggjandi aðgerðir Það næsta sem við spurð- um þær um var hvaða mynd þær fengju af kynfræðslu í gegnum starf sitt. Þær lögðu mikla áherslu á að kynfræðsla og sérstak- lega getnaðarvarnaþjónusta væri mikilvæg en því miður væri mörgu ábótavant í þeim efnum. Það væri langt í frá að lögum um þessi efni væri framfylgt t.d. ætti Landspitalinn skv. lögum að hafa getnaðarvarnamiðstöð þar sem hægt væri að fá allar tegundir getnaðar- varna - en eins og er er sinungis hægt að fá þar lyf- seðil upp á pilluna. Þær töldu mjög mikilvægt að þær getnaðarvarnir sem til eru séu vel kynntar því aukin notkun getnaðarvarna væri frumskilyrði fyrir fækkun fóstureyðinga. Einnig væri nauðsynlegt að fólk gerði sér Ijósa þá samábyrgð sem yrði að vera í þessum efnum þ.e. að það væri ekki aingöngu mál kvennanna að sja um getnaðarvarnir. Svava minntist hér á að folk væri alltof mikið farid að hætta að líta á aðrar getnaðarvarnir svo sem smokka og hettu sem valkosti og væri það slæmt þar sem margar konur fengju auka- Verkanir með pillunni eða lykkjunni. \ 16

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.