Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 10

Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 10
10 Dagný Kristjánsdóttir: Reglur um náin samskipti fólks á landsbyggðinni Gamall Vísir Ef þér líst vel á einhvem af hinu kyninu ef þér finnst hann fallegur, skemmtilegur og góður - í Cam hridge gerðist það að venjulegur maður rafvirki, minnir mig, nauðgaði ellefu stúlkum. Þá skaltu fara dult með það ef þig langar til að strjúka á honum hárið - eða knúsa hann - eða bara halda í hendina á honum Þá skaltu láta það vera - vina mín ÞÚ skalt ekki láta þér detta neitt slíkt í hug. Þorpið verður vitlaust þorpið verður reitt þorpið verður hneykslað og öfundsjúkt og það kálar þér. Því skaltu hafa mín ráð: ef þig langar til einhvers af ofanskráðu - ef þú ÞARFT endilega að vera að koma við aðra manneskju - Þá skaltu berja hana helst með stóli þorpinu finnst það allt í lagi. Egilsstaðir Hún sest niður og segist bara hafa viljað tékka á því hvort ég ætti ekki kaffi á könnunni. HÚn getur varla talað. Tungan er þykk og hún drafar. Augun eru einsog lagt, grátt fljótið á ísköldum vetrardegi Andlitið er sviplaust eins og snjóbreiðurnar úti og hárið er einsog fáránlegir svartir runnar kringum þetta dauða landslag. Það er frost. Frá þessu segir í gömlum vísi. ótti greip um sig meðal stúlkna í háskólabænum. Nauðganirnar voru afar vel skipulagðar, kringumstæðum er lýst afar nákvæmlega í greininni. Lögreglan stóð, að sjálfsögðu, ráðþrota frammi fyrir þessu erfiða máli. Fjórum sinnum er það tekið fram að nauðgarinn hafi ekkert tillit tekið til þess að fórnarlömbin voru á túr ... (hvíiík skepna .') Með þessari opnugrein fylgir mynd af hnífasafni Cambridge-nauðgarans. Hvað gerði hann með þessum hnífum? Um það er ekkert sagt í greininni. Þar er heldur ekkert sagt frá köfnunartilfinningunni, hjartslættinum, ofsahræðslunni sem greip stelpurnar þegar þessi leðurklæddi sadisti stóð fyrir framan þær í myrkrinu. Þar er ekkert sagt frá bænum þeirra, tárunum og auðmykjandi tilboðum um allt sem hann vildi ef hann aðeins dræpi þær ekki eða afskræmdi. Þar er heldur ekkert sagt frá því hvernig hann notaði hnífana sína - hvar hann stakk og hvar hann skar. Þar er heldur ekkert sagt frá líðan stelpnanna á eftir - taugaáfallinu, sjúkrahússvistinni, geðdeildunum, lífi þeirra og möguleikum eftir árásina. Þar er heldur ekkert sagt frá öllu hatrinu, viðbjóðnum, illskunni og ógeðinu sem nauðgarinn hafði á konum - öllum konum .... Ef ég hefði skrifað þessa grein hefði ég skrifað um allt þetta - en það er kannski ekki að marka mig hefur aldrei langað til að misþyrma konum ...

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.