Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 11

Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 11
11 Inga Dóra Björnsdóttir: Öryggi ofar öllu Signý flutti sig úr sófanum yfir í hægindastólinn í horni stofunnar, spennti öryggisbeltið og lét fara vel um sig. HÚn virti fyrir sér heimilið, loksins hafði henni tekist að gera það eins og hún óskaði að sjálfur heimurinn væri, hreint og fágað. HÚn var ekki ýkja gömul þegar henni varð ljóst að heimurinn var ekki og yrði aldrei friðsæll. Varla var einu stríði lokið þegar annað tók við og þegar búið var að ráða bót á einu þjóðfélagsmeini, skutu tífalt fleiri upo kollinum. Smámsaman hætti hún að fylgjast með fjöl- miðlum bg með árunum snérist afskiotaleysið upp £ ótt^ við alla fréttabera. Á morgnana, þeaar dagblöðin duttu inn um bréfalúguna fór hrollur um Signýju. HÚn læddist fram á gang, tók á blóðunum eins oq pissubleyju og án þess að kveikja lét hún þau við sófann, þar sem Bjarni lagði sig á kvöldin. Þegar hann var búinn að lesa, laumaði Signý blöð- unum ofa.n i stóran plastpoka, sem hún brenndi mánaðar- leaa í bakgarðinum. Þær stundir voru sannkallaðar hátíðarstundir. Signý klæddi sig i peysufatakápu og gömul stigvél af Bjarna, setti upp svarta hanska og kom blöðunum fyrir i miðjum garðinum. í auanablik var hún almáttug; voðáfréttirnar fuðruðu upp og urðu að engu. Bjarni hætti að kaupa blöðin, þegar hann uppgötvaði að Siqnv las þau aldrei, lét sér næaja að lita i sið- degisblöðin i vinnunni. En þá tók annað verra við. Hann heimtaði að hlusta á sjöfréttirnar yfir kvöld- matnum. Signý kveið fyrir þessum hálftima allan daginn og yfir matnum reyndi hún að dreifa hún að dreifa hug- anum og hugsa um eitthvað skemmtilegt. En fréttunum tókst alltaf að laumast inn um eyrun og á nóttunni upplifði hún þær tifalt magnaðri. Þá heyrði hún auglýsta sérsmiðaða eyrnatappa i apóteki einu i bænum. Strax daginn eftir fór Signý og keypti sér tappa, sem hún stakk i eyrun rétt fyrir sjö og tók ekki út, fyrr en eftir að sjónvarpsfréttum lauk, klukkan hálf niu. Þegar yngsta dóttirin gifti sig og fluttist að heiman limdi Signý postulinsstytturnar og kristal- vasana fasta við hillur og borð, negldi myndirnar á veggina og skorðaði húsgögnin i gólfið. Það var aðeins eitt herbergi i húsinu með lausum munum, utan eldhúss- ins. Það var gamla barnaherbergið, þar sem barnabörnin leku sér, þá sjaldan þau komu i heimsókn. En hún átti i miklu striði við Bjarna um kaupin á öryggisbeltunum. Honum fannst hugmyndin fáránleg og beltin alltof dýr. Þau rifust oft um kaupin og á timabili yar Signý búin að gefa upp alla von um að hún gæti fullkomnað verk sitt. En aldrei þessu vant elti lánið hans. Barnlaus föðurbróðir lést og Signý fékk óvæntan arf, sem nægði fyrir öryggisbeltum á alla stóla i húsinu. Og núna, þær stundir, sem Signý var ekki við mats- eld, þvott eða hreingerningar, flutti hún sig á milli stólanna með kaffibrúsa og ástarsögu. Við kaflaskipti leit hún upp, örugg og sæl og dáðist að heimilinu.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.