Forvitin rauð - 01.05.1980, Side 12

Forvitin rauð - 01.05.1980, Side 12
Kjöt í sérflokki Rauðsokkahreyfingin kom fyrst fram sem hreyfing á opinberum vettvangi þann 1. maí 1970. t>á þrömmuðu vígreifar konur niður Laugaveginn og báru borða með þessari áletrun: Manneskja-ekki markaðsvara. NÚna 10 árum seinna horfum við rauðsokkar á þróun sem við erum uggandi yfir. Eins og fram kemur í viðtalinu hér á undan eru forráðamenn íslenskra fegurðasamkeppna hinir kátustu þessa dagana. Fegurðarsamkeppnir njóta aftur "vinsælda og virð- ingar". Stúlkur hópast í keppnirnar, fólk hópast til að sjá þær, blöðin hópast til að taka myndir og skrifa um stelpurnar og keppnirnar. Félagar í Rsh. hafa horft á þessa þróun, rætt hana og orsakir hennar og finnst nú að tími sé kominn til að reka upp a.m.k. viðvörunaröskur - enda er þessi hluti þróun- arinnar aðeins hluti hennar Alvarlegir timar. Efnahagsástandið á íslandi hefur ekki verið sérlega beysið síðustu árin og fer versnandi. Pólitískt og efnahagslegt öngþveiti og óstjórn hafa auðkennt vinnubrögð bur- geisanna “okkar" og þing- mannanna "okkar" - venju- legir landsmenn púla bara meira en venjulega og bíða eftir því að allt fari til helvítis. Eins og alltaf er þetta ástand hér heima aðeins smækkuð (skrípa) - mynd af því sem er að gerast í hinum stóra auðvaldsheimi; orkukreppa og offramleiðslu kreppa pínir vesturlandabúa - auðmenn og ríkisvald þeirra velta byrðunum yfir á arðrænda eða atvinnu— lausa, valdalausa og heila- þvegna verkamenn. Þetta eru semsé alvarlegir tímar, ólga í heiminum og fullt af blikum út við sjóndeildar- hring. Á slíkum tímum þarf að reka konur af vinnumarkaði og inn á heimilin til að fela atvinnuleysið. Það þarf að þagga niður allt þeirra kjaftæði um aukna og dýra samfélagslega þáttöku í verkum sem þær hafa lengst af unnið ókeypis - það þarf að gera þær skaðlausar. Og það er gert. Það þarf líka að að svæfa unga fólkið og frelsisbaráttu þess sem var næstum orðin skeinuhætt auðvaldinu undir lok síðasta áratugar. Og það er líka gert. Það þarf að stinga dúsu uppí verkalýðsforystuna °CT sundra verkalýðnum eins og mögulegt er. Og það er gert. Þetta eru nefnilega alvarlegir tímar. Tiskan er vopn sem notað er gegn okkur. Það er engin tilviljun að einmitt á slíkum tímum skuli framleiðendur keppast við að leiða inn á markað- inn nýja og nýja tísku, nýjar "þarfir" og nýja vit- leysu til að halda hugum unga fólksins frá því sem er að gerast i kringum það. Diskótónlist, diskódans, diskótiska og diskólifstill er nýjasta æðið. Það slær i gegn hjá unga fólkinu vegna þess að veruleika- flóttinn er lokkandi þegar sá veruleiki auðvaldsheims- ins sem það býr i er jafn flókinn og vonlaus og fúll og hann er. Þeir sem framleiða tisku varning og búa til tiskuna vita vel hvað þeir eru að gera. Þeir búa til óánægju og óhamingju hjá fólkinu - en það gerir ekkert til - fólkið getur nefnilega keypt hitt og þetta sem bætir úr óánægjunni. ÞÚ getur keypt snyrtivörur og föt og samkvæmt tiskukóngum og auglýsendum ertu ekki bara að kaupa þér, sápu og kjól - svo að eitthvað sé nefnt. Nei - takk. Þú ert að kaupa æsku, fegurð hreysti og heilbrigði, vin- sældir, persónutöfra, ham- ingju, fullnægju, lifsfyll- ingu o.s.frv. Öllu þessu er þér lofað óbeint i aug- lýsingunum. Þannig er tiskan notuð sem vopn til að halda hugum fólksins frá þvi sem máli skiptir. "Come to the cabareti" Tiskan er notuð til að tæla,lokka og neyða fólk til að kaupa, kaupa og kaupa og til að fólkið geti dansað með, þarf það að sjálfsögðu að vinna einhver ósköp i láglaunastörfunum sinum. Ómótuðustu og áhrifagjörr ustu neytendurnir eru börn og unglingar og tiskufólkið beinir áróðri sinum, fölskun fyrirheitum og sefjandi lygum óspart að þeim. nUnga konan er fallegur hlutur(1)" Eitt af þvi sem siðasta tisku-og alvörutimabylgjan hefur komið af staó er endur reisn fegurðarsamkeppnanna. Unglingsstúlkum er stillt upp hálfnöktum til að fólk geti skoðað þær - vegið og metið á þeim skrokkinn og sagt til um hver sé falleg- astur. Enginn hefur áhuga á þeim sem manneskjum - þær eru skoðaðar sem sálarlausir HLUTlR - eða vörur á markað- num til sýnis og sölu. SÚ sem mest kann til verka i "tiskuheiminum" verður hlut- skörpust. Hvort tveggja kemur glöggt fram i viðtal- inu hér á undan. Sú kvenfyrirlitning og hlutgerving sem birtist i þvi að skoða konur sem vörur - hundsa það að þær eru vitsmunaverur, mann- eskjur með langanir, þrár og skoðanir á umhverfi sinu nær og fjær - er kapituli út af fyrir sig. Engin kona eða stúlka ætti að þola slika framkomu við sig eða kynsystur sinar. Engin kona ætti að láta Ó- viðkomandi menn hafa sig að háði og spotti á þennan hátt. Samt láta stúlkur niðurlægja sig og auðmýkja á þennan hátt og á bak við þá raunalegu staðreynd er löng og ljót saga um alda- gamla sálarlega og menning- arlega kúgun kvenna. Og nú er svo komið að við verðum aftur að fylkja okkur undir slagorðið - Manneskja - ekki markaðs- vara. Timarnir eru ekki hliðhollir kvennabaráttunni og þeir eiga eftir að verða enn fjandsamlegri. Við skulum hinsvegar ekki taka þvi þegjandi. Við getum gert sitthvað til að mót- mæla og andæfa þeirri háð- ung sem kjötskrokka-'sam- keppni er við konur - bæði bær mörgu ágætisstelpur sem hafa látið draga sig á asnaeyrunum út i þennan bransa - og hinar sem láta telja sér trú um að ’'kona.n sé fallegur hlutur". Dagný

x

Forvitin rauð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.