Forvitin rauð - 01.05.1980, Page 15

Forvitin rauð - 01.05.1980, Page 15
15 Þrælavinna — en ekki á ráðherralaunum Brot úr dagskrá 1. maí fundar á Eskifirði Árið 1906 kom fyrsti tog- arinn til íslands. Margir tel.ja að við það ártal megi miða iðnbyltingu á íslandi og það eru vissulega rök fyrir því. Eini iðnaðurinn - eina framleiðslan auk landbúnaðarins - sem ein- hverju máli skiptir í þessu landi - er fiskiðnaðurinn. íslenskur fiskiðnaður er borinn uppi af sjómönnum og verkakonum. Sjómennskan er hættulegt og erfitt starf og frámunalega illa launað. Hlutur sjómannsins af þeim verðmætum sem hann skapar er fáránlega litill og hafi sjómenn lítið fyrir sinn snúð - hvað má þá um verka- konurnar segja. Það verður enginn ríkur og enginn safnar peningum í bankabók á því að vinna í frystihúsi. Dagvinnulaun verkakvenna í fiskiðnaði eru um 250 þús. krónur eða 3 milljónir á ári. Á því lifir vitaskuld enginn - en konunum gefst "sem betur fer" kostur á því að hækka þessi laun um allt að helming með því að vinna svo- lítið rösklega í bónusnum. BÓnuskerfið BÓnuskerfið er kallað hvetjandi launakerfi á máli atvinnurekenda. Kerfi þetta er að stofni til upprunnið í Bandaríkjunum og byggist á þeirri grundvallarhugsjón atvinnurekenda að borga ekki krónu fyrir það vinnuafl sem þeir fá ekki. Það eru gerðar mælingar á vinnuhraða verkafólksins og vinnubrögð- um og þar sem vinnumælingar ganga lengst er mælt nákvæm- lega hve langan tíma það tekur verkamanninn að renna til augunum, beygja handlegg^ fingur, snúa sér í einn/ fjórða úr hring o.s.frv. Á grundvelli slíkra vinnu^ mælinga er settur lágmarks- tími fyrir hvert einasta verk - svokallaður staðal- tími. Ef verkamaðurinn vinn- ur hins vegar hægar en staðaltíminn segir til um tapar hann - ekki atvinnu- rekandinn en ef verkamaður- inn vinnur hins vegar hraðar en staðaltíminn segir til um - þá græðir atvinnurekandinn margfalt meira en verkamaður*- inn. Samkvæmt línuriti frá árinu 1979 er vinnulauna- kostnaður atvinnurekenda við það að láta vinna eitt kíló af fiski 80 krónur á hraða 100, við hraða 250 er kostn- aðurinn 63 kr.og við hraða 300 er kostnaðurinn kominn niður í 58 kr. á hvert kíló - bónusgrunnurinn breytist hins vegar ekkert - svo að það er ljóst hver græðir mest á auknum hraða. Það voru atvinnurekendur sem komu með bónuskerfið - til reynslu, árið 1961 og verkalýðshreyfingin sem var alls ekki undir þetta búin samþykkti bónusinn - til reynslu. Síðan hefur staðið mikill .styrr um bónuskerfið. Verkakonur á Akranesi sem eru harðsnúnustu andstæðing- ar bónussins segja að hann sé „nútímaþrælahald". Verka- lýðsforystan í Vestmanna- eyjum styður bónusinn á meðan ekki gefst annað betra og þann tón má víða heyra annars staðar. Atvinnurekend1- ur segja að bónusinn sé guð9- gjöf fyrir verkakonur og konurnar sem vinni eftir honum hafi „ráðherralaun" - eins og forstjóri Vinnslu- líða þegar unnið er í bónus bónusinn komi í raun rétt- látar út gagnvart einstakl- ingnum en tímakaupið og vinnan sjálf sé ekki eins óbærilega leiðinleg þegar maður hafi eitthvað að keppa að. Þetta eru rök út af fyrir sig. Hitt er svo aftur annað mál að þeim konum fer fjölgandi sem telja ókosti bónuskerfis- ins of mikla til að við verði unað. Helstu ókostir bónus- kerfisins eru býsna alvar- legir. Kerfið sjálft er flókið og illskiljanlegt. Til að finna út hinn mikil- væga staðaltíma þarf að vita um samninga, vinnu- mælingar og flókna útreikn- inga - svo er staðaltími margfaldaður með 100 og deilt í með rauntíma eða raunverulegum afköstum og stundum trúnaðarmanneskjurn- ar. NÚ er það býsna algengt að bónusmiðarnir séu skakkt reiknaðir úr tölvunni og það er trú okkar að þó nokkrar nilljónir af vangreiddu kaupi liggi hjá frystihúsun- um - vegna þess að kerfið er of flókið og illskiljanlegt til að konurnar geti leið- rétt kaupið sitt. Taugaálag og vondar vinnu- mórall. í annan stað hefur hrað- inn og keyrslan á konunum sem fylgir þessu kerfi oft skapað bæði stress og vondan móral á vinnustaðnum. Ástand- ið er þó skárra þar sem þak er á bónusnum - en það þarf ekki að vera gott fyrir því. Þakið á bónusnum kemur stöðvarinnar sagði í viðtali við Morgunblaðið í fyrra. Við skulum lita aðeins a nokkra kosti og gialla bónus- kerfisins. Kostir og gallar. Helstu kostir bónussins eru þeir að ef konurnar vinna mjög hratt og vel allan daginn (og kvöld' og um helgar lxka) - þá geta þær náð nokkurn veginn mann- sæmandi launum. Al-hæsti bónus sem við höfum frétt al eru 27 þús. krónur fyrir tímabilið frá 8 um morgun- inn til 7 um kvöldið - en þá var líka unnið á hraða sem var vel yfir 300. Meðal- bónusinn þ.e.a.s. all-stíf vinna í allt að 14 tíma á dag getur hækkað mánaðar- laun verkakvennanna um rúm- an helming miðað við dag- vinnulaun. Það myndi vera um það bil helmingur af ráðherralaunum í dag. Kaup- ið er það sem konur finna bónusnum helst til gildis og auk þess finnst sumum að tíminn sé fljótari að þá fást út þau afköst sem kaupið er reiknað eftir. Málin flækjast svo fyrst fyrir alvöru þegar nýting- in kemur - tvíreiknuð - til sögunnar. Þær konur sem hafa lagt sig verulega eftir því að skilja útreikninga og kunne alveg á kerfið eru ekkert blávatn. En þær eru fáar- meirihLuti verkakvennannna skilur ekki bónusmiðana sína og það er satt að segja eng- in furða eins og fram hefur komið. Þegar bónusmiðum dagsins er svo dreift til kvennanna ýmist næsta morgun eða tveim- ur til þremur dögum seinna - þá er það aðeins ein kona við hvert borð sem fær slík- an miða. Kunni hún ekki að fara yfir bónusmiðann getur skekkja í útreikningunum haft kaup af tveimur til þremur öðrum konum. Og jafn- vel þó að hún kunni að yfir- fara bónusmiðann þá getur hún ekki verið viss um að réttur staðaltími sé notaður á honum - þær úpplýsingar aefur aðeins verkstjórinn og þannig út að við ákveðinn hraða t.d. 200 þá hættir bónusinn að hækka - er hrein— lega ekki reiknaður hærra. Konurnar komast fljótt uppá lag með að vinna uppað þessu hraðamarki og eru ekkert að stressa sig við stöðugt æðislegri hamagang. í Vest- mannaeyjum er hins vegar ekkert slíkt þak, konurnar pína sig til hins ýtrasta og ná hraða sem er ómann- eskjulegur - meðaltal úr fjórum frystihúsum þar var 206 í fyrrasumar. í öllum frystihúsunum þar sem bónusinn hefur verið tekinn upp skapast ákveðið óþverramynstur þar sem enginn vill vinna með sein- virkustu konunum. Dæmi eru jafnvel um að seinvirkum konum hefur verið gert lífið óbærilegt á vinnustað og þeim hreinlega bolað burt úr frystihúsinu. Taugaálagið sem fylgir því að halda sömu hröðu vinnulotunni allan daginn getur líka brotist út í alls konar illindum og gagnkvæmri tortryggni; það ganga ásakan—

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.