Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 17

Forvitin rauð - 01.05.1980, Qupperneq 17
17 Baráttustarf á Akureyri Á Akureyri eins og víð- ast annars staðar á landinu mæta dagvistarmál litlum skilningi hjá þeim sem ráð- stafa fé okkar skattborgar- anna. Þar er engin vöggu- stofa, ekkert skóladagheim- ili, eitt dagheimili og þrír leikskólar í 12 þús. manna bæ. Það getur hver maður séð hvers konar vandræða- ástand ríkir í dagvistar- málum á þeim bæ. Þar hefur nú verið stofn- aður hópur áhugafólks um dagvistarmál. Markmið hans er að knýja fram áframhald- andi framkvæmdir við dag- vistarheimili.Sérstaklega hefur hópurinn deilt harka- lega á það, að á síðustu fjárlögum var allt of lágt framlag til bygging*r nýs dagheimilis alls ekki notað að fullu.(Við Reykvíkingar þekkjum mjög vel svik af þessu tagi) Þessi áhugasami hópur stóð fyrir dagskrá á l.maí s„l. þar sem gengið var undir kjörorðunum: - Dagvistarheimili fullnægi eftirspurn. - Bæjarstjórn, munið kosningaloforðin. - Bætt kjör og vinnuaðstaða starfsfólks á dagvistar- heimilum. - Laun til foreldra í veikindum barna. - Fæðingarorlof, lágmark þrrr mánuðir. - Fæðingarorlof greiðist af almannatryggingum. - Fæðingarorlof á fullum launum. Þrjár konur fluttu ræður r tilefni dagsins. Hér á að eiga börn, sérstaklega það fyrsta. Laun fást ekki í þessu þjóðfélagi nema maður sé úti á vinnumarkaðn" um. Það fyrsta sem ég get því gert er að athuga um fæðingarorlof. Það reynist vera í 6 vikur eftir að barn mitt er fætt. Samning- ar kennara hljóða svo að þeir fá 6 vikna orlof ef barn fæðist um sumar, en 3 mánuði ef það fæðist um vetur. Það er ekki um annað að ræða en að bíta á jaxl- inn og bólva í hljóði og hugsa: næsta barn verður vetrarbarn. En hvaða munur er á sumarbörnum og vetrar- börnum? Af hverju fá vetrai— börn að hafa móður sína heima í 3 mánuði eftir að þau fæðast, en sumarbörn aðeins í 6 vikur? Jæja, það er allavega betra að fá laun í 6 vikur en ekki neitt. Hvað svo sem verður þegar þær eru liðnar - tara að sjá til og hugsa sem minnst um það. ó nei, það er ekki allt búið enn' Ég átti eftir að komast að þvi að það er ekki hægt að fá þessar 6 vikur á fullum launum nema ég haldi áfram kennslu í fullu starfi. Það er greinilegt að hagsmunir kerfisins - en ekki fólksins - eru hafðir i huga við geró samninga. Mér er sagt að ég sé heppin að fá fæóingarorlof. í flestum tilfellum er aðeins hægt að fá 2 vikur á fullun; launum, ef þá nokkuð. Iðn- nemar fá t.d. ekki neitt frekar en aðrir nemar - ekki heimavinnandi konur- ekki konur sem búa i sveit, og ekki konur sem vinna i eigin fyrirtæki. Sem betur fer eru nokkur félög, sem hafa náð samningum um 3ja mánaða fæðingarorlof en þau eru alltof,alltof fá. Krafa okkar er 3ja mánaða fæðing- arorlof fyrir allar konur - greitt af Trygginga- stofnun Rikisins. Næsta skref er auðvitað að leita að pössum fyrir það væntanlega. Fyrsta sem mér datt i hug var vöggu- stofa - en sú stofnun reyndist alls ekki til hér á Akureyri. Hvað gera ein- stæðar mæður eiginlega? Dagmanna' - þær hafa börnin auðvitað hjá dagmömmu. Það eru margir kostir og gallar sem fylgja þeim. Þær upp- fylla engan veginn þær kröf" ur sem gerðar eru til þeirra. T.d. eru þær ekki sérmenntaðar. Þær hafa börn- in i heisahúsum, oft á tið- um við þröngar aðstæður, þær hafa oft engan útiveru- stað fyrir þau o.s.frv. En dagmömmur eru auðvitað eins misjafnar og þær eru margar. Persónulega hef ég séð mjög slæm heimili og svo aftur viðunandi. Dagmömmur uppfylla aftur á móti kröfur sem bæjar- yfirvöld gera ekki. Þær gera mæð.rum kleift að fara út á vinnumarkaðinn sem þær annars gætu ekki. Ég hef nú ekki hugsað mér að hafa barnið mitt hjá dagmömmu þar til það fer i skóla, svo ég fer á dagheimili til að panta pláss. í 12 þúsund manna bæ er aðeins eitt dagheim- ili sem tekur 49 börn og aðeins 2ja ára og eldri. Ekki skánar það. NÚ þá er ekki um annað að ræða en snúa sér að leikskólum. Þar eru börnin hálfan daginn. Ekki er það nógu góð lausn fyrir einstæða móður. Enginn lifir á hálfs dags launum. Hér i bæ eru aðeins 3 leikskólar þ.e. Árholt, Iðavellir og Lundasel. Þessir staðir taka 204 börn til samans. Þá má einnig nefna Stekk en sú stofnun er einungis fyrir starfsfólk sjúkra- hússins og rekið af þvi. Þetta eru samtals 253 börn. En viti menn á Akureyri eru 1800 börn á aldrinum 0-6 ára. Þetta þýðir að um 14% barna fá inni á dagvistunarstofnun. Þessar tölur eru bæjar- félaginu til skammar. Það fer vist ekki framhjá neinum að það er verið að refsa okkur fyrir að eiga börn. Þessi ræðustúfur kann að hljóma eins og grátur einstæðrar móður. En til- gangur minn er ekki sá að láta vorkenna mér, heldur að vekja athygli á erfiðum aðstæðum barnafólks hér á Akureyri. Ég er vist ekki ein um slikt.- Siður en svo - hér og út um allt land eru foreldrar i sömu sporum. aftir fer ræða Sigrúnar Halldórsdóttur þar sem hún lýsir þeim erfiðleikum sem :jeta blasað við þeim konum á Akureyri sem eiga von á oarni; Sóðir foreldrar og aðrir félagar. Eins og flestir sjá þá er ág kona ekki einsömul. Það ar aðeins einn galli á gjöf Njarðar að króginn vill i heiminn i endaðan ágúst en ramman á að byrja að kenna 1.september - þar af leiðandi get ég ekki hugsað um mitt aigið barn. NÚ kynnu margir að spyrja: Pil hvers ertu að eignast oarn fyrst þú getur ekki annast þaó sjálf? Eitt er /ist að ég vildi gera allt iil að fá að sjá um barnið nitt sjalf. En ég á engra •costa völ. Maður getur vist akki bæði verið fyrirvinna og verið heima og annast oarn. En ég spyr þá aftur: 3iga einungis þeir sem geta /erið heima, að eiga börnin? á það að vera forréttindi oeirra riku? Það er ærið kostnaðarsairt

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.