Morgunblaðið - 22.09.1929, Page 3
MÖRGUNBLAÐIÐ
«
TTT-
Þegar menn fljúga í þoku, geta
þeir að vísu haldið stefnu vjelar-
innar. En það er ekki nóg, er
þeir vita ekkert, hvernig eða hve
mikið hún berst íir leið fyrir
vindi. Það einasta sem dugar, eru
miðunartæki og vísbendingar frá
miðunarstöðvum. Þær bendingar
•eru örugg hjálp flugmannanna.
Sími er þarna enginn og ekkert
samband í neina átt, nema loft-
skeytasamband til fjarlægra
stöðva. Ógerningur er að fljúga
írá Ivigtut í þoku Og dimmviðri,
því maður' getur átt það á hættu
nð reka sig á fjöllin innan í þess-
um þrönga og innilukta dal. En
pað er helst bjart loft þarna um
hádegisbil. Á þeim eina tíma sól-
arhringsins er helst hægt að kom-
^ist þama af stað.
Veðurfregnir fengum við til
Ivigtut frá Toronto. En veður-
skeytin urðu að fara ótal króka-
leiðir, og stundum kom það fyrir,
að veðurskeytin voru sólarhring á
leiðinni, frá því þau voru send af
stað, og uns þau voru komin í
nkkar hendur.
Og Ahrenberg heldur áfram:
Við reyndum að lromast leiðar
okkar þ. 17. júlí; þá virtust veður-
horfur ekki vera slæmar. En við
vorum ekki komnir nema stutt út
í Davis-sundið, þegar þoka skall á
okkur. Fengum við þá þær fregn-
ír, að komið væri slæmt veður í
Labrador, og snerum við því við.
Næsta dag reyndum við á nýjan
leik. Eftir klukkustundar flug
hittum við þokubakka, sem náði
alla leið frá haffleti og í 2000
metra hæð.
Þ. 20. júlí: Flugum í 1 y2 kl,-
síund. Þá kom jafnvægisrask á
vjelina og urðum við að snúa við.
Þ. 22. júlí: Flugum í tvær kl.-
stundir. Fengum þá fregn um, að
komið væri ófært veður við La-
brador.
Síðasta tilraunin.
Þ. 3. ágúst reyndum við í síð-
asta sinn. Þoka var eins og vant
er niðri við hafflötinn. En við
liöfðum blásandi byr, og fórum
"230—240 km. á klukkustund.
Við höfðum fengið loforð fyrir
því, að veðurfræðingarnir í La
hrador sendu okkur veðurskeyti
skömmu eftir að við vorum lagðir'
»f stað. En þetta brást okkur. Við
hjeldum leiðar okkar yfir þokunni.
Við og við sáum við niður á sjó-
Inn.
En brátt kom í ljós þungbúinn
-skýjabakki við sjóndeildarhring-
inn. Og eftir y2 kl.st. var skollið
yfir okkur versta veður með þrum-
um og eldingum. Reyndum við að
komast upp úr veðrinu. En það
reyndist ófært. Þá reyndum við
að beygja af leið og komast hjá
því á þann hátt. En það tókst ekki
heldur. Þá ákváðum við að snúa
:il Grænlands fimta sinn. Það var
'hart, en varlegast. Við vorum
komnir hálfa leið til Labrador.
En þar áttum við von á versta
veðri. Flugið til Grænlands áætl-
uðum við að tæki 3 kl.st., og það
var svo sem ekki víst, hvernig
okkur myndi reiða af, enda þótt
við færum að öllu sem varlegast.
Er við höfðum snúið við, byrj-
aði að druna í lofti í áttina til
Grænlands. Veður fór versnandi
T þar auðsjáanlega. Alt í einu taka
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••*
•••••••••••••••••••••••••
Aðeins góðar og I
smekklegar vörur.
•••••••••••••••••••••••••
Nýjar vörur með
hverju skipi.
Við viljum vekja athygli allra á því, að við höfum nú fengið miklar birgðir af nýjum vörum og eigum enn voil
á ýmsu með næstu skipum. Verslunin mun því eftirleiðis ávalt verða mjög vel birg, og viljum við til dæmis nefna
eftirtaldar vörur, sem upp hafa verið teknar síðustu daga:
Kvennkápur í stóru úrvali
Kvennkjólar frá kr. 15.85.
Samkvæmiskjólar, fjölbreytt úrval
Regnkápur á fullorðna, og börn
Regnslár fyrir börn, í mörgum litum.
Golftreyjur m. kraga, fyrir fullorðna og börn
Tricotine nærfatnaður
Náttkjólar
Náttföt
Silkisokkar
fsgarnssokkar
Ullarsokkar
Dívanteppi
Borðteppi
Skinnkragar
Skinnkantar
Silkihálsklútar, fjölbreytt úrval.
íasasSeí)
ðSteAÍ:
Káputau,
Kjólatau, stórt úrval,
Peysufataklæði 4 tegundir
Peysufatasilki
Silkiflauel
Crepe du Chine, m. teg. og litir
Crepe Georgette
Crepe Satin
Flauel, margar teg., einl. og misl.
Morgunkjólaefni
Tvisttau
Flonell margar tegundir
Ljereft einbr. og tvíbr.
Undirsængurdúkur
Yfirsængurdúkur, blár, bleikur og rauður
Rekkjuvoðir
Rúmteppi o. m. m. fl.
VERSLIÐ ÞAR SEM IJRVALIÐ ER MEST, VÖRURNAR BESTAR EN VERÐIÐ LÆGST.
Verslnnin Eglll Jacobsen.
kompásnálarnar upp á því að
hringla til og frá. Hristingurinn
frá mótornum færði kompásana úr
lagi. Yið losuðum kompásana; með
því að halda þeim í hendinni, tókst
okkur að ákveða stefnuna við og
við. í 2 klt. og 45 mín. flugum við
í áttina til Grænlands, án þess að
nokkurt land væri sýnilegt. Við
vorum farnir að verða smeykir um;
að við hefðiim vilst af leið.
En svo sáum við til sólar nokkur
augnablik og gátum áttað okkur
á því, hvar við vorum. Sendum við
nú skeyti til Ivigtut, og spurð-
um, hvernig veðrið væri þar. Það
var bjart enn. Er við komum til
Ivigtut, voru fjallatindarnir að
hyljast þoku. Hefðum við verið
drykklangri stundu seinna á ferð-
inni, þá hefðum við varla ratað
á Tvigtut-fjörðinn.
borðum í einu; 30 matreiðslumenn
voru ráðnir til þess að matreiða,
og 286 þúónar. Framreiddir voru
1200 humrar, 1200 hænsni, 4 tunn-
nr af kartöflum, 325 litrar af ís
og 4000 flöskur af víni. Alls þurfti
50,000 borðbúnaðarmuni og varð
að fá sumt af því lánað frá út-
löndum. Öll framreiðsla gekk að
óskum. Sveit þjónanna var stjórn-
að með þeim hætti, að veislustjóri
gaf ljósmerki hjer og þar í saln-
um. Gat hann með því móti fyrir-
hafnarlítið og liljóðalaust sjeð um
að gestirnir fengju matinn refja-
laust.
Stór veisla.
Tvö fjölmenn mót voru haldin
samtímis í Kaupmannahöfn um
síðustu mánaðamót, verkfræðinga-
og náttúrufræðingafundirnir. — í
sambandi við fundi þessa, var
veisla haldin í sýningasalnum For-
um, er var einhver sú stórfengleg-
asta, sem sögur fara af þar um
slóðir. . 2280 manns sátu undir
„Leyndardómar Parísarborgar“,
hina heimsfrægu sögu eftir Eugene
Piie á nú að fara að gefa út í ís-
lenskri þýðingu. Svo má segja, að
saga þessi hafi farið sigurför um
löndin. Hún hefir verið gefin út
á flestöllum tungumálum og sum-
staðai- í mörgum útgáfum, vmist
með myndum eða mytidálaust. í
þessari íslensku útgáfu verða 200
niyndir. Enginn efi er á því, að
þessi saga verður mikið keypt og
mikið lesin. p.
Morgunblaöið er 12 síður í
dag og Lesbók.
Auglýsiugar bíóanna eru á 4.
síðu.
Þá þegar hið nýja
við Túngötu verður tilbúið til notkunar, hefjast fim-
leikaæfingar með ennþá meiri krafti en nokkru sinni fyr.
Karlflokkar æfa á kvöldin kl. 6—7, kl. iy2—9 og 9—10.
Kvenflokkar æfa á kvöldin kl. 6—7, 8—9 og 8y2—10.
Drengj aflokkar æfa á kvöldin kl. 5—6 og 7—8.
Telpnaflokkar æfa á kvöldin kl. 5—6 og 7—8.
Flokkar fyrir eldri karlmenn og konur æfa kl. 6—7.
ÍSLENSK GLlMA
verður æfð á kvöldin í glímusalnum.
Kennarar fjelagsins eru:
frk. Ólöf Árnadóttir, hr. Aðalsteinn Hallsson og
hr. Björn Jakobsson.
Gamlir og nýir fjelagar tilkynni þátttöku sína hið fyrsta
hjá einhverjum kennaranna eða stjórninni, og hvaða
tíma þeir óska helst.
I STJÓRN ÍÞRÓTTAFJELAGS REYKJAVÍKUR
HARALDUR JÓHANNESSEN.
ÞÓRARINN ARNÓRSSON. SIGURSTEINN MAGNÚSSON.
ÁGÚST JÓHANNESSON. KARL JOHNSON.