Morgunblaðið - 22.09.1929, Blaðsíða 5
Sunnud. 22. sept. 1929.
5
JptorgttítiMaftiÖ
Góðar og vandaðar vörnr. I
t.
Hagkvæm kanp
, . i.. '
Sokkabúðin sfækkuð og endurbætt.
m %
Við viljum vekja athygli fólks á því, að við höfum stækkað verslun okkar að miklum mun, og höfum því
margfalt meira og fjölbreyttara úrval af vörum en áður. Við höfum fengið með síðustu skipum:
HANDA BÖRNUM:
Nærfatnað alskonar
Skóla-Peysur
---- Sokka
---- Kápur (telpna).
---- Föt (drengja)
---- Töskur (mikið úrval)
---- Trefla úr ull og silki
---- Húfur, mikið úrval
o. m. m. fl.
HANDA KVENFÓLKINU:
Golftreyjur, afar fjölbreytt úrval.
.. Sokka úr ull, silki, ísgarni og baðinull
Nærfatnaður alskonar
Lífstykki, margar teg.
Náttkjólar
Leikfimisföt
Hanskar
o. m. m. fl.
HANDA KARLMÖNNUMí
• . ‘ *
Vetrarfrakkar
Nærföt
Húfur, mikið úrval
Hattar, harðir og linir
Bindi
Axlabönd
Vasahnífar
Buddur ;
Veski
og margt margt fleira
m
lewlð @i skeHið það ktrp1 slg.
Virðing arfylst.
SOKEABDDIN. - Lannaveg 42.
Prestafjelagsrit ð.
Tímarit fyrir kristindóms- og
kirkjumál.
Ritstjóri: Sigurður P. Sívertsen.
Ellefta ár. 1929.
Prestafjelagsritið er nýkomið út
i ellefta sinn.
Það mun óhætt að fullyrða, að
vinsældir þessa eina kirkjulega
timarits á íslandi hafi árlega farið
vaxandi, enda á það sjer nú marga
ötula og áhugasama styrktarmenn,
bæði meðal lærðra og leikra. Þó
mun nokkuð hafa gætt þess mis-
skilnings, mest sakir nafnsins, að
ritið væri einkum prestunum ætl-
að og almenningur hefði. þess
engin not. Eft það er fjarri sanni.
Til allra þeirra, sem unna kristin-
dómi og kirkju, á ritið erindi, og
áreiðanlega myndi ýmsir þeir, sem
ekki kjósa að vera kendir við
slíkt, hafa ánægju af að kynnast
svo góðum og prúðum gesti sem
Prestafjelagsritið er.
Frá því jeg kyntist Prestafje-
lagsritinu fyrst, hefir mjer þótt
vænt um það, fyrst og fremst
fyrir þá sök, að það fjallaði um
það svið menningarlífs nútímans,
sem hugur minn hafði tekið ást-
fóstri við, en sjerstaklega varð
mjer það kærkominn gestur og
lestur þess óblandin ánægja fyrir
það, að efni þess og andi sýndi
mjer, að fulltrúum og framherjum
islenskrar kirkju er annað tamara
en andlausar og óbilgjamar erjur
uin skoðanamun og ágreinings-
máL í ritinu eru rædd sameigin-
leg áhugamál íslenskrar kirkju.
Þar er skýrt frá stefnum og stór-
viðburðum í kirkjulífi annara landa.
Þar lýsa einstaklingar eigin reynslu
og skýra frá skoðunum sínum að
hætti mentaðra og víðsýnna manna,
með skilningi á reynslu annara og
virðingu fyrir skoðunum þeirra.
Prestafjelagsritið hefst að þessu
sinni með skorinorðu erindi, er
ritstjórinn, próf. theol. Sig. P. Sí-
vertsen, flutti í dómkirkjunni á
synodus síðastliðið vor og nefn-
ist: Krafa kristindómsins um iðrun
og afturhvarf. Hugmyndir almenn-
ings um þetta atriði kristinnar trú-
ar eru svo á reiki, jafnvel rangar,
að þess er síst vanþörf að skýra
málið og hjálpa mönnum til þess
að gera sjer grein fyrir því á
sálfræðilegum grundvelli.
Þá er rösklega rituð grein eft-
ir síra Sigurð Einarsson um barna-
trú, nokkur drög til sálfræðilegrar
skýringar hugtaksins. Þykir mjer
að mörgu leyti mest i þá grein
varið, þeirra sem i ritinu eru. —
Einnig um þetta atriði ríkir svo
megn vanþekking og ruglingur
hugtaka, að vart má vansalaust
heita, að ekki skuli fyr hafa birst
á prenti neitt í þá átt, sem hjer
er farið. Maður hlýtur því að vera
höf. þakklátur fyrir svo rækilega
greinargerð sem þessa. Greinin
ber þess vott, sem vinir síra Sig-
urðar reyndar vissu áður, að hann
hugsar ljóst og ritar snjalt um
heimspekileg og uppeldisfræðileg
efni.
Síra Knútur Arngrímsson á
Húsavík ritar um Nikódemus. Er
þar >»skygnst inn í rökkur gleymdr-
ar sögu, þar sem engin völ er
leitarljósa, nema líkinda, hugboðs
og ímyndunarafls«, ritað af sam-
úð, sem reynir að skilja, skýrt
hugsað og skemtilega sagt.
Sira Bjarni Jónsson ritar um
fræði Lúthers 400 ára, fallegt er-
indi, fult af ást og lotningu fyrir
barnalærdómnum. Sýnir hann fram
á, hvernig þessi gamli arfur evange-
lisk-lútherskrar kirkju er enn i
fullu gildi.
Síra Friðrik Friðriksson birtir
minning um lítið atvik úr lífi sínu,
athyglisvert erindi, þótt ekki sje
langt.
Þá ritar prófessor Sig. P. Sí-
vertsen enn um kirkjumálanefnd-
ina nýju og tillögur síðustu presta-
stefnu. Mun eflaust einhvern fýsa
að kynna sjer, hver verkefni
kirkjumálanefndin hefir fengið til
úrlausnar og að hverju kirkjunn-
ar menn vilja stefna í þöim sök-
um.
Síra Friðrik Hallgrímsson segir
frá lútherska kirkjuþinginu mikla
í Kaupmannahöfn nú í sumar.
Sátu þingið sjö fulltrúar íslensku
kirkjunnar.
Ennfremur birtir síra Friðrik
smágrein um íslenska söfnuðinn í
Höfn; telur hann rjett og sann-
gjarnt, bæði frá kirkjulegu og
þjóðernislegu sjónarmiði, að ís-
lensk kirkja og riki láti ekki af-
skifta- og stuðningslaust það starf,
sem þar er unnið.
Dr. theol. Jón biskup Helgason
ritar um kirkju Englands á 19.
öld, stutt en fróðlegt og efnisríkt
yfirlit. Er þar fyrst gerð grein
fyrir höfuðstefnum innan enSku
ríkiskirkjunnar á þessu tímabili og
getið merkustu manna, er til sin
Vetrarfata og frakkaefmi.
Nýkomið sjerstaklega mikið úrval af vetrarfata- og frakkaefnum.
Manchettskyrtur — Slifsi — Slaufur, ullar millifatapeysur og vesti,
hattar, húfur, nærföt, sokkar. — Þar sem jeg hefi valið allar mínar
vörur sjálfur í verslunarhúsum erlendis, veit jeg að þær eru allar
eftir nýjustu tísku. — Yerðið er við hvers manns hæfi.
Nokkur dúsín af stífuðum tvöföldum flibbum, sem eru nú mjög
að ryðja sjer til rúms, sel jeg á 0.25 stk.
Skoðið vörurnar og muu jeg reyna til að gera alla ánægða. —
Pantið föt ykkar með nægum fyrirvara, svo að afgreiðslan gangi
greiðlega. Nokkrir klæðnaðir eru fyrirliggjandi, sem seljast meö
mjög miklum afslætti.
Andrjes Andrjesson, Langaveg 3.
Nýjar vörnr:
^ Silki í Kjóla nýtísku efni.
% Svart Charmeus sjerlega gott.
/ Satín í ýmsum litum.
Crepe de Chine hv. og mislit frá 8.50
-19.50. — Svuntusilki sv. og misl.
Slæður og Hornklútar.
Fóður-silki í miklu úrvali,