Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLADIÐ 3 |RorgttttHoM& Útcaf.: H.f. Arrakur, RaykJaTfk. Rltstjörar: Jön KJart&nsaon. V&ltýr StefAnnaoa. Rltatjörn og afgreiB«l&: Jtueturstrseti S. — Slati 1(00. Au*rlý«initastjörl: B. H&fbtrg. AuKlýslnKaakrifatofa: Austurstrœti 17. — Sis&l 1700 Heimaslmar: Jön Kjartansson nr. S74S. Valtýr Stefánsson nr. 4ÍÍ0. E. Hafberg nr. 3770. Askrif tagjald' Innanlands kr. 2.00 & mAnuBl. Utanlands kr. 2.50 í m&nuBL 1 lausasölu 10 anra elntaklB. 20 aura meB Uesbök. Skarlatssótt í 5iglufirði. Siglufirði, FB. 17. des. Skarlatssóttin er allmikið út- breidd í bænum og er nú búið að loka barnaskólanum og banna allar samkomur fyrst um isinn. Dauðsföll af völdum veik- innar munu vera sex eða sjö. Heilbrigðis og sóttvarnamefnd ekipa hjer hjeraðslæknir, bæj- arfógeti og spítalalæknir. — Kommúnistar hafa gengist fyr- ir harðri árás á hendur nefnd- inni fyrir ónógar sóttvarnar-að- gerðir. Nefndin er hinsvegar ó- samþykk innbyrðis og á 1 blaða- deilum. Erlenðar frjettir í gœr. Puol Boncour. reynir að mynda stjórn.- París 17. des. Utiited Press. FB. Chautemps mishepnaðist til- raunin til stjórnarmyndunar. Hefir hann tilkynnt LeL i n ríkis forseta, að eigi tjái fyrir sig að Chautemps. hakla áfram þeim tilraunum, því að Herriot neiti algerlega að taka þátt í nokkurri stjóm, sem ekki telji Frakkland skuld- bundið til þess að greiða Banda- ríkjamönnum afborgun þá og vexti, sem fjellu í gjalddaga 15. þ. m. Lebrun forseti hefir átt tal við Poul Boncour hermálaráð- herra Herriotstjómarinnar og falið honum að mynda stjóm. Boncour hefir fallist á það, að gera tilraunina, svo fremi að hann sjái fram á, að nokkrar Iíkur sjeu til að hún hepnist. Ætlar hann að þreifa fyrir sjer og athuga horfumar og mun að líkindum geta gefið ríkisforset- anum fullnaðarsvar við því í dag hvort hann gerir tilraunina. Enn eru margir þeirrar skoð- unar, að Herriot sje eini maður- inn, sem geti myndað stjóm, og ætla, að hann muni aftur vinna marga til fylgis við sig, er frá hurfu végna stefnu hans í slculdagreiðslumálinu. París, 17. des. United Press. FB. Boncour hermálaráðherra hefir enn ekki getað gefið Le- brun ríkisforseta fullnaðarsvar við því, hvort hann takist stjórn armyndun á hendur. — Boncour Poul Boncour. hefir í dag átt tal við leiðtoga flokkanna og mun nú svo kom- ið, að það er undir svari jafn- aðarmanna komið hvort hann gerir fullnaðartilraun til stjóm- armyndunar. Utvarpsfrjett í gærkvö di. Paul Boncour tilkynnti Le- bran í kvöld að hann mundi taka að sjer stjórnarmyndun enda þótt jafnaðarmenn hefðu neitað að sitja í stjórn með honum. Frökkum gefinn kostur á að borga. Franska frjettastofan Havas flytur þá frjett frá Washington, að komið hafi fram miðlunar- tillaga í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna um skuldamál- ið. Fer tillagan í þá átt, að Frakk ar greiði nú þá afborgun, sem þeim ber að greiða, en að Banda ríkin taki gilt aðalskilyrðið, sem sett var um greiðslu í orðsendingu Herriot, sem sje, að þetta yrði síðasta afborgun- in, sem fram færi áður en ráð- stefna hefir verið haldin um málið. — Ef ráðstefnan verður haldin, er talið víst, að þeir, sem nú hafa greitt, hafi ólíkt betri aðstöðu og muni sæta betri með ferð af Bandaríkjanna hálfu, en hinir, sem hafa neitað greiðslu. — Hoover hefir frest- að boðskap sínum til þingsins þangað til útsjeð er um, hvort Frakkar rnuni greiða eða ei. (F. U.) Uppreisnartilraun í Argentínu Út af sprengingu, sem varð í húsi einu í Buenos Ayres, og þótti grunsamleg, var gerð hús- rannsókn hjá einum fylgismanni Erigoya fyrverandi forseta, og fundust þar 1000 sprengjuí'. Yið þetta komst upp víðtækt sam- særi, og ætluðu samsærismenn að láta til skarar skríða í nótt, og taka fyrst hermálaráðuneyt- ið herskildi, en síðan lögreglu stöðina. Mörg þúsund sprengjui áttu að springa í einu víðsvegai um borgina, svo að alt kæmis Lífstykkjabnðin, Hafuarstræti 11, býður öllum sínum mörgu viðskiftavinum kostakjör til jóla á alveg ný-komnum vörum, fallegum, ódýrum, vönduðum og mikinn afslátt af eldri vörum. Silkinærföt — sokkar — hanskar — telpnkjólar — drengjaföt náttföt — kragar — vasaklútar. og ekki að gleyma hinum landsþektu lífstykkjum — beltum — korselettum brjósthöldum. Komið og skoðið, það mun borga sig fyrir ykkur og þið munið kaupa Lifstykkjabúðin, Hafnarstræti 11. í uppnám, og uppreisnarmönn- um yrði hægara fyrir. Stjómin hefir á aukafundi ákveðið að lýsa yfir hemaðarástandi 1 borg- inni. Erigoya og annar fyrver- andi forseti D’Alvares, hafa ver- ið handteknir ásamt 15 öðrum og mun þeim verða vísað úr iandi. Erigoya fór frá völdum eftir stúdentauppreisnina 17. sept. 1930, og komst þá núver- ardi forseti, Uriburi, til valda. (F. Ú.) Kuldar í Bandaríkjum. Kuldar miklir ganga nú í Bandaríkjunum og hafa um 20 manns orðið úti í fylkinu Texas. Mikil neyð ríkir meðal húsnæð- islausra manna og geta hælin fyrir húsnæðislausa ekki rúmað alla þá, sem vilja komast þar að fyrir helgina. (F. ÚL Síldardeila í Noregi. Norska síldarsamlagið hefir mótmælt reglugerð stjómarinn- ar um bann við sölu saltsíldar til 1. júní næsta árs, og krefst sam- lagið þess, að sáttasemjari verði skipaður í málið. Samlagið legg- ur bann við því, að meðlimir þess kaupi síld hærra verði en það hefir ákveðið, þangað til málið er útkljáð, en þetta verð er: 4 krónur fyrir stórsíld, og kr. 2.50 fyrir vorsíld. (F. Ú.). Norsk sjómannastofa í Shanghai Norska sjómannatrúboðið hef- ir nú sett upp sjómannastofu í Shanghai og er það fyrsta stofn- un sem það hefir eignast í Aust- urlöndum. Tveir ónafngreindir menn hafa gefið 10.000 kr. hvor til þeesarar stofnunar. (F.Ú.). Skuldamálin. Stimson utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefir í dag til- kynnt sendiherrum Frakklands og annara ríkja þeirra, sem ekki hafa staðið í skilum 15. des. að Bandaríkin muni ekki ætla að kalla ^au ríki til fundar um eftirgjöf skuldanna fram- vegis sem ekki hafi greitt eða greiði bráðlega. (F Ú.) Herbúnaður Spánverja. Spánska hermálaráðuneytið leggur tillögu fyrir þingið, um að hækka útgjöldin til vígbún- aðar fyrir árið 1933 um 10% og munu útgjöldin þá nema sem svarar 145 miljónum marka. — Á fundi í þinginu í gær lýsti hermálaráðherrann því yfirr, að stjórnin gæti ekki fallist á til- lögu, sem komið hefir fram, um að stytta herskyldutímann Úr einu ári í 6 mánuði. (F. Ú.) Hann nýtur sopans gamli maðurinn. Nautn þcssi og ánægja veitist þcim cr nota kaffið úr bláröndóttu pökkanum frá kaffibrenslu okkar. Dcss utan hcfur sjcrhvcr kaupandi tækifæri til þcss að verða verðlaan- anna aðnjótandi. Hæsta verðlaan 300 krónar. O. Johnson & Kaaber. löla-orðsenoing. Vildi leyfa mjer að vekja athygli heiðraðra skiptavina á, a® þrátt fyrir innflutningshöft er verslun mín eæmilega birg af ftlSi konar Jólavörum. Þó auðvitað ýmsar tegundir sjeu takmarkaðar og því vissast að gera jólapantanir sem fyrst. Verðið er ávalt lægsta markaðsverð og kappkostað að bjóðtt aðeins nýjar ólegnar fyrsta flokks vörur. Með því er kaupanda trygt mest verðmæti fyrir peninga sína. Kjörorð mitt er: Vandaðar vörur, verðið rjett, viðskiftin bestu tryggja. Bnðm. Gnðjónsson. Sími 3689. Skólavðrðnstíg 21. asta jólabok barnanna er komm út

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.