Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 19
19 Einhleypnr hraustur og duglegur mað- ur, sem kann að fara með mótor og þekkir nokkuð til rafurmagns, getur fengið langa atvinnu á sveitaheim- ili, ekki langt frá Reykjavík. Tilboð merkt „Mótor“, með tilgreindu mánaðarkaupi, af- hendist til A. S. í. fyrir 22. þessa mánaðar. Teborð er kærkomin jólagjöf. Fyrirliggj- andi 3 tegundir. Bankastræti 10. Sími 2165. Um Skip, sem mætasc á i óttu, segir ein af gáfuðustu og ment- uðustu konum landsins: ,,Næst kvöldræðum síra Magnúsar Beigasonar er hún albesta bók- in, sem jeg hefi lesið á þessu ári. Mjer finst alt gott við hana, efnið, formið og málið. Mig undrar ekki þó að Bogi Mel- steð hvetti Snæbjöm til að þýða hana, og þakklát er jeg f jmir að hann gerði það. Það er eins og eitthvað minni á stíl Bunyans í Pílagrímsförinni þegar maður les bókina. Hann er tilgerðar- laus, hreinn og háleitur, og ís- lfenskan fer henni svo vel, eins og faldbúningur íslenskri .konu . . .“ Vegna þess að um- mæli þessi eru í einkabrjefi, þykir ekki hlýða að nMna höf- undinn, enda mun þess varla þurfa; það kannast víst flestir við stílinn. Flugkonan frá Amy John- son Mollison kom til Parísar í gærmorgun úr flugferS sinni til Suður-Afríku og fer heim til Englands í dag. Flugferð henn- ar er fræg orðin. Hún ætlaði að setja met í flugi fram og aftur milli London og Höfðakaupstað ar. 1 því skyni ætlaði hún að stytta sjer leið og fljúga yfir Sahara-eyðimörkina, en Frakk- ar bönnuðu henni það i.ema hún setti 10.000 franka tryggingu. Kváðust þeir ekki viljt, taka á sig þann kostnað að leita að henni, ef henni skyldi hlekkj- ast á. Kaus flugkonan þá að fljúga með ströndum fram suðureftir, en á norðurleiðinni flaug hún yfir Sahara, hina bönnuðu leið og gisti hjá Frökk- um í Oran í Algier í fyrrinótt. I kvöld kl. 7,55 (ísl. tími) heldur hún erindi í breska útvarpið og segir þar ferðasögu sína. Mun margan íslenskan útvarpsnot- anda fýsa að hlusta á þá frá- sögn. Helgi Tryggvason bókbind- ari frá Reykjahlíð í Mosfells- sveit, er nýkominn heim frá Kaupmannahöfn, þar sem hann var að fullkomna sig í iðn sinni. En jafnframt lærði hann leður- iðnað — að búa til ailskonar; muni úr leðri, svo sem töskur, veski, buddur og ótal margt annað. í glugga húsgagna- verslunar Kristjáns Siggeirs- sonar er sýnishom af .oókbandi Helga, en í glugga Thervald- sensbasarsins eru leðurmunirn- ir til sýnis. Eru þeir prýðilega gerðir og mun Helgi hafa full- an hug á því að koma upp leð- urvöruiðnaði í landinu og nota til þess íslensk skinn eftir því sem hægt er. — Þess má geta, að fyrir sveinsstykki sitt ytra í bókbandi fekk Helgi sjerstaka vdðurkenningu, heiðurspening frá „Haandværkerforeningen i Köbenhavn“. Er sveinsstykkið meðal þeirra bóka seoi hann sýnir. Stjórnmálafund hjel: Ólafur Thors suður í Keflavík á föstudaginn var. Var fundurinn mjög fjölmennur cg sóttu hann menn hvaðanæfa sunnan Hafnarfjarðar. Flutti ó. Th. fyrst langt og ítarlegt erindi, er stóð yfir í 2 klst., en að því loknu hófust umræður Var þar mættur Gísli Guðmundsson ritstj. Tímans og tók nokkrum sinnum til máls, og því aumari var hann því oftar sem hann talaði. Hann virtist í vandræð- um mleð sig. Tveir formenn á hinni strönduðu duggu Jónasar frá Hriflu fluttu þarna sömu ræðuraar, er Jónas lagði þeim í munn í fyrra, er hann var að reync að æsa Keflvíkinga gegn 01. Thors. Fundurinn fór ann- ars vel fram og hafði þingmað- urinn nálega óskift fylgi þar. Verðlaunin. Þess var getið í blaðinu í gSer, að tvær íslensk- ar konur hefðu fengið verð- laun úr hetjusjóði Carnegies. Hefir blaðið aflað sjer nánari upplýsinga um þetta. Ólöf Sig- urðardóttir á Akureyri fekk 1.600 kr. fyrir vasklega fram- göngu, er hún gerði tilraun til að bjarga konu úr bruna á Ak- ureyri fyrir nokkrum árum. Katrín Jónsdóttir kenslukona í Hraunkoti í Landbroti fekk 400 kr. verðlaun fyrir hre.vitilega framkomu og snarræði við brun ann í Flögu í Skaftártungu að- faranótt 1. des. 1930. Saurbæjarmálið. Tímii n skýr ir í gær (17. des.) frá dóm- um í meiðyrðamálum, er Einar Thorlacius fyrrum prestur í Saurbæ höfðaði s.l. vor gegn ritstjórum þessa blaðs, fýrir um- mæli í grein, er nokkur sóknar- börn klerks höfðu sent blaðinu til birtingar. Dómar þessir voru upp kveðnir í júní og eru því um 6 mánaða gamlir. E’vki er að undra þótt frjettabálkur Tím- ans sje jafnan fátæklegur, þeg- ar ritstjórinn fylgist ékki bet- ur með því, sem gerist, en raun ber vitni um hjer. Hitt verður þá afsakanlegt, að þær fáu frjettir, sem blaðið flytur eru jafnan meira eða minna rangar. Svo hefir einnig oroið 1 jer. Rit- stjórinn segir, að „umstefnd ummæli“ hafi verði dærr d dauð og ómerk. Sannleikurinn er sá, að örfá hinna „umstefia u um- mæla“ voru dæmd ómerk. Hríðarveður var fyrir norðan í gær. Á Akureyri og Siglufirði kyngdi niður talsvert miklum sn.jó í fyrrinótt. Sjómannastofan. Samkoma í Varðarhúsiu í dag kl. 6. Allir vel- komnir. MORGUNBLAÐIÐ Líknarfjelögin Það er orðin mikil þörf hjer í bænum á líknarstarfsemi við þá, sem við erfiðustu kjör eiga að búa á ýmsan hátt. Að vísu á bæjarfjelagið að sjá um að enginn líði nauð, en það mun þó sjaldan eða aldrei komast yfir, að bæta úr allri þörf eins og vera þvrftij enda margir nauðugir og sein- ir til að flýja þá leið sjer til hjálpar. Þess vegna verður ætíð nóg verkefni fyrir frjálsa starfsemi í þessu skyni og sjaldan mun það hafa verið meira en í vetur. Það hefir og jafnan sýnt sig, að þrátt fyrir ærnar byrðar fyrir, hafa bæjarbúar átt mik- inn fúsleika til að leggja drjúgc fram til þessarar hjálparstarf- semi, og hafa í því skyni verið stofnuð mörg fjelög í bænum, auk þess sem einstakir menn út- hluta annaðhvort frá sjálfum sjer eða fyrir hönd góðra gef- enda. Sjálfsagt starfa fjelögin nokk uð sitt með hverju móti eftir því, hver hjálparþörfin er, sem hvert þeirrá vill bæta úr, og hvernig fjelagsskapnuni er kom ið fyrir. Og sum fjelög láta með mikilli rausn af sjer leiða ýms líknarstörf, þótt ekki kenni sig við það og hafi annað fjelags- bundið starf að aðalmarkmiði. En flést hafa þó fjelögin margt sameiginlegt. Þau þurfa að afla sjer sem bestra kunnug- leika á því hvar hjálpar er helst þörf og brýnasta nauðsyn ber til, að fyrst sje úr bætt og hjálpin komi sem jafnast niður, svo að ekki sje veitt sumum hjálp frá fleiri fjelögum hlut- fallslega mikil, en aftur verði aðrir útundan, sem ekki er ljúft eða lagið að bera sig eftir. Þá þurfa fjelögin að afla sjer f.iár til starfsins með frjálsum fram- lögum, annaðhvort samskotum, merkjasölu, happdrætti eða á annan hátt, er tíðkast við slíka fjársöfnun til almenningsnota. Það hefir þessvegna ekki þótt grunlaust að fyrir gæti komið, eða kunni að hafa komið, að starfsemi fjelaganna rækist á, bæði um úthlutun hjálpar og öflun fjár, þegar þau hafa ekk- ert samstarf milli sín, og vita ekki um starfsemi annara fje- laga eða einstakra manna, og þá verður starfsemin í heild síðuh notadrjúg, en annars mætti vera. Fyrir því hefir það ráð verið tekið, að kallaður var saman fundur fulltrúa frá hinum ýmsu fjelögum til að ræða um að koma á sambandi milli þeirra. Sendu sjö fjelögfulltrúa á fund- inn, tvö höfðu neitað þátttöku og nokkur ekki svarað málaleit- uninni, en ekki þarf það að úti- loka, að samstarf geti tekist við þau þótt síðar verði. Fundurinn kaus í nefnd frú Sigríði Eiríksdóttur, Gísla Sig- urbjörnsson og Kristinn Daní- elsson til þess að undirbúa mál- ið. Er hugsunin að undirbúa eða koma á fót sameiginlegri upplýsingastofu, sem mundi mega verða til þess að samræma starf fjelaganna og koma í veg Uatnsueitan. Nú undanfarið hefir verið mikill vatnsskortur víða í bænum. Þetta stafar eingöngu af óhæfilegri meðferð vatns við þvotta og hreingerningar. Það eru því alvarleg tilmæli til allra að þeir sjái um að ekki sje látið renna vatn að óþörfu og mega þeir er uppvísir verða að óhæfilegri vatnseyðslu búast við að lok- að verði fyrir vatnsæðar þeirra. Reykjavík, 17. desember 1932. Bæjarverkfræðingur. Jólaskór. Hðfnm enn nokkrar fegnndir af framúrskaiandi fal’egum kvenskóm, með hánm og lágnm hælnm. HviiflberDSbræðir. HTH. Ýmsar „restir" fyrir kr. 5.00,7.50 og 9 75. flttlsku hðssðon kanpa menn Tðndnðnst og ðdýrnst i Húsgagnavinnnstofn Hiálmars Þorsteinssonar Kiapparstíg 28. Sími 1956. Gölfmottnr og Gangadreglar stórt og fjölbreytt úrval. .,GETSIRI(. Ágætar jólagjafirs Kaffistell 12 m. japönsk 24.75. Ávaxtasett postulín 6 m. frá 5.00. Ávaxtaskeiðar silfurplett frá 5.00. Teskeiðar 6 í kassa silfurplett 6.50. Matskeiðar og gafflar silfurplett 2.25. Desertskeiðar og gafflar 2.00. Mikið úrval af silfur- pletti og postulínsvörum. Dömutöskur og veski frá 5.00. Sauma-, bursta- og naglasett. Sjálfblekungar 14 karat 7.50. Spil stór og smá 0.45. Barnaleikföng. Jólatrjesskraut og margt fleira. Alt með landsins lægsta verði. K. Einarsson & Björnsson Bajikastræti 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.