Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.1932, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Lítið á vörusýninguna Edinborgargluggunum í dag. Til jóla gefum við 10—20% af leikföngum. Húsmæður! Sökum mikillar aðsóknar á Jólasölu EDINBORGAR — eru það vinsamleg tilmæli vor til allra, sem því geta við komið, a|ð gera Jólainnkaup sín fyrri hluta dagsins, meðan minna er að gera, og nægur tími er til hentugra vörukaupa. Fyrsta sendingin, sem EDINBORG fekk af „N A V Y“-stein- tauinu — eitt þúsund og sjö hundruð diskar og bollar, seldúst upp á þrem dögum. N Ú höfum við fengið nýja sendingu og hefst salan á mánudagsmorgun. Verðið er óbreytt. 24 diskar og 6 bollapör fyrir einar 12 krónur. NAVY-STEINTAUIÐ á jólaborðið! JÓLASALA EDINBORQAR. Reykjavikurbrjef. 17. desember. Veðuryfirlit. Pyrri hluta vikunnar var sunn- an veðrátta hjer á landi með alt að 7 stifía hita og talsverðri rign- infru á S- O" V-landi. Síðan liafa tvær djúpar lægðir farið norð- austur yfir landið og veðurlag því verið allbreytilegt. Vindstaða liefir oftast verið milli SA og NA og veðurhæð stundum 9—10 vind stig en þó ekki lengi í senn. — TTrkoma hefir verið mikil, ýmist rigning eða snjór. Loftvog komst niður í 712 mm. á föstudag og er enn (laugardag) óvenjulega lág, um 727—730 mm. Veður er samt kyrt sem stendur, vegna þess að hringinn í kring um land- ið eru djúpar lægðir, sem vinna hver á móti annari. í Beykjavík varð hiti mestur -f- 7.2 stig síðastliðinn sunnudag en minstur -j- 1.6 stig aðfaranótt fimtudags. Þýskalandsmarkaðurinn. í dag er útgefin auglýsing frá atvinnu- og samgöngumálaráðu- neytinu um það, að íslenskir botn- vörpuskipaeigendur,- sem ætla sjer að selja ísfisk í Þýskalandi verði að sækja um leyfi til þess til váðu- neytisins. Að öðrum kosti verði salan bönnuð. Tilefni til þessarar ráðstöfunar er, að kvörtun hefir komið fram frá Þýskalandi um það, hve til- tölulega mikill fiskur hefir borist þangað undanfarna mánuði, frá íslenskum togurum. Samningurinn sem gerður var í haust um sölu á ísfiski til Þýska- lands hljóðar svo, að við megum selja þangað fyrir 700.000 mörk , til marsloka 1933. En nú mun j vera selt fyrir eitthvað nálægt , 550.000 mörk, þegar eftir er 3Y2 mánuður af samningstímanum. Er nú ætlast til að þessari sölu sem eftir er verði dreift á þr.já fyrstu mánuði ársins. Þykir sjálf- sagt að sýna þýskri útgerð þessa t.ilhliðrunarsemi enda þót.t engin siík skilyrði hafi verið sett í samningnum. Fasteignamatið. I nýjustu Hagtíðindum er gefið yfirlit y|jr fasteignamatið nýja, landverð og húsaverð. 1 sýslunum er landverðið 30.6 milj. kr. en í kaupstöðunum 35.2 milj. kr. Húsa- verðið er í sýslunum 42.9 milj. kr., en í kaupstöðunum 97.7 milj. kr. Rúmlega helmingurinn af land- verðinu og framundir % af húsa- verðinu kemur á kaupstaðina. A öllu landinu hefir matsupphæðin rúmlega tvöfaldast frá því sem hún var við fyrra fasteignamatið. í sýslunum hefir hún hækkað um 60%, en í kaupstöðunum um 136%. Mest hækkun hefir orðið á Akureyri, rúmlega þreföldun (206% ) en minst í Austur-Barða- strandasýslu 25%, segir í Hag- tíðindum. Frá Vestmannaeyjum Þann 6. desember var stofnað fjelag Sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum. Voru stofnendur 150. En búist er við mikilli fjölg- un fjelagsmanna á næstunni. — Þessir eru í stjórn: Óskar Bjarna- son fulltrúi, Símon Guðmundsson útvegsbóndi og Tómas Guðjóns- son afgreiðslumaður. í varastjórn er m.a. Kr. Linnet bæjarfógeti. Frá því í sumar hefir Tíminn margstagast á því, að Sjálfstæðis- flokkurinn í V estmannaeyjum væri margklofinn, og væri Kr. Linnet meðal helstu klofnings- manna. En sannleikurinn er sá, að Sjálfstæðisflokkurinn er þar. sem annars staðar á landinu öfl- ugri og styrkari en nokkru sinni fyr. Tilefnið til þessa söguburðar Tímans, mun vera, að menn innan flokksins þar, hafa borið fram nokkra gagnrýni á starfsemi flokksins, honum til eflingar. Heilbrigður stjórnmálaflokkur styrkist við gagnrýni flokksmanna sinna. Þetta eiga tímamenn af eðlilegum ástæðum erfitt með að skilja. Auk hins nýstofnaða fjelags í Eyjum, starfar þar öflugt fjelag ungra Sjálfstæðismanna. í Höfnum. Atburðurinn i Höfnum á föstu- dagskvöhlið í fyrri viku vekur menn enn betur en margir fyrri j.af líltu tagi, til umhugsunar um í 1 hvílíkt öngþveiti áfengismálin eru , ltomin, síðan heimabruggið náði . útbreiðslu. Allur landslýður veit, að brugg- að er áfengi svo að segja um land alt. Og svo koma löggæslumenn- irnir til fólks til húsrannsókna, í laganna nafni, eftir að fram kunna að hafa farið njósnir og þef. Þeir. vaða inn á heimilin, skoða í hvern krók og kima, opna hirslur — og, eftir því sem frjest hefir, fara ófriðsamlega. En fólk sem fyrir þessum heim- sóknum verður, eins og t. d. í Kirkjuvogi á dögunum spyr: Hvers vegna verðum við fyrir þessu? Því er ekki farið til hinna? Landskunnir bruggarar renna upp undir handarjaðri yfirvalda, eins og fíflar í túni (Höskuldur). Við þeim er ekki hreyft. En það getur komið fyrir, að vaðið sje inn á heimili, þar sem fyrir eru veikl- aðar konur einar, og þær hrædd- ar, með húsrannsókn og hrotta- legu orðbragði. Til þess eru lögin, að þeim sje hlýtt, og til þess löggæslumenn, að gæta löghlýðni. En þegar lög- gjafinn hefir ratað í þá ófæru, að semja lög, sem landslýður rís á ínóti, og engin löggæsla getur verndað, þó geta menn elcki kom- ist, hjá því að Hta svo á, að eitt- hvað sje bogið við lögin sjálf. Frá kommúnistum. Eins og lesendum blaðsins er kunnugt vildi sá sorglega atburð- ur til í Höfn nokkru fyrir kosn- ingarnar í haust, að ungur piltur særðist til bana í götubardaga við kommúnista. Við rannsókn málsins hefir ým- islegt komið í ljós um starfsað- ferðir kommúnista, sem almenn- ingi hefir ekki áður verið kunn- ugt. í fórum þeirra fanst talsvert af bareflum, með tálguðum odd á öðrum endanum. Er spurt var að til hvers þessi áhöld væru, áttu þau annað hvort að vera sköft á sófla, ellegar til þess að rífa niður götuauglýsingar andstæðinganna. Það kom ennfremur í ljós við bað er ekki langur timi eftir! Alt fyrir kr. 3.75 Vjer höldum áfram okkar einstaka kostaboði, eins lengi og vjer mögulega getum. En hvaðanæfa fáum vjer tilkynningar nm, að birgðirnar sjeu að þrjóta. Enda ekki að furða, þegar menn reyna sjáHr, að nýju, langskornu GILLETTE-blöðin, sem búin eru til í Lonlon ,ern langbestu rakvjelablöðin, er nokkru sinni liafa verið búin til í nokkuru landi. Þjer getið enn fengið ekta GILETTE-rakvjel, þrjú Gilette- blöð, smíðuð í London með nýju aðferðinni, alt í smekklegum kassa, ásamt stórri túbu af rakkremi, fyrir aðeins kr. 3,75. — Kaupið yður eitt sett, áður en birgðir þrjóta. ■ B S Umbúðagarn fjölda tegundir fyrirliggjandi. „Gevsir ‘.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.