Morgunblaðið - 18.12.1932, Side 15
fíllicmce Francaise
efnir til frönsku kenslu.
Öllum ber saman um að erfitt
sje til lengdar, að halda hjer
uppi fjelagsskap eins ojí Dansk-
íslenska fjelaginu, Germaniu og
Allianee Frangaise. Af þessum
fjelögum stendur auðvitað „Dansk
Islandsk Samfund' ‘ best að vígi,
með því að hjea- eru margir Danir
búsettir og flestir íslendingar l#áa
•og tala dönskai.
Öðru máli er að gegna með
Alliance Franeaise. Hjer eru til-
tölul. fáir, sem kunna frakknesku.
Fru engir Fi-akkar búsettir hjer.
nema ræðismaður Frakka. Samt.
'hefir Alliance Frangaise lifað hjer ]
1 21 ár. Núverandi stjórn Allmnce
Francaise liefir því mikinn á.huga
á að hlynna að lífsskilyrðum fje-;
lagsins, og hefir því ráðist í það
stórræði, að fá hingað hæfan.
frönskukennara \ vetur. Hefir
hún verið svo heppin, að geta
fengið konu prófessors Jolivet,
sem gat sjer svo góðan orðstír
Iijer í fyrra haust þegar liann
dvaldi hjer og kendi.
Fni Jolivet er háskólagengin,
©g hefir þar að auki verið for-
stöðukona fyrir kvennaskóla áður
en hún giftist. Bins og maðurinn
liennar hefir frúin mikinn áhnga
á að læra íslensku, og er það aðal
hvötin sem leiðir hana til íslands,
því að um neinn gróða fyrir hana
er lijer ekki að ræða, þareð fje-
lagið er fátækt, en vill bjóða ís-
lenskum nemendum svo góð kjör,
sem unt er. Er ætlast til að frúin
komi 10. janúar og hefjist kensl-
an svo næstu daga.
Til þess að væntanlegir nem-
endur geti áttað sig á hvernig
Alliance Frangaise hugsar sjer
kenslunni hagað, skal hjer greina
aðalfyrirkomulag kenslunnar. —
Mun skift í þrjá flokka, byrjend-
ur, sem aldrei hafa lært - frakk-
nesku; þeir, sem þegar skilja dá-
lítið á bók; og loks þeir sem ætla
að læra að tala og rita málið.
Fyrir livern flokk eru ætlaðar
tvær stundir á víku. Það skal
tekið frain, að forseti Alliance
Francaise, Thora Friðriksson, mun
aðstoða frúna með byrjcndaflokk-
inn, þannig að frviin kennir fram-
burð en forseti málfræði. Það
þarf ekki að minna á, hve ómet-
anlegt það er, að byrjendur læri'
framburð hjá frönskum kennara.
Þeir sem óska eftir nánari upp-
lýsingum um þetta mál geta sniiið
sjer til stjórnar Alliance FranQaise
— en í henni eru: Thora Frið-
riksson, forseti, Gunnar Viðar,
varaforseti Pjetur Þ. J. Gunnars-
son, gjaldkeri, Þorlákur Arnórs-
son bóltavörður, Björn Jónsson
ritari.
Burmeister & Wain skipasjníða-
stöðin er í fjárhagsvandræðum og
þarf að fá nýtt rekstrarfje áður
en langt um líður. Nú hafa telcjur
liennar ekki verið nema 20 miljón1
Ír króna, en voru þrefalt meiri
áður, og við það eru öll mannvirki
og stjórnsemi miðað. Fjelagið er
nú að reyna að semja við verslun-
arráðuneytið og bankana. Ráðu-
neytið hefir tekið vel í málaleitun
þess, ef trygg skipun kemst á og
breyting á rekstrinum. Skipa-
smíðastöðin hefir enn 3500 menn
í vinnu. (Sendiherrafrjett).
IsTaifd e lendh
Marga góða talsmenn á land
vort á meðal þeirra, sem hafa
heimsétt það. Binn er Johannes
Velden. Hann dvaldi á tslandi
r'mt ár (1928—1929), og kyntist
þiá því landi og þeirri þ.jóð, sem
hann hafði lengi dreymt um.
Jeg frjetti um fyrirlestur —
„Island i ord och toner“ — er
J. V. ætlaði að halda í Hallsberg,
sem er bær í Svíþjóð, um 200
kílómetra frá Stokkhólmi. Erindið
var á sænsku, og flutt af góðri
þekkingu og lifaDdi áhuga. Það
er vert að geta pess, að hann
talaði ítarlega og lofsamlega um
íslenskar sjávar- og landbiinaðar-
afurðir, auk þess að lýsa náttúru
lands og þjóðar, Rúmlega hundr-
að myndir voru til skýringar. —
Síðan 1930' hefir J. V. flutt yfir
200 erindi um ísland, og1 það í
sjö lönclum (Þýskalandi, Tjekkó-
slóvakíu, Sviss, Hollandi, Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð.) Áður
en hann flutti fyrirlestrana í Hol-
landi lærði hann hollensku — J.
V. er málasnillingur.
tsland er það land, sem jeg held
einna mest upp á; jeg komst þar
í náin kynni við andstæðurnar,
fegurð og ógn náttúrunnar, gott
og illt í mannseðlinu — það hafði
á mig djúp áhrif, og jeg komst
nær sjálfum mjer. Þess er kann-
ske ekki langt að bíða, að jeg
komi til íslands aftur.“ — Svo
mælti Velden. Fyrirlestrana liefir
hann haldið fyrir vísindafjelög,
liáskóla og lýðháskóla.
29. nóvember 1932.
G. F. Petersen.
J61 - 16’aolaflr.
Að fáum dögum liðnum ganga
blessuð jólin í garð. Þá er eins
og hugurmn lyftist frá hversdags-
störfum og hjartað vermist af
‘ylgeislum kærleikans, sem streym-
ir frá honum sem jólin eru kend
við. Það er eins og með jólunum
færist friður og gleði yfir alt
og alla, og mennirnir verði mild-
ari og betri í framkomu sinni
hver við annan. Og aldrei fær kær
leikurinn notið sín meðal mann-
anna eins og á jólunum. Þá hugsa
menn meira en annars um að
gleðja hver annan og græða mein
liver annars, og gefa hver öðrum
gjafir. meiri og fleiri en nokkurn
annan tima ársins. En þessar
gjafir, sem gefnar eru á jólunum
•eru flestum öðrum gjöfum kær-
komnari. Og því er það, að menn
leitast við að velja þær sem bestar
og kærkomnastar þeim, sem þær
eiga að eignast. Góð bók er í
flestum tilfellum kærkomin og góð
jólagjöf. Og ein af þeim bestu
og heppilegustu til jólagjafa er
hin nýútkomna, ágæta bók eftir
biskupinn, dr. Jón Helgason:
„Kristur vort líf“. í þeirri bók
er mikil auðlegð af andlegum verð
mætum, og huggun og styrk að
finna fyrir alla kristna menn og
konur. Um hann, sem fæddist á
ijólunum, frelsarann, kemst höf.
m. a. svo að orði á bls. 262—263:
......„ í trúnni á hann, uppris-
inn frá dauðum, getum vjer sagt:
,Jeg á. lifandi frelsara, sem jeg
get. leitað mjer huggunar hjá,
þegar gleðin flýr frá mjer og
MOmUKBLAP
lieimurinn snýr baki við mjer.
Jeg á lifandi frelsara, sem jeg
get sótt til hug og djörfung, er
jeg mest hræðist veikleik minn
og finn mig vanmáttkastan til
hins góða. Jeg á lifandi frelsara,
sem jeg get horfið til með allan
þorsta hjarta míns eftir friði, með’
alla órósemi sálarinnar og ásak-
anir samviskunnar, já, með alla
mína synd, hve mikil sem liún er.
og alla mína sekt, hve þung sem
hún er, frelsara, sem jeg veit, að
hefir bæði viljann og máttinn til-
að hjálpa mjer í nauðum mínum,
svo að hjartað getur aftur orðið
rótt við fullvissuna um, að alt
sje fyrirgefið og verði mjer ekki
framar gefið að sök. Jeg á lifandi
frelsara, sem jeg get falið til
forsjár og varðveislu ástvini, sem
á undan mjer liafa verið kallaðir
burtu, og mjer var sárastur skiln-
aðurinn við, og síðast en ekki
Sjíst: Jeg á lifandi frelsara, svo
að jeg þarf einskis að kvíða þeg-
ai dapur dauðimí ógnar sjálfum
mjer, því jeg veit í trúnni á hann,
að liann muni ekki láta mig einan,
lieldur vera mjer nálægur með
náð sinni á ferðinni síðustu og
gefa mjer að ná höfn á lífsins
lahdi.“ ....
Þjer ungmenni ög aðrir, sem
viljið gefa foreldrum og öðrum
ættingjum og vinúm kærkomna
jólagjöf, gefið þeim þessa ágætu
bók í skrautbandi ,og er þá vel
valin jólagjöfin yðar.
Bókavinur.
Karen.
Erlend telpa í íslenskum bún-
ingi drap að dyrum mínum lijerna
um daginn. Hún fór þess á leit
við mig að jeg ltynti sig íslensku
börnunum, ef mjer geðjast vel að
lienni. Gg með því að þetta var
allra besta barn, sem önnur börn
geta lært margt gött af, langar
mig til þess að verða við tilmælum
hennar.
Það fyrsta, sem jeg verð þá að
segja ykkur um hana, börnin mín,
er að hiin átti óvenjulega bágt.
Hún misti bæði mömmu og pabba
þegar hún var lítil, og átti þá
engan að, nema vonda og drykk-
felda stjúpmóðir, sem fór illa
með hana. Karen litla kyntist nú
snemma mæðunni, sem alla-jafna
er í för með vínnautninni. Hiín
getur sagt ykkur hvað bágt börn-;
ir. eiga, sem alast upp á drykkju-
mannaheimilum.
En þrátt fyrir alt baslið varð-
veitti litla stúlkan góða og hreina
barnslund, og sýndi fádæma dugn-
að og þrek í þrautum sínum. En
spaug var það ekki að hýrast ein-
sömul í dimmum lcjallara á nótt-
unni, þar sem rotturnar trítluðu
beint yfir andlitið á henni!
Karen ljet þó ekki hugfallast,
og með því að hún var dugleg,
ráðvönd og kurteis, ávann hún
sjer hylli góðra manna, og komst
að lokum yfir torfærurnar.
En nú ætla jeg ekki að segja
ykkur meira um Karen. Þið eigið
helst að kynnast henni sjálf. Sjón
er sögn ríkari. Og ef þið viljið
skemta ykkur reglulega vel, þá
lesið þið söguna um hana, og ef
þið viljið skemta ömmu eða
mömmu, þá lesið upphátt, því
öllum getur þótt gaman að sög-
Nemendur, jfamlir sem ný-
ir, sem byrja amia$ kvöld
. ■■■*
fá 2 skemtidanssgfingar
innifaldar í skírteininu.
lölaskemtídansæfíng
miðvikudag 28. des. mel
listdanssýningu og' skemti-
dansæfing; mánudaginn 9.
janúar.
Grimndausltiknr
verður laugard. 4. februar.
Frá mánudegi 19. des. til ióla
gefnm við
26>/• afslátl
af mislitnm Karlmanna og Ungllngafðtnm.
Tðknm npp á þrlðjudag blán
Cheviots-karlm. fötin
og kin sjerlega ðáýrn
drengja- og nnglinga lakkafðt.
Rsg. 6. Gunnlaugsson & Cql
Anstnrstrati 1.
K]ÓLAR
mjög fagurt og stórt úrval.
Samkvæmiskjólar, eftir nýjustu tísku.
Telpukjólar, mjög mikið úrval.
Pelsar — Kvenveski — Silkiefni — Silkisvuntuefni,
Peysufataefni — Silkisokkar.
ALT FALLEGUSTU JÓLAGJAFIR!
Verslun Kristínar Sigurðardóttur.
Laugaveg 20 A. Sími 3571.
f verslnn
S19. H. Sklaldbero.
Sfmi 1491 (2 línur). Skrifstofusími 1492.
Trygglng viiskiltanna er vörugseði.
Æfing annað kvöld kl. 4,
5 og 9.