Morgunblaðið - 18.12.1932, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Athngið vörnsýningnna
í Járnvörndeild
JIS ZIMSIN.
Dagbók.
I.O.O.F.3=11412198 = 8'/ O.
□ Edda 593212207 — Jólahv.
593212285 — Jólatrje. Listi til 27.
des. í □ og hjá S.\ M.\ (Sími
1096).
Veðrið (laugardagskv. kl. 5):
Alldjúp lægð norðan við Færeyj-
ar og SV-stormur og rigning í
Færeyjum, Skotlandi og á Norð-
ursjónum. Grunn lægð er yfir
Grænlandshafi og Lslandi og veður
yfirleitt stilt á þeim slóðum. Snjó-
koma er nokkur á Vestfjörðum
og frost er víðast 2—4 st. hjer á
landi.
Veðurútlit í Rvík í dag: SA-
eða NA-gola. Sennilega snjókoma
með köflum, en hjart á milli.
Karlakór Reykjavíkur biður vin
samlegast konur þær, sem í fyrra
lofuðu aðstoð sinni við söng á
grammófónplötur, að koma til
viðtals í K. R.-húsinu, uppi, í dag
kl. 2 síðdegis.
fsfisksölur. Þessir togarar hafa
nýlega selt afla sinn: Rán fyrir
947 stpd., Sviði 12700 mörk, Gull- j
toppur 14000 mörk og Belgaum
fyrir 775 stpd.
Póstur lendir í hrakningum. í
ofveðrinu 2. des. lenti pósturinn,
sem hefir ferðirnar milli Raufar-
hafnar og Þórsliafnar í miklum
hrakningum, gróf sig í fönn og lá,
þar j 24 klst.
Barnaguðsþjónusta í Elliheimil-'
inu kl. IV2 í dag. Pjetur Oddsson
stud. theol. talar. Öll börn vel-
komin.
Barnaguðsþjónusta í dómkirkj-
unni í Reykjavík í dag kl. 2. Síra
Friðrik Hallgrímsson.
Alþýðufræðsla safnaðanna. í
dag kl. 3 verður barnaguðsþjón-
usta haldin í frakkneska spítalan-
um. Öll börn velkomin.
í blaðimu í dag er auglýst eitt
eintak af íslendingasögum í bandi.
Málverkasýningu hefir Finnur
Jónsson í húsi Helga Magnússon-
ar í Bankastræti. Verður hún opin
næstu daga.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 11.00 Messa í Dómkirkj-
unni. (Sr. Hálfdán Helgason).
15.30 Miðdegisútvarp: Erindi:
Skólamál III. (Jónas Jónsson).
Grammófóntónleikar. 18.45 Barna-
tími. (Jóhannes úr Kötlum). 19.30
Veðurfregnir. 19.40 Grammófón-
söngur. 20.00 Klukkusláttur.
Frjettir. 20.30 Erindi: — Rasmus
Chr. Rask. (Guðbr. Jónsson). —
Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.00 Veð-1
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp. |
16.00 Veðurfregnir. 19.05 Grammó
fóntónleikar. 19.30 Veðurfregnir..
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Klukkusláttur. Frjettir.
20.30 Erindi: Frá útlöndum (Vil-
hjálmur Þ. Gíslason).
Borgarstjórinn. Ýmsir hafa litið
svo á, að Guðmundur Ásbjörns-
son bæjarfulltrúi gegndi ennþá
borgarstjórastörfum hjer í bæn-
um. En þetta er misskilningur.
Þegar Kn. .Zimsen borgarstjóri
kom heim úr dvöl sinni erlendis
tók hann við sínu fyrra starfi og
gegnir því til áramóta.
Fjárskaðar á Langanesi. Stór-
hríð gerði á Langanesi 23. hóv.
s.l. og fórust þá um 200 fjáy á
Langanesi og Langanesströnd, að-
allega í fönn. í ofviðrinu 2. des.
urðu miklar símabilanir á Langa-
né'si • bg nágrenni, brotnuðu 32
staurar og nokkrir lögðust niður
vegna klaka, sem hlóðst á vírana.
Bethanía. Samkoma í kvöld kl.
8y2. Jens Jesson talar. Allir vel-
komnir. , Smámeyjadeildin hefir
fund kl. 4(4 síðd. Allar smástúlk-
ur velkomnar.
Fisksala til Þýskalands. At-
vinnumálaráðuneytið tilkynnir, að
útgerðarmenn verði hjer eftir að
leita leyfis þess um sölu á ísfiski í
þýskum hafnarborgum, með því
að sala sje þar að öðrum kosti
bönnuð.
Jólatrjesskemtun, hina fyrstu á
árinu, heldur skipstjóraf jelagið
Aldan í Hótel Borg á þriðjudag-
inn kemur.
Heimatrúboð leikmanna, Vatns-
stíg 3. Samkomur í dag: Fyrir
trúaða kl. 10 árd. Bai’nasamkoma
kl. 2 síðd. Almenn samkoma kl.
8 síðd.
Skautafjelagið. Framhaldsstofn-
fundur Skautaf jelagsins verður
haldinn kl. 2 í dag á Hótel Skjald-
breið. iSkorað er á alla þá, sem
áhuga hafa á skautaíþróttinni að
mæta, og stundvíslega.
Skinfaxi, 7.—8. hefti 23. ár-
gangs eru komin út. Eru þau
fjölbreytt að efni og ýmsar mynd-
ir í þeim, þar á meðal af teikn-
ingu, sem Björn Guðmundsson
skólastjóri á Núpi hefir gert af
Dýrafirði.
Sigurjón Ólafsson myndhöggv-
ari hefir dvalið í rúmt ár suður í
Rómaborg til þess að fullkomna
sig í list sinni, en seint í nóvem-
ber kom hann til Kaupmannahafn.
ar og dvelur þar í vetur. Hefir
hann í hyggju að koma tveimur
myndum, sem hann hefir nýlega
gert, á vorsýninguna í Charlotten-
borg. Er önnur af blindum manni,
en hin af móður með barn.
Fjelag útvarpsnotenda hjelt
fund á föstudagskvöld í Kaup-
þingssalnum. Fundurinn var mjög
fjölmennur og stóð yfir til mið-
nættis. Var aðallega rætt um út-
varpsdagskrána í vetur. Samþykt
var áskorun um, að útvarpsefni
verði ekki takmarkað í vetur frá
því, sem nú er. En eftir því, sem
formaður útvarpsráðs skýrði frá
eru horfur mjög ískyggilegar
með fjárhag útvarpsins, ef þingið
ekki gerir neitt til þess að rjetta
hlut þess.
K. R.-skemtun verður haldin í
kvöld fyrir þá fjelaga, stúlkur og
: pilta, sem hafa að einhverju leyti
| verið virkir fjelagar á þessu starfs
ári, þ. e. þau sem tekið hafa þátt
í kappleikum, íþróttaæfingum
þess eða sýningum. Skemtunin
■ hefst kl. '9.
Meðteknar gjafir til Elliheimil-
isins frá Ó. S. kr. 90.00 og H. kr.
400.00. Meðtekið með þakklæti.
Har. Sigurðsson.
Dansskóli Rigmor og Ásu Han-
son hefir æfingar annað kvöld kl.
4, ;5 og 9 í Iðnó. Þeir nemendur,
sem byrja þá (börn sem fullorðn-
ir) fá skírteini fyrir 4 dansæfing-
ar og auk þess fá þeir 2 skemti-
dansæfingar í kaupbæti. — Jóla-
skemtidansæfingin verður mið-
vikudaginn 28. des. í Iðnó kl. 4
og 9(4 og listdanssýning kl. 6 og
12. Fyrsta æfing í janúar (skemti
dan.sæfing) verðúr mánudaginn 9.
jan. Sjá auglýsingu í blaðinu í
dag. —
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarson, Marargötu 6, sími 4655.
Mötuneyti safnaðanna hafa bor-
ist eftirtaldar gjafir: Frá 0. John-
son & Kaaber 1 sk. strausykur, 1
sk. baunir, 1 sk. haframjöl, 1 ks.
molasykur. Frá Gunnari Sigurðs-
syni í Von: 5 1. mjólk. Il.f. Kveld-
úlfur: 200 kg. saltfiskur. Hol-
lensku flugmennirnir: 5 dnk.
smjörlíki. Ennfremur eftirtaldar
peningagjafir: K. kr. 20.00, Versl.
Ágústu Svendsen kr. 110.00, Magn
ús Benjamínsson kr. 50.00, Sigurð-
ur Guðmundsson kr. 20.00, Gömul
kona kr. 5.00, Ónefnd kona kr.
20.00, V. kr. 10.00, L. F. kr. 100.00.
Sendimenn Mötuneytisins hafa far
ið í nokkrar verslanir bæjarins
til þess að fá fatnað og aðrar gjaf-
ir, og hefir þeim orðið vel ágengt.
Eftirtaldar verslanir hafa gefið
miklar og rausnarlegar fatagjafir:
Verslunin Edinborg, Braunsversl-
un, Stefán Gunnarsson, skóversl-
un (20 pör skófatnaður), Versl.
Kristín Sigurðardóttir, Soffíubúð,
Skóverslun Lárus G. Liiðvígsson
(70 pör skófatnaður), Versl. Ás-
geir Gunnlaugsson. Væri æskilegt
að þeir sem vildu styrkja starf-
semi Mötuneytisins sendu gjafir
sínar hið allra fyrsta þar sem
núna fvrir jólin er sjerstaklega
mikil þörf fyrir alls konar hjálp
og stuðning lianda bágstöddum
fjölskyldum í bænum. Bestu þakk-
ir. Reykjavík, 16. desember 1932.
Gísli Sigurbjörnsson
Fáfræði — eða hvað? Einhver
Baldur Baldvinsson skrifar grein
í Tímann, er hann nefnir „Úr
lieimi kreppunnar*‘, og segir rit-
stjóri Tímans, að höf. sje ungur
þingeyskur bóndi. Sýnilegt er, að
þessi þingeyski bóndi er uppalinn
í pólitískum skóla Hriflunga. Hann
lýsir vandræðum þeim, er land-
búnaðurinn á við að stríða nú í
kreppunni, en er samtímis með
hnútur og brigslyrði í garð sjávar
útvegsins, og telur, að sá stuðn-
ingur sem bankarnir hafa lagt
sjávarútveginum „hafi að mestu
verið fleygt í sjóinn“. Ritstj. Tím
ans þykja þessi ummæli svo spak-
leg, að hann getur ekki stilt sig
um að vekja athygli á grein bónd-
ans, og telur að þúsundir bænda líti
eins á málið. Sem betur fer, eru þeir
bændur orðnir fáir, sem fást til
að auglýsa fáfræði sína jafn átak-
anlega og þessi þingeyski bóndi,
| með því að japla á marg-endur-
I teknum rógi Tímans og heimsku
! um sjávarútveginn.
Ný barnabók, æfintýri, er
,Konstansa heitir, er komin út.
iBókin er sjerlega vönduð, að
öllum frágangi, með Ijómandi
.fallegum, fimmlitum myndum.
1 Æfintýrið sjálft er einkar
skemtilegt aflestrar, og ungu
leseúdurnir munu ekki leggja
það frá sjer fyr en þeir hat'a les-
ið það alt til enda. Það er eftir
frægan, enskan rithöfund frá
14. öld, G. Chancer, en í ís-
lenskri þýðingu eftir frú Láru
Pjetursdóttur tungumálakenn-
ara. Bókin er sjerlega vönduð
að öllum frágangi. Prentuð í
Isafoldarprentsmiðju.
Jólabaukar Sjómannastof-
unnar eru nú komnir upp á sömu
stöðum og vant er, Lækjargötu 2
og Aðalstræti 6. Vegparendur
ætti að leggja smáaura í þessa
bauka, því, að alt sem í þá safn-
ast gengur til þess að gleðja
sjómenn um hátíðarnar Eru
þetta nú 10. jólin, sem Sjó-
mannastofan starfar hjerí bæn-
um og væri vel ef miin vildi
minnast þess með ríflegri gjöf-
um en áður. Aðrar gjafir eru vel
þegnar og má koma þeim nið-
ur í Varðarhús, þar sem er skrif
stofa Sjómannastofunnar (sími
3884). Um allan hinn mentaða
heim telja menn það borgara-
lega skyldu sína að senda Sjó-
mannastofunum smá jólagjafir
handa sjómönnum, og ber þess
minnast með þakklæti að
margir hafa gert þao hj@r á
undanförnum árum. Og að fram
hald verði á þessu þarf ekki að
efa. En þeir, sem ekki þykjast
hafa neinn hlut að gefa, eiga að
muna eftir jólabaukum Sjó-
mannastofunnar og leggja í þá
þögula ósk um gleðileg jól til
sjómannanna.
Farsóttir og manndauði í
Reykjavík vikuna 2.—10. des.
(í svigum tölur næstu viku á
undan.) : Hálsbólga 50 (45).
Kvefsótt 100 (109). Kvef-
lungnabólga 3 (0). Gigtsótt 1
(0). Iðrakvef 13 (13). Inflú-
ensa 6? (0). Taksótt 2 (1).
Hlaupabóla 3 (5). Kossageit 1
(1). Heimakoma 2 (0). Munn-
angur 2 (5). Stingsótt 0 (1).
Mannslát 7 (4). Landlæknis-
skrifstofan. FB.
Til heimilis-
notkunar
FæKÍlÖRur.
Burstavörur.
Þvottasnúrur.
Gólfklútar.
Gólfkústar.
Möblebón.
Gólfbón.
Sandpappír.
Smerg-elljereft.
Gólflakk.
Málning: löguð, allir
litir.
Bronce.
Broncetinktur.
Lökk mislit.
Málningfarpenslar.
Eldhúshnífar.
Lampag(lös.
Eldhúslamnar.
Saumur allskonar.
Kapok (Púðastopp)
Herðatrje.
ódýrast í
„GEYSIR".
Eitthvað til að gaia af
Eggjadaft — Gerduit
Oð Krydd.
Hár
við íslenskan búning fáið þið
best og ódýrast unnið úr rothári
Verslunin Goðafoss.
Laugaveg 5. Sími 3436.