Morgunblaðið - 16.06.1944, Blaðsíða 1
I
I
31. árgangur.
131. tbl. — Föstudagur 16. júní 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
GAGNSÚKNARLOTU ÞJÚÐVERJA HRUNDIB
Heillaskeyti frá
Christmas Möller
Sambandsslitiii
styrkja samúðin
,Hefði jeg verið (slendingur...
Morgunblaðið símaði foringja frjálsra Dana, Christ-
mas Möller, og bað hann um að senda blaðinu iil birt-
ingar álit sitt á sambandsslitunum. Fjekk blaðið í
gaerkvöldi svohljóðandi skeyti frá honum:
HIN ENDANLEGA ákvörðun,
sem íslenska þjóðin nú hefir
tekið, er í raun og veru rök-
rjett afleiðing af sáttmálan-
um er gerður var 1918.
Eins og jeg var samþykkur
sáttmálanum frá 1918, og
þeirri skoðun, að Danir
gætu enga aðra afstöðu haft
til málsins, aðra en þá, að
íslenska þjóðin og íslenska
þjóðin ein ætti að taka á-
kvörðun um framtíð sína,
þá hefir mjer undanfarin 25
ár verið það ljóst, hvað
myndi ske, þegar samnings-
tíminn var útrunninn.
Við sem metum frelsi og
sjálfstæði framar öllu öðru,
skiljum íslensku þjóðina.
HEFÐI JEG VERIÐ ÍSLENDINGUR, þá hefði jeg verið á sama
máli og þeir.
Jeg vona, að íslendingar skilji, að Dani getur litið svo á, að
það hefði ekki verið erfitt að bíða þann stutta ííma, sem
eftir er, þangað til Danmörk aftur verður frjáls. En, eins og
jeg hefi áður sagt; þegar menn hafa beðið dagsins í aldir, er
skiljanlegt, að menn sjeu óþolinmóðir.
JEG ER ÞESS FULLVISS, að fullkominn og alger skilnaður
mun ekki skapa neina óvild, og jeg vona það og treysti því,
að rjett eins og skilnaður Norðmanna við Svía 1905 treysti
vináttuböndin milli Norðurlandaþjóðanna, eins muni skiln-
aðurinn nú leiða til almennari, hjartanlegri og einlægari
samvinnu.
Einustu böndin, sem tengja frjálsar þjóðir og frjálsa karla og
konur, eru þau, sem menn taka upp af frjálsum vilja.
ÖLL DANSKA ÞJÓÐIN mun óska íslandi og íslendingum ham-
ingju og farsældar í framtíðinni.
Síðasta aldarfjórðung hefir hin fullvalda íslenska þjóð sýnt,
hvað lítil þjóð getur komist áfram þegar hún er frjáls.
JEG ÓSKA HINU ÍSLENSKA lýðveldi þeirrar framlíðar, r.cra
samboðin er því besta í íslenskri þjóoarmenningu.
★
Þessi orðsending frá hinum gagnmerka stjórnmálaforingja
Dana, mun verða öllum íslendingum mikið gleðiefni. Er það
einkar vel til fallið að hún kemur hingað einmitt á þessari
stund. íslenska þjóðin gleðst ekki aðeins yfir þeirri víðsýni og
því göfuglyndi, sem felst 'í orðum hans, heldur og yfir því, að
fulltreysta má, að spádómur hans um aukna samúð að sam-
bandsslitum munu rætast.
Hinum fögru óskum Chrismas Möller í garð íslendinga svör-
uðum vjer að öðru leyti því, að láta í ljós okkar einlægustu og
hjartanlegustu óskir um, að dagur frelsisins megi hið allra bráð-
asta renna upp yfir hans mikilhæfu og ágælu þjóð.
Rússar til-
búnir ti! alls
London í gærkveldi.
Hernaðarfregnritari þýsku
frjettastofunnar, Alfred von
Olberg majór, sagði í útvarp í
dag, að þýskir könnunarflug-
menn hefðu í kvöld fært þær
fregnir, að Rússar hefðu nú lok
ið undirbúningi sínum til alls-
herjarsóknar á austurvígstöðv-
unum — sumarsóknarinnar —
og að skriðdrekasveitir og fót-
gönguliðssveitir Rússa væru nú
Jlbúnar að hefja sókn á ýmsum
hluíum vígstöðvanna. — Reuter
Christmas Möller.
BráSabirgSavamir
Þjóðverja á Ítalíu
biia
London í gærkveldi.
UNDANFARNA DAGA hafa
varnir Þjóðverja á Italíu verið
allharðar ‘ sumstaðar, en nú
hafa þær sveitir þeirra, er vörð
ust, aftur dregið sig í hlje og
hörfað undan. Herfræðingur
| með her bandamanna lætur þá
Iskoðun í ljósi, að langt kunni að
(líða, þar til aftur komi til stór-
jbardaga á Italíu, þar sem Þjóð
jverjar muni enn hörfa langt
undan.
Mest er sem stendur barist
á Mið-Italíu, þar sem áttundi
herinn mætir allöflugri mót-
spyrnu í fjöllupum.
A vesturströndinni hafa
bandamenn sótt nokkuð fram,
og munar nú litlu að borgin
Orbetello sje umkringd, en á
Adríahafsströndinni heldur
sókn bandamanna áfram jafnt
og þjett. —: Reuter.
Afstaðan er nú
sæmileg, — segja
bandamenn
Enn geisa stórorustur
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter. .
FREGNRITARAR í aðalbækistöðvum bandamanna
seg'ja í kvöld, að fyrstu gagnsóknarlotu Þjóðverja á inn-
rásarsvæðinu í Frakklandi hafi verið hrundið, en bardag-
ar halda þó áfram víðast hvar af miklu ofstæki, einkum
þó á svæðinu milli Tilly og Coumin, en báða þá bæi hafa
Þjóðverjar á valdi sínu enn, en þeir voru teknir í gær. —•
Bandamenn hafa ekki tekið aftur neinn af þeim bæjum,
sem þeir mistu í gær, en nýjan bæ, Quieneville, á austur-
strönd Cherbourghskagans.
Báðir aðilar segja miklu minna um viðureignirnar í
fregnum sínum, en undanfarna daga, en ber saman um,
að bardagar sjeu enn óhemju harðir hvarvetna. Loftsókn
bandamanna hefir haldið áfram, og birgðaflutningur
gengur að óskum- yfir sundið.
Þjóðhátíðarblað
Morgunbiaðsins
æreyjum
Kirkjubæ 15. júní.
FÆREYINGAR halda 17.
júní hátíðlegan í samúðarskyni
við stofnun lýðveldisins. Verða
íánar dregnir að hún, fcæði í
bæjum cg bygðum.
í Þórshöfn verður haldin há-
LÍðarsarnkoma og gengið í
skrúðgöngu frá Þinganesi iil
Þingvallar.
Ræður vcroa fluttar, :öng-
flokkur syngur og lúðrasveit
leikur íslensk lög. Hafa kvæði
verið orl í tilefni dagsms.
Paturson.
I DAG fylgir 32 síðu þjóðhá-
tíðarblað með Morgunblaðinu.
Svo alls koma úl 48 síður af
blaðinu í dag. Þjóðhátíðarblað-
ið fylgir líka ísafold.
í þjóðhátíðarblaðinu er m. a.
grein eftir Gísla Sveinsson um
Jón Sigurðsson forsela. Yfir-
[litsgrein eftir Bjarna Benedikts
son um stjórnmálabaráttu ís-
jlendinga síðustu öld og fram á
þenna dag. Þá er grein eftir
| Ólaf Thors um Sjálfstæðis-
' flokkinn og þjóðareðli Islend-
j inga. Grein eftir Tón Sigurðs-
j son frá Reynistað um framtíð-
armál landbúnaðarins og önn-
ur eítir Sigurð Kristjánsson um
framtíðarmál sjávarútvegsins
og grein eftir Jón Kjartansson
um framtíðartogarann, þá er
grein eftir Geir Zoega vega-
málastjóra um framtíð vegamál
anna. Mvnd frá einokunartim-
anum eftir dr. Odd Guðjónsson
og kvæði eftir Tómas Guð-
mundsson og Huldu.
Sprengjur á Suður-
England.
London í gærkveldi: — Þýsk-
ar flugvjelar voru yfir nokkr-
um stöðum á Suður-Englandi
í nótt sem leið, og vörpuðu su.ms
staðar niður sprengjum. Varð
af talsvert tjón, en nokkrir
menn meiddust. — Reuter.
Bardagar á Cherbourgskagan-
um.
Á * Cherbourghskaga hafa
miklar orustur verið háðar,
einkum nærri Carentan, þar
sem Bandaríkjamenn hafa
hrundið tveim áhlaupum Þjóð-
verja og sótt fram um 2 km. á
einum stað. Norðar hafa þeir
tekið baðstaðinn Quieneville á
austurströnd skagans, og telja
sjerfræðingar að það muni auð
velda mjög liðflutninga inn á
skagann. — Við Mountebourg
hafa gagnáhlaup Bandaríkja-
manna ekki borið árangur, að
því er virðist.
{
Sókn á hægra fylkingararmi.
Amerískum hersveitum hef-
ir orðið nokkuð ágengt milli
ánna Vir og Aure, sem fellur í
Vir. Þarna hafa Þjóðverjar ekki
veitt eins snarpa mótspyrnu og
annarsstaðar. — Beita þeir þó
þarna nýrri herdeild, sem virð-
ist að samsetningu vera eins-
konar tilraunadeild, þar sem
hinar ýmsu sveitir eru mjög
misjafnlega vopnaðar.
ASalorustusvæðið.
Frá svæðinu milli Tilly og
Troarn, eða aðalorustusyæðinu
hafa engar aðrar fregnir borist,
en þær, að áhlaupum Þjóðverja
hafi verið hrundið í dag, en
orustur sjeu eins harðar og áð-
ur. Þjóðverjar halda enn bæj-
um þeim, er þeir tóku í dag.
Flugherinn hefir aðstoðað
lafldheri bandamanna í allan
dag, með miklum árásum, sem
1300 amerískar sprengjuflug-
vjelar gerðu á stöðvar víðsveg-
ar um Frakkland.