Morgunblaðið - 16.06.1944, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.06.1944, Qupperneq 1
I I 31. árgangur. 131. tbl. — Föstudagur 16. júní 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. GAGNSÚKNARLOTU ÞJÚÐVERJA HRUNDIB Heillaskeyti frá Christmas Möller Sambandsslitiii styrkja samúðin ,Hefði jeg verið (slendingur... Morgunblaðið símaði foringja frjálsra Dana, Christ- mas Möller, og bað hann um að senda blaðinu iil birt- ingar álit sitt á sambandsslitunum. Fjekk blaðið í gaerkvöldi svohljóðandi skeyti frá honum: HIN ENDANLEGA ákvörðun, sem íslenska þjóðin nú hefir tekið, er í raun og veru rök- rjett afleiðing af sáttmálan- um er gerður var 1918. Eins og jeg var samþykkur sáttmálanum frá 1918, og þeirri skoðun, að Danir gætu enga aðra afstöðu haft til málsins, aðra en þá, að íslenska þjóðin og íslenska þjóðin ein ætti að taka á- kvörðun um framtíð sína, þá hefir mjer undanfarin 25 ár verið það ljóst, hvað myndi ske, þegar samnings- tíminn var útrunninn. Við sem metum frelsi og sjálfstæði framar öllu öðru, skiljum íslensku þjóðina. HEFÐI JEG VERIÐ ÍSLENDINGUR, þá hefði jeg verið á sama máli og þeir. Jeg vona, að íslendingar skilji, að Dani getur litið svo á, að það hefði ekki verið erfitt að bíða þann stutta ííma, sem eftir er, þangað til Danmörk aftur verður frjáls. En, eins og jeg hefi áður sagt; þegar menn hafa beðið dagsins í aldir, er skiljanlegt, að menn sjeu óþolinmóðir. JEG ER ÞESS FULLVISS, að fullkominn og alger skilnaður mun ekki skapa neina óvild, og jeg vona það og treysti því, að rjett eins og skilnaður Norðmanna við Svía 1905 treysti vináttuböndin milli Norðurlandaþjóðanna, eins muni skiln- aðurinn nú leiða til almennari, hjartanlegri og einlægari samvinnu. Einustu böndin, sem tengja frjálsar þjóðir og frjálsa karla og konur, eru þau, sem menn taka upp af frjálsum vilja. ÖLL DANSKA ÞJÓÐIN mun óska íslandi og íslendingum ham- ingju og farsældar í framtíðinni. Síðasta aldarfjórðung hefir hin fullvalda íslenska þjóð sýnt, hvað lítil þjóð getur komist áfram þegar hún er frjáls. JEG ÓSKA HINU ÍSLENSKA lýðveldi þeirrar framlíðar, r.cra samboðin er því besta í íslenskri þjóoarmenningu. ★ Þessi orðsending frá hinum gagnmerka stjórnmálaforingja Dana, mun verða öllum íslendingum mikið gleðiefni. Er það einkar vel til fallið að hún kemur hingað einmitt á þessari stund. íslenska þjóðin gleðst ekki aðeins yfir þeirri víðsýni og því göfuglyndi, sem felst 'í orðum hans, heldur og yfir því, að fulltreysta má, að spádómur hans um aukna samúð að sam- bandsslitum munu rætast. Hinum fögru óskum Chrismas Möller í garð íslendinga svör- uðum vjer að öðru leyti því, að láta í ljós okkar einlægustu og hjartanlegustu óskir um, að dagur frelsisins megi hið allra bráð- asta renna upp yfir hans mikilhæfu og ágælu þjóð. Rússar til- búnir ti! alls London í gærkveldi. Hernaðarfregnritari þýsku frjettastofunnar, Alfred von Olberg majór, sagði í útvarp í dag, að þýskir könnunarflug- menn hefðu í kvöld fært þær fregnir, að Rússar hefðu nú lok ið undirbúningi sínum til alls- herjarsóknar á austurvígstöðv- unum — sumarsóknarinnar — og að skriðdrekasveitir og fót- gönguliðssveitir Rússa væru nú Jlbúnar að hefja sókn á ýmsum hluíum vígstöðvanna. — Reuter Christmas Möller. BráSabirgSavamir Þjóðverja á Ítalíu biia London í gærkveldi. UNDANFARNA DAGA hafa varnir Þjóðverja á Italíu verið allharðar ‘ sumstaðar, en nú hafa þær sveitir þeirra, er vörð ust, aftur dregið sig í hlje og hörfað undan. Herfræðingur | með her bandamanna lætur þá Iskoðun í ljósi, að langt kunni að (líða, þar til aftur komi til stór- jbardaga á Italíu, þar sem Þjóð jverjar muni enn hörfa langt undan. Mest er sem stendur barist á Mið-Italíu, þar sem áttundi herinn mætir allöflugri mót- spyrnu í fjöllupum. A vesturströndinni hafa bandamenn sótt nokkuð fram, og munar nú litlu að borgin Orbetello sje umkringd, en á Adríahafsströndinni heldur sókn bandamanna áfram jafnt og þjett. —: Reuter. Afstaðan er nú sæmileg, — segja bandamenn Enn geisa stórorustur London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. . FREGNRITARAR í aðalbækistöðvum bandamanna seg'ja í kvöld, að fyrstu gagnsóknarlotu Þjóðverja á inn- rásarsvæðinu í Frakklandi hafi verið hrundið, en bardag- ar halda þó áfram víðast hvar af miklu ofstæki, einkum þó á svæðinu milli Tilly og Coumin, en báða þá bæi hafa Þjóðverjar á valdi sínu enn, en þeir voru teknir í gær. —• Bandamenn hafa ekki tekið aftur neinn af þeim bæjum, sem þeir mistu í gær, en nýjan bæ, Quieneville, á austur- strönd Cherbourghskagans. Báðir aðilar segja miklu minna um viðureignirnar í fregnum sínum, en undanfarna daga, en ber saman um, að bardagar sjeu enn óhemju harðir hvarvetna. Loftsókn bandamanna hefir haldið áfram, og birgðaflutningur gengur að óskum- yfir sundið. Þjóðhátíðarblað Morgunbiaðsins æreyjum Kirkjubæ 15. júní. FÆREYINGAR halda 17. júní hátíðlegan í samúðarskyni við stofnun lýðveldisins. Verða íánar dregnir að hún, fcæði í bæjum cg bygðum. í Þórshöfn verður haldin há- LÍðarsarnkoma og gengið í skrúðgöngu frá Þinganesi iil Þingvallar. Ræður vcroa fluttar, :öng- flokkur syngur og lúðrasveit leikur íslensk lög. Hafa kvæði verið orl í tilefni dagsms. Paturson. I DAG fylgir 32 síðu þjóðhá- tíðarblað með Morgunblaðinu. Svo alls koma úl 48 síður af blaðinu í dag. Þjóðhátíðarblað- ið fylgir líka ísafold. í þjóðhátíðarblaðinu er m. a. grein eftir Gísla Sveinsson um Jón Sigurðsson forsela. Yfir- [litsgrein eftir Bjarna Benedikts son um stjórnmálabaráttu ís- jlendinga síðustu öld og fram á þenna dag. Þá er grein eftir | Ólaf Thors um Sjálfstæðis- ' flokkinn og þjóðareðli Islend- j inga. Grein eftir Tón Sigurðs- j son frá Reynistað um framtíð- armál landbúnaðarins og önn- ur eítir Sigurð Kristjánsson um framtíðarmál sjávarútvegsins og grein eftir Jón Kjartansson um framtíðartogarann, þá er grein eftir Geir Zoega vega- málastjóra um framtíð vegamál anna. Mvnd frá einokunartim- anum eftir dr. Odd Guðjónsson og kvæði eftir Tómas Guð- mundsson og Huldu. Sprengjur á Suður- England. London í gærkveldi: — Þýsk- ar flugvjelar voru yfir nokkr- um stöðum á Suður-Englandi í nótt sem leið, og vörpuðu su.ms staðar niður sprengjum. Varð af talsvert tjón, en nokkrir menn meiddust. — Reuter. Bardagar á Cherbourgskagan- um. Á * Cherbourghskaga hafa miklar orustur verið háðar, einkum nærri Carentan, þar sem Bandaríkjamenn hafa hrundið tveim áhlaupum Þjóð- verja og sótt fram um 2 km. á einum stað. Norðar hafa þeir tekið baðstaðinn Quieneville á austurströnd skagans, og telja sjerfræðingar að það muni auð velda mjög liðflutninga inn á skagann. — Við Mountebourg hafa gagnáhlaup Bandaríkja- manna ekki borið árangur, að því er virðist. { Sókn á hægra fylkingararmi. Amerískum hersveitum hef- ir orðið nokkuð ágengt milli ánna Vir og Aure, sem fellur í Vir. Þarna hafa Þjóðverjar ekki veitt eins snarpa mótspyrnu og annarsstaðar. — Beita þeir þó þarna nýrri herdeild, sem virð- ist að samsetningu vera eins- konar tilraunadeild, þar sem hinar ýmsu sveitir eru mjög misjafnlega vopnaðar. ASalorustusvæðið. Frá svæðinu milli Tilly og Troarn, eða aðalorustusyæðinu hafa engar aðrar fregnir borist, en þær, að áhlaupum Þjóðverja hafi verið hrundið í dag, en orustur sjeu eins harðar og áð- ur. Þjóðverjar halda enn bæj- um þeim, er þeir tóku í dag. Flugherinn hefir aðstoðað lafldheri bandamanna í allan dag, með miklum árásum, sem 1300 amerískar sprengjuflug- vjelar gerðu á stöðvar víðsveg- ar um Frakkland.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.