Morgunblaðið - 11.01.1946, Blaðsíða 1
16 síður
á3. árg-angur.
8. tbl. — Föstudagui- 11. janúar 1946
ísafoldarprentsmiðja h.f.
Fyrsta þincp Sameism&u þjó&annaí
Morkmiðið er: Heimur, stjórnuð uf rjettlæti
Spðak, utanríkisráðh. Beigíu
forseti þingsins
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
k
Reykjavíkur
, Á BLS. 9—12 í blaðinu í dag
birtist stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarmálum Reykja
víkur •—- með stuttorðum grein
argerðum um það helsta, sem
Sjálfstæðismenn hafa á undan-
fö'rnum árum unnið að þeim
málum.
Þar er m. a. gerð grein fyrir
því, hvernig Reykvíkingar
hafa hagnýtt sjer vatns- og
hitaorku, með rafvirkjunum og
hitaveitu, um málefni og um-
bætur hafnarinnar, nýsköpun
útgerðar, frjálst framtak í iðn-
aði og verslun o, m. fl. viðvíkj-
andi atvinnuvegum bæjarbúa.
Þar eru m. a. þessir kaflaf:
Fleiri skólar, fjölþætt menta
líf. Öflugt íþróttalíf. Aukin
hollusta með útiveru. Yngsta
kynslóðin þarf aðhlynningar.
Öryggi gegn skorti. Greið um-
ferð, góðar götur og fögur borg
með hagkvæmu skipulagi.
Þar er gerð grein fyrir hús-
næðismálunum, því hvernig
framfarirnar ljetta húsmæðr-
unum störfin o. fl. o. fl.
Vyshinsky í Sofia
London í gærkvöldi.
ANDREI VYSHINSKY, sem
verður formaður fulltrúanefnd
ar Rússa á þingi hinna samein-
uðu þjóða, kom í dag til Sofia,
höfuðborgar Búlgaríu. Þrír
búlgarskir ráðherrar voru fyrir
að taka á móti honum. — í för
með Vyshinsky voru þeir Bi-
riuzov ofursti, varaforseti
hernámsráðs bandamanna í
Þýskalandi.
Nauðlenti - Eínn maður fórsi
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
FYRSTA allsherjarþing bandalags Sameinuðu þjóðanna
var sett í Central Hall í London í dag kl. 15 eftir íslenskum
tírna. Bráðabirgðaforseti bandalagsins, dr. Suleto (fulltrúi
Columbiu), sem einnig var forseti undirbúnnigsnefndar þings-
ins, setti þingið. En á þingfundinum var Paul Henri Spaak,
utanríkisráðherra Belgíu, kjörinn forseti þingsins. — Til
þings eru komnir fulltrúar 51 þjóðar, en auk þess voru við-
staddir fjöldi frjettamanna og annarra áheyrenda.
Hægf að versla
með hjáip sjón-
varps!
Farþegaflugvjel þessi nauðlenti á akri nálægt borginni
Florence J Bandaríkjunum. — Flugvjelin hafði rekist á
sprengjuflugvjel. 20 farþegar voru í flugvjelinni, sluppu allir
lifandi, nema einn. Tveir af áhöfn sprengjuflugvjelarinnar
fórust.
Ivær miljónir Bandaríkja-
manna hóta verkfalii í
næstu viku
New York í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
TVÆR MILJÓNIR manna í Bandaríkjunum hóta því að
hefja verkfall í næstu viku, ef ekki verði orðið við kröfum þeirra
um kaup og kjör. Eru þetta stáljðnaðarmenn, rafmagnsiðnaðar-
menn og menn, sem vinna við innpökkun kjöts. Stáliðnaðar-
menn hóta verkfalli á mánudag, rafmagnsiðnaðarmenn á þriðju-
dag og kjötpökkunarmenn á miðvikudag.
Löndon í gærkvöldi.
FRJETTARITARI vor í
Washington símar, að margar
nýungar á sviði útvarpstækn-
innar muni bráðlega sjá dags-
ins Ijós. Þannig telur hann,
að fólki verði bráðlega gert
fært að versla með hjálp sjón-
varps, og margar aðrar merki-
legar nýungar telur forseti'
Radio Corporation verða orðn
ar almenningseign um 1950.
Meðal þessa telur -hann vera,
tæki, sein draga mjög úr, eða
útiloka algerlega 1 árekstra
milli farartækja. Segir hann
þetta vera sanibland af fjar-
skygni og radartækni. Einnig
telur forsetinn nú nær full-
gerð tæki. sem gera mönnum
kleyft að sjá atburði, sem
gerast hinummegin á jörð-
inni.
— Reuter.
Vopnaviðskiptum hætt
í Kína
Chungking í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÞEIR Chiang Kai-shek og Chou En Lail, aðalleiðtogi komm-
únista í Kína, hafa samið um vopnahlje. Hafa báðir sent herjum
sínum skipun um að leggja niður vopnin. — Fulltrúar kommún-
ista og Chungkingstjórnarinnar hafa átt í Chungking nokkra
fundi með George Marshall, sendiherra Bandaríkjanna í Kína,
og er vopnahljeð árangur þeirra funda.
Marshall hefir, fyrir hönd
stjórnar sinnar, boðið aðstoð
Bandaríkjahersveita, sem enn
dveljast í Kína, við fram-
kvæmd vopnahljesskipunar-
innar.
Þegar Chou En Lai skýrði
frá vopnahljessamningunum á
fundi í kínversku ráðgjafar-
nefndinni í dag, komst hann
svo að orði: „Nýr kafli er haf-
inn í sögu Kína.
Stáliðnaðarmenn.
I sambandi stáliðnaðarmanna
eru um 750.000 meðlimir. Þeir
heimta kauphækkun, sem svar
ar tveim dollurum (13 kr.) á
dag. Fulltrúar þeirra og fulltrú
ar atvinnurekenda ræddust við
í New York í dag, og horfir ekki
mjög óvænlega um lausn deil-
unnar,
Rafmagnsiðnaðarmenn og
kjötpökkunarmenn.
I sambandi rafmagnsiðnaðar
manna eru um 200.000 meðlim
ir. Þeir heimta einnig tveggja
dollara dagkaupshækkun. —-
Stjórn sambands þeirra kom
saman á fund í dag. — I sam-
bandi kjötpökkunarmanna eru
330.000 menn.
i'ramh. á 2. síðu
Skoiar og Belgíu-
menn keppa
í knattspyrnu
London í gærkvöldi.
VALIÐ hefir nú verið það’
skofska landslið, sem á að;
mæta belgiska landsliðinu í
Cdasgow þann 23. þ. m. Liðið
verður þannig skipað : BroWn,
MacCowan, Shaw, Campbell,
Paton, Paterson, Smith, Baird,
Delaney, Deakin og Liddell.
Af þessum mönnum eru ýmsir
nýir í liðinu, sem er mikið1
breytt frá því sem það var,
er Skotar unnu Wales 2 - 0 í
nóvember. Meðal þeirra eru
Cambell, Macgowan, Baird og
Delaney, sem kemur sem mið-
framherji í stað hins fræga
Dodds frá Blackpoo!..
— Reuter.
1 setningarræðu sinni mælti
dr. Suleto m. a. á þessa leið:
„Sameinuðu þjóðirnar eru
staðráðnar í því að skapa
tryggan frið í heiminum og
vinna einhuga að sáttmálan-
um, sem gerður var á ráð-
stefnunni í San Fransisco, svo
að takast megi vinsamleg sam-
búð þjóða í milli. Fulltrúar á
þinginu væru staðráðnir í því
að bregðast ekki hlutverki
því, sem þeim hefði verið feng
ið, og einhver innri rödd segði
sjer, að það myndi takast,
Margskonar erfiðleikar myndu
yfirunnir hjer eins og á ráð-
stefnunni í San Fransisco, og
eining skapast að lokum. —
Stórveldin skildu. hver ábyrgð
hvíldi á þeim. Hjer væri smá-
þjóðunum veitt óskorað mál-
frelsi og gefið tækifæri til
að leggja fram sinn skerf.
Ræða Attlee.
Að lokini ræðu dr. Suleto,
tók Attlee. forsætisráðherra
Bretlands til máls. Sagði hann
að það væri mikill heiður fyr-
ir að sig að fá tækifæri fil
þess að bjóða fulltrúaana vel-
komna til London. Hjer myndi
búið að þeim eins vel og kost-
ur væri á, en það, sem á kynni*
aö skorta, væri að kenna á-
rásum þeim, sem borgin varð
fyrir í styrjöldinni. Hjex*
myndu fulltrúarnir hafa jafn
áskorað málfrelsi og vera jafix
sjálfstæðir í störfum sínunn
og þótt þingið hefði veriðí
haldið í landi, sem væri undir
alþjóðastjórn og eftirliti. —■
Þá þakkaði Attlee dr. Suleto
afrek hans í undirbúnings-
nefndinni. Sagði, að honum
hefði skilist nauðsyn þess að1
hafa hraðan á, og án atbeina
hans hefði ekki verið hægt að!
íheyía fyrsta þingið svo fljótti
sem raun hefði ooðið á.
Gamla og nýja
Þjóðabandalagið.
Attlee minntist gamla þjóða
Framh. á 2. síðu