Morgunblaðið - 11.01.1946, Blaðsíða 5
Föstudagur 11. jan. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
5
iSueinhiöm ^JJc
anneóóon,
lueinnfom ■
Virðingin fyrir verka-
manninum
ALÞÝÐUBLAÐIÐ og Tíminn
eyða í dag miklu af dýrmætum
pappír og prentsvertu til að sví
virða mig sem verkamann,
vegna þess að jeg hefi ekki
brugðist fjelagslegri skyldu
minni um að vera í framboði til
stjórnarkosningar í stjettarfje-
lagi mínu, Dagsbrún, eftir á-
skorun fjelaga minna. — Þessi
blöð álíta að verkamenn sjeu
aðeins pólitísk peð, sem eigi
enga sannfæringu. Það er vegna
þessa sem flestir verkamenn fyr
irlíta Alþýðuflokkinn og hata
Framsóknarflokkinn.
í Dagsbrún er jeg og við Sjálf
stæðisverkamenn aðeins verka
menn. Þar kemur engin póli-
tík til greina, því verkamenn
hafa sameiginlegra hagsmuna
að gæta hvaða flokki sem þeir
fylgja. Jeg lýsi því yfir, að
hvorki Sjálfstæðisflokkurinn
nje forystumenn hans hafa
reynt að hafa áhrif á framboð
mitt og starf í Dagsbrún, hvorki
hvatt mig nje latt. Enda hefði
jeg þar ekki farið eftir neinum
flokkslegum fyrirskipunum. —
Jeg ræki fjelagslegar skyldur
mínar eftir getu, alveg eins og
jeg nýt fjelagslegra rjettinda.
Atkvæðagreiðslan í fyrra
sýndi það, að fjelagar mínir
bera traust til mín. En útkom-
an þá sýndi líka vantraust
verkamanna á Alþýðuflokkn-
um, sem naut harðfylgis Fram-
Sóknarflokksins og Mjólkursam
sölunnar. Það er leiít að á fert
ugasta ári Dagsbrúnar skuli
vera til flokkur, kenndur við
alþýðuna, sem sýnir verkamönn
um aðra eins lítilsvirðingu og
Skrif Alþýðublaðsins benda til.
iVerkamennirnir, sem enn eru
í Alþýðuflokknum myndu vera
vel metnir í stjórn Pagsbrúnar,
Stjettarfjelags okkar verka-
manna, ef þeir fengju frið til
þess fyrir ofríki flokksforingja
sinna.
Alþýðublaðið hneykslast á
því að jeg skuli vera á lista
Sjálfstæðisflokksins við bæjar-
stjórnarkosningarnar, líklega af
því að jeg er verkamaður. Jeg
hjelt að mjer væri alveg leyfi-
legt að hafa sjálfstæða skoðun.
Og mjer hefir altaf fundist
Sjálfstæðisflokkurinn framtak-
Samastur, frjálslyndastur og
hlyntastur raunverulegum um-
bótum. Því er jeg þar flokks-
maður.
Jeg veit ekki betur en að
meiri-hlutinn í verkakvennafje
laginu Framsókn sjeu Sjálfstæð
jskonur, og mun formanni
þeirra það kunnugast. — Engin
þeirra hneykslast á því þó for-
maður þeirra, frú Jóhanna Eg-
ilsdóttir, sje á lista Alþýðu-
flokksins. Aðeins telja þær og
flestir aðrir að henni hefði hæft
betur fyrsta sæti heldur en það
þriðja, vegna mannkosta og for
menskuhæfileika, að Jónunum
alveg ólöstuðum.
,,Þegar ljónshúðin hylur ekki
þá er að bæta refsbelgnum
við“, segir gamla spakmælið. —
Framsóknarflokkurinn hefir
löngum haft í hótunum við okk
ur verkamenn, en nú kjassa þeir
góðu menn okkur í öðruhverju
orði. Við munum þó enn áhug-
ann í byggingamálunum frá
þeim tímum er Eysteinn var að
úthluta ,,reseptum“ á spýtur
fyrir 100 krónur og þar um,
gegn drengskapar loforðum um
að nota dýrmætið vel. — Við
munum líka þá tíma er Fram-
sókn vildi láta klæða styrkþega
í nokkurskonar sakamannabún
inga, og senda þá sem matvinn-
unga út í sveit. Við vitum líka
vel, að það er einmitt Fram-
sóknarflokkurinn, sem á höf-
uðsök á dýrtíðinni. Við vitum
að hin pólitísku samvinnufje-
lög hafa legið eins og mara á
þjóðinni. Og við þekkjum það
vel, að frá þeim hjeruðum þar
sem Framsóknarvaldið er mest
hefir verið mestur fólksstraum
ur hingað, vegna þess að menn
vilja ekki una ofríki.
Og við munum það líka,
verkamenn, þegar helsti bygg-
ingasjerfræðingur Alþýðu-
flokksins hjelt því fram á fundi
í Byggingafjelagi verkamanna,
að bæjarstjórnin ætti að byggja
leigukassahverfi fyrir fátækl-
ingana. Efnuðu mennirnir ættu
að vera sjer. Og um verka-
mannabústaðina hafa hvorki
Alþýðuflokkurinn nje kommún
istar af miklu að státa. Þeir
hafa aðeins rifist um völdin en
flýtt sjer með hægð um fram-
kvæmdir. Frá byrjun hafa ver-
ið byggðar að meðaltali um 20
íbúðir á ári, eða minna en lítil-
fjörlegustu byggingarfjelög ein-
stakra manna byggja nú. — Þó
hefir ekki staðið á bæjarstjórn
um tilskilið framlag.
Við fjelaga mína í Dagsbrún
vil jeg segja þetta: Við höfum
skyldur við fjelag okkar, og
skyldur við bæjarfjelagið. Sann
færing hvers eins á að ráða því,
hvaða stjórnmálaskoðun hann
aðhyllist.
8. jan.
Sveinbjörn Ilannesson.
Bryggjutimbur
Get útvegað frá Svíþjóð: bryggjutimbur, sívalt og
kantað, af góðtegund í löngum lengdum. Ennfremur
símða- og húsatimbur, krossvið, þilplötur og fleira
til bygginga, gegn innflutnings- og gjaldeyrisleyfum.
Jóh ann Ueyhdal
Setbergi.
$x®®<$x$x$k$x$x$x®®3x$x$x$x$x$x$x$x$xSx$x$x$x®<$xSx$x$x$k$x$x$x$x®<®®®®<®®®®^$x®®®®$x£<$k$k$xíxSx$x$x§.®<®<$x®<.>®®<$><®®<$xÍxí
Almennur fundnr
Sjúlfstæðismunnu
Fyrsti fuhdur í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll
Sjálfstæðisfjelögin í Reykjavík efna til almenns fundar Sjálfstæðismanna í
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll sunnudaginn 13. janúar kl. 2 e. h.
Þetta er fyrsti fundur Sjálfstæðismanna í hinu nýja fíokkshúsi við Austurvöll. %
Umræðuefni:
Fundarsetning:
Fundarstjóri:
Ræður flytja:
BÆJARSTJÓRNARKOSNINGAR.
Eyjólfur Jóhannsson, formaður byggingarnefndar.
Frú Gúðrún Jónasson.
Bjarni Benediktsson, borgarstjóri.
Frú Auður Auðuns, cand. jur.,
Sigurður Sigurðsson, berklayfirlæknir.
Jóhann Hafstein, framkvstj. Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur Thors, forsætisráðherra.
Hljómsveit hússins leikur í byrjun f undarins,
Allir Sjálfstæðismenn eru velkomnir á fundinn.
Reykvíkingar! Fylkið ykkúr um Sjálfstæðisflokkinn — flokk ykkar!
Sjálfstæðisfjelögin í Reykjavík
» VÖRÐUR ® HEIMDALLUR ® IIVÖT ® ÓÐINN •
«$x$®<$x$x$x$®<$x$x$x$K$»$x$K$$x$K$<$<$x$<$x$x$K$x$x$x$x$x$x$x$K$x$x$x$K$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$x$K$x$K$x$x$x$x$x$;í*ixfx&<®«xsK$<$xsx$<$K»;
<$xS*S><SxSxSxSxSx$xSxSxSK$KSx$x$x$x$><Sx$<Sx$<$*$xSxSxSxS><SxSKSxS*S*SxSxSxSxS»SxSxSxSxSxSxSx$<Sx$><SxS*S*S^xSxSx$<$<S<íx$?x$x$><$<$><$x$*$<$*$»®<$-fx
UTSALA
I dag og næstu daga seljum við til rýmingar nýjum
birgðum kvenskó, kveninniskó og karlmannaskó með
miklum afslætti.
Sk óueróíunin ísjorl? h.i.
Laugaveg 26.
«*$*$*$<$<$<$<$<$<$*$x$<$k$<$x$x$x$x$x$x$x$k$x$x$x$x$x$*$xSxSxSxS*$x$x$x$*$x$x$xSx$«$kSxSx$<$»Sx
Sölumaðtlr
I
Duglegur og áhugasamur ungur maður getur feng-
ið framtíðaratvnnu hjá okkur strax sem sölumað-
ur innanbæjar og utan.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
^JJ. CJiaJóóon CJ iJemhöJt
1
|
•t"i
a*$*$K$K$*$*$X$*$><$><$><$>3><$<$<$*$3x$<$<$<$<$<í>$><$<$x$<$><$><$<$K$X$<$X$S*$><í>®<$S*I<í»$xíx$.-.><
$*$<$<$<$^<S*$<$3*$3*$^<$*$><$<$<$k$><$*$<$<$<$<$<$<$<S*$*«><$<$<$*$<$<$<$<$<S*$*$<$<S*$<$-$>
Vinnustígvjel
með leður og gúmmísóla, nýkomin,
margar gerðir. verð frá kr.: 25,90.
Fæst alls staðar.
Framlcitt lijá RUMFORD.