Morgunblaðið - 11.01.1946, Side 10
10
MORGUNBLAÐIB
Föstudagur 11. jan. 1946
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
Framh af bls. 9
Hin síðari ár hefir verið bygt
sem hjer segir:
Árið 1942 var bygð 361
íbúð.
Árið 1943 voru bygðar 354
íbúðir.
Árið 1944 voru bygðar 339
íbúðir.
Húsnæðisvandræðin
Bæjarstjórnin hefir, undir for-
ystu Sjálfstæðismanna, á marg-
an hátt stutt og greitt fyrir þess-
um miklu byggingarframkvæmd-
um. Hún hefir látið mönnum í
tje innlent byggingarefni. Þá hef-
ir hún úthlutað mönnum lóðum
með hinum hagkvæmustu skil-
málum. Frá því 1942 hefir alls
verið úthlutað 764 lóðum til í-
búðarbygginga, og er langt kom-
ið undirbúningi þess, að í ár
verði hægt að úthluta a. m. k.
290 lóðum, þar sem reisa má h.
u. b. 900 íbúðir.
Þá hefir bærinn frá fyrstu tíð
lagt sinn' skerf til bygginga verka
mannabústaða, og er Reykjavík
eina bæjarfjelagið á landinu, sem
ætíð hefir uppfyllt skyldur sínar
samkvæmt lögunum um verka-
mannabústaði.
Loks hefir bæjarstjórnin ekki
látið við það sitja að styðja ein-
stáklingana eftir föngum til
byggingarframkvæmda, heldur
sjálf hafist handa um bvggingu
íbúðarhúsa, bæði bráðabirgða-
húsa og fyrirmyndar-íbúða til
frambúðar.
Þannig bygði bæjarstjórnin
104 íbúðir í Höfðaborg.
Bygð voru bæjarhúsin á Mel-
unum með 48 íbúðum af vönd-
uðustu gerð.
Verið er að byggja við Skúla-
götu 72 íbúðir í vönduðum hús-
um.
Þá eru um það bil að hefjast
Árið 1945, í október mánuði,
var búið að byggja 180 íbúðir, en
þá voru í smíðum 758 íbúðir auk
240 einstaklingsherbergja.
Þessar tölur sanna að aldrei
hefir verið bygt nándar nærri
eins mikið af íbúðarhúsum í
Reykjavík og þessi síðustu ár.
verða að leysasf
framkvæmdir við byggingu stór-
hýsis við Miklubraut..
Sjálfstæðisflokkurinn vill, í
framhaldi af fyrri aðgerðum sín-
um í húsnæðismálunum, bcita
sjer fyrir:
1. Að einstaklingum verði auð-
veldaðar byggingarfram-
kvæmdir, enda leggur flokk-
urinn á það mikla áherslu, að
eðlileg byggingarstarfsemi
einstaklinga verði ekki hindr-
uð eða torvelduð.
2. Að mönnum verði látnar í tje
lóðir til húsbygginga og þeim
veittur hæfilegur frestur til
að hefja framkvæmdir.
3. Að bærinn hafi til sölu bygg-
ingarefni, sand og möl.
4. Að rannsaka hvort tiltækilegt
sje, að bærinn komi upp
steypublöndunarstöð, er selji
einstaklingum hrærða stein-
steypu.
5. Að einstaklingum verði látn-
ar í tje ókeypis teikningar af
hentugum smáhúsum. Svo og
sameiginlegir eftirlitsmenn
með slíkum byggingum.
6. Að stóraukin verði framlög
af opinberri hálfu til verka-
mannabústaða og auðvelduð
verði starfsemi byggingar-.
samvinnufjelaga,
7. Að byggingarefni sje notað
til nauðsynJegra íbúðabygg-
inga, í þarfir atvinnuveganna
og almannastofnana.
Yngttð kynslóðin þarfnasl aðfilynningar
Undir forystu Sjálfstæðis-
manna hefir bæjarstjórnin lagt
áherslu á að hafa sem nánast sam
starf við fjelög áhugamanna, svo
sem Barnavinafjelagið Sumar-
gjöf, um aðhlynningu yngstu
barnanna. Bærinn hefir styrkt
Sumargjöfina með stórfeldum
fjárframlögum til þess að koma
upp og reka vistheimili, dagheim
ili og leikskóla Þá hefir bærinn
styrkt sumardvalir barna í sam-
vinnu við ríkisstjórnina og Rauða
kross íslands.
Barnaheimili hefir verið komið
upp í Kumbaravogi.
Akveðíð hefir verið að úthluta
Thorvaldsensfjelaginu stóru
landssvæði í Ártúni þar sem fje-
lagið hygst að reisa barnahæli
sitt.
Sjálfstæðisflokkurinn mun
halda áfram að styrkja hverskon-
ar starfsemi áhugamanna, sem
beinist að aðhlynningu barnanna
og mun beita sjer fyrir:
1. Að reist verði barnaheimili
svo að fullnægi þörfum bæj-
arbúa.
2. Að leikskólum og dagheimil-
um verði komið upp víðs veg-
ar um bæinn og þeim ætlaður
staður í hinum nýju hverfum.
Öflugi íþróttalíf
Undir forystu Sjálfstæðis-
manna hefir bæjarstjórn Reykja-
víkur á margan hátt stutt og
styrkt íþróttalíf í bænum.
Byrjað var á framkvæmdum
við að koma upp allsherjar í-
þróttasvæði vestan við Öskju-
hlíð og hafði mikið fje verið lagt
fram í því skyni. Þessar fram-
kvæmdir stöðvuðust af stvrjald-
arástæðum, og þegar á daginn
kom, að ekki mundi hægt að ætla
íþróttasvæði þarna stað í fram-
tíðinni, var ákveðið að taka 95
hektara svæði í Laugardalnum
undir íþróttasvæði og skemtistað
bæjarbúa.
í Laugardalnum hafa nú þegar
verið keyptar eignir, á þeim slóð-
um, þar sem sundlaug og aðal
leikvangi hefir verið valinn stað-
ur. Er nú verið að vinna að
teikningu þessara mannvirkja og
byrjað að ræsa fram landið.
Samhliða þessu hefir verið var-
ið miklu fje til viðhalds íþrótta-
vellinum á Melunum og íþrótta-
fjelög bæjarins á margan hátt
styrkt.
★
Sjálfstæðisflokkurinn mun
leggja áherslu á að auka og bæta
skilyrði fyrir eflingu íþróttalífs
í bænum og stuðla að því eftir
föngum, að uppvaxandi æska
eflist að heilbrigði, þrótti og
drengskap, við hollar íþróttaiðk-
anir.
Þessu marki vill flokkurinn m.
a. ná með því —
1. Að hraða sem frekast er unt
framkvæmdum á hinu fyrir-
hugaða íþróttasvæði í Laug-
ardal.
2. Að halda íþróttavellinum á
Melunum í sem bestu horfi,
þangað til Laugardalssvæðið
er tilbúið.
3. Að halda áfram á þeirri braut
að koma upp æfingavöllum
víðsvegar í bænum fyrir í-
þróttafjelögin.
4. Að styðja og styrkja íþrótta-
fjelög bæjarins.
5. Að bæta sem best skilyrði til
skauta og skíðaiðkana.
6. Að leggja sjerstaka áherslu á
að börn í skólum bæjarins fái
notið sem bestra íþróttaiðk-
ana, bæði utan húss og innan.
7. Að stuðla að byggingu íþrótta
húsa, eftir því sem þörf kref-
ur.
Fleiri skólar. Fjölþætf mentalíf
Á síðustú árum hefir meira
verið gert til endurbóta í skóla-
málum bæjarins en nokkru sinni
fyrr.
Unnið hefir verið að tveim
glæsilegum barnaskólabvgging-
um. Laugarnesskólinn er þegar
tekinn 1 notkun og bygging Mela
skóla þegar komin vel á veg. Jafn
framt þessu hefir Miðbæjarbarna
skólinn verið stórkostlega end-
urbættur og ákveðið er að bæta
einni hæð ofan á Austurbæjar-
barnaskólann.
Komið hefir verið upp hús-
mæðraskóla, sem.þegar hefir get-
ið sjer hið besta orð.
Byrjað er á byggingu gagn-
fræðaskóla Reykjavíkur á Skóla-
vörðuholti og Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga fengið húsnæði, sem
ætla má að honum nægi um
sinn, þar til bygt verður yfir
hann.
Fje hefir verið lagt fram og lóð
látin í tje til byggingar iðnskóla.
Sjómannaskólanum hefir verið
látið í tje endurgjaldslaust mikið
landsvæði, svo sem áður var gert
við Háskólann.
Námsflokkar Reykjavíkur hafa
verið styrktir.
Bærinn hefir styrkt og gert
mögulega starfsemi Skátaskólans
að Úlfljótsvatni.
í samræmi við þessar aðgerðir
mun Sjálfstæðisflokkurinn beita
sjer fyrir alhliða stuðningi við
mentalíf í bænum.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á:
1. Að lokið verði sem fyrst smíði
Laugarnesskólans og Mela-
skólans og síðan verði haldið
áfram byggingum barna-
skóla, eftir því sem þörf kref-
ur.
2. Að hraðað verði byggingu
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur
á Skólavörðuholti og síðan
jafnhíiða hafin bygging fyrir
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
í Vesturbænum.
3. Að haldið sje áfram stuðningi
við byggingu iðnskóla, svo að
hann geti sem fyrst tekið til
starfa í hinu nýja húsi.
4. Að bygður verði hið bráðasta
nýr húsmæðraskóíi í Austur-
bænum.
5. Að sem fyrst verði fram-
kvæmd hækkun Austurbæjar
barnaskólans og þar komið fyr
ir bæjarbókasafninu, enda fái
það útibú í öðrum barnaskól-
urn bæjarins, eftir því sem við
verður komið og starfsemi
þess aukin að öðru leyti.
6. Að styrktir verði sjerskólar,
t. d. Verslunarskólinn og
Kvennaskólinn, svo sem verið
hefir.
7. Að kenslutæki í skólum verði
bætt og kenslukvikmynda afl
að, svo sem þegar hefir verið
gerð ráðstöfun til.
8. Að styrkt verði menningarf je-
lög svo sem leikfjelög og
hljómlistarfjelög.
9. Að bygð verði æskulýðshöll
með þátttöku ríkisins.
Aukin hollusta með útiveru
Mikið hefir verið gert af því
á síðustu árum að bæta aðstöðu
bæjarbúa, bæði eldri og yngri,
til heilsusamlegrar útiveru.
Nú þegar eru fullgerðir fimm
leikvellir með nýtísku áhöldum.
Verið er að endurbæta og full-
gera 4 til viðbótar, Auk þessa
hefir 6 nýjum le'ikvöllum verið
valinn staður og verða fram-
kvæmdir við þá hafnar bráðlega.
Þá er ákveðið, að í öllum nýjum
hverfum bæjarins verði komið
upp fullkomnum leikvöllum fyrir
börnin.
Skemtigarðar bæjarins hafa
verið fegraðir og sumir þegar tek
ið algerum stakkaskiftum, eins og
Austurvöllur. í undirbúningi er
að taka ný svæði í bænum til
skemtigarða svo s'em á Landa-
kotshæð, Sunnuhvolstúni og í
Laugardalnum.
mun
Sjálfstæðisflokkurinn
beita sjer fyrir því:
1. Að sem mest verði hraðað
framkvæmdum við þá leik-
velli, sem þegar hafa verið á-
kveðnir.
2. Að nýjum Jeikvöllum verði
komið upp eftir því sem þörf
krefur.
3. Að barnaleikvellir bæjarins
verði jafnan búnir bestu tækj
um og vel sjeð fyrir gæslu
þeirra.
4. Að hraðað verði endurbótum
á skemtigörðum og ný svæði
tekin til notkunar sem allra
fyrst.
5. Að hið fyrirhugaða skemti-
svæði og friðland Reykvík-
inga, „Heiðmörk“, verði girt
á þessu ári og skóggræðsla
hafin þar sem fyrst.
Framhald á bls. 11