Morgunblaðið - 11.01.1946, Qupperneq 16
VEÐURÚTLITIÐ. Faxaflói:
Austan kaldi eða stinnings
kaldi. Víðast úrkomulaust.
ortjntt
STEFNUSKRÁ Sjálfstæðis-
Föstudagur 11. janúar 1946
flokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar. BIs. 9, 10, 11 og
12. —
boyiHunf vil vöruupp-
skipun ú næturlagi
ÞAÐ BAR VIÐ hjer á hafnarbakkanum aðíaranótt miðviku-
dagsins s.l., að lögreglan kom ao, þar sem vörubifreið stóð við
skipshlið leiguskipsins „Empire Gallop“, og var búið að setja
sykurpoka á vörupallinn. Þetta var klukkan að ganga eitt um
nóttina og þótti lögreglunni uppskipun þessi hin kynlegasta.
Voru tveir menn, sem í bílnum vöru, handteknir, en aostoöar-
menn þeirra í skipinu náðust hinsvegar ekki.
Segja það vera skips-
menn.
íslendingarnir tveir, sem hand
teknir voru, segjasj; ekki hafa
haft hugmynd um, að til stæði
nein uppskipun á vörum á bíl-
inn. Saga þeirra er á þá leið, að
þeir hafi fyr um kvöldið hitt
tvo útlendinga innarlega á
Laugavegi og hafi þeir beðið
bílstjórann um að aka sjer til
kunningja sinna tveggja, sem
væru fyrir innan bæ. Segist
bílstjórinn hafa gengið inn á
það. Var það rjett, að tveir út-
lendingar voru fyrir í Sogamýr
inni. — Var síðan ekið nið-
ur að skipinu. — Er þang-
að kom sögðust útlendingárnir
ekki hafa neina peninga til að
greiða bílleiguna, en sögðust
geta borgað með því að láta Is-
lendinga hafa eitthvað í fríðu.
Fóru þeir síðan um borð og Is-
lendingarnir biðu, án þess þó að
hafa trú á því, að þeir fengju
neitt fyrir snúð sinn, að því er
þeir segja.
En rjett á eftir fjell sykurpok
inn á vörupallinn frá skipinu
og lögreglan skarst í leikinn.
Skipverjar á „Empire Gallop“
neita allir að vita nokkuð um
þessa frumlegu uppskipunar-
aðferð. En rannsóknarlögregl-
an hefir málið til rannsóknar.
Nýtt skip, hernumið
í Hamborg.
Skipið „Empire Gallop“, sem
nú er í breskri eign ög með
breska áhöfn, á sjer sína merki
legu sögu, þó stutt sje. Þegar
breski herinn kom til Hamborg
ar í fyrravor, var skip þetta
þar hálfsmíðað. Var það þá
flutt til Bretlands sem herfang
og þar var smíði þess lokið, en
það er nú í fyrstu ferð sinni
eftir að smíði þess var lokið.
Fór það frá Englandi til Amer-
íku og síðan hingað til Islands.
RúíbI. 235 þúsund
rnsnns sélSu Snnd-
! SUNDHÖLLINA sóttu á ár-
inu sem var að líða 235.764
manns, en árið 1344 250.403. —
Hefir aðsókn því minkað nokk-
uð, eða um 14.645 manns.
| Forstjóri Sundhallarinnar,
Þorgeir Sveinbjörnsson, skýrði
jblaðinu frá þessu í gær. Hann
, gat þess, að þetta stafaði aðal-
ilega af fækkun setuliðsm.anna,
I og að í haust, er mænuveikin
hafi gert vart við sig hjer í
j bænum, þá hafi um 1V2 mánuð
dregið mjög úr aðsókn barna.
Karlar sóttu sundhöllina best,
samtals 101.036 og 40.846 dreng
ir. 24.704 konur og 42.650 stúlk
ur komu. — í vegum íþrótta-
fjelaganna sóttu Sundhöllina
23.038 manns. Karlar 2.615 og
konur. 875.
Sundnámskeið þau, er Sund-
höllin gengst fyrir, en þau voru
haldin 10 mánuði ársins, og eru
í hverjum flokki 15 þátttakend
ur, sóttu 767 manns. Þar af 453
börn og 314 fullorðnir.
Alls voru seld 600 mánaða-
kort, fytir karla 523, konur 30,
drengir 39 og stúlkur 8. Þá voru
á árinu seld 273 stúdentakort.
STÚLKAN hjer á myndinni
dó ekki ráðalaus, þegar hún
þurfti að taka sjer ferð á
hendur hjera á dög'unum. Eins
og mönnum mun kunnugt,
hefur verið. mjög erfitt a3
fúrðast í Bandaríkjunum að
undanförnu, og hefur hún bú-
ið sjer til nokkurskonar poka.
svo að sæmilega geti þó farið
I um bamið hennar á leiðinni.
íir-
eyrar
Fjekk nægan áburð.
LONDON: — Maður einn í
Bandaríkjunum ætlaði nýlega
að taka inn aspiríntöflu, en tók
í misgripum áburðartöflu, sem
kona hans notaði á glugga-
plöntur sínar. Varð maðurinn
hræddur um, að þetta hefði ill
áhrif og hringdi í búfræðing,
sem sagði, að hann þyrfti ekk-
ert að óttast, hann hefði aðeins
borðað áburð, sem svaraði
svona einum poka af hrossa-
taði.
Appelsínurnar munu
koma í verslanir
í dag
A PPE LS í NURNA R munu
koma í allar helstu verslanir
bæjarins í dag. — I morgun.
var þegar byrjað að afgreiða
þær til kaupmanna. Það af
appelsínUnum, sem fara á út
um land, mun verða sent með1
fyrstu ferðum. — Með Fjall-
fossi, sem fór vestur og norð-
ur í gærkveldi voru sendar
1 aj>pelsínur.
Þá ákvað Viðskiptaráð há-
marksverð á appelsínurnar í
gær. — 1 smásölu verður kg.
selt á 4 króTiur.
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri. föstudag:
TÓNLISTARSKÓLI Tónlist
arfjelags Akureyrar hóf starf-
semi sína þann 8. þ. mán. •—■
Svo sem kunnugt er, er kenn-
ari í píanóleik, ungfrú Mar-
grjet Eiríksdóttir, en ungfrú-
in er jafnframt skólastjóri.
Nemendur eru nú þegar 28
talsins og má búast við, að
þeim fjölgi á næstu tímum.
— Ennþá er ekki að fullu
gengið frá sameiningu Tón-
listarfjelagsins og annara fje-
laga í bænum, um sameigin-
legan rekstur Tónlistarskól-
ans.
Synti upp í hann.
NEW YORK: — Lazaro Pé-
rez var að synda sjer til gam-
ans í sjó við Guatemalastrend-
ur, er fiskur synti upp í hann
og kæfðijiann.
Morðingi Osmans
Pasha jálar
Cario í gærkvöldi:
TEWFIK ITASSAN ADMED
játaði í dag, að harjn hefði
drepið Osman Pasha, fyrver-
andi fjárrnálaráðherra Egyptá
lands og sýnt Nahas Pasha,
foringja Wafdistaflokksins,
banatilræði. —• ITann játaði
einnig að hafa um meira en
eins árs bil tekið þátt í sanr-
særum gegn breskum hermönn
Um í Egyptalandi. Meðal ann-
ar hefði hann einu sinni skot-
ið á hóp breskra hermanna
KjöUippbótin væntanleg
næstu daga
UPPBÓT SÚ, sem ríkissjóður greiðir á kjötkaup manna frá
20. september s.l. haust, verður greidd til þeirra neytenda, sem
rjett hafa til endurgreiðslu, einhvern næstu daga og annast skrif
stofa tollstjóra endurgreiðslurnar. Þeir, sem rjett hafa til end-
urgreiðslu á kjötkaupum, eiga að fá kr. 4.35 á hvert kíló kjöts,
sem þeir hafa neytt. Mun verða krafist drengskaparvottorðs af
mönnum um leið og endurgreiðslan fer fram um að þeir hafi
keypt það kjötmagn, sem þeir krefjast endurgreiðslu á.
Uppbót á alt að 10 kg.
Endurgreiðslur að þessu sinni
verða fyrir tímabilið 20. sept-
ember til 20. desember og eiga
menn rjett á endurgreiðslu fyr
ir alt að 10 kg. Nemur því end-
urgreiðsla til þeirra, sem keypt
hafa 10 kg. eða meira af kjöti
á þessu fyrgreinda tímabili,
kr. 43.50.
Hjer í bænum munu tæplega
40 þúsund manns hafa rjett til
endurgreiðslunnar, en skrá
hefir verið gerð yfir þá, sem
þessara rjettinda njóta, af
Skattstofunni. Skráin hefir leg
ið frammi og kærufrestur var
útrunninn 10 nóv. s.l.
Þeir, sem ekki fá
uppbótina.
Samkvæmt 2. grein reglu-
gerðarinnar um niðurgreiðslur
hafa ekki rjett til endur-
greiðslu:
þeir, sem hafa sauðfjárrækt að
atvinnu að einhverju leyti;
atvinnurekendur, sem hafa 3
menn eða fleiri í þjónustu
sinni;
þeir, sem fá laun sín greidd
að öllu eða nokkru leyti í fæði.
Þeir, sem taldir eru undir 1.
og 2. lið hjer að framan, fá
ekki heldur niðurgreiðslu fyr-
ir þá, er þeir hafa á framfæri
sínu, en þeir, er taldir eru í 3.
lið, geta fengið niðurgreiðslu
fyrir þá.
Atvinnurekendur samkvæmt
2. lið teljast ekki þeir, sem ein-
göngu hafa menn í þjónustu
sinni, sem ekki taka laun á
nokkurn hátt eftir vísitölu, t. d.
hlutarmenn, sem ekki hafa
kauptryggingu.
Listi Sjálfslæðis-
manna á Stokks-
eyri
Frá frjettaritara vorum Ú
Stokkseyri, miðvikudag:
VIÐ væntanlegar hrepps-
nefndarkosningar hafa komið
frani þrír listar: Sjálfstæðis-
og
Kommúnista. sem eru samein-
aðir og Framsóknarmanna.
Á lista Sjálfstæðismann.a
eru þessir menn:
Bjarni Júníusson, bóndi,i
Símon Stnrlaugsson, útgei'ðar-
FLUGFJELAGIÐ Loftleiðir
h.f. hefir ákveðið að taka upp
reglulegar flugferðir til Vest-
mannaeyja strax og flugvöll-
urinn þar verður tilbúinn. Hef-
ir fjelagið trygt sjer hentuga
flugvjel til þeirra ferða. — Þá
hefir fjelagið og í hyggju að
taka upp fastar flugferðir til
ýmsra nýrra staða, þegar líður
fram á vorið.
Á árinu 1945 voru flugvjel-
ar fjelagsins samtals í 961
klukkustund á lofti. — Fluttir
voru 4327 farþegar, farangur
þeirra og annar flutningur vóg
samtals 36.863 kg. — Af pósti
fluttu flugvjelarnar samtals
8969 kg. — Farið var í 24
sjúkraflug, en alls voru farn-
ar 990 flugferðir. — Alls voru
flognir 194.930 km.
Árið 1945 er annað starfsár
fjelagsins. Á það nú fimm flug
vjelar, einn flugbát tveggja
hreyfla, eina sjúkraflugvjel og
þrjár sjóflugvjelar, með einum
hreyfli.
Frá því að fjelagið hóf starf-
semi sína hafa flugvjelar þess
lent á 56 stöðum víðsvegar á
landinu.
Krisljana Pjeturs-
dóltir forsföðukona
lálin
Frá frjettaritara vorum
Húsavík, föstdag:
I GÆRKVÖLDI andaðist að
heimili sínu Ilúsmæðraskól-
anum á Laugum, ungfrú Krist
jana Pjetursdóttir frá Gaut-
löndum, forstöðukona skólans.
Hún hefir verið forstöðu-
kona Húsmæðraskólans á Laug
um frá stofnun hans, og þrátt
íyrir langvinn veikindi stjórn- ]manna, Jafnaðarmanna
aði hún skólanum til dauða-
dags. —
Skólastjórn hennar er þjóð-
kunn og þótti sjerstök fyrir-
mynd. Kvennaskólinn á Laug-
um hefur vakið eftirtekt vegna
þess hve öllu er þar haganlega | maður, Ámundi Ilannesson,,
fyrirkomið, og skólinn ávalt bóndi, Ásgeir Eiríksson, kaup^
verið sinna ncmenda kærkom-
ið heimili, enda ávalt færri'
fengið skólavist, en um hafa
SÓtt. •)
maður, Guðjón Jónsson, út-
gerðarmaður, Þorgeir B.jarna-
son, bóndi og Stefán L. Jóns-
son, verkamaður.
Listi Sjálfstæðissnanna í Iteykjavík er D-listi