Morgunblaðið - 07.03.1946, Qupperneq 7
Fimtudagur 7 marz 1946
M0S9DNBLÁÐ1*
BEVISSf,
ERNEST Beven, núverandi
utanríkisráðherra Breta og
maðurinn, sem vakið hefir
meiri athygli en flestir meðlim
ir Öryggisráðsins, er 65 ára
gamall. Hann var fæddur í smá
bænum Winsford, foreldrar
hans voru fátækir og honum
fjell það snemma á herðar, að
sjá fyrir sjálfum sjer. Eitt af
því fyrsta, sem hann man eft-
ir, er þá hann fylgdi móður
sinni til grafar. Bevin var þá
sex ára að aldri.
Tíu ára gamall hóf hann
vinnu hjá bónda nokkrum.
Launin voru sex pence á viku,
og ekki leið á löngu, þar til
hann gerði verkfall, til að
knýja fram launahækkun. Bónd
inn rak hann með það sama,
en Bevin náði sjer strax í
vinnu á búgarði, þar sem laun-
in voru einn shilling á viku.
Hinn nýi húsbóndi hans kunni
ekki að lesa, og Bevin las fyrir
hann á kvöldin úr þingtíðind-
um Hansards. Að launum fyrir
þetta aukastarf sitt fjekk hann
sultutau í búðing sinn á sunnu-
dögum.
Bevin stundaði margskonar
atvinnu, eftir hann hætti vinnu
sinni á búgarðinum. Um tíma
ók hann flutningavagni, síðar
starfaði hann við hótel, en gerð-
ist eftir það sölumaður og spor-
vagnsstjóri. Á kvöldin stund-
aði hann nám ókeypis í einum
af skólum jafnaðarmanna, eða
drakk romm og kaffi og ræddi
um hin ýmsu böl verkamanna-
stjettarinnar. Að því kom, að
hann gerðist áhugamaður um
málefni og verklýðsh.reifingu
hafnarverkamanna í Bristol, og
hann hóf innreið sína í verk-
lýðshreyfinguna á jóladag,
1908, með því að safna fje hjá
efnuðum kirkjugestum til
styrktar atvinnulausu fólki.
Þegar Winston Churchill,
hinn vingjarnlegi óvinur hans,
gaf honum sæti sem atvinnu-
málaráðherra í stjórn sinni
1940, var Bevin orðinn yfir-
maður Transport og General
Workers Union, en það er eitt
stærsta verklýðsfjelag verald-
arinnar (meira en 1,000,000
meðlimir).
Það, að Bevin hefir komist
til slíkra virðinga, mun hann
eiga að miklu leyti því að
þakka, að hann hefir til að
bera mörg einkenni almúga-
mannsins. Hann er óvenju sterk
ur — eitt sinn fleygði hann
einum andstæðinga sinna af
bryggju í Bristol. Hann er ó-
myrkur í máli — eitt sinn ljet
hann í ljósi þakklæti sitt við
bankastjóra nokkurn, sem veitt
hafði honum ríkulega á heimili
sínu, með eftirfarandi orðum:
,Það er vissara fyrir náunga af
ykkar tagi, að gera það sem þið
getið núna, því þegar við kom-
umst til valda, munum við ríða
ykkur að fullu.“
Hatar cinræði.
BEVIN hefir sterka trú á
því, áð greiða beri verkamönn-
um hærri laun, kann illa við
sig innan um menn, sem taldir
eru „hærra“ settir í þjóðfjelag-
inu, og hatar allar einræðis-
stefnur. Þó bregður því ekki
ósjaldan við, að hann beiti að-
ferðum einræðisherrans, og
hann hefir ánægju af völdum
UTANRÍKISRÁÐHERRA BRETA
Hann er svarinn fjandmaður
kommúnismans og eindreginn
formælandi alþjóðasamvinnu
Emest Bevin utanríkisráðherra Breta ræðir við Vyshinski full-
trúa Rússa á þingi sameinuðu þjóðanna í London fyrir skömmu.
sínum og er óþolinmóður með
afbrigðum. Hann hefir komist
að þeirri niðurstöðu, að hánn
hafi verið eitthvað meira en
rjettur og sljettur formælandi
hafnarverkamanna, og þessu
hefir verið samfara sú skoðun
hans, að hann sje nokkurs kon-
ar „maður foi'laganna.“
Bevin lifir fremur einmana-
legu lífi með konu sinni, Flor-
ence, og býr venjulega í lítilli
íbúð á efstu hæð í húsi því,
sem utanríkisráðuneytið er í.
Honum er illa við að láta ónáða
sig og vill hafa sem minnst mök
við blaðamenn. Frjettaritari við
blað nokkurt hefir komist svo
að orði: „Eina ráðið, til þess
að ná tali af honum, er að
hringja í utanríkismálaráðu-
neytið og segja með ákveðinni
rödd: „Efstu hæð, gjörið þjer
svo vel.“
Eftir sigur verklýðsflokksins,
árið sem leið, komu sigurveg-
ararnir saman á fund, til að á-
kveða, hverjir skyldu skipa
ráðherraembætti hinnar nýju
stjórnar. Clement Attlee var
sjálfsagður sem forsætisráð-
herra, því aðeins undir forustu
hans mátti vænta þess, að Bevin
og Herbert Morrison gætu unn-
ið saman, en hin vingjarnlega
framkoma þess síðarnefnda
hefir haft það í för með sjer,
að stuðningsmenn . hans munu
mun fleiri en Bevins.
Vildi verða
fjármálaráðherra.
BEVIN vildi sjálfur fá fjár-
mál ríkisins í sína umsjá. Hann
komst svo að orði: „Látið mig
vera fjármálaráðherra í fimm
ár, og jeg mun gerbreyta þessu
landi á svo eftirminnilegan
hátt, að enginn geti breytt því
aftur.“ Svo varð þó ekki. Ernest
Bevin varð utanríkisráðherra
nýju stjórnarinnar.
Bevin reyndist mun betri
utanríkisráðherra en ýmsir í
utanríkisþjónustu Bretlands
höfðu gert ráð fyrir. Og hann
hafði meira vit á utanríkismál-
um en þessir sömu menn höfðu
búist við. Hann ljet yfirleitt
flesta þá, sem gert höfðu sjer
utanríkismál að atvinnugrein,
halda stöðum sínum. En hon-
um vantar en framúrskarandi
menn í ýms mikilsverð em-
bætti. Sir Archibald Clark Kerr
er fremstur í röð sendiherra
hans, en hann var nýlega kall-
aður heim frá Moskva, því þar
þóttu hæfileikar hans ekki njóta
sín nógu vel.
Bevin umgengst yfirleitt lít-
ið starfsfólk sitt á skrifstof-
unni. Hann hefir ánægju af
glasi af víni og samræðum, en
á erfitt með að skapa sjer nýja
vini. Þó ávann hann sjer hylli
hins illalaunaða starfsfólks ut-
anríkisráðuneytisins, með því
að gangast fyrir kauphækkun
því til handa. Þegar einhver
minntist á það, að Hugh Dalton,
fjármálaráðheira kynni að
hafa eitthvað á móti þessu,
sagði Bevin: „Jeg mun taka í
endann á þeim ágæta manni
og sveifla honum yfir höfði
til hann lætur
asta staðreyndin er sú, að
breska heimsveldið hefir breyst
frá því, að Bevin á unga aldri
las þingfrjettir fyrir bóndann
uppi í sveit. Þegar Bevin tók
við utanríkisrúálum landsins,
var það að hefja langdregna
og ef til vill ákaflega erfiða
baráttu fyrir lífi sínu. Önnur
orustan um Bretland verður ef
til vill ekki eins mikilfengleg
og sú fyrsta.
Loftið yfir Bretlandi verður
máske ekki eins dimt og þegar
Churchill stóð á hátindi frægð-
ar sinnar, en allar líkur benda
til þess að það verði að minnsta
kosti drungalegt. Aldrei áður
í sögunni hefir í'eynt eins mjög
á þau bönd, sem binda saman
breska heimsveldið, og einmitt
nú. "
Mönnum er þegar orðið ljóst,
að Ernest Bevin gerðist ekki
utanríkisráðherra konungsins í
því augnamiði, að leysa breska
heimsveldið upp. Hvort sem
hann er verklýðssinnaður eða
ekki, er Bevin staðráðinn í, að
berjast fyrir rjettindum breska
heimsveldisins. Og við því er
búið, að hann sýni dugnað sinn
við samningaborðið, eins-og svo
oft áður. Hann er ákveðinn að
berjast — eins og hann hefir
barist á þingi Sameinuðu þjóð-
anna fyrir því, að ná samkomu
lagi við Rússa, án þess að láta
undan öllum kröfum þeirra.
Ovinur kommúnista.
HEIMSVELDISSTEFNAN ein
nægir ekki, ef skýra á, hvað
það er, sem aðgreinir stefnur
Rússa og Stóra-Bretlands. Gaml
ar kenningar og kreddur hafa
engin áhrif á skoðanir Bevins,
en hann hefir mikið hatur á
kommúnismanum. Honum er
kommúnisminn vel kunmir,
enda hefir hann oftar en einu
sinni barist gegn honum. Hon-
um er það vel ljóst, að þegar
alþjóðasamvinnu, en harm berst
einnig fyrir konung sinn og
þjóð. Á þennan veg hefir hann
áunnið sjer fylgi þeirra miljena,
sem trúa bæði á fullveldi em-
stakra ríkja og alþjóðastjórn.
í margra augum hefir hann
allt í einu orðið hinn mikli-
verndari Vestur-Evrópu. Ásamt
stjórnmálaflokki sínum, hefir
Bevin þá skoðun, að menn geti
verið frjálsir, enda þótt þe.ir
þurfi að hlýða lögákveðnum
reglum einhvers stjórnarkerfis.
En kenningar Bevins, frelsi
og sósíalismi, rekast ekki á.
Fátækt hans í æsku kenndi hon
um að meta fjárhagslegt ör-
yggi meir en einstök tækifæri
til fjáröflunar. -
Mið-Evrópusðfnun
R. K. í.
Þórarinn ‘ Einarsson, Höfða,
Vatnsleysuströnd 25.00. Smúel
Eyjólfsson, Þórustöðum 100 00.
Frá Kálfatjörn 50.00. Huld Ell-
ertsen 20.00. Frá Bakka 20.00.
Ingim. Guðmundsson, Litlabæ
50.00. Guðmundur Einarsson,
Landakoti 25.00. Unnur Þór-
arinsdóttir, Höfða 10.00. Ó. J.
T. D. 50.00. N. N. 50.00. M. B.
100.00. Einar Örn 100.00. N. N.
100.00. Helgi 50.00. Sigrí'ð'ur
10.00. Safnað af Karli Helga-
syni, Blönduósi 2610.00. N. N.
100.00. K. M. 30.00. V. K. 50 00.
M. B. P. og börn 100.00. Dagný
— úr sparibauk 48.95. Berglind
— úr sparibauk 49.45. BókfelV
h.f. og starfsfólk 1650.00. N. Ní.
50.00. Móttekið í Reykjavíkur
Apóteki: S. E. 75.00. Gömul
kona 20.00. Sigga og Erlengur
50.00. G. G. 50.00. Tóta 10J)0.
N. N. 20.00. Salka Valka 50.00.
Sigurður Elíasson 50.00. Vil-
borg Guðnadóttir 30.00. Einar
100.00. Gíslina Jónsdóttir 50 00
N. N. 100.00. Jón Sigurðsson
10.00. N. N. 10.00. K. S. 100.00.
Ásta Ólafsódttir 10.00. Fríö'n
Gústafsdóttir 10.00. Guðrún
Ólafsdóttir 10.00. Geirlaug og
Kristján 100.00. Fjölskylda
200.00. Gróa 10.00. Björg og
Áslaug 25.00. D. G. F. 50.00.
Börn í Vesturbænum 50.00.
Edda Óskarsdóttir 158.12. S.
Björnsd. 100.00. K. K. 50.00.
Helga og Hulda 20.00. N. N.
100.00. Kristján Sigurmundsson
500.00. Þórunn Guðmundsdótt
ir 100.00. N. N. 100.00. Guðrún
„ .. . . ,. .., Figved 150.00. V. S. G. 50.00.
Kalmin, forseU Raðst]ornar- t B Á 20 00 N N 10.00. Bi ir
v'ilrionnn niíct Ltw11m ' -•
og Ragnar 10.00. Olafur Jó-
ríkjanna, rjeðist að hinum
„afturhaldssömu verklýðsflokks
mönnum“ Evrópu. hafði hann
hann fyrst og fremst í huga.
Bevin veit það ósköp vel, að
dýpið milli Rússlands og Vest-
ur-Evrópu verður ekki brúað
svo lengi sem Rússar líta á það
sem lýðræði, að aðeins einn
flokkur og einn frambóðslisti
sje leyfilegur, haft sje eftirlit
mjer, þangað til hann lætur með dagblöðum og stuðst við
undan.“ j leynilögreglu. Honum er það og
Sem utanríkisráðherra, hefir j að frelsi Það, sem tiðkast
Bevin fylgt stefnu Edens, fyr- ’
irrennara síns. Ekki er langt
síðan hann sagði við vin sinn:
„Allir vænta þess, að jeg breyti
utanríkisstefnu okkar. Þetta
fólk gleymir því, að staðreynd-
irnar breytast aldrei.“
Breytt viðhorf.
EN nýjar staðreyndir taka
við af þeim gömlu. Raunaleg-
víðast hvar í löndum Vestur-
Evrópu, er um þessar mundir
óvelkomið víða í veröldinni, en
hann trúir enn á það, og þegar
hann ljet til sin heyra á þingi
Sameinuðu þjóðanna, gerði
hann það í þeirri bjargföstu
trú, að hægt sje að halda uppi
málstað frelsisins hvar sem er
í heiminum.
Bevin er enginn öfgakendur
alþjóðasinni. Hann berst fyrir
hannesson 50.00. G. B. B. 100.00
Versl. G.A.M. 500.00. L. og G.
50.00. Ragnhildur Sigurjónsd.
100.00. Ingimar Vilhjálmsson
50.00. Helga og Sigrún 20.00.
5 systkini 500.00. S.B.H. 50.00.
N. N. 30.00. N. N. 20.00. U. G.
100.00. Halli 100.00. A.M. 50.00.
Tvö systkin 200.00. Elly 10.00.
N. N. 10.00. I. S. 10.00. Einar
Jónsson 2.00. N. N. 30.00. Anna
og Daddi D. 100.00. Halldóra
Kristjánsdóttir 20.00. N. 100.00
Lítill drengur 100.00. Efemía
Waage 50.00. Anna S. Krist-
jánsdóttir 100.00. Ónefndur
50.00. Auður ísólfsdóttir 10.00.
Tvö systkin 400.00. Ó. E. 50.00.
Sigríður Einarsdóttir 21.0ð.
Pússi, Hulda, Ragnar 50.00.
Dagbjartur Guðjónsson 2ð,0ð.
Eyrún Guðjónsdóttir 10.00. N.
N. 20.00. Þ. Á. G. 200.00. E..R.
100.00. N. N. 20.00. Alls mót-
tekið 15. febr. kr. 11.409.52.
Kærar þakkir.
Rauði Kross íslands.