Morgunblaðið - 16.03.1946, Side 1
16 síður
33. árgangur. 62. tbl. — Laugardagur 16. mars 1946 ísafoldarprentsmiöja h.f.
RÚSSAR VAÐA UPPI í PERSÍU
CHURCHILL: ..TRÚI EKKI Á FRIÐSLIT”
Svara ekki orðsendingu
Bandaríkjanna
það er undir leiðtogum Rússa
komið, hvort friður helst“
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HERMÁLARÁÐHERRA Persíu sagði í viðtali við
Blaðamenn í dag, að ef þörf kræfist, mundi persneski
herinn grípa til vopna, og að hann væri fullviss, að hver
einasti íbúi Teheran, konur og karlar, mundi leggja fram
krafta sína höfuðborg sinni til varnar Her Persa er
áætlaður um 90.000 manns.
Þá lýsti ráðherrann því yfir, að Rússar
hefðu nú fjórfaldað herafla sinn í borg
einni, sem er aðeins 36 mílur frá Teheran, og
flytja þeir þangað mikið af hermönnum og
skotfærum að næturlagi. í Azerbaijan hafa
Rússar þrefaldað herafla sinn
Byrnes, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefir yfirleitt
varist allra frjetta í sambandi
við þetta, og neitað að láta
nokkuð uppi um það, hvort
Bandaríkin muni krefjast þess,
að Persíuvandamálið verði tek-
ið fyrir í Oryggisráðinu, sem
saman kemur 25. þessa mán-
aðar.
Rússar við landamæri
Tyrklands.
Persíuvandamálið virðist
verða flóknara með hverri
klukkustund sem líður. Fregn-
ir hafa borist um það, að Rúss-
ar hafi flutt allmikið af her-
afla sínum í Persíu að landa-
mærum Tyrklands, og hefir það
vakið eftirtekt í sambandi við
þessa liðsflutninga, að ameríska
orustuskipið Missoury er nú á
leið til landsins. Flotamálaráðu
neyti Bandarikjanna hefir í
þessu sambandi neitað að stað-
festa eða bera til baka þá fregn,
að öflug bresk flotadeild muni
verða Missoury samferða til
Tyrklands.
Orðsendingu Bandaríkjanna
ekki svarað.
Ekkert svar hefir enn borisþ
við orðsendingu Bandaríkja-
manna til Rússa varðandi liðs-
flutninga þeirra til Persíu. Orð-
sending þessi var send Rúss-
um s. 1. þriðjudag. Þó má ef
til vill líta á það sem hálf-
opinbert svar, að því hefir ver-
ið lýst yfir opinberlega í Rúss-
landi, að rússneski herinn
. muni verða látinn hafa til um-
ráða öll nýtísku vopn, sökum
þess að „kapítalisminn hafi
nýjar árásir í undirbúningi“.
Tveir menn láta lífið í
sprengingu.
LONDON: Tveir menn ljetu
lifið og um þrjátíu særðust í
sprengingu, sem varð í morg
un í járnbrautarviðgerðar1'
stöð í borginni Manchester,
Englandi.
Bandaríkjamenn
vilja efla verslun
Þjóðverja
Berlín í gærkvöldi.
AMERÍSKA frjettaistofan í
Þýskalandi tilkynnti í dag, að
yfirstjórn bandaríska hernáms
liðsins þar í landi hafi borið
fram þá tillögu við hernáms-
stjórnir Frakka, Breta og
Rússa, að hernámsstjórnirnar
reyni að komast að samkomu-
lagi um aðgerðir til viðreisnar
útflutnings (>g innflutnings-
verslunar Þýskalands. Ekki er
enn vitað, hvaða móttökur
þessi tillaga Bandaríkjamanna
mun fá, en ólíklegt er talið að
Frakkar verði henni samþykk-
ir. — Reuter.
Þjóðarafkvæða-
greiðsla í
Færeyjum í sumar
K.-höfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
SAMNINGUM' Dana og Fær-
eyinga má pú heita lokið, en
niðurstöðunum er enn haldið
leyndum. Politiken segir að
þjóðaratkvæðagreiðsla skuli
fram fara í Færeyjum um það,
hvort eyjarnar skuli vera full-
komlega sjálfstæðar, eða á-
fram í tengslum við Dani.
—Páll.
KVENLEYNILÖGREGLA
LONDON: Fyrstu 20 ensku
kvenleynilögregluþjónarnir eru
nýkomnir á leynilögregluþjóna
skóla við Lóndon. Kvenleyni-
lögregluþjónum mun verða
fjölgað mjög á Bretiandi á
næstu árum.
New York í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsnis frá Reuter.
í RÆÐU, SEM WINSTON CHURCHILL FLUTTI í kvöldveislu, sem New York
borg hjelt honum til heiðurs að Waldorf Astoria í kvöld, sagði hann m. a.:
„Jeg trúi því ekki að styrjöld sje yfirvofandi, eða óhjákvæmileg. Jeg trúi því
ekki að valdhafarnir í Rússlandi óski eftir styrjöld eitis og stendur“. Churchill
sagði ennfremur að framfarir í heiminum og frelsi fyrir allar þjóðir heims, myndi
ekki verða að veruleika nema, að fylgt yrðí út í æsar fjelagsmálastefnu Breta og
Bandaríkjamanna.
Undir leiðtogum Rússa komið.
„Það mun ekki hafa nein áhrif á skoðanir mínar hvað aðrir kunna að segja til
að veikja hug rninn og aðdáun mína á rússnesku þjóðinni, nje þá einlægu von
mína, að Rússland eigi að vera trygt og rússneska þjóðin eigi að blómgast og eigi
að vera meðal forystuþjóða heimsins. H\ ort svo verður er algjörlega komið undir
nokkrum duglegum mönnum, sem hafa 180 miljónir Rússa og margar milj. manna
utan Rússlands í greip sinni.“ .^v
Vilja vináttu við Rússa.
Hinar enskumælandi þjóðir vildu vinna með Rússum á
lieiðarlegum og jafnrjettis grundvelli, sagði ræðumaður. Ef
rússneska stjórnin notaði sjer ekki þá góðvildr sem ríkti í
garð rússnesku þjóðarinnar meðal hinna enskumælandi
þ'ióða, þá yrði hún að bera ábyrgðina.
Ef Rússar vilja kúga Tyrki . . .
„Ef Rússar eru ákveðnir í því að kúga Tyrki, þá verður
undir eins að leggja það mál fyrir Öryggisráð sameinuðu
þjóðanna.
Churchill kvaðst aldrei hafa farið fram á hernaðarbandalag
eða sáttmála milli Breta og Bandaríkjamanna. Hann sagði:
„Jeg fór fram á frjálst bróðurlegt samfjelag“.
,.Það er ekkert, sem getur komið í veg fyrir að þessar
þjóðir færist stöðugt nær hvor annari og ekkert getur dregið
úr þeirri staðreynd, að í samstilltri samvinnu þeirra býr
aðalvon heimsins í því að viðhalda friði á jörðu og góðri
vináttu og samlyndi. meðal allra manna.
Winston Churchill.
Anders hershöfðingi
ræðir við Attiee
London í gærkvöldi.
WLADYSLAW Anders, hers-
höfðingi pólska hersins í Italíu,
átti í dag langar samræður við
Attlee forsætisráðherra og
Bevin, utanríkisráðherra Breta.
Búist er við að samræður þess-
ar hafi eingöngu snúist um
framtíð pólskra hermanna utan
heimalands síns, en eins og
kunnugt er, er meiri hluti her-
mannanna þvi mótfallinn, að
snúa heim. Viðstaddir viðræð-
urnar voru ýmsir háttsettir
menn úr her og flota pólsku
útlagastjórnarinnar fyrverandi.-
SKIPI BJARGAÐ
LONDON: Breska gufuskip-
inu Lesto, 1893 smálestir að
stærð, sem skemdist mjög í of-
viðri, var dregið inn í Humber-
ósa, eftir að hafa sent frá sjer
neyðarskeyti.
Churchill fagnað í New York.
Churchill var fagnað í New York. Hann ók um borgina,
samtals 16 km. með yfirborgarstjóranum og fylgdarliði.
Rigning var í New York, en samt var mikill mannfjöldi að-
íagna Churchill á götunum. — Kommúnistar höfðu talsverð
an viðbúnað til þess að sýna andúð sína á Churchill. Þeir
liengdu upp auglýsingar og útbýttu prentuðum miðum, þar
sem á stóð: „Churchill vill fá son þinn“. „Við viljum ekki
Churchill og þriðju styrjöldina“ o. s. frv. Við ráðhús borgar-
innar höfðu um 1000 kommúnistar saðiast saman og blönd-
uðust illyrða hróp þeirra og skámmaryrði til Churchills,
íagnaðarlátum fjöldans. Um-20 manns voru handteknir fyrir
ólæti á almannafæri.
Kanadiskur þing-
maður handfekinn
London í gærkvöldi.
RANNSÓKNUM er haldið
áfram í njósnamálinu í Kanada
og hafa fjórir menn nú verið
handteknir til viðbótar þeim
fjórum, sem teknir voru fastir
fyrir skömmu. Meðal þeirra,
sem nú hafa verið handteknir,
er einn þingmaður, Fred Rose
að nafni,
Stjórnarsklffi
í Rússlandi
ÚTVARPIÐ í Moskva til-
kynnti í kvöld, að Stalin
hefði sagt af sjer fyrir sína
hönd og stjórnar sinnar og að
meðlimir æðstaráðs Sovjet-
ríkjanna hafi farið fram á það
að Stalin marskálkur taki að
sjer myndun nýrrar stjórnar.