Morgunblaðið - 16.03.1946, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.03.1946, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 16. mars 1946 Húsmæður vilja mjólk á flöskum Þær vilja einnig fá auka-skaml af smjöri HÚSMÆÐRAFJELAG REYKJAVÍKUR hjelt nýlega fund, þar sem skoráð var á ríkisstjórnina að auka smjörskamtinn. — Þá beindu húsmæðurnar þeim tilmælum til forráðamanna Mjólk- ursamsölunnar, að mjólkin verði seld í lokuðum flöskum. — Þá ljetu þær einnig í ljós óánægju yfir óþrifnaði í fiskbúðum. — Fjelaginu hefir verið boðið að senda fulltrúa á mót húsmæðra í Kaupmannahöfn í sumar. Ovsður í Bretlandi Óveðursamt hefir verið í Bretlandi undanfarnar vikur og er sagt versta veður, sem komið hefir þar í landi undanfarin 50 ár. — Skifst hefir á rok og rigning og flóð hafa valdið mikillri eyðileggingu víðsvegar um Bretlandseyjar. — Þessi mynd, sem tekin er úr flugvjel er. frá Tewkesbury og sjást á henni hvernig akrar og vegir eru undir vatni. Göring fyrirskipaði loft- árásirnar á Coventry Taldi borgina miðstöð flugvjelaframleiðslu Brefa GÖRING marskálkur gerði í dag loftárásir Þjóðverja á Rotter- dam, Coventry og Varsjá að umtalsefni sínu. í sambandi við sþrengjuárásirnar á Coventry sagði Göring, að hann hefði þar ráðið öllu um, en hvað árásir Þjóðverja á Varsjá snerti sagðist hann geta lagt fram skýrslu frá hersendinefnd Frakka í borginni, sem sýndi það svart á hvítu, að þýski loftflotinn hefði eingöngu ráðist á hernaðarmannvirki borgarinnar. Auka smjörskamtur. Viðvíkjandi auka smjör- skamti var þessi tillaga sam- þykkt: Húsmæðrafjel. Reykja- víkur beinir þeirri eindregnu ósk til ríkisstjórnarinnar, að út hlutað verði auka skammti af smjöri, þar eð vitað er að þeg- ar veittur smjörskamtur er löngu genginn til þurfðar á flestum heimilum bæjarins. Askorun til Mjólkursamsölunnar. Tillaga sú er fundurinn gerði í mjólkurmálum bæjarins var svohljóðandi: Húsmæðrafjelag Reykjavíkur beinir þeirri á- skorun til forráðamanna Mjólkursamsölunnar, að flýtt verði sem allra mest fyrir því að hægt verði að fá neyslu- mjólk á tilluktum flöskum. Fleiri mjólkurtegundir. Þá telur fjelagið að til bóta yrði, að fleiri mjólkurtegundir, væru fáanlegar, svo sem áir og undanrerina, sem húsmæður telja góðar og hentugar vörur til hversdagsnotkunar. Enn- fremur álítur fjelagið, að flokk un mjólkurinnar eftir gæðum, ýrði til mikilla bóta. Meira hreinlæti í fiskbúðum. Sú skoðun kom fram á fundinum að í mörgum fisk- báðum bæjarins væri hrein- læti mjög ábótavant. — Taldi funaurinn brýna nauðs.vn bera til að úr þvi væri bætt hið bráðasta. — Var samþykkt að skora á heilbrigðisnefnd bæj- arins, að láta þetta mál til sín taka og hlutast til um aukið hreinlæti á fisksölustöðum bæjarins og meiri vöruvönd- un. Kveðjur frá dönskum húsmæðrum. Formaður fjelagsins, frú Jónína Guðmundsdóttir, las Upp brjef frá danskg Hús- mæðrafjelagasambandinu. — í brjefi þessu býður það Hus- mæðrafjelagi Reykjavíkur þátt töku í móti, er haldið verður í maí á vegum þess í Kaup- mannahöfn. Samþykkti fund- urinn að taka boðinu, og senda þangað fulltrúa, ef mögulegt reynist. Þá voru skemtiatriði. — Kvikmyndasýning, frá Sviþjóð. — Upplestur, frú Kristín Sig- urðardóttir. — Þær María Maack, Soffía Ólafsdóttir og Guðrún Jónasson tóku 'einnig til máls á fundi þessum. — Að lokum var sameiginleg kaffi- drykkja og uð henni lokinni dans stigínn. Fundur þessi var mjög vel sðttur, hvert sæti var skipað. Einvígi um skák- meistaratitiiinn Landsliðskepninni lokið. NÍUNDA og síðasta um- íerð í landsliðskepni Skák- sambands íslands lauk í gær- kvöldi. Úrslit urðu þau, að Guðmundur Ágústsson vann Óla Valdimarsson. Guðmund ur S. Guðmundsson vann Árna Snævarr. Lárus John- sen vann Eggert Óilfer og Magnús G. Jónsson vann Benoný Benediktsson. Heildarúrslit mótsins urðu þessi: nr. 1 og 2 Guðmundur Ágústsson og Guðmundur S. Guðmundsson, 5% vinning hvor, 3. Árni Snævarr, 5 vinn inga, 4. Lárus Johnsen, 414 vinning, 5.—7. Jón Þorsteins- son, Magnús G. Jónsson og Eggert Gilfer, 4 vinninga hver, 8. Óli Valdimarsson. 2 vinninga og 9. Benóný Bene- diktsson, 114 vinning. Efsti maður í landsliðskepn inni hefir rjett til^þess að skora á skákmeistara íslend- mga til einvígis um titilinn. — Guðmundur Ágústsson hefir ákveðið að nota sjer þennan rjett og tefla þeir Ás- mundur Ásgeirsson, núver- andi skákmeistari og hann einvígi um titilinn einhvern- tíma á þessu ári, en ekki er enn ákveðið, hvenær það verður, ef til vill ekki fyrr en í haust. Landslið Skáksambands ís- lands er nú þannig skipað: Nr. 1 Ásmundur Ásgeirsson, nr. 2 Guðmundur Ágústsson, nr. 3 Guðmundur S. Guð- mundsson, nr. 4 Árni Snæv- arr, nr. 5 Lárus Johnsen, nr. C Jón Þorsteinsson, nr. 7 Magnús G. Jónsson og nr. 8 Eggert Gilfer. Verkfalli 11.000 breskra bifvjela- virkja afljett London í gærkveldi. TILKYNNT hefir verið opin- berlega í London, að samkomu lag hafi nú náðst í verkfalli því, sem 11,000 verkamenn Ford-verksmiðjanna í Dagen- ham, Bretlandi, stofnuðu til fyrir skömmu síðan. Samkomu- lag þetta náðist eftir rúmlega þriggja stunda viðræður, sem fram fóru í atvinnumálaráðu- neytinu breska. Talið er víst að framleiðsla muni geta hafist aftur strax á mánudagsmorg- un. — Reuter. Göring kom og nokkuð við sögu listaverkarána Þjóðverja, og sagði Hitler hafa haft í hyggju að flytja á brott öll þau listaverk, sem geymd haíi verið í listaverkasafni Frakka í Louvre. Flytja átti listaverkin til Austurríkis og koma þar á fót miklu og fjölbreyttu lista- safni. Þá gerði Göring nokkra grein fyrir því, hvers vegna hann hefði valið Coventry sem heppi legustu bráðina handa sprengju flugvjelum sínum. Sagði hann að Hitler hefði að vísu viljað beina þýsku sprengjunum aðal- lega að London, en hann sjálf- ur, Göring, hefði hins vegar haft gögn í höndum, sem bentu til þess, að meginaðsetur flug- vjelaframleiðslu Breta væri í og utan við Coventry. í sam- bandi við sprengjuárásir á kirkjur, kvaðst hann vilja taka það fram, að hann hefði gefið flugmönnum sínum ströng fyr- irmæli um, ,,að ráðast ekki und ir neinum kringumstæðum á faliegar kirkjur í gotneskum stíl“. Utvarpið 8.30 Morgunútvarp. 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukensla, 2. fl. 19.00 Enskukensla, 1. fl. 19.25 Samsöngur (plötur). 20.00 Frjettir. 20.20 Leikrit: Mærin frá Orle- ans“ eftir Schiller (leikstjóri Soffía Guðlaugsdóttir). 22.00 Frjettir. Skýrsla Kvennaskól- ans í Rekjavík 1940-1945 SKÓLASKÝRSLA Kvenna- skólans í Reykjavík fyrir árin 1940—’45 er nýkomin út. Hefst hún á .grein eftir Ragnheiði Jónsdóttur, fo’stöðukonu skól- ans, í tilefni af 70 ára afmæli skólans 1. okt. 1944. Efni að öðru leyti er sem hjer segir: Minningargrein um Ingibjörgu H. Bjarnasor, fyrv. .forstöðukonu skólans, eftir Ragnheiði Jónsdóttur, lög Styrktarsjóðs kennara við Kvennaskólann í Reykjavík, lög Styrktarsióðs Ingibjargar H. Bjamason, minnst frú Guð- rúnar J. Briem og látinna kenn- ara og einnig sagt frá núver- andi stjórn skólans. Þá er skýrsla um kennara o.g' nem- endur skólans árið 1939—1945 og skýrt frá því, sem lesið var í skólanum skólaárið 1944—45. Sagt frá verkefnum við burt- fararpróf 1945 og einkunnum við burtfararpróf þessi ár. Þá er skýrt frá styrkveitingum og reikningum sjóða. Loks eru stuttar greinar um bokasafn nemenda Kvennaskólans, Nem- endasamband skólans, fielags- skap námsmeyja, inntöku nem- enda I skólann og niðurlags- orð eftir Ragnheiði Jónsdótt- ur. Bónaðarráð — Raforkulög — Tunnusmíði ATKVÆÐAGREIÐSLA fór fram í Ed. í gær um frumvarp- ið um búnaiaráð. Var það samþ. með 7:5 atkv. og endur- sent Nd. Raforkulögin. Frumvarp til raforkulaga var sömuleiðis sent Nd. Nokkr- ar breytingatillögur voru born- ar upp við 3. umr. og flestar samþykktar. Var sú merkust við 50. gr. frá Bjarna Bene- diktssyni, þess efnis að Sþ. kjósi :neð hlutfallskosningu 5 manna raforkuráð, er vera skal ríkisstjórninni til aðstoðar í raforkumálum. Ráðið skal kos- ið til fjögurra ára í senn, og’ skipar ráðherra formann úr hópi þeirra, sem Alþingi hefir kosið. Tunnusmíði. Frv. um tunnusmíði var til 1. umr. Gerði atvinnumálaráð- herra grein fyrir því. Gat hann þess, að það væri óheppileg breyting, sem Skúli Guðmunds- • son kom inn í frv. í Nd., um að síldarútvegsnefnd ætti að hafa stjórn verksmiðjunnar á hendi. Það hefði tíðkast. að er- lendir síldarkaupendur kæmu með tunnur með sjer oe byðu oft hagkvætnari kjör en ís- lenskir tunnuframleiðendur. Það væri því óeðlilegt að um leið og síldarútvegsnefnd væri að semja um sölu á síldinni, þá væri hún að keppa við sömu menn um tunnur. Þetta gæti skapað nefndinni óhentuga að- stöðu. Gísli Jóncson gagnrýndi frumvarpið nokkuð. Sjerstak- lega það, að verksmiðjan ætti að verða skatt- og utsvars- frjáls. Kvað þetta órjettmætt gagnvart öðrum fyrirtækjum, sem veittu sambærilega at- vinnu í kaupstöðum út um land. Frv. var vísað til fjár- hagsnefndar. Frakkar enn áhyggjufullir vegna Spánarmálanna UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Frakka hefir ákveðið að endur- nýja áskorun sína til Oryggis- ráðsins, er það kemur saman í New York 25. þ. m.. þess efnis, að það taki ástandið á Spáni til athugunar. í fyrri orð sendingu sinni til Öryggisráðs- ins ljet franska stjórnin í ljós álit sitt, að heiminum stafaði hætta af stjórnarfarinu á Spáni. Bandaríkjastjórn og stjórn Breta Ijetu hins vegar í ljós í svörum sínum við frönsku orðsendingunni, að þær gætu ekki fallist á þetta, en í yfirlýsingu, sem birt var um sama leyti í Moskva, taldi rússneska stjó>'nin að taka bæri sterkari tökum á Francostjórn- inni. Megin ástæðan fyrir hinni nýju áskorun íranska utanríkis ráðuneytisins mun sú, að talið er að Franco hafi dregið sam- an stóran her Spánarmegin landamæranna — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.