Morgunblaðið - 21.11.1946, Qupperneq 1
16 síður
33. árgangur. 264. tbl. — Fimtudagur 21. nóvember 1946 ísafolöarprentsmiðja h.f.
Grafreitur Jónasar Guðlaugsso nar skdlds
seldur og aska annars manns grafin þar
tefja é
pra i á komandi vertl
ÞAÐ er óhætt að kveða svo sterkt að orði, að stöðvun fiski-
•fiotans sje skollin á“, sagði framkvstj. Landssambands ísl. út-
vegstóanna, Jakob Hafstein, er hann og form. L.Í.Ú. ásamt
íundarstjóra fulltrúafundar sambandsins. Ólafi B.
Björnssyni, boðuðu blaðamenn á sinn fund í gærkveldi. Tuttugu
útgerðarmannafjelög vígðsvegar á alndinu hafa tilkynnt að þau
sjái sjer ekki fært að gera skip sín út á komandi vertíð að
óbreyttum aðstæðum.
Jónas Guðlaugsson skáld.
'Engin vetrarvertíð.
Svo sem kunnugt er, hefir
fulltrúafundur LÍÚ, sem setið
hefir að störfum að undan-
förnu, bént á það að raunveru-
lega væri komin stöðvun á fiski
skipaflotann og myndi engin
vetrarvertíð verða, ef ekki tæk-
ist að leysa vandamál þau, sem
útgerðin á við að stríða. Þetta
álit fundarins hefir ekki verið
vjefengt, en til frekari stað-
festingar á því, að svo væri kom
ið, sendi stjórn landssambands-
ins öllum deildum þess skeyti
þess efnis, hvort útgerðarmenn
tóyndu treysta sjer til þess að
gera út áfram að aðstæðum ó-
breyttum. Þetta var ákveðið
þann 15. þ. m. en síðan var
fundinum frestað til 19. . þ. m.
og voru þá komin svör frá flest
öllum deildum. Svörin voru öll
á einn veg, þ. e. a. s. að stöðvun
flotans væri raunverulega skoll
in á og útgerðarmenn myndu
ekki treysta sjer til útgerðar
^ða hefja útgerð, eins of málum
i Framh. á 12. síðu.
1
Færeyska jimp
Þórshöfn í gær.
Fi'á fr.jettaritara Mbl.
LÖGÞINGIÐ kom saman í
dag. Fundinum stýrði aldurs-
forsetinn, Andreas Samuelsen
úr Sambandsflokknum. Stakk
hann upp á því, að hrópað væri
húrra fyrir konunginum og fyr
ir Danmörku, en aðeins Social-
demokratar og sambandsmenn
tóku undir, er hrópað var
húrra. — Aðrir þingmenn
þögðu.
Forseti var kjörinn Johan
Öregaard frá Socialdemokröt-
um, en varaforseti var kosinn
Thorstein Petersen frá Fólka-
flokknum. Fyrsta umræða um
stjórnarskrármálið verður á
morgun. — ER.
sm
fyrir sam. þjóðunum
London í gærkvöldi.
GRÍSKA sljórnin hefur á-
jkveðið að kæra uppivöðslu ó-
aldarflokka fyrir bandalagi
hinna sameinuðu þjóða, aðal-
lega vegna þess að Grikkir
telja öruggt, að nágrannar
þeirra, Albanar, Jugóslavar
og Búlgarnr, veiti óaldar-
fiokkunum á norðurlanda-
mærunum stuðning. Bíður
nú gríska stjórnin boða frá
fulltrúum sínum á þingi sam
einuðu þjóðanna, hvernig
hentu^ast sje að koma kær-
unni á framfæri.
Fregnir frá Aþenu herma í
dag, að enn sje mikið barist
ií norðui'hjeruðum landsins og
Jlíafi stjórnin sannanir fyrir
jþví að albanskir landamæra-
verðir hafi gert árás á grískt
þorp. Talið er að uppreisnar-
menn leytist við að sækja
suður á bóginn og’ fregnir
,hafa borist um harða bar-
jdaga. — Reuter.
„Er stríðinu lokið enn?“
ilarðær deilur á alls-
herjarþinginu í gær
New York í gærkveldi
,,ER stríðinu lokið?“ spurði
Conally öldungardeildarmað
ur á fundi allshcrjarþingi
sameinuðu þjóðanna í dag,
þegar hann svaraði Molotov,
sem hafði þar borið fram til-
lögu þess efnis að allar hin-
ar sameinuðu þjóðir skyldu
gefa Öryggisráðinu skýrslu
um það, hvar herir þeirra
væru utan heimalandsins og
hvar þessir herir hefðu flug
bækistöðvar sínar og aðal-
bækistöðvar. — Conally
sagði ennfremur: „Það er nú
búið að reyna í óra tíma að
semja frið við fimm fylgi-
þjóðir aðalóvina vorra, en
enn ekki tekist að sem ja frið
við neina þeirra.“
Sir Alexander Cadogan, full-
trúi Breta spurði hvað spurn-
ing Molotovs ætti eginlega að
þýða, og hvað það myndi gagna
þótt upplýsingar fengjust um
það, sem utanríkisráðherra
Sovjetríkjanna vildi spyrja um.
Sagðist Cadogan halda, að
kröftum manna væri betur var
ið í eitthvað annað en semja
skýrslur um þessi mál. Deilur
urðu allharðar á fundinum og
var honum frestað án þess á-
kvörðun væri tekin í málinu.
Spurningar Molotovs.
Spurningarnar, sem Molo-
tov vildi að leyst væri úr, voru
3. Sú fyrsta var þess efnis:
1) Hvar og hversu fjölmennir
eru herir bandamanna á land-
svæðum þjóða, sem ekki börð-
ust gegn bandamönnum. 2)
Hvar á landsvæðum fyrver-
andi óvinaríkja og landsvæð-
um sameinuðu þjóðanna, eru
herir bandamanna og annara
þjóða í bandalagi sameinuðu
þjóðanna. .— Molotov vildi að
svörin væru samkvæmt því,
sem herirnir hefðu verið þann
1. nóv. Molotov sagði, ,,að nú
væri langt síðan stríðinu væri
lokið og tími til að herir færu
heim. Sagði hann Sovjetheri
yfirleitt vera farna heim, en
Frh. á bls. 12.
Legsteinn skáldsins
íluttur í brott af
Íeiði hans á Skagen
í Danmörku
K.höfn í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
BLAÐIÐ ,,Politiken“ skýrir frá því, að umsjónarmaður
kirkjugarðs þess á Skagen, þar sem skáldið Jónas Guð-
laugsson hvílir, hafi selt grafreit skáldsins og hafi kaup-
endurnir látið fjarlægja minnisvarða hans og jarðsetja
ösku annars manns í reitnum, enda þótt vinir skáldsins
hafi jafnan hirt hið besta um leiðið og greitt fyrir reitinn.
var þetta gert, an þess ;
vini vita. Málið hefir nú
neytinu.
Yfirvofand! kola-
verkfall veldur
miklum áhyggjum
London í gærkvöldi.
NÚ ERU aðeins nokkrar
klukkustundir uns 300,000
kolanámumenn í Bandaríkj-
unum leggja niður vitinu, en
100,000 hafa þcgar gert verk-
fall. Veldur þetta miklum á-
hyggjum í Bandaríkjunum,
þar sem kolaverkfallið mun
auðvitað -stöðva kolaútflutn-
ing Bandaríkjamanna alger-
lega, en einnig — og það er
alvarlegra — allan matvæla-
^flutning yi náuðstaddra
þjóða, sem nú eiga að mestu
líf sitt undir matvælainn-
flulningi frá Bandaríkjunum.
Herlið hefur verið kallað á
vettvang til námanna, ef ó-
eirðir skyldu verða.
Dómstóll hafði, sem kunn-
ugt er, 'dæmt verkfallið ó-
löglegt, en það munu kola-
námumenn hafa að engu, en
líklegt þykir, að forsprakki
þeirra verði dæmdur til
fangelsisyistar fyrir að ó-
hlýðnnst dómstólunum. Þeg-
ar hefur verið gerðar ráðstaf-
anir til þess að minka alla
járnbrautarfiutninga eins
mikið og mögulegt er, vegna
verkfallsins. — Reuter.
373 fórusf
LONDON. í septembermán-
uði síðastliðnum fórust 373
manns af völdum umferðaslysa
á Bretlandi. Var þetta 79 færra
en á sama mánuði í fyrra.
lata fjölskyldu skaldsins eða
ið tilkynnt kirkjumálaráðu-
Blómskrýddur minnisvarði.
Umsjónarmaður kirkjugarðs-
ins á Skagen, þar sem jarð-
neskar leifar skáldsins Jónas-
ar Guðlaugssonar hvíla, hefir
selt grafreitinn, sem skáldið
hvílir í, meðan hið fagra minn-
ismerki, sem vinir skáldsins
reistu því, enn stóð á gröfinni
og vár jafnan blómum skreytt
af vinum Jónasar. Kaupand-
inn, sem var ekkja teiknarans
Otto Neumanns, ljet taka leg-
steininn burt, án þess að að-
standendum skáldsins eða vin-
um hans væri tilkynnt um það.
Aska grafin í reitinn.
Ekkjan ljet grafa ker með
ösku manns síns í reitinn, en
umsjónarmaður kirkjugarðsins
gefur þær skýringar, að gröf-
in hafi verið búin að standa
óhreyfð í 10 ár framyfir þann
tíma, sem greitt var fyrir reit-
inn. Virðist umsjónarmaðurinn
ekki hafa hugmynd um það, að
stöðugt var hlúð að leiði skálds
ins og það prýtt blómum. Og
að greitt hafði verið fyrir hann
lengur en til ársins 1950.
Vinur skáldsins
skerst í leikinn.
Þegar hjer var komið mál-
um, skarst vinur skáldsins,
Harry Sjöberg, í leikinn, og
vegna þess bauðst umsjónar-
maður kirkjugarðsins, til þess
að stækka reitinn, þannig að
rúm yrði fyrir bæði leiðin á-
samt minnisvörðunum, en
þessu hafnáði ekkja Neu-
manns. Hefir sendiráð íslands
í Höfn nú látið aðstandendur
skáldsins vita um málið.
Lagt fyrir ráðuneyti.
Þá hefir málið einnig verið
Framh. á 2. síðu.