Morgunblaðið - 21.11.1946, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 21. nóv. 1946
Rís hjer vegíeg
skautahöll innan
tveggja ára?
Ótfaoð á hlutabrjefum hefsf á næstunni
Á ALMENNUM hluthafa-
fundi, sem haldinn var í
hlutafjelaginu Skautahöll 3.
þ. m„ var samþykt að halda
áfram undirbúningi á bvgg-
ingarframkvæmdum á
skautahöll hjer í bænum. —
Var á fundi þessum ákveðið
að hefja byggingafram-
kvæmdir á næsta vori, ef
nægilegt fje hefir safnast
fyrir 30. mars n.k., en gert
er ráð f.yrir, ef allt gengur
að óskum, að skautahöllin
verði tilbúin eftir tvö ár. —
Þá var samþykt að hefja
opinbert útboð á hlutabrjef-
um.
Sigurjón Danivalsson skýrði
blaðamönnum frá þessu í gær.
Hann sagði ennfremur:
— Við teljum, að enn vanti
um 900 þúsund krónur til við-
bótar þvi, sem fyrir er, svo að
hægt sje að byrja á verkinu, en
sem kunnugt er, hefir Skauta-
höilinni endanlega verið ákveð
inn staður á horninu á Laugar-
nesvegi og Sigtúni, sem er neðri
hluti Tungutúnsins.
Teikningar allar voru tilbún-
ar fyrir löngu síðan. En vegna
þess, að skipta varð um lóð,
verður að breyta útlitsteikningu
að værulegu leyti. Fyrirhuguð
stærð Skau.tahallarinnar er 100
m. á lengd og 55 m á breidd.
Hæðin á aðalleikvanginum,
skautasalnum. eru rúmir 18 m.
Áho'-fendasæti eiga að vera
fyrir 3000 manns. Skautasvell-
ið verður 30x65 m. Er það full-
kominn. löglegur leikvangur
fyrir ísknattleik eða Olympíu-
stærð. Gólfið undir ísnum er
rennisljett, búið til úr sjerstakri
steinsteypublöndu með miklu
af járnsvarfi. Frystirörin eru
lögð í gólfið, en gólfið er þannig
útbúið, að hægt er með stutt-
um fyrirvara að taka ísinn af.
Má jþví nota skautahallir með
þessari gerð af gólfi til ýmsra
annarra hluta t. d. í þágu ann-
arra iþróttagreina, til leikfimis-
hópsýninga, allskonar íþrótta-
keppni t. d. glímukeppni, hnefa
leikakeppni o. fl. Gert er ráð
fyrir, að húsið verði bergmáls-
einangi'að, svo hægt verði endr-
um og eins, ef á lægi að nota
það fyrir fjöldafundi, þegar
rúm þyrfti fyrir 6 til 7 þúsund
manns, og fjölmennar söngsam-
komur, enda ætlast til, að húsið
hafi bæði stórt leiksvið og hljóm
sveitargróf. Að sjálfsögðu verð
ur þá lilutverk Skautahallar-
innar fyrst og fremst bundið
iðkun skautaíþróttarinnar, enda
ætlast til, að hún verði rekin
alit árið með það fyrst og fremst
fyrir augum.
Auk skautasalarins verða
mörg önnur salakynni, sem til
heyra rekstri bessum. eins og
vjelasalur, búningssalir karla
og kvenna, skrifstofur, verslun
og verkstæði fyrir skauta og
skav.taviðgerðir, tveir veitinga-
salir, annar eingöngu fyrir þá,
sem iðka skautaíþróttina enda
sjerstaklega útbúinn til þeirra
hluta, t. d. gólfið þannig að
ganga má um það á skaUtum,
án þess að það saki gólfið eða
skautana. Neyta því allir hress
ingar með skauta á fótum. Hinn
veitinga-salurinn er á annari
hæð frambyggingarinnar, et’
þaðan yfirsýn yfir allt skauta-
svæðið. Þá eru nokkrar ibúðir
fyrir starfsfólk, stór forsalur,
ennfremur sýningaklefi fyrir
kvikmyndir, því líklegt er, að í
framtíðinni verði skautaíþrótt-
in einn liður í íþróttakennslu
skólanna. Væri þá nauðsynlegt
að geta notað kennslukvik-
myndir í því sambandi.
Teikningar hafa þrír aðilar
annast. Gólfteikninguna gerði
Frick Company New York.
Þakið — stálbogann — Arc
Roof Construction New York.
Aðra hluti byggingarinnar ann
aðist Gunnlaugur Halldórsson
arkitekt. Var sú teikning send
út til sjerfræðinga í New York,"
og í svari sjerfræðinganna var
farið mjög lofsamlegum orðum
um allan frágang teikingarinn-
ar. Þá höfum við samið um að
fá að nota hið svo kallaða Carp-
enters frystikerfi, en á því er
einkaleyfi, en það er talið vera
það fullkomnasta, sem þekkist
í Ameríku, og er notað í öllum
fullkomnustu skautahöllum þar.
Upplýsingar um frystikerfi
þetta fengum við frá Ameríska
Vjelaverkfræðingasambandinu
í New York.
Eins og allar teikningar
Skautahallarinnar bera með
sjer, er ætlast til, að hús þe.tta
verðj byggt eftir ströngustu nú-
tímakröfum. Við erura þess full
vissir, að Skautahöll hjer í höf-
uðstað landsins, muni verða
vermireitur heilbrigðs íþrótta-
og skemmtanalífs og auk þess
hin öflugasta vörn gegn hvers-
konar óreglu, ef fyrirtæki þessu
yrði vel stjórnað.
Samkvæmt skýrslum, sem
safnað var á árunum 1932—’42
um aðsókn fólks að skautasvell
inu á Tjörninni og Austurvelli,
álítum við, að rekstur Skauta-
hallar hjer í Reykjavík sje fjár-
hagslega tryggur og muni bera
sig vel.
lÁs«ar Cííl&l-MlfWirff
jtrnuj
Frh. af bls. 1
lagt fyrir kirkjumálaráðuneyt-
ið danska. Talið er líklegt, að
hinar jarðnesku leifar skálds-
ins verði fluttar til íslands, ef
samningar takast ekki. Blaðið
Politiken nefnir annað dæmi
upp á að grafarró íræga manna
hafi verið raskað, þar sem graf
ið var lík í leiði skáldkonunnar
Amalie Schram, og kerið með
Ösku hennar brotið við það
umstang. Blaðið bætir við, að
yfirvöldin sjeu haldin dæma-
lausum virðingarskorti fyrir
minningu frægra manna. —
Páll.
30 ára í dag
HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ, ein af
kunnustu verslunum þessa
bæjar, er 30 ára í dag. Stofn-
andi hennar og eigandi frá
byrjun, frú Anna Friðriksson,
hóf verslun með orgel og píanó
ásamt nótum í Templarasundi
3, þar sem Líkn er nú, 21. nóv.
1916. Síðan hefir verslunm dafn
að undir dugandi stjórn eigand
ans og er nú ein af fremstu
sjerverslunum bæjarins. þar
sem verslað er með hljómlistar-
vörur og leðurvörur.
Frá Templarasundi flutti
Hljóðfærahúsið í Hótel ísland
húsið og þaðan á Laugaveg 18,
þar sem frú Friðriksson tók upp
leðurvöruverslun samhliða
hljómlista.rvörunum, það var
1922. Þá stóð svo á að bannað-
ur var innflutningur um tíma
á hljómlistarvörum og um eitt
sinn var ekkert til í verslun-
inni af slíkum vörum, nema ein
grammófónplata.
Frá Laugaveg 18 flutti Hljóð
færahúsið einu sinni enn, þá í
Austurstræti 1 og loks aftur það
an 1932 í hús Helga Magnússon-
ar í Bankastræti 7, þar sem
verslunin er nú.
Frú Friðriksson hefir sjeð um
hlicmleika margra frægra
hijómlistarmanna og féngið þá
hingað til lands. Einn fyrsti
listamaðurinn sem kom á veg-
um Hljóðfærahússins var Helge
Nissen söngvari og sá síðasti
fyrir stríð var Friedman. Fjöldi
annara frægra listamanna hef-
ir komið hingað til lands á veg-
um frú Friðriksson og nú síð-
ast danski íiðlusnillingurinn
Tworek og ungfrú Esther Van-
ing. Þá hefir hljóðfærahúsið
sjeð um hljómleika margra ís-
lenskra söngvara á þessum 30
árum sem liðin eru síðan versl-
unin var stofnsett.
Helgafell opnar merki-
lega bókasýningu í
Listamannaskálanum
FORLAGIÐ Helgafell opnar í dag mikla bókasýningu í Lista-
mannaskálanum. Eru þar til sýnis, auk mörg þúsund bóka, mynd-
ir og málverk eftir sex íslenska listamenn, en listaverk þessi
hafa öll skreytt viðhafnarútgáfur forlagsins.
Skalfsfðfa sprengd í *
London í gærkveldi.
I DAG varð sprenging í skatt-
stofubyggingunni í Jerúsalem
og mun byggingin hafa eyði-
lagst algerlega. Starfsfólkið var
flest. komið út úr húsinu, því
nokkru áður en sprengingin
varð, hafði verið hringt til skatt
stofunnar og sagt að búast
mætti við að tilræði yrði fram-
ið í húsinu. Talið er að sprengj-
unni hafi verið komið fyrir með
því móti, að maður einn hafi
ekið henni á handyagni inn í
búsagarðinn og hlaupist síðan
á brott. Þótt starfsfólkið hafi
flest verið komið á brott, er
sprengingin varð, biðu 3 menn
bana við hana og 5 meiddust.
Óaldarflokkurinn Trgun Zwi
hefir játað á sig tilræðið.
Reuter.
állir í Spandau
LONDON. Þeir af leiðtogum
Þjóðverja, sem dæmdir voru
til fangavistar í Núrnberg,
munu bráðlega verða fluttir til
Spandaufangelsisins í Berlín,
en þar verða þeir hafðir, Þar
sem fangelsið rúmar 700—800
menn, er talið að aðrir Þjóð-
verjar verði J.átnir þar eftir að
bandamenn hafa dæmt þá.
Ivær nýjar Draupnís-
söpr: Déflir jaröar
og Fas! þeir séffu sjóinn
Draupnisútgáfan hefur ný-
skeð sent frá sjer tvær sögur
í skáldsagnaflokknum Draupn
^ issögur, sjöttu og sjöundu
sögu í flokknum.
j Fyrri sagan er Fast þeir
(sóttu sjóinn, eftir Lars Han-
sen, vinsælan norskan rithöf-
und, er einkum fjallar um líf
og starf norskra sjómanna í
sögum sínum, og hefur getið
sjer fyrir það gott orð. Fast
þeir sóttu sjóinn er ein hans
allra vinsælasta saga, og virð-
ist óneitanlega vel að þeim
vinsældum komin, því að sag-
an er skemmtileg aflestrar,
viðburðarík og bráðfyndin.
Hin sagan er Dóttir jarðar,
eftir A. J. Cronin, sem er ís-
lenskum lesendum að góðu
kunnur, m.a. af sögunni Borg
arvirki, sem hlaut óvenjúlega
góðar viðtökur íslenskra les-
enda. Dóttir jarðar er rismikil
skáldsaga, „spennandi“ og á-
hrifarík. Hún iýsir ástum og
örlögum í skosku sveitaþorpi
og sýnir, hve öldurót ástríðna
og heiftarhuga , getur risið
hátt, þrátt fyrir friðsamlegt
og hversdagslegt umhverfi.
Jón Heigason, blaðamaður,
hefur íslenskað báðar þessar
sögur og gert það með mikl-
um ágætum.
Allur frágangur beggja
þessara bóka er smekklégur
og vandaður, svo sem verið
hefur raunin með Draupnis-
sögur allar. Eru þessar sjö
(Draupnissögur hið myndar-
|iegasta og eigulegasta safn,
jOg á næstu mánuðum munu
jbætast við það ýmsar úrvals-
skáldsögur.
Skemtun Mennigar
og mlnnlngarsjéðs
MENNINGAR- og minning-
arsjóður kvenna hjelt skemt-
un í Tjarnarbíó s.l. sunnudag
jJeg var reglulega ánægð með
‘ skemtunina. Skemtikraftarn-
ir voru ágætir og sýndu það,
að konur þær, er að þessu
stóðu höfðu lagt verulega alúð
við a.ð vanda sem best til
skemtunarinnar. En það verð
ur að segja hverja sögu eins
’og hún gengur. :— Aðsóknin
’var Ijeleg og er illt til þess að
vita, þegar mikið er lagt á sig'
jfyrir gott máiefni og auk þess
um góða skemtun að ræða. En
hitt mega konurnar vel við
juna að skemtunin og tilhögun
hennar var þeim til sóma.
I H.
Þrjár nýjar bækur.
í sambandi við sýningu þessa
koma út þrjár merkar bækur„
Eru það fyrst Grettis saga í
útgáfu Halldórs Kiljan Laxness.
Er þetta gðlæsileg bók með 62
myndum eftir Þorvald Skúla-
son og Gunnlaug Scheving'.
Önnur bókin er síðara bidið af
verkum Jónasar Hallgrímsson-
ar í útgáfu Tómasar Guðmunds-
sonar. Kom fyrra bindið út í
fyrra, en í því voru ljóð skálds-
ins. í þessu bindi eru önnur
Verk Jónarsar. Þriðja bókin,
sem kemur út í sambandi við
sýningu Helgafells er Siðasta
blómið eftir ameríska listamanrt
inn James Thurber. Er þetta
einns konar mannkynssaga í
myndum, en textinn er ljóð eft
ir Magnús Ásgeirsson. Thurber
er einn merkasti kímnileiknari
Bandaríkjanna og býr oit mikil
alvarra á bak við myndir hans,
eins og menn munu sjá á þess-
ari bók.
100 myndir.
Á bókasýningunni verða tæp-
lega 100 myndir, þar af sjö mál
verk. Eru þetta frummyndir,
sem notaðar hafa verið til að
skreyta viðhafnarútgáfur Helga
fells. Málverk.in sjö eru öll eftir
Jón Engilberts, og voru í út-
gáfunni á Jónasi Hallgrímssyni.
Hinar myndirnar eru 62 Grett-
lumyndir þeirra Þorvaldar
Skúlasonar og Gunnlaugs Sche
vings. Njálumyndireftir Snorra
Arinbjarnar, teikningar Ás-
geirs Júlíussonar úr Fögru Ver
öld, og 20 teikningar Örlygs
Sigurðssonar úr Öfugmælavís-
um.
Helgafellsstofa.
Þá verður á sýningunril
„Helgafellsstofa11, herbergi inn
rjettað af Guðmuudi Grímssynf:
húsgagnasmið, og á það a$
tákna íslenskt bóka-heimiiu
Þaðan verður útvarpað tónlist
urn allan salinn. Sýningin mute
standa tvær vikur. Hyggst
Helgafell að halda slíka sýn-
ingu á hveriu ári, og sýna þar
jólabækur sínar og aðrar nýj-
ungar í bókiðn.
London í gærkveldi.
NÝTT hraðamet í Atlantshafs
flugi var sett í dag, er flutninga
flugvjel frá American Over-
seas Airlines, flaug án viðkomu
frá New York til London á 12
klukkustundum og 7 mínútum.
Meðalhraði var 488 km. á klst.
hverri. — Þetta er í fyrsta sinn,
sem flutningaflugvjel hefir
flogið þessa leið beint. Flug-
vjelin, sem var af Lockheed
Constellation-gerð hafði innan-
borðs 2000 pund af varningi,
auk eldsneytis. — Reuter.
i