Morgunblaðið - 21.11.1946, Page 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
OTTASLEGNU mennirnir í
Fimtudagur 21. nóvember 1946
Nýr fulitrúi
Briiiih Counci!
lalar í Anglía
FYRSTI Angliafundurinn á
vetrinum verður í Oddfellow-
húsinu í kvöld og hefst kl. 8,45.
Mr. K. M. Willey, B.A.. sem
er nýr fulltrúi British Council
hjer á landi flytur fyrirlestur
um eyna Cyprus, en hann er
nýkominn þaðan.
Eftir fyrirlesturinn verður
dansað til klukkan 1.
25 ára afmæli.
í vetur er 25 ár frá bví að
Anglía var stofnuð og í tilefni
af því verður haldið hóf og
dansleikur þann 12. desember
n. k. Aðrir fundir í vetur verða
23. jan., 20. febr., 20. mars og
24. apríl.
I bókasafni Anglía eru nú
um 1000 bindi, þar á meðal
margar úrvalsbækur enskra
bókmeMa. Hafa meðlimir fjel-
agsins aðgang að bókasafninu,
en það er á Laugaveg 34.
Aðalíundur í fjelagi
Norðnranna
NORMANNSAGET, fjelag
Norðmanna hjer í Reykjavík,
hjelt nýlega aðalfund sinn. í
stjórn voru kosnir:
Harald Faaberg skipamiðlari
formaður, Tomas Haarde verk-
fræðingur varaformaður, Gunn
ar Akselson kaupmaður ritari,
frú Ingrid Markan gjaldkeri og
Árni Eylands fuiltrúi.
Þar, sem búist er við heim-
sóknum margra Norðmanna
hingað til landsins á næsta
sumri beinir fjelagið þeim til-
mælum til allra Norðmanna,
sem búsettir eru hjer á landi
(og þeirra sem eiga norskan
maka) að ganga í fjelagið.
Hægt er að ganga í fjelagið með
því að tilkynna það einhverj-
um af stjórnarmeðlimum.
Hlutafjelagi Hrönn, sem á
togarann Geir, hefur selt
hann til Færeyja. Kaupend-
ur eru Sigufður Simonsen,
skipstjóri og fleiri í Fugla-
firði. Togaranum hefur verið
gefið nafnið:. Vitin og ein-
kennisstafir verða FD 440. —-
Sigurður Simonsen mun sjálf
ur sigla skipinu. Hinir nýju
eigendur 1aka við því næstu
daga.
B.v. Geir er byggður 1912.
Hann er 309 lestir bruttó og
128 netto. Eigendur hans
Hrönn h.f. keyptu skipið 1923
— Sigurðui- heitinn Sig-
urðsson var lengst af skip-
stjóri, eða frá 1920 til ársins
1943, er hann ljest. Þá tók við
Jóhann Stefánsson, er verið
hafði stýrimaður hjá Sigurði
síðan árið 1925 og var Jóhnnn
með skipið þar til að það hef
ur nú verið selt.
H.f. Hrönn mun kaupa nýtt
skip.
Þeir fiultu flugbátinn yfir iiifið
Þessa mynd tók ljósmyndari Morgunblaðsins uður á Reykjavíkurflugvelli, er Grummanflug-
bátur Loftleiða kom. Á myndinni eru áhafnir flugbátanna og fárþeginn, formaður stjórnar
Loftleiða. Frá vinstri standa Kenneth L. Rovor, siglingafræðingur, Joseph J. Wormser loft-
skeytamaður, Raymond Hoover, flugmaður, C larence G. Bare flugmaður, Ralph C. Ellioti
vjelamaður, Alfreð Elíasson flugmaður og Knstján .Tóh. Kristjánsson formaður stjórnar Loft-
leiða h.f. Ljósm. Mbl.: F. Clausen.
Rúmlega 130 manns sýktust
af mænuveiki í oktober
á N- og Austurlandi
MÆNUVEIKI . hefir að
undanförnu geisað um Norð
urland Hennar hefir einnig
orðið vart á Austuriandi.
Samkvæmt viðtali Morgun-
blaðsins við hjeraðslækna á
þeim stöðum, sem veikinnar
hefir orðið vart, segja þeir
hana yfirleitt vera væga. I
októbermánuði s. 1. tóku veik
ina Norðanlands 120 manns.
Á Austurlandi veiktust átta
manns. Þar hefir hennar
ekki orðið vart síðan. Á
tveim stöðum Norðanlands
er kunnugt um fleiri tilfelli
í þessum mánuði. Flest sjúk
dómstilfellin voru í okt., í
Eyjafirði og á Akureyri. Þar
veiktust 115 manns. Af völd
um veikinnar hefir einn mað
ur dáið.
Akureyri.
Frjettaritari Mbl. símaði
blaðinu í gærkvöldi, að lækn-
ar á Akureyri telji veikina
hafa verið í rjenun s. 1. hálfan
mánuð. Einn maður hefir dáið
af völdum hennar. Vitað er um
allmörg lítilvæg lömunartil-
felli, en veikin virðist yfirleitt
vera væg. Einkum ungt fólk
veikst. Mænuveikin hefir náð
talsverðri útbreiðslu í nær-
sveitum. í október sýktust hjer
og í nærsveitum 115 manns, en
ekki er læknum kunnugt um!
fjölda tilfella nú í nóvember,
segir frjettaritari.
Flesf tllfelll á Akisreys'I
Sauðárkrókur.
í viðtali við hjeraðlæknir
skýrði hann svo frá, að í nóv-
ember hefðu 3 mænuveikitil-
felli orðio þar. Yfirleitt. hafi
veikin verið væg það sem af
er þessum mánuði hafa 10 til-
felli orðið. Ekkert þeirra er
alvarlegt. Það er aðallega ungt
fólk og börn, sem veikst hafa,
sagði hjeraðslæknir að lokum.
Ilúsavík.
í okóbermánuði s. 1. sýktust
tveir af lömunarveiki á Húsa-
vík. En það sem af er nóvem-
ber, er mjer kunnugt um 9 til-
felli hjer á Húsavík, á bæjum
í Aðaldal og Tjörnesi, sagði
hjeraðslæknirinn á Húsavík,
blaðinu í gær. Engar lamanir
hafa orðið, en tilfellin mjög
glögg. Aðallega unglingar og
börn hafa tekið veikina.
Blönduós.
Hjesaðslæknirinn á Blöndu-
ósi er staddur hjer í bænum.
Hann skýrði blaðinu svo frá í
gærkvöldi, að síðan í október
hefði hann ekki orðið var við
eitt einasta tilfelli af lömunar-
veiki. I október veiktist einn
maður og lamaðist hann. dálít-
ið í fótum. Maður þessi er um
þrítugt.
Oiafsfjörður.
Hjer í kauptúninu veiktust
7 manns af mænuveiki og eitt
tilfelli í sveitinni er mjer kunn
ugt um, sagði hjeraðslæknirinn
þar blaðinu í gær. Síðan hefir
hennar ekki orðið vart hjer.
Ekkert lömunartilfelli er um
að ræða. Einn fullorðinn hefir
veikst, hitt eru börn eða ung-
lingar.
Fljótsdalshjerað.
Hjeraðslæknirinn á Egils-
stöðum sagði að hann hefði
ekki orðið mænuveikinnar var
síðan í október. Þá veiktust 8
manns, á þrem eða fjórum bæj
um á Fljótsdalshjeraði. Um
lömun er ekki að ræða hjá
þeim, er veikina haía tekið,
sagði læknirinn að lokum.
Reykjavík.
Veikin hefir einnig komið
upp hjer í bænum, en hjeraðs-
læknir kvaðst ekki geta sagt
í gær, hversu mikil brögð væru
að henni.
Vaxtabrjefasalan
rúmlega sex miíj.
í GÆR seldust í Hafnar-
firði og Reykjavík vaxtabrjef
Stofnlánadeildarinnar fyrir
135 þús. kr., þar af rúmar 4
þús. í Hafnarfirði.
Neraur þá vaxtabrjefasal-
an alls 6 millj. 279 þús. kr.
Herðum sóknina Reykvík-
ingar!
Nörrköbing sféS sig
belur en Dynamo
LONDON: Sænska knatt-
spyrnuliðið Norrköbing
Kammraterne hefur nú lok-
ið kappleikjum sínum í Eng-
landi og ljek flokkurinn gegn
5 af sterkustu atvinnu-
mannafjelögum Breta, fyrst
Charlton Athletic og síðast
Wolverhampton Wanderers,
sem eru nú með efstu fjelög-
unum í fyrstu deild bresku
keppninnar.
Svíarnir stóðu sig betur en
i’ússneski flokkurinn Dyna-
mo í fyrra, þar sem þeir
unnu fjóra leikina glæsilega.
en gerðu jafntefli við Wolv-
erhnmpton í þeim síðasta. —.
Bresk blöð hrósa sænska lið-
inu ákaflega og segja að
iengi hafi ekki sjest eins gott
erlent iið í Englandi eins og
Norrköbing.
Sveit Einars B. Guðm.
efst
FJÓRÐA umferð í bridge-
keppninni var spiluð á þriðju-
dagskvöld. Eftir þá keppni
standa sveitirnar þannig: Fyrst
er sveit Einars B. Guðmunds-
sonar með 12 stig, önnur sveit
Jóhannesar Jóhannssonar 11 st.,
þriðja sveit Guðlaugs Guð-
mundssonar 10y2 stig. Þá kem-
ur sveit Jóns Ingimundssonar
með 9V2 stig, sveit Ragnars Jó-
hannessonar 8 stig og sveit Jóns
Guðmundssonar einnig með 8
stig, sveit Ársæls Júlíussonar
5 stig og Einars Jónssonar ekk-
ert stig.
NobelsverðlauiUiiii
úthlufað
LONDON. Úthlutað hefir ver
ið Nobelsverðlaununum fyrir
árið 1946. Verðlaunin í eðlis-
fræði fjekk Bandaríkjamaður-
inn próf. Bridgmann vði Har-
wardháskólann, fyrir það að
búa til tæki, sem framleitt geti
sjerstaklega háan loftþrýsting.
— í læknisfræði fjekk Banda-
ríkjamaðurinn próf. Hermanrt
Muller við Indianaháskólann
fyrir rannsóknir sínar á því
sviði að breyta erfðaeinkennum
með geislaverkunum. Bók-
menntaverðlaunin fjekk Þjóð-
verjinn Hermann Hesse. sem
er nú svissneskur ríkisborgari.
Þórshöfn, Færeyjum, í gær.
Einkaskeyti til Mbl.