Morgunblaðið - 08.01.1947, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐ I Ð'
' MiðvikudagUri 8. jan, 'ilQAli
ia
HÚSAVÍKURBRJEF
INNGANGUR
Það hefir oft verið á það
minst við mig af ritstjórn blaðs-
ins, að jeg sendi blaðinu öðru
hverju frjettabrjef, þar sem frá
væri sagt framfaramálum og
framkvæmdum hjer heima, til
gamans og fróðleiks fyrir þá,
sem í fjarlægðinni eru.
Brjefið er fyrst og fremst til
þeirra, sem hjer hafa átt heima,
en eru brottfarnir og þvi kunn-
ugir staðháttum 'hjer.
VEÐURFAR
Það er oft þá tveir hittast, að
byrjað er að tala um veðrið, og
ekki að undra, að fyrst sje hjer
á það minnst, því það er vel
í frásögu færandi. Sumarið
1945, var það besta sumar, sem
elstu menn hjer þá mundu, hey
fengur í sveitum með ágætum
og uppskera garðávaxta sömu-
leiðis. A eftir þessu góða sumri
bjuggust menn við hörðum vetri
en það ,,brást“ og veturinn var
með fádæmum góður. — Það
voraði snemma, síðan kom sum
arið, — sumarið 1946 — sem
gaf sumrinu áður lítið eftir, þó
aðeins kæmu rigningardagar,
þá var það aðeins til þess að
vökva jörðinni, en sumarið í
heild var ágætt, hvað veðurfar
snertir. Síðari hluta sept. kom
svo hálfsmánaðar rigning, svo
aldrei hafði áður annað eins
rignt hjer á heilan mánuð. Þá
þeirri rigningu slotaði, kom
„sól og sumar“ og er enn, svo
teljandi eru þær frostnæturnar,
sepi hjer hafa komið á þessu
hausti og vetri.
UAFNARGERÐIN
Unnið hefir verið í sumar að
framlenging hafnargarðsins, er
kemur fram úr Höfðanum ofan
við Bökuna. Verkið hófst því
miður einum eða tveim mánuð-
um seinna í vor, en það hefði
mátt og átt að hefjast, en eng-
inn veit á hverju stóð, nema þá
helst á ,,þeim stóru fyrir sunn-
an“, en haustveðráttan virðist
agtla að bjarga þeim frá skömm
inni og skaðanum, sem annars
var stemmt tll. í fyrra sumar
var byrjað á verkinu og þá
steyptur 130 metra langur garð
ur, en mikið af honum á grunnu
vatni, en í ár verður lengingin
um 45 metrar. Bryggjan, sem
í ár á 10 ára afmæli, er nú orð-
in svo maðkjetin, að staurarn-
ir eru farnir *að fljóta út úr
henni og grjótið að hrynja út.
Ætlunin var að setja stálveggi
beggja megin við hana, svo-
kallaða „spoonveggi“ og átti"
það að gerast í sumar, en neit-
að var um útflutning í Eng-
landi á því járni, sem til þess
var ætlað. Var því horfið að
því ráði, að aka stórgrýti í sjó-
inn sunnan við hana, þar sem
hún er verst farin, og þannig
að mynda varnarvegg, en sú
ráðagerð er hjer misjöfnum aug
um litin, enda ekki að furða.
HÚSABYGGINGAR
PWfið er að reisa hjer yfir
Sfo íbúðarhús, 10 þeirra eru
verkamannabústaðir, bygðir fyr
i^-fje, úr byggingarsjóð' verka.
nntnna og standa þæ ús á
túninu fyrir sunnan <- ~>fan
Rónfc GIl éru húsin éir' ' ' -'ís.
Hinfn'stáðiruirrisem vc : • ýð
byggja á, eru á Jóelstúni neð-
an við Garð, á Maratúni og fyr-
ir ofan Uppsali. K. Þ. er að
byggja mjólkurstöð og stendur
hún í gömlu Gróðrarstöðinni.
Ætlunin er að hún taki til starfa
næsta vor.
RAFMAGNSMÁL
Gamla rafstöðin var orðin alt
of lítil og s.l. vetur var settur
upp hjálparmótor, og er því
sæmilegt rafmagn hjer til ljósa
en ekkert til hitunar. Nú í sum
ar hefir svo verið unnið að því,
að setja upp línu frá Laxár-
virkjun til Húsavíkur og er því
verki dálítið á veg komið og
ráðgert að við fáum þaðan raf-
magn næsta vor. Unnið hefir
einnig verið að því að endur-
bæta rafmagnskerfi bæjarins,
og stjórnar því verki ungur og
áhugasamur' rafvirki, Ornólfur
Örnólfsson, sem rjeðist hjer til
rafveitunnar í fyrra haust.
SKÓLAMÁL
Hjer eru nú starfandi þrír
skólar, Barnaskólinn, skólastj.
Sig. Gunnarsson, Gagnfræða-
skóli skólastjóri Axel Benedikts
son og Iðnskóli, skólastjóri sr.
Friðrik A. Friðriksson.
Barnaskólinn er í sínu gamla
húsi, en næsta vor er ráðgert
að hefja byggingu nýs skóla-
húss, sem’standa á norðan við
hann í Stóragarðinum. Gagn-
fræðaskólinn er til húsa í Gisti
húsinu Garðarshóli (Guðjohn-
senshúsinu), en þá barnaskól-
inn hefur fengið sitt nýja hús,
er meiningin að Gagnfræðaskól
inn flytji þangað. Iðnskólinn er
á efstu hæðinni í Garðar.
ÚTGERÐARMÁL
Það virðist mikil breyting
vera á útgerðarmálum hjer, öll
smáútgerð hefur færst mjög
mikið saman, en verður von-
andi aðeins um stundarsakir, af
leiðing þeirrar gífurlegu eftir-
spurnar sem er eftir vinnu í
landi, og hins háa kaupgjalds,
sem öllu virðist ætla að koma
úr skorðum hjer eins og annars
staðar.
Hingað hafa komið tveir nýir
bátar, „Pjetur Jónsson“, bygð-
ur í Svíþjóð, 55 tonn. Eign
þeirra Borgarhólsbræðra, Stef-
áns og Þórs Pjeturssona. Hinn
„Hagbarður", 47 tonn, eign
hlutafjelags, sem hreppurinn
verður aðalhluthafinn í. Báðir
voru bátarnir á síld í sumar
og fiskuðu frekar vel, eftir því,
sem almennt gerðist.
Síldarverksmiðjan starfaði í
sumar, og var talað um að byrj
að yrði á byggingu nýrrar verk
smiðju, ef síldarvertíðin gengi
vel, en það brágst eins og allir
vita.
Síldarsöltun var dálítil og
söltuðu þrjú fjelög, Söltunar-
stöð Kristjáns J. Einarssonar
h.f., Söltunarstöð Baðinn h.f.
og Söltunarstöðin Uggi h.f.
BÚNAÐARMÁL
Haustið 1941 hófst niður-
skurður sauðfjár vegna hinnar
illræmdu mæðiveiki. í haust
hefir verið lokið þessum niður-
skurði og hefir nú hver kind
á svæðinu frá Jökulsá og til
Eyjafjarðar verið drepin og
flutt inn nýr fjárstofn frá N.-
Þingeyingum og vestan af
Ströndum. I mæðiveikivarnir og
niðurskurð hefir mörg krónan
farið, og erfitt verður að reikna
hvað hver króna hefur gefið af
sjer, en við þessa veiki var ó-
mögulegt að búa, svo þetta virð
ist hafa verið eina úrræðið. — I
Húsavík hefur fje eitthvað
fækkað, en þó ekki svo veru-
lega mikið. Kúm hefir einnig
fækkað, en Teitur bóndi í Salt-
vík hefur tekið upp mjólkur-
flutninga og selur töluvert af
mjólk hjer. Einnig flytur Jón
í Kaldbak hingað mjólk.
S. P. B.
Fjöldagröf finns!
HAMBORG: — Yfirmenn
franska hernámssváeðisins í
Þýskalandi hafa tilkynt, að
fundist hafi gröf, sem í voru
lík 1500 p.ólitískra fanga.
•<S>^x$x^$x^$>3x$^<^x$*^§«$x$>3xJx^x$x^<$xSx$x$>3x$*$>3x$x§xJ^«$xSxSx$*$xJk$x$x$x^<$x$x$
TILKYNNIIMC
frá Viðskiftaráði um útgáfu nýrra gjaldeyris-
og innflutningsleyfa.
Viðskiftaráðið hefur ákveðið að veita ekl^i
fyrst um sinn, á meðan það afgreiðir endurút-
gáfu leyfa frá fyrra ári, ný gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi fyrir almennum vörukaupum,
nema sjerstaklega tilheyri útflutningsfram-
leiðslunni.
Ráðið mun því synja öllum umsóknum sem
til þess berast ef ekki er eins ástatt um og að
framan segir.
Hinsvegar mun ráðið auglýsa eftir umsókn-
um í tiltekna vöruflokka strax og það er tilbú-
ið til þess að afgreiða slíkar umsóknir.
Reykjavík, 7. janúar 1947.
: í ; x. 2 - : i
VIÐSKIFTARÁÐIÐ.
IVBinmngarorp um^r1?
Lúðvik Sinmundsson, verkstjóra
í DAG er Lúðvík Sveinn
Sigmundsson, yfirverkstjóri,
lagður til hinstú hvíldar. Lúð-
vík vár fæddur hjer í bænum,
29. júlí 1903, en fluttist á fyrsta
ári með foreldrum sínum, þeim
Kristínu Símonardóttur og Sig-
mundi Sveinssyni austur að
Brúsastöðum í Þingvallasveit.
Þar ólst Lúðvík upp, við þau
skilyrði, sem best var á kosið,
til þess að ala upp duglegan
og framgjarnan mann. Vinnu-
semi og ástríki heimilisins mót-
uðu svo sterkt hinn unga mann,
að þesíi tvö öfl auðkenndu síð-
an allt hans líf.
Það er í minnum haft, hversu
bráðger og kappsfullur Lúðvík
var strax, sem unglingur um
fermingaraldur, þegar hann tók
upp ferðir fyrir heimilið, til
Reykjavíkur, með tvo hest-
vagna, og sá einsamall um út-
tekt og frágang vörunnar á
vögnum sínum og skilaði öllu
heilu í höfn, þó að stundum
brysti vagnkjálka, eða önnur
týgi biluðu, voru alltaf ráð, til
þess að lagfæra það á staðn-
um.
Það var ekki mikið um að
smiður þyrfti að koma að Brúsa
stöðum eða að hlutir þyrftu að
sendast frá bæ til aðgerða, eft-
ir að Lúðvík: fór að valda verk-
færum.
Árið 1919 fluttist svo Lúðvík
með foreldrum sínum og syst-
kinum aftur til Reykjavíkur.
Eftir að Lúovík kom hingað,
hóf hann að læra járnsmíði í
vjelaverkstæði Hamars, sem
undirbúning þess að fara síðan
á Vjelstjóraskólann. Þessu
hvorutveggja, lauk hann með
ágætum, og fór síðan sem vjel-
stjóri, bæði á línuveiðara og
togara, en sjórinn átti ekki við
hann, svo að hann fór í land.
Þá stofnaði hann ásamt öðr-
um Vjelsmiðjuna „Sindra". En
síðan 1934 og til dauðadags var
hann starfsmaður í Landssmiðj
unni, fyrst sem vjelvirki, en
dugnaður hans og árvekni í
starfinu, færðu hann fljótlega í
verkstjórastöðuna, og síðan
1940 var hann yfirverkstjóri.
Það starf rækti hann, með sömu
ágætum og öll hin fyrri. Hann
ávann sjer stöðugt meiri vin-
semd og virðingu samstarfs-
manna sinna, sem og þeirra er
til hans þurftu að sækja, vegna
viðskipta við fyrirtækið.
Okkur öllum, er þekktu Lúð-
vík, setti hljóða, er við heyrð-
um lát hans á nýársdag. Við
vissum, að hann hafði legið
veikur, en við gátum naumast
trúað því, að hann, sem var
svo sterkur og karlmannlegur,
væri allt í einu fallinn, svo
snögglega. Við eigum bágt með
að sætta okkur við, að þetta sje
raunveruleiki, hann horfinn
mitt í önnum dagsins.
Lúðvík giftist eftirlifandi
konu sinni Alexiu Pálsdóttur
19. septembed, 1925. Þau eign-
uðust sex börn, sem öll eru á
lífi, fjögur fermd, en tvö inn-
an fernjingataldurs. Þeiip,
Alexiu o,g Lúðvík, tókst með
sínum mikla dugnaði og sam-
fetilltu starfi að skapa sjer svo
fnikið fyrirmyndarheimili, að
það mun leitun á öðru eins. Á
heimili þeirra gætti fyllilega
þeirra uppeldisáhrifa, sem Lúð-
vík varð fyrir í æsku, sem sje
vinnusemi og ástríki.
Það er mikið, sem heimilið
hefir misst, og stór er sú sorg,
sem þar ríkir, en meðvitundin
um að hafa búið samvistum við
jafn góðan og göfugan dreng,
sem Lúðvík, er líka mikils-
virði, bæði fyrir konur og
börn.
Kveðjur samstarfsmanna
fylgja þjer yfir landamærin,
Lúðvík Sigmundsson.
Þ. B.
TiLKYNNING
frá HX Eimskipafjelagi
ísiands.
ÞEIR FARÞEGAR, sem þeg-
ar hafa pantað far hjá oss tii
útlanda, eru vinsamlega beðn-
ir að endurnýja pantanir sínar
eigi síðar en 15. þ. m.
clla verður litið svo á, að far-
pöntunin sje niðurfallin, og
verður þá ekki tekin til greina.
Reykjavík, 4. janúar 1947.
H.F. EIMSKIPAFJELAG
ÍSLANDS.
„FJi\LLFOSS“
fer hjeðan þriðjud. 14. janúar
vestur og norður kringum land.
Viðkomustaðir:
Patreksfjörður
Flateyri
ísafjörður
Siglufjörður
Akureyri
Húsavík
Kópasker
Seyðisfjörður
Norðfjörður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
« Djúpivogur.
; 1 /i :í v >. >! /• ■. < j .!<> I-
^örumóttakjaý^r lgpg|rdags.
H.F. EIMSKIPAFJELAG
'ÍSLANDS'Síaramcn.".!'..