Morgunblaðið - 08.01.1947, Side 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
NÓBELSVERÐLAUNIN I
köfium. Miðvikudagur 8. janúar 1947
Skýrsia sakadómara
um ofbeídiskæru
á hendur amer-
ískum sjóiilum
Fiá skiifstofu sakadómara
barst Morgunblaðinu eftir-
farandi frjettatilkynning í
gærkvöidi:
,.FRÁ ÞVÍ HEFIR verið
tkýrt í blöðum að þrjár ís-
L'nskar stúlkur hafi kært yf-
ir því til rannsóknarlögregl-
unnar að þær hafi orðið fyrir
ofbeldi bandarískra sjóliða á
dansleik í.Camp Knox síðast-
liðna nýjársnótt, tvær orðið
fyrir höfuðhöggum og einni
hafi verið nauðgað. Stúlka sú,
sem kveðst hafa orðið fyrir
nauðgun, var undir áfengis-
áhrifum á dansleiknum. Hún
skýrir svo frá að hún hafi
dansað nokkuð um nóttiná við
hermann þann, sem hún segir
hafa sýnt sjer ofbeldi, og kysst
hann nokkrum sinnum í dans
inum. Þegar dansleiknum var
lokið hafi maður þessi og ann
ar sjóliði með honum farið
roeð sig með valdi inn í auðan
skála og hafi annar haldið sjer
þar meðan hinn hafði sam-
farir við hana nauðuga. Yfir-
menn herstöðvarinnar hafa
yfirheyrt hermann þann, sem
stúlkan kærir og segir hann
það rjett vera að hann hafi
haft samfarir við stúlkuna
um nóttina, en neitaa: því hins
vegar ?ð það hafi verið gegn
vilja hennar og neitar því
ennfremur að nokkur annar
sjóliði hafi verið viðstaddur.
Hinar stúlkurnar hafa nafn
greint sjóliða þann, sem sló
aðra þeirra, en þær vita ekki
hver sló hina. Ekkert hefir
orðið upplýst við yfirheyrsli;r
yfirmanna ■ herstöðvarinnar
um hvort stúlkur þessar hafi
verið slegnar, en sjóliðar
halda því fram að þær hafi
verið mjög óstýrlátar og að
þær hafi verið látnar út úr
hergtöðinni. Þar sem blaða-
fre^nir um atburði þessa hafa
einungis verið eftir skýrslum
stúlknanna þykir ijett að
skýra frá máli þessu hjer frá
báðum hliðum.“
E!nar Harkússon
\Æm pfanóhljóm-
leika
„Snjókeríingar" á þreliándakvðiái.
IIVIT JORÐ var hjer í
Reykjavík á þrettándanum
og þótti mörgum það
skemmtileg tilbreyting. —
Var snjórinn blautur og
meir og mjög vel tii þess
fallinn að hlaöa úr honum
snjókerlingar, enda not-
færffu margir bæjarbúar
sjer það.
Ljósmyndari Morgunbl.
tók þessar tvær myndir,
sem hjer eru birtar, á þrctt
ándadagskvtfld.
A efri myndinni sjest
Árni Hoff-Muller arkitekt
ásamt konu sinni, Guð-
björgu Óladóttur, við snjó
kerlingarnar, er þau gcrðu
í garðinum við heimili sitt
Sólvallagötu 18. Á meðan
Árni fekkst við stóru ker-
linguna, sem er mjög hag-
lega gerð, bjó kona hans
„krílið“ til.
Hin myndin er af snjó-
kerlingu, sem sett hafði
verið á garðstólpa við hús-
ið nr. 36 við Öldugötu. —
Blaðinu cr ekki unnugt um
hver eða hverjir þar voru
að vcrki.
í gær eyðilögðust þessar
„kerlingar“. Þær stóðu
ekki af sjer rigninguna og
hlýjuna.
HINN kunni píanósnillingur
Einar Markússon, sém dvalið
hefur vestur í Ameríku síðustu
ár, heldur fyrstu píanóhljóm-
leika sína, eftir heimkomuna,
á íös'túdagskvöld kl. 7,15 í Gl.
Bíó.
Efnisskráin verður mjög fjöl
breytt og mun hann taka til
meðferðar ýms vinsæl tónverk.
Hann leikur t. d. Polonaise í
As-dúr eftir Chopin. Þá leikur
hann verk eftir Gershwin og
Steiner, sem reyndar er lítið
þekktur hjer heima, en nýtur
mikilli vinsælda vestur í Ame-
Aku.
Svifblystð sás! úi
af Garðskaga
SVIFBLYS Slysavarnar-
fjelagsins, sem skotið var á
gamlárskvöld af Hafnarhús-
inu sást frá skipi sem var út
af Garðskaga.
Jón Sigurðsson skipstjóri á
ms. Viktoría skýrði Slysa-
varnarfjelaginu frá þessu.
Hann sagðist hafa sjeð blysið
rn.jög vel. Skipið var þá 15
sjómílur út af Garðskaga.
Þúsund sinnum
öflugri m aíém-
sprengjan
London í gærkvöldi.
PRÓFESSOR Marcus L.
Oliviant, einn af fremstu
atomsjeríræðingum Breta.
hefur sagt frjettamönnum, að
líkur bendi til þess, að búa
megi til þúsund sitmum öfl-
ugri sprengju en þá, sem varp.
að var á Nagasaki. ,
8.R. viija kaupa Koiafjariar-
siídina á 30 kr. mál
ef fiutningur fæst
STJÓRN Síldarverksmiðja ríkisins hefur óskað heimild-
ar hjá atvinnumálaráðuneytinu til þess að kaupa Kolla-
fjarðarsíidina á kr. 30.00 málið á veiðistað eða í Reykja-
rík, ef flutningur á síldinni til Siglufjarðar fæst fyrir
kr. 15.00 hvert mál síldar.
Samkvæmt áskorun síldar-
útvegsmanna ritaði Landssam-
band ísl. útvegsmanna atvinnu-
rnálaráðuneytinu brjef sl. mánu
dag. L.Í.Ú. óskaði að athugað
væri hvort S.R. gæti keypt
Kollafjarðarsíldina hjer og flutt
hana norður til bræðslu.
Atvinnumálaráðuneytið ritaði
stjórn S.R. um málið. Hefir nú
stjórn S.R. farið fram á leyfi
ráðuneytisins til sildarkaup-
anna, og fer brjef verksmiðju-
stjórnar til ráðuneytisins hjer á
eftir:
Með tilvísun til brjefs yðar
dags. í gær og til samtala milli
hr. Gunnlaugs Briems,- stjórn-
arráðsfulltr. og formanns stjórn
ar SR og ennfremur til samtala
i við framkvæmdastjóra L. I. Ú.
!og framkvæmdastj. Síldarút-
vcgsnefndar, sem öll hnigu í þá
átt, að stjórn SR athuguðu
hvaða verð verksmiðjurnar
gætu greitt fyrir síld þá, sem
nú veiðist í Kollafirði og víð-
ar í Fa-xaflóa, þá hefir verk-
#
smiðjustjórnin athugað þetta
mál og áætlað að SR gætu greitt
kr. 30.00 fyrir málið’ 150 lítra,
mældri um borð í flutningaskip
er tæki við síldinni á veiðistaðn
um eða í Reykjavík. Þetta verð
er miðað við, að flutningur fá-
ist á síldinni fyrir kr. 15.00 á
mál, miðað við uppmælt mál úr
flutningaskipi komið í lönd-
unartæki SR á Siglufirði.
Vjer höfum farið fram á, að
L. í. Ú. tæki að sjer að útvega
flutningaskip, sem tækju 700—
1000 mál í lest, fyrir þetta verð,
en verði flutningsgjaldið lægra
getum vjer greitt hærra verð,
sem því svarar, o^ eins verður
verðið pr. síldarmál til veiði-
skipa að lækka ef flutnings-
gjaldið er hærra. I flutnings-
gjaldinu er innifalið, að mæla
síldina um borð 1 flutninga-
skipið og salta hana með salti,
sem SR leggja til, að skila síld-
inni í löndunartæki SR á Siglu-
firði.
SR geta því aðeins greitt kr.
30.00 pr. mál á veiðistaðnum
eða í Reykjavík, að í vinnslu-
kostnaði sje ekki talið annað
en bein vinnulaun, kol og aðrar
rekstursvörur og flutningskostn
aður síldarinnar til Siglufjarð-
ar og því ekki reiknuð sjóða-
j gjöld, afborganir, vextir, laun
fastra, starfsmanna og annar
fastur kostnaður.
' Með tilvísun til framanritaðs
förum vjer fram á heimild frá
ráðuneytinu til þess að mega
kaupa síldina föstu verði kr.
30,00 pr. mál, 150 lítra, á veiði-
staðnum eða í Reykjavík, mið-
að við að umsemjist að L. í. Ú.
útvegi nægileg flutningaskip til
flutninga á síldinni, fyrir kr.
15,00 pr. mál og verð bræðslu-
síldarinnar hreytist til samræm
is við flutningsgjaldið, ef það
yrði annað.
Virðingarfylst,
Stjórn Síldarverksmiðja
ríkisins,
Sveinn Benediktsson.
JónJj. Þórðarson.
Erl. Þorsteinsson.
Landssamband ísl. útvegs-
manna er nú að athuga um út-
vegun skipa til flutnings á síld-
inni norður.
Uppgripaafli í KoIIafirði
I gær var enn meiri uppgripa
afli í Kollafirði en nokkru sinni
áður. Sumir bátanna misstu net
sín fyrir það, að þau fylltust
svo af síld að þau rifnuðu og
sukku, er verið var að draga
þau. Um 12 bátar voru að veið-
um í gær með um 5 net á bát
1 að meðaltali og fnun meðaLfli
þeirra hafa verið 15 tunnur
síldar í net, eða alls um 900
tunnur.
Mestan afla fjekk m.b. And-
vari frá Reykjavík, 200 tunnur
í 6 net.
Síldin óð víða á firðinum og
virtist sumstaðar eins þjett og
í vegg sæi.
Síldaraflmn í gær fór að
mestu til frystingar, en nokk-
uð var saltað. Búast. má við
að hún nýtist ekki öll.
Varðbátarinn Fíbs-
björn bjargar vjol-
í OFVIÐRINU fyrir síðij.stu
helgi strandaði vjelbátu inn
Hilmir frá Hólmavík á Reykja-
nesi í Steingrímsfirði. Áhöfnin
komst heilu og höldnu í land.
Á laugardagsnótt fór.varð-
báturinn „Finnbjörn" á strond-
stað til þess að gera tilraun til
þess að bjarga bátnum.
Björgun gekk vel og tókst
„Finnbirni“ að ná bátnum út
í fyrrakvöld og mun báturinn
vera lítið skemmdur. Hilmir .er
nýlegt skip, 30 rúmlestir að
stærð.
LONDON: — Atkvæða-
greiðsla var nýlega láftn fara
fram um það jt Oxford, hvprt
leyfa ætti kvikmyndahúsurh
borgarinnar að hafa sýningar á
sunnudögum. 10,630 greiddu
atkvæði með sýningunum,
2.827 voru á móti.