Morgunblaðið - 16.01.1947, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
1 ; ■ i . . )
Fimtudagur 16. jan. 1947
KYIMSJIJKDÓMAR Á ÍSLAIMDI
Framhald af bls. 9.
Þjóðir þessar skuldbinda sig
til að veita erlendum farmönn-
um ókeypis læknishjálp við
kynsjúkdómum í öllum helstu
hafnarborgum, hver í sínu
landi.
Gefin eru út sjerstök sjúk-
dómsskírteini (Personal card),
sem hver sjúklingur, sem ferð-
así milli landa, fær í hendur-
Inn á skírteini þetta er færð ná-
kvæm sjúkdómsgréining, með-
ferð öll og rannsóknir, sem gerð
ar hafa verið á, sjúklingnum á
hvérjum stað. Þannig geta sjúk
iingar, sem ferðast landa á milli
fengið rjetta samfelda lækn-
ingu með því að sýna skírteini
sitt. Er þetta mikið hagræði
fyrir farmenn, sem oft eru mál-
litlir í framandi löndum.
A stríðsárunum leitaði mikill
fjöldi erlendra farmanna sjer
lækningar á þennan hátt í ís-
lenskum höfnum, sjerstaklega
Reykjavík.
Einn þáttur kynsjúkdóma-
varna og ekki sá þýðingar-
minsti er eftirgrenslan um upp
tök sjúkdómasins.
Sjúklingur, sem læknis leit-
ar, er spurður um, af hverjum
hann hafi smitast. Geti hann
bént á ákveðna persónu, er sjúk
lingnum gefinn kostur á að gera
henni viðvart, og sjá um, að
hún leiti án tafar læknis. Bregð
ist það, verður læknirinn sjálf-
ur að gera hlutaðeigandi við-
vart um að koma til rannsókn-
ar, venjulega brjeflega. — Dugi
það ekki, er Rannsóknarlög-
reglunni fengið málið í hendur.
Oft er sú vitneskja sem sjúk-
lingurinn lætur í tje mjög ófull
nægjandi, heimilisfang skakkt,
nöfn afbökuð eða stytt, stund-
um um fleiri en einn að ræða
o. s. frv.
Þessi þáttur kynsjúkdóma-
varna krefst mikils tíma og nær
gætni og er því aðeins fram-
kvæmanlegur að fullu gagni, að
læknirinn hafi nægum tíma
yfir að ráða.
Loks er eftirlit með sjúkling-
um, sem vanrækja lækningu
sína, flytjast í aðra landshluta
eða geta ekki komið til lækn-
inga af öðrum ástæðum.
A styrjaldarárunum voru
hermenn, sem sýktust af kyn-
sjúkdómi hjer á landi skyldaðir
til þess, að viðlagðri refsingu,
að skýra frá nafni og heimili
þeirrar stúlku, sem þeir sýktust
af. Sjerstaklega var gengið ríkt
eftir því í ameríska hernum.
Tilkynning var síðan send af
herlækni til íslenskra heilbrigð
isyfirvalda eða rannsóknarlög-
reglu og hlutaðeigandi stúlka
síðan tekin til rannsóknar af
sjerfræðingi þeim, sem hefir
þessi mál til með höndum hjer
í Reykjavík.
Upplýsingar þær, sem her-
menn gátu gefið um stúlkurn-
ar, voru oft mjög ófullkomnar.
Heimilisfang oft skakkt eða
ekkert, nafn sjaldan rjett, oft
aðeins gælunafn. Aðrar upplýs-
ingar voru helstar: útlit, hæð,
aldur, háralitur o. s. frv. Var
þá oft úv vöndu að ráða fyrir
rannsóknarlögregluna.
Ljeki grunur á, að 'lkur,
sem til mín leituðu, hc' vskt
af hermanni, var þf an
tilkynt hlutaðeigandi ! ■ .i,
svo framarlega sem unt var að
fá fullnægjandi vitneskju um
nafn, stöðu, eða annað sem að
haldi kæmi, en á því vildi því
miður oft verða misbrestur.
Þessi samvinna milli erlendra
og innlendra heilbrigðisyfir-
valda og lækna kom vafalaust
oft að miklu gagni og hefur af-
stýrt fjölda smitana.
Héilbrigðisstjórnin hjer hefir
gefið út leiðbeiningar um kyn-
sjúkdóma í handhægu formi,
sem fáanlegar eru hjá land-
lækni og læknum er skylt að
afhenda hverjum þeim sjúk-
lingi, sem til þeirra leitar með
kýnsjúkdóm.
Nokkur fræðsla fyrir almenn
ing hefur einnig birst í blöðum,
tímaritum og bókum um kyn-
sjúkdóma, þótt minni hafi verið
en æskilegt væri.
Fyrir milligöngu forstjóra
lyfjaverslunar ríkisins og vel-
vild amerískra heilbrigðisyfir-
valda fjekk ísland fyrst abra
Norðurlanda penicillin til al-
mennra nota við kynsjúkdóm-
um.
Frá því í okt. 1944 til des.
1946, hafa s^mtals 631 sjúk-
lingur fengið penicillin-lækn-
ingu við lekanda í Húð- og kyn
sjúkdómadeild Landsspítalans.
Eins og áður hefir verið get-
ið, tekur lyf þetta öllum öðrum
lyfjum langt fram við þessum
sjúkdómi. Reynslan sýnir hjer,
að svo miklu leyti sem unt er
að fylgjast nægilega lengi með
sjúklingunum, að 95% þeirra
læknast að fullu.
Lyfið er gefið í sprautum
þriðju hverja klukkustund, í
heilan sólarhring, en nokkru
lengur ef um gömul, þrálát til-
felli er að ræða.
Lyfið hefir einnig verið reynt
hjer í allmörgum tilfellum við
syphilis, en not lyfsins við þeim
sjúkdómi eru enn vafasöm,
enda er það hvergi notað ein-
samalt við þessum sjúkdómi,
heldur í sambandi við hin eldri
salvarsanlyf.
Hin Norðurlöndin. Noregur.
Tala syphilissjúklinga í Noregi
fyrir stríð var komin niður í 300
á ári, en komst stríðsárin upp í
2000 nýja sjúklinga á ári^ eða
með öðrum orðum meir en sex-
faldaðist.
Tala lekandasjúklinga þar í
landi jókst ekki.að s'ama skapi,
ef marka má skýrslur lækna,
eða úr 5000 nýjum tilfellum á
ári upp í 7000.
Tala smitaðra kvenna í Nor-
egi hefir aukist hlutfallslega
mikið meir en karlmanna og
kenna þeir um „kvinnens svak
het for uniformer’,. Stóraukin
vínnautn hefir einnig haft mikil
áhrif á útbreiðslu sjúkdómanna.
Er komist svo að orði í skýrslu
norska heilbrigðisráðsins, að
„aukning kynsjúkdómanna hafi
staðið í beinu hlutfalli við sölu-
magn áfengisverslunarinnar“.
í Noregi er nú hafin allsherj-
ar herferð gegn kynsjúkdóm-
um. HeilbrigðiSstjórnin fjekk í
sumar umráð yfir miklu magni
af penicillin til kynsjúkdóma-
lækninga. Hefir því' nú verið
dreift út um landið. í blöðum
og útvarpí er skorað á þá, sem
sjúkir eru, eða hafa grun um
að svö sje, að leita sjer lækn-
ingar tafarlaust. Ríkið lætur
gefa út blöð og bæklinga í stór
um ujípl^gum, til að fræða al-
menning um kynsjúkdóma og
hættur þær, sem af þeim stafa.
Heilbrigðisstjórnin hefir aflað
sjer fræðslukvikmynda um kyn
sjúkdóma og þær verið sýndar
samhliða skýrandi fyrirlestrum.
Auglýsingaspjöldum með við-
vörunum og leiðbeiningum,
er komið fyrir á fjölmennum
samkomum og skemmtistöðum
og víðar.
Á þennan hátt hygst norska
heilbrigðisstjórnin að ganga á
milli bols og höfuðs á kynsjúk-
dómum í landi sínu.
_ Danmörk. Aukning kyn-
sjúkdóma hefir orðið enn
ískyggilegri í Danmörku í stríð
inu heldur en í Noregi.
Fyrir stríðið voru í Dan-
mörku árlega um 500 ný syp-
hilstilfelli. Seinni stríðsárin
komst tala þeirra upp í á 5.
þúsund eða nærri tífaldaSist.
Af lekanda voru fyrir stríðið
í Danmörku um 8000 ný tilfelli
árlega, en komust í stríðinu upp
í 23 þúsund ný tilfelli á ári eða
þrefaldaðist.
í Danmörku er nú einnig haf
■ist handa um stórauknar varn-
ir gegn kynsjúkdómum.
í þessum mánuði voru lögð
fyrir danska þingið ný lög um
varnir gegn kynsjúkdómum. —
Eru þau miklu strangari en hin
fyrri löggjöf um þessi efni. —
Leggja lögin læknum strangar
skyldur á herðar um fullkomna
eftirgrenslan um upptök sjúk-
dómsins hjá hverjum einasta
sjúklingi, sem til þeirra leitar-
Refsiákvkði öll eru hert til mik
ilal'muna, t. d. ef sjúklingur gef
ur rangar upplýsingar um hvar
hann hafi smitast, vanrækir
lænkningu sína eða verður vís-
vitandi valdur að smitun ann-
ara.
hætta þeim er búin þar af sjúk
dómum þessum.
Komandi ár. Frá því í lok árs
ins 1934 hefir íslenska ríkið ein
ungis haft í þjónustu sinni einn
sjerfræðing, sem vinnur að
kynsjúkdómalækningum, og
vörnum gegn þeim, ásamt hjer-
aðslæknum landsins. Ber honum
að veita daglega ókeypis lækn-
ishjálp við kynsjúkdómum hjer
í Reykjavík, bæði Islendingum
sjálfum og erlendum farmönn-
um. Hann á að hafa á hendi
eftirgrenslanir allar, eftirlit og
varnarráðstafanir, auk þess að
vera læknir Húð- og kynsjúk-
dómadeildar Landsspítalans.
Við deild þessa er ein fast-
ráðin hjúkrunarkona, og eru
störf hertnar alveg bundin við
sjúkrahúsið, enda ærið starf.
Er þá talið starfslið ríkisins,
sem beint er ráðið til þess að
vinna að þessum málum, og er
auðsætt, að ekki verður við það
unað til frambúðar, ef'vjer eig
um ekki að verða eftirbátar ná-
grannaþjóðanna á'þessu sviði.
Frá því í lok ársins 1941 hef-
ir að vísu aðeins verið einn ís-
lenskur sjerfræðingur til í þess
ari gr'ein, en úr því verður vænt
anlega bætt á þessu ári, því að
þá lúka tveir ungir íslenskir
læknar sjernámi í húð- og kyn
sjukdómum, annar í Ameríku,
hinn í Svíþjóð.
Ríki eða bær hafa ekki enn
eignast neitt húsnæði fyrir kyn
sjúkdómalækningar sínar í
Reykjavík (til handa þeim, sem
fótavist hafa, en það er mest-
ur hluti sjúklinganna), heldur
er svo til ætlast, að læknirinn,
sem lækninguna annast, leggi
sjálfur til húsnæði.
Æskilegast væri, að lækninga
stofur þessar (poliklinink)
væru í sambandi við Húð- og
kynsjúkdómadeild Landsspííal-
ans. Á þann hátt mundi best
notast vinnuafl lækna og
hjúkrunarkvenna. Þetta fyrir-
komulag er haft víðast á Norð-
urlöndum. Til þess yrði að
stækka núverandi sjúkradeild
um helming. Annar helming-
ur byggingarinnar yrði þá fyr-
ir rúmliggjandi sjúklinga, en
hinn fyrir þá, sem fótavist hafa
og ganga í lækningu.
Kmið gæti einnig til mála að
ætla hinum daglegu kynsjúk,-
dómalækningum rúm í hinni
væntanlegu heilsuvarnarstöð,
ef hennar verður ekki allt of
langt að bíða.
Minsti mannafli, sem komist
verður af með í framtíðinni til
þessara lækninga, er: í Rvík
tveir sjerfræðingar og tvær
hjúkrunarkonur. Á Norður-
landi einn sjerfræðingur, sem
væntanlega hefði aðsetur á Ak
ureyri, en starfaði jafnframt á
Siglufirði um síldveiðitímann.
Ef ríkið hefði þetta litla starfs-
lið-í þjónustu sinni og sæi því
fyrir sæmilegum starfsskilyrð-
um, tel jeg óhætt að fullyrða,
að takast mætti á fáum árum,
með þeim ágætu lækningaað-
ferðum, sem vjer nú ráðum yfir
að minka kynsjúkdóma hjer á
landi um tvo þriðju hluta og
e. t. v. enn betur.
í heilbrigðismálum þurfum
vjer að geta fylgst með bræðra-
þjóðum vorum á Norðurlöndum
og á þessu sviði hefðum vjer
jafnvel aðstöðu til þess að kom
ast fram úr þeim.
En til þess að þetta megi tak-
ast þurfa heilbrigðisyfirvöld og
Alþingi að veita málinu þann
stuðning sem nauðsynlegur er,
enda mun almenningur í land-
inu óska þess að svo verði gert.
Takmarkið þarf að vera út-
rýming þessa þjóðarmeins á
næstu 10—20 árum.
í Svíþjóð hefir einnig orðið
mikil auking á kynsjúkdómum
stríðsárin, jafnvel þótt þar væri
ekki setulið og þjóðin væri ekki
þátttakandi í stríðinu.
Svíar hafa lengi staðið allra
þjóða fremst í kynsjúkdóma-
vörnum, eins og öðrum heil-
brigðismálum. Hefir nú verið
hert mjög á öllum varnarráð-
stöfunum, læknishjálp og al-
menningsfræðslu um kynsjúk-
dóma aukin til mikilla muna.
Þegar svo er ástatt, sem hjer
hefir verið sagt, um kynsjúk-
dóma á Norðurlöndum, sem
lengst höfðu náð í útrýmingu
þeirra fyrir stríð, má fara nærri
um hvernig komið sje í þessu
efni fyrir mörgum öðrum Ev-
rópuþjóðum.
England, sem er sú nágranna
þjóðin, sem mest af silghngum
vorum bemist til, hefir orðið
mjög hart leikið af kynsjúk-
dófnum í styrjöldinni. Sjerstak
lega hafa margar hafnarborg-
irnar orðið gegnsýrðar af þess-
um sjúkdómum í stríðinu, en
einmitt í þessum borgum var
aðaluppsprettan að hinni miklu
aukningu syphilis hjer á landi
á stríðsárunum.
Þess mun verða langt að bíða
að ástandið í þessum, borgum
batni til mikilla muna, og verð
ur það því aldrei um of brýnt
fyrir sjómönnum oð öðrum, sem
þessar borgir sækja, hver
od§e vjel
%o,inni gerð, helst ný, óskast til kaups
| Ua^ueita ^JJa^iar^ardar
V
14<$xS>s*M>«><Í>3*Í*M*Í>«*í>@*@><@^@*@><@><»3><S*Sk@<®*S><S><M*®”ÍxS^'«>^^
Nýkomið
Snitti í kössum
Vá til % tomma fyrir enskar bifreiðar
CjaJar Cjíóiaáoa h.p.
varahlutadeild
I Stúlkur
Nokkrar stúlkur vantar í hraðfrystihús 1
Sandgerði. Bjartur og hlýr vinnusalur. Fæði
og húsnæði rjett við vinnustaðinn.
Garður h.í
Sími 5, Sandgerði.