Morgunblaðið - 20.05.1947, Síða 5
Þriðjudagur 20. maí 1947
MORGUNBLAÐIÐ
rr
K ÍNAKÖNNUNIN
Framhald af bls. 1.
Þrjár léiðir fyrir
skattþegnana.
Eignakönnuninni er fyrst og
fremst ætlað það hlutverk, að
færa eignarframtöl í rjett horf
tiú og framvegis.
Skattþegnunum gefst kostur
ú að rjetta framtöl sín með
þrennum hætti:
1. Þeir geta talið fram und-
andregnar eignir innan þess
tíma, sem tilskilið verður. Verð
ur þeim þá gert að greiða van-
goldinn skatt, samkvæmt gild-
andi skattalögum án skattsekta.
2. Þeir geta talið fram und-
andregið fje, alt að 45 þús. kr.
eign, sem til hefir orðið eftir 1.
jan. 1940. Eru þá 15 þús. kr.
skattfrjálsar, en af 15—25 þús.
greiðist 5%, af 25—35 þús. 10%
og af 35—45 þús. 15%. Af því
sem er yfir 45 þús. greiðist skv.
skattalögunum, án sekta.
3. Loks eiga menn þess kost
að kaupa fyrir undandregið fje
sitt ríkisskuldabrjef þau, sem
áður var greint frá. Verður
þetta fje fest að láni hjá ríklnu,
með 1% vöxtum.
Þessi brjef eru skattfrjáls til
ársloka 1952. Eftir þann tíma
er eigendum í sjálfsvald sett,
hvort þeir telja brjefin fram eða
e’kki. Ef þeir telja þau ekki
fram missa þeir tilkall til vaxta.
Sjeu brjefin talin fram fá eig-
endur greidda vexti, en ber að
greiða skatt af brjefunum. Þeg-
ar brjef eru dregin út verður
að segja til nafns eigenda, og
greiðir hann þá skatt af and-
virðinu eftir þann tíma.
Sjerstakt framtal.
Til þess að sannreyna eignir
manna er ákveðið, að sjerstakt
framtal eigna og tekna skuli
fram fara. Akveður fjármála-
ráðherra framtalsdaginn ein-
Siverntíma síðari hluta þessa árs
en hann getur ekki orðið fyrr en
útboðstími ríkisskuldabrjef-
anna er liðinn (1. ágúst).
Fjármálaráðherra og fram-
talsnefnd, sem skipuð verður,
Setja nánari reglur um fram-
talið.
Komi í ljós við framtalið eða
við rannsókn á því, að viðkom-
andi skattþegn á meiri eignir
en samrýmst getur fyrri fram-
tölum hans, koma hin sjerstöku
ákvæði til framkvæmda.
Af 25 þús. kr. eign, sem sann-
anlega hefir verið til opðin fyr-
ir 1. jan. 1940, og þá og síðan
verið undan framtali dregin,
skal ekkert gjald greiða.
En af eign, sem til hefir orð-
ið eftir 1. jan. 1940 og dregið
hefir verið undan framtali greið
ist sjerstakur skattur skv. því
sem frá var sagt hjer í kaflan-
um á undan.
Skýri skattþegn af ásetningi
eða stórkostlegu gáleysi rangt
frá cignum sínum á hinu sjer-
staka framtali, skal sú eign sem
undan er dregin falla óskift til
ríkissjóðs.
. Auk þess liggja við háar sekt-
ir (alt að 200 þús. kr.), ef rangt
er talið' fram eða af ásetningi
þverskallast við að telja fram.
Innköllun seðla.
A undanförnum árum hefir
verið meira í umferð af seðlum
þjóðbankans en ætla má, að
þörf viðskiftalífsins hafi kraf-
ist. Almenn eignakönriun nær
því ekki tilgangi sínum, nema
seðlar sjeu innkallaðir, sem í
umferð eru á framtalsdegi, og
jafnframt sje aflað vitneskju
um eigendur þeirra. Fjallar III.
kafli frv. um þetta.
Samkvæmt því hætta seðlar
) Landsbankans að vera löglegur
gjaldeyrir frá upphafi framtals-
dags.
Landsbankinn og þær stofn-
anir eða þeir aðilar, sem hann
veitir umboð til innlausnar seðl
um, eru skyldir að innleysa
seðlana með afhendingu nýrra
seðla framtalsdaginn og næstu
9 daga þar á eftir, eða alls 10
daga. Þegar sjerstaklega stend-
ur á (seðlar sendir í pósti eða
þvíuml.) skal skylt að innleysa
þá eftir þann tíma. Komi seðlar
eftir innlausnarfrest, tekur
Landsbankinn við þeim, því ver
ið getur að þeir fáist greiddir að
einhverju leyti, ef dráttur á
framvísun þeirra er afsakanleg
ur. Verða settar nánari reglur
um þetta.
Ekki má sami aðili fá seðla
innleysta nema í eitt skifti. Er
sú regla m. a. sett vegna þess,
að framvísun sama manns á
seðlum mörgum sinnum og e. t.
v. á mörgum stöðum mundi tor
velda mjög innköllunina. Und-
antekning er þó gerð um þá,
sem eftir innlausnartíma fá í
hendur peningabrjef, sem sett
hefir verið í póst fyrir fram-
talsdag.
Til þess að sannreyna, hverjir
sjeu eigendur peninga, sem
innleystir eru, verður sá, er inn
lausn æskir að sýna vegabrjef
sitt eða sjerstakt nafnskýrteini
og undirrita innlausnarbeiðni.
Sjerstök ákvæði eru um
Vjelstjórar
1. vjelstjóra vantar á 2 togara frá Reykjavík. — List-
hafendur leggi nöfn sín í umslagi á afgr. Mbl., merkt:
„Vjelstjóri“.
Nokkrar röskar
framistöðustúlkur
óskast nú þegar og einnig stúlka vön matreiðslu.
Upplýsingar í sima 1066 og 3520.
tjekka, póstávísanir og ávísan-
ir til greiðslu úr opinberum
sjóðum.
Þung refsing liggur við röng-
um eða villandi upplýsingum í
sambandi við innköllun seðla.
Nafnskráning á innstæðum
I IV. kafla fry. eru ákvæði er
lúta að könnun á inristæðueign-
um manna í bönkum og öðrum
lánsstofnunum. Skal fram fara
nafnskráning á slíkum inneign-
um.
Skal hver innstæðueigandi af
henda hlutaðeigandi lánsstofn-
un innstæðuyfirlýsingu á þar
til gerðu eyðublaði, þar sem
gerð sje grein fyrir innstæðunni
og eiganda hennar. Lánsstofn-
un er frá og með framtalsdegi
óheimilt að greiða fje út úr inn-
stæðureikningi, fyrr en hún hef
ir fengið í hendur fyrrgreinda
yfirlýsingu.
Að liðnum fresti til að skila
innstæðuyfirlýsingu, skal gerð
skrá yfir þær innstæður, sem
yfirlýsingar hafa ekki borist
um. Skal síðan birta opinber-
lega innköllun varðandi þessar
innstæður. Komi eigandi fram
samkvæmt innkölluninni, má
gera honum að greiða alt að
fjórðungi innstæðunnar í sekt.
Gefi eigandi sig hinsvegar ekki
fram, fellur innstæðan til ríkis-
sjóðs.
Handhafabrjef.
Eigendur eða vörslumenn
handhafaveðbrjefa, þ. e. skulda
brjefa og vaxtabrjefa, svo og
hlutabrjefa og stofnbrjefa í
fjelögum eða fyrirtækjum,
skulu tilkynna brjefin til sjer-
stakrar skráningar. Skal í til-
kynningunni greina nafn eig-
anda. Jafnframt því, sem til-
kynningin er afhent skattyfir-
völdunum, skal sýna verðbrjef-
in, sem verða þá stimpluð.
Eftir að tilkynningarfrestur
er liðinn skal gera skrá um
þau verðbrjef, sem ekki hafa
verið tilkynt, og birta síðan
opinberlega innköllun varðandi
þau. Fer þá um þau brjef á
sama hátt og um innköllun
seðla.
Framkvæmdin.
I VI. kafla eru ýmis ákvæði,
er einkum varða framkvæmd
laganna.
Skal framkvæmdin falin sjer
stakri nefnd, sem fjármálaráð-
herra skipar. Nefnist hún fram-
talsnefnd, og er skipuð 3 mönn-
um og 3 til vara. Skattyfirvöld-
um er skylt að aðstoða nefnd-
ina.
Framtalsnefnd er heimilt, án
dómsúrskurðar, að láta fulltrúa
sína rannsaka vörubirgðir ein-
stakra manna og fyrirtækja og
bókhald þeirra.
Frumvarpið var tekið til 2.
umræðu á síðdegisfundi í Nd. í
gær. Fjármálaráðherra fylgdi
frv. úr hlaði, en síðan urðu
allmiklar umræður um málið.
Að lokum var frv. vísað til 2.
umr. og fjárhagsnefndar.
María Guðrún
Guðjónsdóttir
Ef Loftur getur það ekki
— þá hvei ?
í DAG er lögð til hinstu
hvíldar frú María Guðrún Guð
jónsdóttir, Vesturgötu 19, er dó
9. maí s. 1.
Frú María var vinamörg
merkiskona, norðlensk að ætt
og ættgöfug. Hún var fædd 25.
ágúst 1865 og nær 82 ára að
aldri. Foreldrar hennar, Anna
og Guðjón, bjuggu á Þórustöð-
um í Eyjafirði, dóu þau á fárra
vikna millibili,. og ljetu eftir sig
sex börn munaðarlaus. Hin
yngstu þeirra fóru þá til skyld
menna sinna og er nú eitt
þeirra á lífi — Arnþrúður hús-
frú að Hvoli í Mýrdal.
María var 9 ára, þegar hún
misti foreldrana og var tekin
til uppfósturs af föðursystur
sinni, Aldísi Einarsdóttir á
Litla Eyrarlandi í Eyjafirði.
Uppkomin fór hún í vist og
vann fyrir 30 kr. á ári, sem þá
v.ar hæsta kaup. — Hún giftist
árið 1895 eftirlifandi eigin-
manni sínum, Þorsteini Gísla-
syni, skipstjóra. — Þau áttu
heima til að byrja með á Víði-
völlum í Fnjóskadal og fluttu
þaðan að Svínanesi _á Látra-
strönd 1904. — Þorsteinn stund
aði þá sjávarútgerð á árabili.
María og Þorsteinn voru ham
ingjusöm í hjónabandi og tók-
ust með þeim ástir góðar. Á
Víðivöllum fæddist þeim dreng
ur 1898 og varð þeim ekki
fleiri barna auðið. Þessi sonur
þeirra er Gárðar Þorsteinsson
lögfræðingur, sem þau hjón
hafa dvalið hjá þessi síðari ár
við hið ákjósanlegasta atlæti. —
Nú var það mikið áhugamál
þeim Maríu og Þorsteini, að
mennta einkason sinn, sem þau
unnu hugástum. Meðfram þess
vegna fluttu þau til Akureyr-
ar 1913. — Og árið 1925 tóku
þau sig upp frá Norður-
landi og fóru til Reykja-
víkur. *— Síðan hafa þau dval-
ið þar hjá Garðari syni sínum
og frú hans, Onnu Pálsdóttir.
Æfibraut Maríu og Þorsteins
var framan af eins og gekk á
þeim tíma — erfið, óhæg og
mótdræg. — En trúfast hjóna-
líf ruddi veginn, svo nú síðast-
liðin 22 ár hafa þau, eins og
sagt er — verið borin á hönd-
um, á heimili sonar og tengda-
dóttur, og virt og elskuð af fjöl
skyldunni. •— Árið 1945 hjeldu
þau gullbrúðkaup sitt, lífsglöð
örugg og ung í anda. —
María var einstaklega prúð
kona og búin þeim kvenkostum
að bæta um fyrir öðrum, gleðja
og lífga upp, hvar sem hún var
stödd. Hún mátti ekki aumt
sjá, nema líkna og framgangs-
máti hennar og hreinlæti var
orðlagt. Alt var fyrnum fág-
að, sem hún hafði hjá sjer, og
vandað að öllu. — Þetta beriti
til sálarhreinleika hennar •—
og hreinskilni — sem kom og
fram í viturlegunT ráðum og
greinagóðum tillögum. — Æsk
an í sál hennar var höfuðein-
kenni lífskoðana hennar. —
Barnið, sem gladdist við allt
gott og fagurt og hlakkaði til
að mega á hverjum degi ljetta
og bæta fyrir einhverjum.
Hreinskilni í orði var henni
ljett og naut hún mikils styrks
í samstarfi síns trúfasta maka.
Nú um sinn var hún tæprar
heilsu, olli því hjartabilun. Svo
var María föst í sinni hjarta-
hlýju barnatrú á guð og eilíft
líf, að ekki var breyting á til
íeviloka. Hið rólega, góða skap
sitt endurnýjaði hún í morgun-
Og kvöldbæn sinni.
Það er að vísu harmur kveð-
inn að eiginmanni eftir rúml.
50 ára samleið að vera skilinn
eftir — og sannarlega á fjöl-
skyldan á Vesturgötu góðum
húsengli á bak að sjá — þegar
móðirin, amman, langamman og
eiginkonan María Guðjónsdóttir
er horfin. En þó sess hennar sje
auður, stafar einskonar andleg
geislaglóð frá eilífa lífinu' yfir
minningarnar, og vekur fögnuð
um endurfundi.
Vandamenn og vinir beina
hlýjum samúðarkveðjum við
þetta tæikfæri heim til ekkju-
mannsins og allra náinna ást-
vina Maríu sál. á Vesturgötu
19 og biðjum guð að vera þeirra
styrkur.
Eyjólfur Guðmundsson
frá Hvoli. j
DÍVAISll
sem nýr, til sölu. Miklu- 1
braut 16, kjallaranum,
þriðjudag kl. 5—6 e. h.
iiiimiiiitiimrttifMtttiiiiiiiitimmtmiifiiiiiiutmtitmiit
iiwyiiiiriiitmiiniiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiMwi
Píanó til sölu
Gott píanó til sölu.' —
Uppl. í síma 3564 og 2872.
viiiiimxMimiiiimiiMiiiiiiiBiittmmKimiiiiiiiimiiiiiMa
Atvinita |
Stúlka helst vön af-
greiðslustörfum óskast nú
þegar í sjerverslun í Aust-
urstræti. Verslunarskóla
eða önnur hliðstæð ment-
ún æskileg. — Tilboð
merkt: ,,X—99 — 1153“
sendist Mbl. fyrir 1. júní.
ffiniumummmrniiininniiiimiMiimim