Morgunblaðið - 20.05.1947, Qupperneq 9
Þriðjudagur 20. maí 1947
MORGUNBLAÐIÐ
9
SVEINN JÓNSSON
trjesmíðameistari
MINNINGARORÐ
SVEINN JÓNSSON trjesmíða-
meistari verður jarðsunginn í
dag. Hann andaðist að heimili
sínu 13. þ. m., eins og fyr er
getið. Banamein hans var
lungnabólga. Tók sjúkdómur-
inn hann svo geist, að hann and
aðist á fyrsta veikindadegi.
Sveinn heit. var fæddur að
Steinum undir Eyjafjöllum 19.
apríl 1862. Foreldrar hans voru
Jón Helgason bóndi þar, og
kona hans Guðrún Sveinsdóttir.
Margbýli var að Steinum a þess
um árum, en lítil búin hjá hverj
um Steina-bóndanum. Vandist
Sveinn í uppvextinum knöpp-
um kjörum. Bar snemma á því,
að hann var að eðlisfari ein-
beittur og fylginn sjer.
Fjórtán ára gamall fór hann ^
í fyrsta sinn til róðra til Vest-
mannaeyja. Fekk hann þar „að
ganga milli skipa“, sem kallað
var. Var það siður þar, að ung-
lingar fengu að róa dag og dag
sitt hjá hvorum formanni, áð-
ur en þeir höfðu aldur til að
vera ráðnir fullkomnir háset-
ar. Alls reri Sveinn 6 vertíðir
í Eyjum, en var oftast heima
í Steinum á sumrum.
Rúmlega tvítugur kom hann
hingað til Reykjavíkur, til þess
að læra trjesmíði. Lærði hann
hjá Þorkeli Gíslasyni, fekk hjá
honum sveinsbrjef vorið 1886.
Um haustið giftist hann Guð-
rúnu Runólfsdóttur frá Maríu-
bákka. Reistu þau bú í Vest-
mannaeyjum. Stundaði Sveinn
þar trjesmíðar.
Börn Sveins og Guðrúnar
Runólfsdóttur eru: Sigurveig,
búsett í Vestmannaeyjum, Júlí-
ana. listmálari í Höfn, Sveinn
forstjóri Völundar, Arsæll
útgerðarmaður í Eyjum og Sig-
urður bílstjóri s. st.
Árið 1898 flutti Sveinn hing-
að til Reykjavíkur. Var hann
síðan búsettur hjer til dauða-
dags. Skömmu eftir að Sveinn
flutti hingað, hófst hjer mikið
framfaratímabil, útgerðin jókst
mjög, stofnaður Islands banki,
stjórnin flutt til landsins, er
Hannes Hafstein varð ráðherra.
íbúum Reykjavíkur fjölgaði ört
á þessum árum. Voru á skömm-
um tíma bygð ný bæjarhverfi.
Þá var nær einvörðungu bygt
úr timbri. Sveinn hafði verið
hjer skamma hríð, er hann var
orðinn meðal athafnamestu
byggingameistara bæjarins. —
Hafði hánn almenningsorð, sem
vandvirkur maður, hagsýnn og
traustur í viðskiftum. Hafði
hann á þessum árum jafnan
mörg hús í smíðum í einu, þetta
6—8 og 20—30 manns i vinnu.
Það þótti mikið í þá daga. —
Ýmist tók hann að sjer að
byggja húsin fyrir ákvæðis-
verð, ellegar hann reisti þau
fyrir eigin reikning, til að selja
þau fullsmíðuð.
Sveinn gerði sjálfur upp-
drætti að húsum þeim, er hann
reisti. Við smíðanámið, hafði
hann eigi að neinu ráði notið
tilsagnar í teikningum. Aflaði
hann sjer erlendra bóka, til leið
beiningar við uppdrættina. —
Sveinn Jónsson
yrði haldið sem mest á lofti. —
Lagði hann kapp á, að kvnna
sjer öll söguleg efni, er v^rpað
gætu ljósi yfir æfi og athafnir
landnámsmannsins. — Tokst
hann ferð á hendur til Nor-
egs, til þess að sjá og kynnast
þeim stöðvum, þar sem Ingólf-
ur hafði alið aldur sinn, áður
en hann lagði út hingað. Safn-
aði Sveinn því, er skrifað hefir
verið um Ingólf, í því skyni, að
það yrði dregið saman í eitt rit.
Sveinn var í bæjarstjórn
Reykjavíkur um skeið. En í
byggingarnefnd var hann lengi.
Fleiri trúnaðarstörfum gegndi
hann fyrir bæinn.
Voru ýms hús þau, er hann
teiknaði og reisti, með meira ný
tískusniði þeirra tíma, en menn
áttu hjer að venjast og þóttu
til fyrirmyndar.
Á þeim árum sem Sveinn
fekkst mest við húsabyggingar,
keypti hann allstórar lóðir í þá
verandi útjöðrum bæjarins. —
Kom þar fram sem oftar fyrir-
hyggja hans. Hann var meðal
stofnenda Völundar og í stjórn
þessa fyrirtækis í mörg ár.
Á kreppuárunum fyrir heims
styrjöldina fyrri ljet Sveinn af
byggingastörfum. Þá voru hjer
miklir fjárhagserfiðleikar. —
Hafði Sveinn tekið á sig all-
miklar ábyrgðir, fyrir vini sína
og kunningja, því hann var
hjálpsamur og vinfastur. Stofn-
aði hann nokkru síðar verslun
með byggingavörur. Rak hann
verslun þessa í nál. 25 ár. Eigi
hirti hann um að hafa þessa
verslun umfangsmikla, vildi
geta ^rekið hana mestmegnis
uop á eigin spýtur án mikillar
aðstoðar. Og hafa þó talsverðan
tíma afgangs til þess að sinna
ýmsum hugðarefnum sínum.
Árið 1885 var stofnuð fyrsta
Goodtemplarastúkan hjer sunn
anlands. Stúkan Verðandi. Var
Sveinn meðal stofnendanna.
Alla tíð síðan var Sveinn með-
al áhugasömustu og fórnfúsustu
forgöngumanna Reglunnar. —-
Hafði hann þar mörg störf á
hendi einkum þau er snertu
fjárhagsmál. Þegar fjárhagur
stúku hans var þröngur, tók
hann jafnan við gjaldkerastörf-
unum, til þess að fjelagsskap-
urinn nyti hagsýni hans, og
vegna þess hve framlagafús
hann ætíð var, þegar á þurfti
að halda. Hann átti mikinn þátt
í því að Templarar keyptu Hótel
ísland á sínum tíma og ráku
það fyrir sinn reikning.
Sveinn var og öflugur fjelags
maður í Iðnaðarmannafjelaginu.
Þegar Iðnaðarmannafjelagið
gekkst fyrir því, að reist yrði
minnismerki Ingólfs Arnarson-
ar, var Sveinn í forgöngunefnd
þess fyrirtækis. I sambandi við
það starf, beindist hugur hans
mjög til landnámsmannsins. I
einbeitni, þreki og fyrirhyggju
þess forustumanns sá Sveinn þá
eiginleika, sem hann vildi helst
kjósa þjóð sinni um alla fram-
tíð. Það var honum því einlægt
áhugamál, að minningu Ingólfs
Hann var eindreginn Heima-
stjórnarmaður á sinni tíð, og
átti sæti í stjórn landsmálafje-
lagsins „Fram“, er var eitt hið
öflugasta stjórnmálafjelag, sem
hjer hefir verið. Síðan Sjálf-
stæðisflokkurinn var stofnaður,
var hann eindreginn fylgismað-
ur hans.
Sveinn Jónsson hafði lifað alt
framfaratímsrbil þjóðarinnar,
alt frá því þjóðin var efnalaus,
valdalaus og ráðalaus og fram
til þeirra tíma, er við höfðum
fengið fult sjálfstæði og vorum
orðnir bjargálna.
Hann hafði sjálfur brotist
áfram úr fátækt til efna, með
dugnaði og fyrirhyggju, og
þeirri bjartsýni sem ávalt ein-
kendi hann í öllu fjelagslífi
hans og samstarfi við aðra. —
Hann var raunsær maður í at-
höfnum sínum, þegar um at-
vinnu- og fjármál var að ræða.
En í íjelagsmálum og menning-
armálum var hann örgeðja „ide
alisti“ er liafði óbilandi trú á
því, að það myndi sigra, sem
til frama horfir og blessunar
fyrir land og lýð.
í hópi fjelaga og góðra kunn-
ingia var Sveinn síkátur og
glaður. Þegar hann þurfti að
koma einhverju til leiðar, inn-
an þeirra fjelagssamtaka, sem
hann vann fyrir, var það tíðum
mesti styrkur hans hve vel hon
um tókst að halda glaðværð
sinni, og koma öðrum í gott
skap. En það levndi sjer ekki.
að á bak við kæti hans og
spaugsvrði, var djúp alvara.
manns, sem vissi hvað hann
vildi, og bekti ekki síður alvar-
legar hliðar tilverunnar.
Sveinn Ijet af~störfum fyrir
nál. 12 árum. Um sama leyti
giftist hann eftirlifandi konu
sinni Guðlaugu Teitsdóttur. —
Síðustu árin, sem hin fyrri.
rækti. hann fjelagsskap við
stúkubræður sína, og aðra góða
kunningja, sat með þeim löng-
um, og ræddi við þá um lands-
ins gagn og nauðsynjar og dæg
urmál þjóðarinnar. Nú er hann
skynailega horfinn úr þeim hóp
sá, er hafði Iengsta lífsreynsl-
una, og lengst hafði haldið þvi
áhugans fjöri er getur jafnað
mönnum veginn yfir erfiðleika
lífsins.
V. St.
Jarðskjálftarnir
Framh. af bls. 1
Gufudal, sem er skammt frá
sjálfu þorpinu. Þar býr rausn-
arbúi Guðjón Sigurðsson, bú-
fræðingur. Ibúðarhús hans,
sem er einlyft járnbent síein-
hús, mjög vandað, hefur
skemmst mjög mikið. Nær allir
innveggir, sem einnig eru járn
bentir, hafa sprungið npp
undir loft. Þá hefur norður
gafl hússins sprungið þvert
yfir og nær sú sprunga, sem
aðrar i húsi Guðjóns, í gegn.
Veggir hlöðunnar, sem stend-
ur nokkrum metrum fyrir
norðan, hafa einnig sprungið.
Þá hafa margar rúður i gróð-
urhúsum hans brotnað og heita
vatnsleiðslur i einu þeirra
fjellu niður.
Guðjón hefur tvær heita-
vatnsleiðslur frá tveim hver-
um, sem eru neðst í Reykja-
fjalli. Vatn í öðrum hvernum
þvarr svo að margir metrar
eru nú niður að vatnsborðinu.
tJr hinum hvernum var
vatnsstraumurinn orðinn mjög
lítill. Allt í kringum þessa
hveri hafa myndast nýir
hverir. Þá hefur hver sá er
Gunnar Bjarnason að Álfa-
felli notar við gróðurhús og
ibúðarhús minkað svo að ekk-
ert vatn var að fá úr honum
í allan gærdag. Gæti því þessi
skyndilega breyting á hverun-
um haft mjög afdrifarikar af-
leiðingar fynr gróðurhúsaeig-
endur þar. En i gærkvöldi var
ekki vitað um að fleiri gróður-
hús eða íbiíðarhús hefðu orðið
vatnslaus.
1 sjálfu þorpinu Hveragerði
höfðu ekki teljandi skemmdir
orðið á húsum, en sumsstaðar
um steypusamsetningar liefur
sprungið.
Nokkrar skriður liafa fallið
úr Reykjafjalli, en þó ekki vald
ið neinum skemmdum á verð-
mætum.
Tvö hús yfirgefin í gær
Á aðalhverasæðinu í Hvera-
gerði voru í allan gærdag að
myndast nýir hverir. — Við
húsið Rey'khólar, en þar býr
Valgerður, er hjer á árunum
bjó að Kolviðarhóli, höfðu i
gærkv. um kl. 7 myndast einir
sex eða sjö hverir. Hveraopin
voru álíka stór og tunnubotn.
Þeir skvetta leir. Nokkrir smá-
vatnshverir voru alveg við
dyrnar á húsinu. Á næstu lóð,
Ásgarði, höfðu margir hverir
myndast. Var einn þeirra í
miðju hliði á girðingu þeirri
er umlykur húsið og annar við
húsvegginn. — Var í gær-
kvöldi ákveðið að flytja skyldi
ólk úr húsum þessum. því að
ekki þótti öruggt að láta það
vera þar næturlangt. —- Fólki
þessu var útvegað pláss i skól-
mum.
70 til 80 metra gos
Hverinn Svaði, sem er í
hlíðum Reykjafjalls, var gífur-
íega mikill í gær. Gaus hann
miklum vatns- og leðjugosum
með nokkru millibili. Töldu
kunnugir menn þar, að gosin
myndu ná allt að 70 til 80 m.
hæð. Samfara gosunum voru
gífurlegar drunur og jarðhrær-
ingar þar næst. Þá skýrði
Guðjón Sigurðsson, búfræðing-
mr í Gufudal svo frá, að bann
og heirnamenn heiðu sjeð er
nýi hverinn, sem tæmdi hinn
virkjaða hver Guðjóns, mynd-
aðist. Sagði Guðjón að er hver-
inn hafi opnast, hafi gosið
upp kolssvört leðja í allt að 60
til 70 metra hæð, þrátt fyrir
veðrið, sem var þar í gær. —-
Gaus þessi hýi hver í allan
gærdag með um það bil 45
min. millibili og náði þá gosið
allt að 40 metrum.
Grýta, sem venjulega gýs 15
til 18 metra gosi á 2*4 til 3
tíma fresti, gaus i gær aðeins
eins til hálfsannars m. gosi.
Nýir hverir í þorpinu
1 allan gærdag voru að
myndast nýjir hverir á sjálfu
hverasvæðinu í þorpinu, eins
og fyrr segir. Á gangstig þeirn
sem liggur út í vesturhluta
þorpsins hafa t.d. myndast 2
hverir. Stærsti hverinn i þorp-
inu, Sandhólahver, sem ekii
ér vitað til að hafi gosið síðan
árið 1894, er hann myndaðist,
gaus í gærkvöldi um kl. 6
miklu vatnsgosi. Nokkrum
metrum frá þeim stað er við
stóðum nokkrir fjelagar mynd-
aðist skyndilega hver. Það var
einkennileg sjón að sjá. —
Ekkert benti til þess að liver
væri að myndast þar, en svo
sjáum við hvar jarðskorpan
sigur skyndilega niður og fram
rennur sjóðandi heit leðja.
Ekki er vitað til að breyting-
ar hafi orðið á borholum, sern
eru víða við Hveragerði.
Upplökin við HveiagertVi ?
I gærdag kom Steinþór Sig-
urðsson austur i Hveragerði
og hafði meðferðis jarðskjálfta
mæli. Samkvæmt mælingurn
Steinþórs var allt sem benti
til þes6 að upptök jarðskjálft-
anna væru skammt austur af
Hveragerði.
Jarðhræringa hefur orðið
vart um allt Ölfus, á Selfossi
og austur í Grímsnesi og Rang
árvöllum. Þá skýrði Veður-
stofan Morgunblaðinu svo frá,
að á mælum hennar hefði orð-
ið vart við 13 kippi hjer.
— Dagsbrún
Framh. af bls. 2.
laugardaginn, mun allt að því
tveir þriðju hafa fylgt tillög-
um þessum. Aðrir lundarmenn
sátu hjá. Er það Ijóst, bæði af
fundarsókninni og undirtektun
um undir atkvæðagreiðsluna,
að fjelagsmenn líta svo á, að
málið muni verða látið koma
til atkvæðagreiðslu, áður en
fjelagið hefur sagt sitt síðasta
orð um það, hvort fara skuli
út i verkfall eður eigi.
Handavinnusýningu opnaði
Sigrún Jónsdóttir á heimili
sínu, Skeggjagötu 17, í gær.
Munir á sýningunni eru: gobi-
lín, kúnstbróderí, flos, o. m. fl.
Munirnir eru allir nemenda-
vinna þeirra, sem Sigrún befir
kent í frístundum sínum í vet-
ur. Allir sem þegar hafa sjeð
þessi vinnubrögð ljúka miklu
lofsorði á frágang allan og sjer-
staklega röðun lita, og ná-
kvæma smekkvisi í listasaumi.
Sigrún hefir stundað nám í
kennaraskólanum í vetur, Og
er nú á förum til útlanda til
frekara framhaldsnáms í þeás-
ari greín og fleiru.