Morgunblaðið - 20.05.1947, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. maí 1947
Þorsteinn Jónsson
Norður-Vík
Hinn 13. mars s.l. ljest að
heimili sínu, Norður-Vík í Mýr-
dal, Þorsteinn Jónsson, upp-
kominn efnismaður og bústjóri
hjá foreldrum sínum. Andlát
hans bar snögglega að, og þung-
ur harmur steðjaði að öllum
jiákomnum, vandamönnum og
vinum. — Þorsteinn sál. Jóns-
son var fæddur í Norður-Vik 15.
ágúst 1915, sonur hjónanna þar,
Jóns Þorsteinssonar sýslufull-
trúa og konu hans Arnbjargar
Arnbjörnsdóttur. Hann var elst-
ur þriggja sona þeirra og helst
við bústörfin heima.
Þorsteinn sál. var ágætur
drengur, ýturvaxinn og vel gef-
inn — skapfastur og áhugasam-
ur um framfaramál öll. — Svo
má segja, að öll störf ljeku
hendi hans. — Ekki lá ævibraut
hans víða um lönd; aðeins var
hann eina vertíð til sjós á tog-
tara, þá 17 ára gamall. En hann
var uppbyggilegur maður á
æsku- og ættaróðali sínu. — Það
meintu felstir, að jarðræktin og
landbúnaður væri honum í eðli
borin, og byggt á því, hve dug-
lega, viturlega og glaðlega hann
stundaði bú foreldranna, laðaði
að sér samstárfsmenn og vand-
aði meðferð allra húsdýra. Hið
ágæta höfuðból, Norður-Vík,
blómgaðist því betur, sem meira
var þar framtak, vjelyrkja og
nýrækt. Þar var vænst sauðfje,
fyrirmyndar umhirða og sam-
starf. En þetta var skyldustarf-
ið og skyldustarfið leysti Þor-
steinn sál. af hendi með mikl-
um sóma, elskaður og virtur af
þeim, er hann átti að umgang-
ast.
En sterkastir þættir í eðli
hans voru til náms snúnir. Hann
var bráðnæmur og stálminnug-
ur, og þó hann gengi ekki á
skóla, aðra en barnaskólann, var
'hann vel mentaður maður.
Hann lærði, meðal annars,
ensku, svo vel, að enskir her-
menn spurðu um, hvort hann
hefði dvalið í Englandi. Og þó
hann væri dulur að skapi, fýlgd-
ist hann með í almennum fræði-
greinum, var rökfastur og víð-
lesinn. Hvar sem hann vann,
hvort heldur við kennslu, reikn-
ingsstörf eða fjelagsskap, til sjós
eða lands, var hann viðurkend-
ur fyrir vandvirkni og trú-
mensku. Þannig, var hann og á
heimili foreldra sinna vakandi
yfir því að öllum liði vel — og
athvarf þeirra umkomulitlu.
Það var eins og verkefnin
brostu við þessum vel gefna
dugnaðarmanni. — og honum
væri fyrirhugað öndvcgi á sínu
fornhelga höfuðbóli, Norður-
Vík, þar sem foreldrar og for-
feður höfðu setið, talsvert á ann-
að hundrað ára, með mikilli
sæmd og góðum orðstír. En
þann 13. mars s.l. dró fyrir allar
þær vonir — kallið var komið.
Sár söknuður og djúp kyrð
hvíldi yfir Norður-Vík, kaup-
túninu Vík og nágrenni — við
fráfall þessa mæta manns á
besta aldurskeiði — og mikið
skarð í fylking upprennandi
manna. Það er ritað og haft eft-
ir einum fornaldarspekingi, að
hann mat þá bræður sæla, er
beittu síðustu kröftum fyrir
skyldustarf í þágu móður sinn-
ar. Það má segja að Þorsteinn
sál. Jónsson beitti sjer fyrir
skyldustarfi sínu með sonarlegri
ástundun til síðustu ævistunda.
Og ævistarf hans var uppbyggi-
legt, vel unnið og hreystilega.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8
Leninsafnið er opið sex daga
vikunnar og miljónir manna
geta ekki annað en hugsað um,
hvaða áhrif þessi stöðuga Len-
insdýrkun hlýtur að hafa á
rússneskan almenning.
Formanni Blindravinafjelags
íslands, Þórsteini Bjarnasyni,
var s. 1. föstudag afhentar kr.
5.000,00 — fimm þúsund — sem
gjöf til Blindravinafjelags ís-
lands. Gjöfin er til minningar
um hjónin Agústu K. Arna-
dóttur og Guðlaug Þorbergsson
veggfóðrarameistara og vilja
gefendurnir ekki láta sín getið.
Gjöfin rennur í blindraheimil-
issjóðinn. Stjórn fjelagsins bið-
ur blaðið að færa gefendum
innilegar þakkir fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
Fimm mínúfna krossgáian
« 15 ^
:ES:
18 ,
_
SKYRINGAR:
Lárjett: — 1 hótar — 6 tóm
—- 8 ótta — 10 vesæl — 12
ráðamenn — 14 íþróttafjelag
— 15 fangamark — 16 skelf-
ing — 18 vaknar.
Lóðrjett: — 2 not — 3 tveir
ósamstæðir — 4 skelin •— 5
hneigir — 7 rekur saman —
9 óhreinindi — 11 sama og 8
— 13ískurs — 16 hljóm — 17
tveir samhljóðendur.
Lausn á seinustu krossgátu:
Lárrjett: — 1 óspáð — 6 tár
— 8 sór — 10 nár — 12 smá-
kaka — 14 ii — 15 in — 16
áma — 18 uglunni.
Lóðrjett: — 2 strá — 3 P. Á.
— 4 Árna — 5 essinu — 7
franki — 6 ómi — 11 Áki —
13 komu — 16 ál — 17 an.
Önnumst kaup og sölu
FASTEIGNA
Garðar Þorsteinsson
Vagn E. Jónsson
Oddfellowhúsinu.
Símar: 4400, 3442, 5147.
■ ■ ■ ' Y
Sjgurgeir Sigurjónsson
hœstaréttarjögmaáu*
-• >;vSkrífstofutimí 10-12 og 1-6.
AðoUtrœti 0 5f*ni 1043
Kauphöllin
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna. Sími 1710.
Gæfa fylgir
trúlofunar
hringunum
frá
SIGURÞÓR
Hafnarstr. 4
Reykjavík.
Margar gerZir.
Sendir gegn póstkröfu hvert
á land sem er.
— SendiS nákvœmt mál —
Verkamenn neifa að
/
segja upp samningum
FUNDUR var haldinn í Verka
lýðsfjelaginu á Eskifirði s. 1.
sunnudag. Til umræðu var
krafa Alþýðusambandsins um
uppsögn samninga. A fundin-
um feldu verkamenn þessa
kröfu með 31 atkvæði-gegn 24.
Umfaitpnlkiar
kröfugöngur fyrir-
hugaðar í Austur-
Vín í gær.
SÓSfALISTAFLOKKURINN
í Austurríki gengst fyrir kröfu
göngum í Vín næstkomandi
miðvikudag í því augnamiði
að hafa áhrif á fulltrúanefnd
fjórveldanna, sem nú situr á
rökstólum í Vín til þess að
ræða friðarsamningana við
Austurríki. Kjörorð kröfu-
göngunnar verður: „Leyfið
okkur að lifa!“ Fulltrúar frá
öllum hjeruðum Austurríkis
munu taka þátt í kröfugöng-
unni, klæddir þjóðbúningum.
Það var tilkynnt í dag, að
fulltrúanefndin hefði heitið
því að ráðgast við austurríska
sjerfræðinga, þegar farið verð-
ur að ræða um ráðstafanir á
eignum Þjóðverja. — Reuter.
Minni kolafram-
leiðsla fyrstu 5 daga
vinnuvikuna
London í gærkvöldi.
SHINWELL, eldsneytis-
málaráðherra Breta, hefur nú
skýrt frá því, að als hafi verið
unnin 3,750,000 tonn af kol-
um úr jörðu í Bretlandi fyrstu
fimm-daga vinnuviku námu-
manna. Afköstin í vikunni á
undan námu meir en fjórum
miljónum tonna.
Shinwell hefur sagt blaða-
mönnum, að árangur s.l. viku
sýndi ekki á rjettan hátt, hver
áhrif fimm daga vinnuvikunn
ar verði, enda hafi verkföll í
Durham hjeraði, frídagur í
Skotlandi o. fl. dregið úr af-
köstum.
Hann telur ókleift enn sem
komið er að spá nokkru um ár-
angurinn í framtiðinni
SKIPAUTGtKÐ
RIKISINS
Esja
hraðferð vestur og norður til
Akureyrar föstudaginn 23. þ.
m. Flutningi veitt móttaka á
þriðjudag. Pantaðir farseðlar
óskast sóttir á miðvikudag.
n • frfc
„ðvcrrir
til Sands, Ólafsvíkur, Grund-
arfjarðar, Stykkishólms, Króks
fjarðarness og Salthólmavíkur.
Vörmnóttaka í dag.
E.s. „Anne“
fer hjeðan föstudaginn 23. maí
maí beint til Siglufjarðar. Það-
an fer skipið til Hamborgar og
Kaupmannahafnar.
H.f. Eimskipafjel. ísiands
M.s. Dronning
Abandrine
fer til Færeyja og Kaupmanna-
hafnar á morgun (miðviku-
dag). Fylgibrjef og farmskír-
teini yfir vörur komi fyrir kL
5 1 dag.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN
Erlendur Pjetursson
X-9
Eftir Roberf Sform
OUXEQLin
VíHAT'í *fHl4> ABOUT
GETTINö EVpKl WITH
LAWVEK PLEED AND
1HAT PEDERAL
AöENT?
S
i1 lU
A ö’TROKE 0F LUCK,
BABV...PHIL CORRlöAN
15- AT /MV PLACE, RI6HT
NOW- HE'£ SUFFERIN6
FROM AMNEÖIA!
r PLEED?.LIVER’LIP5>!
LlöTEN, WE'RE IN HOT
WATER-THE FED*
ARE ON THE TRAlL
OF THAT POUóH!
£ I DON'T THINK HE'O DARE
TO í-QUEAL... BUT /HAVBE I'D j
BETTER 6PLIT WITH Hl/VI - j
T0 $HUT HI5> AlOUTHi^X)
Loreen: Hvað meinarðu með, að þú ætlir að jafna
sakirnar við Pleed og þennan leynilögreglumann?
— Kalli: Smáheppni, elskan mín. Phil Corrigan er
staddur heima hjá mjer. Hann hefir mist minnið!
(Hringir) Pleed, ert þetta þú? Kalli hjerna meginn.
Það er komið í óefni fyrir okkur. Leynilögreglan
veit hvar peningarnir eru. — Pleed: Hvað segirðu?
Ekki kjaftaðir þú frá. Hittu mig á skrifstofunni eftir
hálftíma.'