Morgunblaðið - 22.07.1947, Side 8

Morgunblaðið - 22.07.1947, Side 8
8 MORGUTSBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. júlí 1947 , Útg.: H.f. Árvakur, Rrykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson 'Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands. kr. 12,00 utanlands. f lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Snorrahátíðin í Reykholti ÖLLUM sem voru á Snorrahátíðinni í Reykholti á sunnudaginn var, mun koma saman um, að vel hafi tekist með þá sjerstæðu samkomu tveggja frænd- og vinaþjóða. Yfir allri hátíðinni hvíldi blær innileikans, sem mun geymast í hugum þeirra er þar voru, eins lengi og orðin sem þar voru töluð. Og var þar þó margt vel sagt. Við íslendingar er þarna vorum fengum í veganesti eftir daginn, þá bjargföstu sannfæring, sem aldrei verður hróflað við, að þegar Norðmenn, er þekkja sögu okkar og sína eigin að sama skapi, tala vinarorð í okkar garð, þá eru þau orð sögð í fullri meiningu. Því er óhætt að treysta. Við skiljum líka eftir þenna dag, þessa hátíð, þessa samkomu þjóðanna, hver eru upptökin að þeim mis- skilningi, sem á stundum hefur sáð nokkrum kala í ís- lenska hugi, að Norðmenn ætli sjer að tileinka sjer Snorra Það er sannfæring þeirra, að án Heimskringlu hefðu Norðmenn vart getað endurheimt frelsi sitt. Svo fast kvað hinn víðkunni fræðimaður Worm Múller að orði, er hann flutti ræðu í Reykholti fyrir 5 árum. En svo sagði Shetelig prófessor á sunnudaginn var, að enginn erlendur maður hefði nokkru sinni gert Norð- mönnum eins mikið gagn eins og Snorri Sturluson. Og enginn erlendur maður gæti nokkurn tíma átt eftir að vinna slíkt afrek fyrir Norðmenn. Þeir hafa talið Snorra að því leyti sinn mann að þeir geta ekki hugsað sjer norska þjóð án verka hans. Olav krónprins komst að orði á þá leið, í rseðu sinni í Reykholti á sunnudaginn var, að Norðmenn væru ekki hingað komnir með Snorrastyttuna til þess að auka á hróður hins mikla sagnritara. Því hann hefði reist sjér minnisvarða, með verkum sínum, sem óbrjótgjarnastur reyndist allra. En minnisvarðinn væri reistur, sem þakk- lætisvottur norsku þjóðarinnar fyrir Snorra og verk hans. Sá þakklætisvottur ætti, ef vel væri, að treysta vináttuböndin á milli frændþjóðanna Norðmanna og íslendinga. Með þessum hug er myndin reist, og hún hingað gefin. Og með þessum hug er við gjöfinni tekið frá hendi Islendinga. Eitt af því, sem vakti sjerstaka athygli í ræðu Shete- ligs prófessors á sunnudaginn, var það, er hann sagði að meðal Norðmanna væri íslenska þjóðin oft talin eða skoðuð sem eldri en hin norska. Hann komst þannig að orði í ræðu sinni: „Þó íslenska þjóðin sje yngsta greinin á hinum nor- ræna stofni, þá finnst oss Norðmönnum jafnan að þjóð- in sje eldri, líkust móður, sem hefur miðlað oss af speki sinni og fornari minningum, en vor eigin þjóð hefur varðveitt“. Það er þetta hugarfar til íslendinga sem kemur oft fram meðal hinna norsku fulltrúa, sem hingað eru komn- ir í heimsókn. En einmitt þetta leggur okkur skyldur á herðar, gagnvart frændum okkar, að bregðast ekki því trausti í einu nje neinu, sem þeir bera til okkar. Við getum líka haft í minni orð skáldsins okkar ást- sæla Matthíasar Jochumssonar, er hann í fyrsta sinn kom til Noregs fyrir 76 árum og sagði: „Mjer finnst jeg sjái móður minnar móður — jeg málið þekki svip og alla drætti“. Og eins mættum við segja sem hittum hina norsku Þgfesti sem hjer eru. Svo líkir eru þeir íslendingum í sjón ' ög' framgöngu að ekki er hægt að greina þá frá íslend- ' ingiim. Manni getur jafnvel sýnst að sumir þeirra sjeu ,,’íSlénskari“ en heimamennirnir sjálfir.. ÚR DAGLEGA LÍFINU Til sóma. SNORRAHÁTÍÐIN í Revk- holti á sunnudaginn var öllum til sóma er að henni stóðu. Veðr- ið var dásamlegt og átti vitan- lega sinn stóra þátt í, hve há- tíðahöidin fóru vel fram. Athöfn in á Reykholtshlaðirjj var í senn virðuleg og hrífandi. En undirbúningurinn og ráð- stafanir til að gera þessa sam- komu sem glæsilegasta, hefði verið til lítils, ef þátttakendur — almenningur — hefði brugð- ist. Framkoma hátíðargesta var til sóma. Það er alveg óhætt að reikna með því, að þegar mikið liggur við, þá er sómi að íslend- ingum samankomnum. Norðmenn ánægðir. Á LEIÐINNI HEIM frá Reyk holti mátti heyra á hinum norsku gestum, að þeir höfðu ekki orðið fyrir vonbrigðum. — Gleðin lýsti á hverju andliti og þeir fóru ekki í launkofa með það, að þeim þótti hafa borgað sig að koma alla þessa löngu leið til þess að dvelja nokkra klukku tíma í Reykholti, þar sem Snorri bjó. Norskur blaðamaður sagði við mig á heimleiðinni: „Þetta var heilög stund, sem jeg mun aldrei gleyma á meðan jeg" lifi.“ En svo er jbað skipulagið. EN ÞÓTT að Snorrahátíðin hafi í alla staði farið svo fram, að var var á betra kosið, þá kom margt í Ijós í sambandi við hana sem við ættum að gera okkur ljóst. Úr sumu getum við bætt, en öðru ekki, eða seint. íslendingar eiga ákaflega bágt með að halda settar reglur og okkur er eitthvað betur lagið en að skipuleggja. Það vill svo oft alt fara í handaskolum. Hver otar sínum tota. ÞAÐ HAFÐI verið ákveðið að bíla-lestin með gesti Snorra- nefndar hefði forgangsrjett að vegunum frá Akranesi að Reyk- holti. Þetta var nauðsynlegt til þess að halda mætti þá tíma- áætlun, sem gerð hafði verið. En það fór eins og oft vill verða, að það otaði hver sínum tota og áður en varir voru marg ir bílar, sem voru algjörlega ó- viðkomandi gestum Snorra- nefndar komnir inn í lestina. — Þetta olli töfum. Ekki aðeins fyrir gestabílana, heldur og fyr- ir þá bíla, sem tróðu sjer inn í lestina. Menn geta verið öruggir um, að þegar reglur eins og þessar eru settar, þá er það gert til þæginda fyrir alla aðila og það er óhætt að fylgja settum regl- um út í ystu æsar. Þarft tæki. MAGNARI er þarft útvarps- tæki. Það magnar tal manna og önnur hljóð, þannig að hægt er að tala til mikils mannfjölda á stóru svæði þannig að allir heyri það, sem mælt er. í Reykhoíti var notaður slíkur magnari á sunnudaginn var með góðum ár- angri. Þetta er orðin nokkuð gömul uppfinding svo ætla mætti, að flestir kannist nú orðið við að þetta góða og geysihaglega tæki er til. Sjerstaklega þeir sem fyr- ir mar.namótum standa. En því þá ekki að nota það þar sem ná þarf til mannfjölda t. d. í stórum salarkynnum eins og á Hótel Borg, þar sem ómögu legt er að heyra til ræðumanns frá öðrum enda salarins til hins. Skrýtið fyrirkomu- lag. — ÞAÐ ER FULLYRT að fyrir- komulagið á Borginni sje það, að sjerstakt leyfi þurfi hjá Rík- isútvarpinu til þess að koma upp magnaratækjum og senda ræð- ur manna í hófum gegnum há- tala tii þess að allir geti hlustað. Það er lýgilegt, að þessu sje þannig háttað, en þó mun fyrir- komulagið vera þannig. Lög sem þarf að endurskoða. ÞAÐ ÞARF hið allra fyrsta að endurskoða lögin um útva^ps og símaeinokun. Ekki á þann hátt að taka neitt af ríkinu, eða þeim stofnunum, sem reka fyrir tæki eins og síma og útvarp fyr- ir ríkið, heldur til hins að gefa landsmönnum kost á að njóta þeirra þæginda, sem nútíma- tæknin hefur upp á að bjóða. Lögin um útvarp og síma eru orðin úrelt og það sem verra er, þau hefta eðlilega og sjálfsagða þróun. Það hafa orðið gríðar- lega miklar framfarir á útvarps tækjum í styrjöldinni. Við höf- um ekki sjeð nema lítið af því. Nekkur dæmi. FYRIR NOKKRUM árum var farið að senda út frá svonefnd- umFM-útvarpsstöðvum. Þessar stöðvar og móttökutæki eru að ýmsu fullkomnari en gamla út- varpið. í FM útvarpi koma trufl anir ekki til greina. — Hvað líður því að koma upp talstöðv- um, ódýrum talstöðvum á af- skekta sveitabæi, jafnvel smá- stöðvum, sem bændur gætu bor- ið á sjer í leitum, eða við önnur störf. Og ekki hefur það heyrst, að nokkrum hafi dottið í hug, að bjóða bíleigendum upp á að hafa símatæki í bílum sínum. Það gæti orðið til þæginda oft á tíðum. Nei, það er einhver kyrkingur í þessum málum öllum og það er vegna þess, að mönnum er gert of eríitt fyrir. of erfitt fyrir að kynnast nvj- ungum á þessu sviði og hagnýta þær. MEÐAL ANNARA OROA .... ., —— —— ■ '■ ■ ——i« 1 22 ár varð ítalska þjóðin að búa við einræðisstjórn Mússó- línis. Loks hefur verið komið á lýðræði í landinu, en margar hættur steðja að hinu unga ríki. Mesta hættan stafar af yfirráða græðgi fárra manna. Hjer fer á eftir brot á lýsingu af ítölsku stjórnmálalífi eftir Jörgen Bast. Á Ítalíu er hægt að fylgjast rrieð því að það er erfitt að byggja lýðræði upp frá rótum í landi sem hefur verið án þess i mörg ár. Það er varla vafi á því að mikill meirihluti ítölsku þjóð arinnar óskar eftir lýðræði og nú í bili er það aðeins lítill minni hluti sem veldur stjórnarvöldun um vandræðum. Hingað til hefur mesti óróa- belgurinri í ítölskum stjórnmál- um verið foringi Qualunquist- anna, Giannini, en hans flokkur vann mikla sigra í bæjarstjórn- arkosningunum síðustu, en nú er hann farinn að hverfa nokk- uð aftur fyrir í stjórnmálalífinu og mikið frægari en hann er orðinn sikileyski stjórnmálamað urinn Finoccharo Aprile, sem stjórnar skilnaðarflokknum á Sikiley. Sjálfstæð Sikiley. Þegar Mússólíni f jell var hann í stjóinmálunum eins og óskrif- að blað, en strax þegar banda- menn voru að bérjast á eyjunni >i§ a i vok að verjast fór hann að bera fram kröfur sínar um sjálfstæði Sikileyjar, og hann vann þegar í stað marga fylgjendur. í byrjun voru þessar kröfur iíklega gerðar aðeins til að bjarga Sikiley út úr klemmunni á síðustu stundu. Það mátti sjá fram á það, að Þjóðverjar töp- uðu styrjöldinni og þá mátti bú- ast við að Ítalía, sem var öfugu rr.egin yrði látin borga geysi- miklar stríðsskaðabætur og þá höfðu flokksmenn Apriles áætl- að að Sikiley slyppi við að borga skaðabætur með því að ganga I lið með bandamönnum. Flokksmenn Apriles hafa not- að sem frelsistákn Normannana, sem endur fyrir löngu flutt- ust til Sikileyjar og bent á að þá var eyjan fullkomlega sjálf- stæð um tíma og alt gekk vel. Þeir rannsaka það líka hag- fræðilega og segjast hafa komist að þv' að Sikiley geti lifað sem óháð ríki. Um tíma sat Aprile í fangelsi en í rauninni var ekki hægt að ásaka hann um neitt samkvæmt lögum og þar sem Ítalía átti að heita orðin lýðræðisríki var hon um sleppt út aftur. Það voru sett lög um að fas- istar og konungssinnar skyldu vera ófriðhelgir hvar sem þeir sæjust og fólk bjóst við, að sikil- eysku skilnaðarmennirnir yrðu á iialíu oinnig ófriðhelgir. En svo varð það ckki og Aprile talar jafnt sem áður á þingfundum í Róm. Burt með lýðræðið. Og þær ræður eru ekkert sápu vatn. Jeg gleymi ekki einu sinni þegar jeg hlustaði á hann skamma út sjálfa þingmennina. Hann sagði: „Aldrei hefur nein spiltari samkoma setið, alt frá því franska þingið á byltinga- tímunum kom saman.“ Hann hjelt áfram og byrjaði nú að telja upp ráðherrana og glæpi þá, sem þeir höfðu drýgt. „Ensio Vanovi ráðherra fyrir ut anríkisverslun hefur dregið sjer 5 milljón lírur sem fulltrúi Landsbankans. Pietro Campili, fjármálaráðherra hefur misnot- að stöðu sína með braski við kauphöllina. Á Emilio Serena samgöngumálaráðherra má sanna, að hann ér morðingi o. s. frv.“ Aprile er mikill stjórnmála- maður. Hann hefur sjéð’ að bánri gat ekki fundið betri tíma til að kasta þessum sprengjum sínum, en einmitt þegar þingið var að deila um nýju stjórnarskrána. Margir hefðu kannski talið að deGasperi hefði reynt að hreinsa þennan ljóta áburð af stjórninni, en hann gerði það ekki. Ástæðan vár að þetta vakti svo mikla eít- Framh.'á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.