Morgunblaðið - 07.10.1947, Qupperneq 12
12
MORGUHBLAÐltt
Þriðjudagur 7. okt. 1947
FJARSKIPTI
fimm mínútna krossgáian
SKÝRINGAR
Lárjett: — 1 duglega — 6
eldstæði — 8 kennari — 10 hús
— 11 spyrnir — 12 leit — 13
eisn — 14 for — 16 litar.
Lóðrjett:---2 þvarg — 3
geðveik — 4 skáld — 5 rödd
— 7 slasaða — 9 segja fyrir —
10 nútíma þægindi — 14 orð-
flokkur — 15 guð.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 fagra — 6 gró
— 8ær — 10 ak — 11 frændur
— 12 ar — 13 ma — 14 bar —
16 húrra.
Lóðrjett: — 2 ag — 3 grund-
ar — 4 ró — 5 kæfan — V skráð
•— 9 rrr — 10 aum — 14 bú -—
15 rr.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8
Járnið og kolin eru til, en það
er ekki hægt að breyta þeim í
vinnuvjelar.
Óþrjótandi fiskimið eru bæði
í Norður íshafinu fyrir norð-
vestan Rússland og í Okotska
hafinu fyrir austan Rússland,
en fólkið hefur ekki skip til
þess að veiða. Og skógurinn
fær að standa að mestu óhreyfð
tir vegna þess að það eru ekki
til tæki til að höggva hann.
Eitthvað hlýtur að vera rangt
í þessu öllu. Það getur ekki ver
ið rjett, xið þjóðin, sem býr í
auðugasta landi veraldarinnar,
sje fátækasta og aumasta þjóð-
in. Það getur ekki verið rjett,
að landið eigi að liggja í órækt
á meðan fólkið kallar á brauð.
Það getur ekki heldur verið
rjett að járnið eigi að líggja
óhreyft í jörðu, meðan fólkið
vantar verkfæri og vjelar.
Eitthvað er rangt við þetta
allt og einhvers staðar hlýtur
að vera að leita missmíðar í lífi
þjóðarinnar. Og missmíðin er
sjálft þjóðskipulag þeirra. Það
er orðið rotið og ónýtt og hag-
kerfið, sem þeir hafa ætlað að
fylgja hefur reynst blekking
ein. Það gat ekki leitt til ann-
ars en ógæfu.
Framh. af bls. 10
Sje ekkert af þessu ádráttur
um niðurskurð 1947, þá er ekk-
ert til, sem hægt er að nefna
því nafni.
Fimta ástæðan um sölu-
tregðu og verðlækkun afurða
í haust vegna of mikils fram-
boðs er fundin upp af forvígis-
manni karakúlpestanna og tek-
in upp af nefndinni.
Hún gæti haft við rök að
styðjast, ef nú væri of mikill
matur til í heiminum og örð-
ugt væri um sölu matvæla. Því
er nú ekki til að dreifa, því víða
um lönd er yfirvofandi hung-
ursneyð og jafnvel aldrei lík-
legri söluhorfur úr landi.
En sauðfjársjúkdómanefnd
gerir svo viturlega áætlun, að
nú í haust megi ómögulega
drepa vegna fjárskifta nema 26
þúsund fjár, en hitt sje sjálf-
sagt, að farga í sama skyni 83
þúsund 1948. Þetta á því að
þýða það eftir rökum nefnd-
arinnar, að það verði svo miklu
betri markaður fyrir kjöt og
aðrar afurðir 1948 en nú, að
þá sje öllu óhætt.
Aðrir menn telja heldur
skynsamlegra að jafna þetta og
taka núna 48 þúsund, svo ekki
þurfi að farg^ nema 61 þús.
1948, af þessum sökum.
Flestir aðrir en nefndin
munu líta svo á, að nú sje álit-
legri markaður fyrir afurðir en
verða muni 1948. Þessi rök
nefndarinnar eru þá öfug við
það rjetta, nema því aðeins, að
ætlunin sje sú, að hætta að
mestu við fjárskifti 1948 og
nota áætlunina um niðurskurð
á 83 þúsund fjár, til þess eins
að blekkja fjáreigendur.
Alt ber því að einum brunni
í þessu máli. Hann er sá, að
bændurnir á umræddu svæði
hafa siðferðilegan og hagsmuná
legan rjett til röggsamlegra að-
gerða. Það er þegar búið að
sýna þeim órjett.
Þeir geta búist við því eftir
framkomu og afskiftum sauð-
fjársjúkdómanefndar, að hún
ætli að ofurselja svæðið frá
Hjeraðsvötnum að Miðfirði
garnaveikis faraldrinum í við-
bót við mæðiveikina. Þeir eru
varnaraðilar fyrir sjálfa sig og
aðra í þessu máli og þeir hafa
þegar hafið samtök, sem eru
þeim til heiðurs, en mundi vera
til mikillar vanvirðu að hopa
frá.
Ef Alþingi gerir rjett þessara
manna minni en annara, þá skil-
ur það ekki sinn vítjunartíma og
vonandi kemur aldrei til þess.
21. 9. 1947.
J. P.
Framh. af bls. 1
skipta heiminum í tvo andstæða
hluta. Sýnir það Ijóslega, að
kommúnistaflokkar um heim
allan eru aðeins verkfæri í hönd
um herranna í Moskva.
Veikir aðstöðu kommúnista
Almennt er álitið, að þessi yf-
irlýsing um alþjóðasamtök
kommúnista veiki heldur að-
stöðu kommúnistaílokka Frakk
lands og ítalíu einmitt nú þeg-
ar búast hefði mátt við, að þeir
færðust í aukana er kuldar og
matarleysi vetrarins eru að fær-
ast yfir.
Pólitísk skyssa
Bandarísk blöð eru flest sam-
mála um, að það hafi verið lítið
herbragð hjá kommúnistum að
lýsa yfir stofnun alþjóðabanda-
lagsins, því að kommúnistaflokk
ar alls heimsins hafi hvort sem
er verið stjórnað frá Rússlandi,
en nú sje það aðeins orðið aug-
ljósara en áður og kommúnist-
um þýði ekki að bera það af
sjer.
Tómar blekkingar
Það hefur verið mikill grunur
á undanfarið, að Komintern hafi
ekki verið uppleyst í raun og
veru. Ifjeðan í frá ætti ekki að
leika nokkur vafi um það, að yf-
irlýsingar Rússa 1941 um upp-
lausn þess hafa verið tómar
blekkingar.
Hvað Marshall áætluninni við
víkur er talið, að þessir atburð-
ir verði til þess, að bandaríska
þingið hraði hið mesta sam-
þyktum um lánveitingar til Ev-
rópuþjóðanna, því að flestum
þingmönnum þar mun verða
augljóst, hve kommúnistahætt-
an yfir Evrópu er orðin mikil.
EINRÆÐI ÓGNAR FRIÐNUM
WASHINGTON: — Sen
Brewster hefur látið svo um
mælt, að á meðan einræðis-
stjórn sje í Rússlandi sje hætta
á ófrið.
Minnlngarorð —
Frú Guðrún Guðmundsdóttír
Fædd 4. júlí 1893.
Dáin 26. september 1947.
I DAG verður til moldar bor
in sú kona, sem búin var þeim
fegurstu kostum, er íslenska
konu má prýða.
Frú Guðrún Guðmundsdótt-
ir var fædd 4. júlí 1893 að
Urriðafossi í Flóa. Foreldrar
hemaar voru Kristín Andrjes-
dóttir og Guðmundur Ásmunds
son. Þau hjón fluttust til
Reykjavíkur, ásamt börnum
sínmn, árið 1901. Var heimili
þeirra eitt myndarlegasta og
gestkvæmasta heimili bæjarins
og fyrnist seint í huga eldri
Reykvikinga. Það breiddi faðm
inn á móti þreyttum langferða
mönnum, í búsýsluerindum til
höfuðstaðarins, löngu áður en
nútímatæknin leiddi hestinn af
þjóðvegum landsins. Á þessu is
lenska heimili, Laugavegi 70,
fundu allir þann yl og hlýju,
sem endurnærði og veitti þreytt
um hvíld. Umvafin ástúð for-
eldra sinna og systkina, eftir-
læti allra er henni kyntust, ólst
Guðrún upp á þessu svipmikla
heimili. Þar mótaðist hún því
göfuga og íslenska yfirbragði,
sem einkendi hana lil hinnstu
stundar.
Árið 1919, 8. nóvember, gift
ist Guðrún eftirlifandi manni
sinum, Ágústi Markússyni vegg
fóðrarameistara. Um 14 ára
skeið var heimili þeirra á
Frakkastíg 9. Það var auðugt
af ástúð og innileika, og glað-
legt viðmót brosti við öllum er
þangað komu. Þau hjónin eign
uðugst fjögur börn, Hörð er nú
stundar listmálaranám í Frakk
landi, Guðmundu Kristínu, Jó-
hann og Erlu, er dvelja í heima
húsum. Þessum yndislega barn
hópi, manni sinum og heimili,
fórnaði Guðrún öllum kröftum
sínum til hins síðasta. Þau voru
hennar yndi, sú lífshamingja,
sem hún mat mest.
Fáar mæður liafa fundið það
betur en.Guðrún, að hið óeigin
gjarna starf hennar var metið
og þakkað af börnum liennar
og eiginmanni. Taldi hún sig
því hafa hlotið mikla gæfu í
þessu lifi.
Það er hlutskipti allra, að
stíga spor feðra sinna og mæðra
til hinstu hvíldar. Og degi var
farið að halla, enda áfangi Guð
rúnar orðinn ærið drjúgur. Og
að kvöldi dags er gott að hvil
ast. Ber því að sætta sig við
það sem orðið er, en geyma
minningu hennar í þvi trúar-
trausti á hið eilífa ljós lifsins,
sem aldrei hvarf henni af auga.
Innilegasta hjartans þakk-
læsti, fyrir margra ára viðkynn
ingu, færi jeg þessari tígulegu
konu, sem ávallt bar með sjer
birtu kærleikans og móðurlegr
ar umhyggju.
Albert J. Finnbogason.
Framh. af bls. 7
lita skraut og misliti mannfjöld
inn á „Clairbois“ gleymist ekki.
Yfir öllum þessum eldum svif-
ur andi skátahreyfingarinnar
— þetta „eitthvað“ sem tengir
okkur saman og knýr skátana
til að koma frá fjarægustu
hornum veraldar til þess að
sitja við eldana, til þess að
tengja þar hönd við hönd og
horfa í glæðurnar og verma þar
vaxandi þrá eftir frið og
bræðralagi.
Helgi S.
, —---------
Fyrsti sendlherra Banda-
ríkjanna í Pakssfan
Washington.
PAUL H. ALLING, ráðu-
nautur Bandaríkjanna við Sam-
einuöu þjóðirnar, hefur verið
skipaður fyrsti sendiherra
Bandaríkjanna í Pakistan. —
^ Eflir Roberl Slorm
*
tlVER-LIP5 HA5 ELUDEO CAPTURE...ONLV TO
STÖMBLS INTO A STEEL-T007HED BEAR TRAP-
.cjn 1 ý-16, Kirg .Fcaturcs Syndicatc, lnc., World rights ftscfvca' '
NOW, NUMBED BY PAIN ANDA
FALLINö TEA1PERATURE, Ml$
INERT FORM |$ ENVELOPED
BY A EWIRLINÓ 6N0W570m
AlEANWHILE, PHIL CQHF&IZ V/lTH 5TATE
MAV 1 HAVE Y 5HEIN CRlTICAL
A WORD WlTN SHAPE ... PLEfifif
FRALE , J BE BRiCF! J’LL r
DOCTOR? 7 00 IN WHH r-
vou Js
TR00PER5
KEEP IN
TOUCri! X'LL
BE AT THE
H05PITAL!
rwe HAVE ALL COUNTY
' R0AD£ BOKED IW(BUT
r POUBT 1F UV£R-LIP£
WILL FIND \\\9 WAV 0UT
. OF THl£ É-TORMj
Kalli hefur komist undan lögreglunni, en orðið
fastur í bjarnargildru. En þjáningarnar og kuldinn
við lögregluna. Einn lögreglumannanna segiíi; Það
eru verðir við alla vegi, en jeg efast um að' Kalli
hússins og spyr, hvort hann geti fengið að tala við
Frale. — Læknirinn: Hún er hættulega meidd. —
hafa gert það, að liðið hefur yfir hann í snjónum.
Meðan þannig er komið fyrir bófanum ræðir Phil
rati í þessu veðri. Bing: Hafið þið samband við mig.
Jeg verð á sjúkrahúsinu. — Hann ekur til sjúkra-
Þjer megið ekki staldra við lengi. Jeg skal koma inn
með yður.